Morgunblaðið - 14.03.2000, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR14. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Leiðbeinendur frá Aspen í Colorado með námskeið fyrir fatlaða í Hlfðarfjalli
Morgunblaðia/Björn Gíslason
Guðmunda Finnbogadóttir frá Akureyri nýtur aðstoðar Rich Granson, en myndatökumað-
urinn Michael Stoner fylgir fast á eftir og festir ferðina á filmu. Þeir hafa báðir mikla
reynslu af því að leiðbeina fjölfötluðu fólki varðandi útiveru.
Elma Guðmundsdóttir, 8 ára, frá ísafirði, með mömmu sinni, Hörpu Bjömsdóttur, á fleygi-
ferð niður brekkuna. I kjölfarið fylgir Amanda Boxtel, Ieiðbeinandi, en þær Elma og Am-
anda eiga sama afmælisdag og eru góðar vinkonur. Amanda lenti í slysi og lamaðist, en sér
nú um alla dagskrá hópsins sem kallar sig Challenge Aspen.
Mesti sigurinn fólginn
í að trúa á sjálfan sig
„ÞETTA var ótrúleg helgi, skemmti-
leg og afar gefandi," sagði Amanda
Boxtel, einn af leiðbeinendum frá
Aspen í Colorado sem sáu um nám-
skeið íyrir fatlaða í Hlíðarfjalli við
Akureyri um helgina.
Áhersla var lögð á að foreldrar og
aðstandendur sæktu námskeiðið sem
og þeir sem starfa að málefnum fatl-
aðra, skíðakennarar og starfsfólk
skíðasvæða. Alls voru um 80 manns á
námskeiðinu og voru skipuleggjend-
ur, forsvarsmenn Vetraríþróttamið-
stöðvarinnar á Akureyri og íþrótta-
samband fatlaðra, ánægðir með
þátttökuna. Af þessum 80 voru um 35
fatlaðir sem brugðu sér á skíði í Hlíð-
arfjalli með aðstandendum sínum, en
þátttakendur voru á aldrinum frá
þriggja ára upp í sextugt.
Auk Amöndu voru fimm aðrir leið-
beinendur á námskeiðinu, Houston
Cowan, sem hefur mikla reynslu af
skíðaíþróttum fatlaðra, m.a. blindra
og sjónskertra, Jim Finch sem missti
báða fætur í slysi en hefur keppt í
alpagreinum á Olympíuleikum,
Michael Stoner og Rich Ganson,
kennarar með mikla reynslu í að leið-
beina fjölfötluðum varðandi útiveru
og Paul Speigh sem er lamaður eftir
slys og hefur sérhæft sig í útbúnaði
fyrir fatlaða.
Mikilvægt að hafa
trú á sjálfum sér
„Ég vona og er raunar sannfærð
um að okkur hefur tekist að breyta líf!
sumra þeirra sem tóku þátt í nám-
skeiðinu. Margir eru smeykir og vita
ekki hvað þeir geta, en við reynum að
sýna fram á að þó fólk sé fatlað, jafn-
vel bundið hjólastól, getur það margt
gert. Það komust margir að því að
það er nánast hægur vandi að skíða
niður brattar brekkur, fijáls eins og
fuglinn og það var virkilega gaman að
sjá breytinguna sem varð hjá mörg-
um þátttakendunum, írá því við byij-
uðum og þar til námskeiðinu var lok-
ið. Þeir voru stoltir og höfðu miMa trú
á sjálfum sér, en það er afar miMl-
Erna Friðriksdóttir, 12 ára, frá Egilsstöðum, nýtur hér aðstoðar Svövu
Viggósdóttur úr vetraríþróttanefnd íþróttafélags fatlaðra.
Breki Arnarsson, þriggja ára strákur frá Dalvík, var yngsti þátttak-
andinn á námskeiðinu og er ekki annað að sjá en hann sé himinlifandi
yfir því að fara á skíði. Rich Granson, kennari frá Aspen í
Colorado, er að búa hann af stað.
Jim Finch missti báða fætur í slysi en lætur það ekki aftra sér frá því að
fara á skíði, en hann hefur m.a. keppt íalpagreinum á Ólympfuleikum.
Hér er hann að ræða við Björn Erlingsson úr Garðabæ sem er með syni
sínum, Tómasi, sem er á tíunda ári, en lengst til hægri á myndinni er Ax-
el Gunnlaugsson frá Reykjavík sem missti annan fótinn í fyrrasumar en
stundar engu að síður ski'ðaíþróttina af kappi.
vægt. Tilgangur okkar er að skapa
möguleika fyrir fólk til að stunda úti-
veru að vetrarlagi og það tókst í Hlíð-
arfjalli, þar var miMð af áhugasömu
fólki sem fékk að spreyta sig og sýna
hvað í því býr. Það er mest um vert að
fólk trúi á sjálft sig, það er mesti sig-
urinn. Ég var snortin yfir því að sjá
öll þessi ánægðu og stoltu andlit eftir
velheppnaðan dag á sMðum,“ sagði
Amanda.
Sælusvipurinn
ógleymanlegur
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
framkvæmdastjóri íþróttasambands
fatlaðra sagði að unnið hefði verið að
því síðustu ár að byggja upp aðstöðu
fyrir fatlaða til að stunda vetrar-
íþróttir. Hún sagði að forsvarsmenn
allra sMðasvæða landsins væru nú
opnir fyrir því að byggja þessa að-
stöðu upp, en í kjölfar heimsóknar
leiðbeinendanna frá Aspen fengi sam-
bandið að halda eftir nokkru af þeim
búnaði sem þeir komu með, sleðum
og sMðum. Hún sagði að um væri að
ræða dýran búnað og eflaust tæM
mörg ár að eignast tækin.
„Þetta tókst mjög vel og það var
virMlega gaman að sjá svipinn á börn-
unum, þau voru forvitin þegar þau
sáu búnaðinn og ekM laust við að sum
væru svolítið hrædd, en sælusvipur-
inn á andlitum þeirra þegar þau voru
búin að prófa að renna sér er ógleym-
anlegur," sagði Anna Karólína.
Svoh'tið hræddur fyrst
en þetta vandist fljótt
„Ég hef aldrei prófað að fara á sMði
áður, en það var alveg ofsalega gam-
an,“ sagði Tómas Bjömsson úr
Garðabæ, en hann er á tíunda ári og
fékk frí úr Hofstaðaskóla, þar sem
hann stundar nám, til að sækja nám-
skeiðið á Akureyri. „Ég var svolítið
hræddur þegar ég fór fyrstu ferðina í
stóru brekkuna, en svo vandist ég
þessu íljótt og var ekM hræddur eftir
það, sagði hann.
Tómas sagðist hafa farið alveg ör-
ugglega um tuttugu ferðir í litlu
brekkuna, Hólabrautina og líMega
þrjár í þá stóru, Hjallabraut. „Pabbi
sMðaði heldur hratt niður fyrst, mér
fannst hún svo brött, en svo var þetta
bara allt í lagi og reyndar mjög gam-
an,“ sagði hann og kvaðst ótrauður
ætla að halda áfram sMðaiðkun. „Ef
mamma og pabbi verða dugleg að
fara með mér.“ Tómas sagðist vita
um fimm önnur fötluð böm í Garða-
bæ sem gætu nýtt sér búnað eins og
hann notaði í Hlíðarfjalli og hann von-
aði að hægt yrði að festa kaup á slík-
um sMðasleða svo að fleiri gætu feng-
ið að prófa.
REYKJ AVIK-AKU REYRI - REYK) AVIK
Sex smnu
Bókaðu í síma 570 3030 0; 1,60 7000
Fax 570 3001 • websalesdairicelaiuMs • www.flujfelaf.is
...fljúfíufrekar
FLUGFELAG ISLANDS