Morgunblaðið - 14.03.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 29
LISTIR
Ur öskunni
í eldinn
LEIKLIST
L e i k f é 1 a g
Siglufjarðar
S i g I ii f j a r ð a r b í ó
ÍSAÐAR GELLUR
Höfundur Frederick Harrison.
Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason.
Þýðandi Guðrún J. Bachmann.
Föstudaginn 10. mars
LEIKFÉLAG Siglufjarðar
hefur hafið merki sitt á loft að
nýju eftir nokkurra ára hlé en
þar hefur ekki komist á fjalirnar
leiksýning frá því árið 1995. Það
er meira en að segja það að
lífga við lífvana leikfélag og þarf
vafalaust mikla orku og ósér-
hlífni til.
Endurlífgun LS má rekja til
síðasta sumars er nokkrir af fé-
lögunum fengu til liðs við sig
Eddu V. Guðmundsdóttur leik-
stjóra í tilefni 100 ára ártíðar
séra Bjarna Þorsteinssonar og
settu upp sýningu eftir handriti
Jóns Ormars Ormssonar um ævi
og störf séra Bjarna.
Nú hefur Leikfélagið fengið
annan leikstjóra til liðs við sig
og leitað fanga eftir efni á allt
öðrum stað. Breska leikritið fs-
aðar gellur varð fyrir valinu,
gamanleikrit um þrjár stúlkur
frá Hull sem hingað koma að
vetrarlagi til að vinna í fiski í
sjávarþorpi á Vestfjörðum.
Leikritið var sýnt á vegum
Alþýðuleikhússins veturinn og
vorið 1989-90 en hefur ekki
birst á íslenskum leikfjölum síð-
an. Hingað kom reyndar bresk-
ur leikhópur undir stjórn ís-
lensks leikstjórnarnema og
sýndi leikritið á ensku fyrir
tveimur árum.
Þetta er snerpulega samið
verk, orðfæri stúlknanna óhefl-
að á köflum og brandararnir
fjúka óspart. Höfundur reynir
að gera bakgrunni stúlknanna
nokkur skil, atvinnuleysi í Bret-
landi í lok 9. áratugarins eftir
áralanga stjórn íhaldsflokksins
og hvernig þeim finnst að þær
hafi farið úr öskunni í eldinn
með för sinni norður undir
heimskautsbaug í svartasta
skammdeginu. Sú ákvörðun að
færa verkið fram til d'agsins í
dag orkar tvímælis þar sem að-
stæður í breskum stjórnmálum
eru allt aðrar í dag en fyrir ára-
tug. Það gengur ekki upp að
setja samnefnara á milli Tony
Blair og Margrétar Thatcher.
Stúlkurnar kynnast Pétri
verkstjóra sem hefur mestan
áhuga á að komast undir föt
þeirra og breskur sendiráðsfull-
trúi heimsækir þær og má vart
á milli sjá hvor þeirra er verr
upplýstur um kjör breskra
verkakvenna, hvort sem er á
íslandi eða í heimalandinu.
Jafnræði er með stúlkunum
þremur og er greinilegt að
skilningur leikendanna á þeim
aðstæðum sem lýst er í verkinu
fleytir þeim býsna langt í túlkun
persónanna. Stúlkurnar þrjár
eru innbyrðis ólíkar, Jenný er
harða týpan, Deborah er gáfu-
manneskjan og Tracy er trúður-
inn. I mörgum stuttum atriðum
er rakin dvöl þeirra frá vetur-
nóttum fram á sumar og hvern-
ig þær leysa úr deilum sínum
innbyrðis og fara heim aftur
með nýjan skilning á sjálfum
sér og kjörum sínum. Helsti
galli verksins er þó hversu yfir-
borðskenndur sá skilningur er
og klisjukenndur í flestum atrið-
um.
Leikkonurnar þrjár standa
sig með ágætum þótt á köflum
skorti nokkuð á kraft og öryggi
á frumsýningunni. Þær nutu sín
vel í gamanmálunum en mættu
gjarnan gefa sér rýmri tíma í
meðferð textans, vanda betur
áherslur og hyggja að þögnum.
Sólveig Halla Kjartansdóttir
náði góðum tökum á Deb og var
bráðfyndin sem hin vellesna af
þremenningunum. Hún mætti
þó sleppa betur fram af sér
beislinu þegar Deb kemur loks
út úr skel sinni. Besta atriði
sýningarinnar er þegar þær
sameinast allar í því að hrekja
burt sendiráðsfulltrúann. Þá
náðu þær sér vel á strik og létu
vaða óhikað. Þannig á það líka
að vera.
V. Ingi Hauksson leikur verk-
stjórann Pétur. Leikstíl hans
hefði mátt samræma betur við
raunsæislegan leik stúlknanna.
V. Ingi lék Pétur með nokkrum
gassagangi og gerði hann grína-
ktugan úr hófi með stórum
hreyfingum og svipbrigðum.
Umgjörð sýningarinnar er í
góðu samræmi við efni, stórar
stæður fiskikassa og blikkplötur
til beggja handa. Hefði leik-
stjórinn reyndar mátt huga bet-
ur að flæði sýningarinnar þar
sem atriðin eru mörg og stutt.
Sífelldar myrkvanir á milli atr-
iða með tilheyrandi skiptingum
eru þreytandi þó allt hafi vissu-
lega gengið hratt og snurðu-
laust fyrir sig. Tónlist á milli
atriða var ágætlega valin og
lífgaði upp á. Siglfirðingar eiga
gott leikhús með stóru sviði og
góðri lofthæð en tjáðu mér jafn-
framt að aðstaða fyrir leikendur'
væri lítilfjörleg en það stæði
vonandi allt til bóta. Er ástæða
til að óska þeim til hamingju
með sýninguna, endurreisn leik-
félagsins og alls hins besta í
framtíðinni.
Hávar Sigurjónsson
LISTMUNIR
Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð.
Fyrir viðskiptavini leitum við að góðum verkum eftir
Jón Stefánsson, Nínu Tryggvadóttur, Þorvald Skúlason,
Gunnlaug Blöndal, Gunnlaug Scheving, Þórarin B.
Þorláksson, Kristínu Jónsdóttur og Louisu Matthíasdóttur.
ART CALLERY
Gallerí Fold
Rauðarárstíg 14-16, sími 551 0400.
fold@artgalleryfold.com
www.ajrtgalleryfold.com
Islensk leiklistarhátíð
haldin í fyrsta sinn
SAMTÖK sjálfstæðra atvinnuleik-
húsa standa að fyrstu leiklistarhá-
tíðinni hérlendis þar sem verkefnin
eru öll ný og frumsamin. Á hátíð-
inni, sem hefst í byrjun september,
verða sett upp sex ný íslensk leik-
verk. Sl. sunnudag kynnti dóm-
nefndin niðurstöðu sína, en alls
bárust 49 verk í samkeppnina.
Verkin sem verða frumflutt á hátíð-
inni eru Dóttir skáldsins eftir Svein
Einarsson, framleiðandi Icelandic
Take Away Theatre. Háaloft eftir
Völu Þórsdóttur, framleiðandi:
ITAT - útibú (Icelandic Take Away
Theatre). Tilvist (samið af þátttak-
endum í sýningunni), framleiðandi:
Dansleikhús með ekka.Trúðleikur
eftir Hallgrím H. Helgason, fram-
leiðandi: Leikfélag Islands. Sólar-
litlir dagar eftir Benóný Ægisson,
framleiðandi: Flugfélagið Loftur.
Vitleysingarnir eftir Ólaf Hauk
Símonarson, framleiðandi: Her-
móður og Háðvör.
Dagskráin er einn stærsti við-
burður á dagskrá Reykjavíkur -
menningarborgar 2000 og er áætl-
að að heildarkostnaður við hátíðina
Morgunblaðið/Ásdís
Aðstandendur sýninganna sem komust í úrslit á leiklistarhátíðinni.
nemi um 20 milljónum króna.
Stefnt er að því að hátíðin verði ár-
lega eða haldin annað hvert ár héð-
an í frá.
Helstu bakhjarlar hátíðarinnar,
aðrir en M2000, eru menntamála-
ráðuneytið og menningarmála-
nefnd Reykjavíkurborgar. Hátíðin
er haldin í samstarfi við Sjónvarpið
og Opin kerfi en fleiri samstarfsaði-
lar munu bætast við á næstu vik-
um.
Einfatt í
samsetningu
Ákeyrsluvamir við góH
Höqgdeyfir
Hillurfyrirlausarvörur
Brautir fyrir vörubretti
Fáðu sölumann okkar í heimsókn og við vertum
ráðgjöf um hámarks nýtingu rýmis.
Umboðs- og heildverslun
HILLUKERFI
TUV^ IS0 9001
öryggis- og gæðastaðlar
Nethyl 3-3a -110 Reykjavík
Sími5353600- Fax5673609
isold@isold.is - www.isold.is
Gerum tilboð i stærri sem smærri einingar - Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar