Morgunblaðið - 14.03.2000, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 14.03.2000, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 45 MINNINGAR GUÐRÚN BJÖRNSDÓTTIR + Guðrún Björns- dóttir fæddist á Kvískerjum í Oræf- um 14. september 1910. Hún lést á Skjólgarði á Höfn 24. desember 1999. Guðrún var dóttir Björns Pálssonar bónda á Kvískerjum Jónssonar á Svína- felli, f. 22.3. 1879, d. 14.5. 1953, og konu hans Þrúðar Ara- dóttur Hálfdánar- sonar á Fagurhóls- mýri, f. 11.5. 1883, d. 5.2. 1968. Systkini Guðrúnar eru: FIosi, f. 13.12. 1906, d. 22.5. 1993; Guðrún eldri, f. 30.4. 1908, d. 7.12. 1991; Ari, f. 2.6. 1909, d. 1.5. 1982; Páll, f. 25.3. 1914, d. 14.3. 1993; Sigurð- ur, f. 24.4. 1917; Ingimundur, f. 4.2. 1921, d. 16.9. 1962; Helgi, f. 2.2. 1925; og Hálfdán, f. 14.3. 1927. Guðrún var hús- móðir á Kvískerjum og átti ásamt systur sinni og móður þátt í gestamóttöku þar. Hún sótti hússtjórn- arnámskeið á Laug- arvatni 1933 og var hannyrðakona. Síð- ustu árin dvaldi hún á Skjólgarði á Höfn. Guðrún var ógift og barnlaus sem og systk- ini hennar. Útför Guðrúnar var gerð frá Hofskirkju 8. janúar sl. Sumarið 1951 lögðu sex ferða- langar upp í sumarleyfisferð austur í Oræfi og þaðan ríðandi austur með landi um Almannaskarð alla leið austur á Hérarð. Þetta voru: Áki Pétursson, Krist- ín Grímsdóttir, Viðar Pétursson, Ellen Pétursson, Sigurður E. Óla- son og Unnur Kolbeinsdóttir. Lagt var af stað flugleiðis til Fagurhóls- mýrar og gist þar. Daginn eftir var farið ríðandi í Bæjarstaðaskóg. Loks ekið á kassabíl að Kvískerjum í fylgd hins bráðskemmtilega grasa- fræðings Ingólfs Davíðssonar, sem milli þess að tína sjaldgæf blóm, skemmti okkur með dönskum vísna- söng. Og kemur nú að tilefni þessar- ar greinar. Bræðumir á Kvískerjum tóku á móti okkur á hlaðinu og buðu í bæinn. Lágvaxin, öldruð kona dálítið lot- in, stóð í dyrunum. Hún tók hönd mína í báðar sínar og horfði á mig þeim skærbláustu augum, sem ég hafði séð og virtust sjá allt til botns. Þetta var Þrúður Aradóttir, hús- freyja á Kvískerjum, ekkja Bjöms Pálssonar bónda og fylgdarmanns yfir jökulsár og sanda og á Vatna- jökul. Ég átti orðastað við Þrúði þama í bæjardyrunum. Hún sagði mér frá börnum sínum 12 að tölu. Þrjú dóu ung. Þrúður varð fyrir slysi þegar hún gekk með litla stúlku. Barnið dó en Þrúður var hölt eftir að hún komst á fætur. „En öllu verður maður að taka,“ sagði Þrúður og horfði á mig þessum heiðskím augum. Inni í bænum voru tvær konur með veitingar og hétu báðar Guð- rún. Önnur var lágvaxin og hnellin, Guðrún eldri, Hin var há og grönn, teinrétt, dökkhærð og bar sig einsog aðalskona. Það var Rúna, en í minn- ingu hennar era þessar línur ritaðar. Rúna var víst um fermingu þegar hún tók að mestu við heimilinu en móðir hennar lá þá í fótbrotinu, bamshafandi. Síðan var hún heima og vann heimilinu ásamt Guðrúnu. Hún mun hafa farið á hússtjómar- námskeið að Laugarvatni og vakið aðdáun piltanna, þessi glæsilega stúlka úr sveitinni milli sanda. Ann- ars gerði hún ekki víðreist, fór stöku sinnum til Reykjavíkur, var annars kyrr á sínum reit. Hún naut hins skaftfellska sumars í faðmi fjalla, þreyði þorrann og góuna, en yfir öllu gnæfði Öræfajökull í tign og veldi. Fjöldi ferðamannna átti áningar- stað að Kvískerjum. Urðu margir þeirra furðu lostnir yfir kunnáttu bræðranna á mörgum sviðum, sjálf- menntaðra að mestu. Það má geta nærri að oft hefur verið í nógu að snúast fyrir unglingsstúlku á slíku heimili og oft áhyggjusamt. Þau systkinin tóku mörg börn til sumar- VILBORG VALGEIRSDÓTTIR + Vilborg Val- geirsdóttir fædd- ist á Höfn í Horna- firði 25. nóvember 1925. Hún lést á Landspítalanum 3. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hafnar- kirkju 11. mars. Frá fyrstu kynnum mínum af Boggu var mér Ijóst eins og öllum sem þekktu Vilborgu hve góð og vandvirk kona þá tilvonandi tengdamóðir mín var. Síðan þá hefur mikið vatn rannið til sjávar og Vilborg nánast ein og óstudd komið tveimur yngstu bömum sínum til manns. Vilborg virtist aldrei vera í tímaleysi og þótt oft hefði verið mann- margt á heimilinu og í mörg horn að líta var manni alltaf tekið opn- um örmum á heimili hennar þegar við kom- um í heimsókn á Höfn. Vilborg mun alltaf lifa sterk í huga mín- um sem góður vinur minn og barna minna sem góða amman á Höfn. Grímur Eirfksson og börn. Skilafrestur minningargreina EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útranninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins til- tekna skilafrests. dvalar. En alveg ólu þau upp van- heila stúlku, Finnbjörgu. Þau vora ýmis kærleiksverkin unnin í kyrr- þey á þeim bæ. Þegar systkinin fóru að leita að telpu, sem gæti verið Finnbjörgu fé- lagi, kom vinkona mín frá Fagur- hólsmýri að máli við mig, hvort ég vildi láta Þóranni mína reyna þetta. Hún var nú ekki nema níu ára og ég hugsaði mig vel um. Ég tók svo boð- inu. Mér fannst hún geta þroskast þarna og lært svo margt, sem ég hafði ekki upp að bjóða. Ég minntist Þrúðu og Rúnu og fann að ég þurfti ekki að hafa áhyggjur. Þórann flaug því ein til Fagurhólsmýrar og var sótt frá Kvískerjum. Þarna var hún svo á hverju sumri fram til ferming- araldurs. Kindurnar þekkti hún með nöfnum á svipnum, lærði af systran- um að súrsa selshreifa, fór á jökul með bræðranum, þekkti fugla og fiðrildi, veiddi skúm og sel á söndun- um og kom með mikið safn ýmissa skorkvikinda merkt latneskum nöfnum. Það var ýmislegt gert undir leiðsögn þessara systkina. Allt var kennt með sömu vandvirkninni og hugkvæmninni og einkenndi verk þeirra. Seinna erfði yngri bróðir hennar, Guðbjartur, stöðuna og komust færri að en vildu. Ég minnist þess er hann kom heim eftir fyrsta sumarið eystra, að hann sagði við mig: „Mamma þú veist ekki hvað mér hefur liðið vel í sumar.“ Þessu fólki trúði ég nú fyrir böm- unum mínum og hef aldrei séð eftir því. Þegar heilsa Rúnu fór að bila fékk hún góða umönnun á hjúkranar- heimilinu Skjólgarði. Hún lést á jólanótt sl., 25. desem- ber. Ég vil með þessum orðum þakka henni fyrir bömin mín, Þór- unni og Guðbjart. Bræðranum Sigurði, Helga og Hálfdáni sendum við samúðarkveðj- ur. Góð kona er gengin. Hún sé guði falin. Unnur Kolbeinsdóttir. Gróðrarstöðin ^ 0^ mmfo • Hús blómanna Blómaskreytingar við öll tækifæri. Dalveg 32 Kópavogi sími: 564 2480 3C Jk. lí..3C.. 3C..Í3t.. J ^ Erfisdrykkjur H H H H H H H H H H H H H H H H Sími 562 0200 AlIIII 1111111XXXI P E R L A N + Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR BERGÞÓRSSON, Bogahlíð 18, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 13. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Aðalbjörg Vigfúsdóttir, Ólafur B. Guðmundsson, Laufey S. Sigmundsdóttir, Steingrímur Sigurjón Guðmundsson, Bergþór Guðmundsson, Jiraporn Yuengklang, Stefán Guðmundsson, Hlíf Ragnarsdóttir, Halldór Guðmundsson, Guðrún Þórhallsdóttir, Kristinn Kristinsson, Dagbjört Lára Ragnarsdóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur. t Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, VALGERÐAR EYJÓLFSDÓTTUR sjúkraliða, Kaplaskjólsvegi 61, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. mars kl. 15.00. Jón E. Guðmundsson, Eyjólfur G. Jónsson, Inga Jóna Sigurðardóttir, Sigurlaug Jónsdóttir, Helgi Sævar Helgason, Marta Jónsdóttir, Guðmundur A. Grétarsson og barnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐLAUGAR BJARNEYAR ELÍASDÓTTUR, áður til heimilis í Álftamýri 52, Hrafnistu í Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa öllu starfsfólki á deild 3-A, Hrafnistu, fyrir frábæra umönnun og velvild. Þórdís Hulda Hreggviðsdóttir, Margrét Eyrún Reynisdóttir, Jón Geirsson, Bjarni Ómar Reynisson, Elías Rúnar Reynisson, Sólrún Lára Reynisdóttir, Björk Reynisdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Ásdís Sigurðardóttir, Rúna Björg Þorsteinsdóttir, Magnús Ingi Guðmundsson, Sigurður Magnússon, t Þökkum innilega samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SVEINS BJÖRNSSONAR verkfræðings, Skúlagötu 20, Reykjavík. Helga Gröndal, Halldóra Sveinsdóttir, Birgir Karlsson, Þórunn Sveinsdóttir, Magnús Guðmundsson, Björn Sveinsson, Aldís Ingvarsdóttir, Benedikt Sveinsson, Unnur Melsted, Helga Sveinsdóttir, Óskar Eyþórsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Við þökkum af einlægni öllum þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, sonar míns og bróður okkar, EINARS ÁSGEIRSSONAR skipstjóra. Sérstakar þakkir fá prestshjónin á Heydölum í Breiðdal, sr. Gunnlaugur Stefánsson og sr. Sjöfn Jóhannesdóttir fyrir ómetanlegan stuðning. Guð blessi ykkur öll. Bára Ólafsdóttir, Valur Mörk Einarsson, Erla Rán Kjartansdóttir, Anna Dögg Einarsdóttir, Stefanía Magnúsdóttir og systkini.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.