Morgunblaðið - 14.03.2000, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 47
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
En þegar biðin þennan afdrifaríka
laugardag tók enda og ég vissi hvað
gerst hafði sá ég að ég vissi ekkert
um lífið, ég er ekki sterk, ég veit hvað
hamingja var og veit nú hvað sorg er.
Það er svo skrítið hvað lífið getur
breyst í einni andrá.
Að fá að fylgjast með þér í þessi 20
ár, Nonni minn, eru forréttindi sem
ég get ekki nógsamlega þakkað fyrir,
með nærveru þinni gafstu mér trú á
lífið því þú sýndir mér að inn á milli
alls sem er leynast englar, englar
eins og þú, með augu líkt og stjöm-
urnar á himninum sem lýsa upp líf
okkar hinna.
Ég skrifaði þér nokkrar línur síð-
asta sumar og þegar þú last þær
þakkaðir þú mér svo fallega fyrir, ég
skrifa þér þær nú hér og vona að þú
komir og takir utan um mig aftur:
,Af hveiju ætli hinir englamir hafi
fellt þig svo þú dast niður á jörðina
Þú dast þegar himinninn grét svo
kannski var þetta óvart.
Er það þess vegna sem þér líður
svona illa héma niðri?
Finnurðu kannski þrá englanna til
að biðjast fyrirgefningar, eða heyr-
irðu kannski köll þeirra?
Ef þú værir ekki vængbrotinn
værirðu þá ekki löngu floginn upp
aftur?
Fallni engill, ekki gráta, þau höfn-
uðu þér örugglega ekki og bíða vænt-
anlega eftir því að vængir þínir verði
heilir svo þið megið hittast aftur og
halda áfram með leiki ykkar þar sem
frá var horfið.
Fallni engill.
Þú verður að afsaka hversu illa
brúin milli himins og jarðar er gerð,
ég gerði hana með augun full af tár-
um.
Eftir að þú þemaðir perlutár þín,
sem byrgðu þér sýn, og sást að á
jörðinni er líka ljós, fórstu í ferð til að
skoða og læra.
í stað þess að bíða, vona og gráta,
sástu að hér gerast líka himneskir
hlutir.
Gakktu nú veginn að brúnni með
hugann fullan af sögum til að segja
og vittu til, brátt þurfa englamir ekki
að kalla til þín heldur geta þeir hvísl-
að í eyra þér.“
Litla hjartað mitt, nú hefur þú lok-
ið aftur augum þínum í hinsta sinn
hér á jörðinni og opnað þau á ný á
himnum, ég bið að heilsa Elsu ömmu
þinni og Dóra frænda.
Við sjáumst aftur, ljósið mitt.
Jenný frænka.
Elsku Nonni frændi, í dag kveðj-
um við þig og hugsum um þig. Það er
stundum stutt á milli gleði og sorgar.
Fyrir um mánuði síðan átti stórfjöl-
skyldan saman gleðistund. Þú naust
þín vel með írændfólkinu í leik og
dansi. Margar skemmtilegar minn-
ingar vom rifjaðar upp. Við hlógum
dátt að ýmsum skondnum uppátækj-
um ykkar systkinabamanna á yngri
ámm, sem foreldrunum fannst á
þeim tíma misfyndin. Núna stöndum
við líka frammi fyrir minningum, sem
framkallast í sorg. Ævi þín var stutt,
en það era ekki veraldleg afrek sem
standa upp úr í minningum um látna
ástvini, heldur mannkostir. Þú hafðir
góða nærvera, varst hlýr og einlægur
með bjart bros. Þannig verður minn-
ing okkar um þig. Megi fjölskyldum
þínum öðlast allur sá styrkur sem
þarf til þess að takast á við þessa
miklu sorg. Hvíl í friði, elsku frændi.
Eiríkur, Ema,
Kári og Berglind.
Elsku frændi minn, Jón Örn Garð-
arsson, er látinn. Nonni litli var afar
laglegur drengur, hann var með fal-
lega rauðlitað hár og brún augu sem
geisluðu af gleði. Hann vai- alltaf
brosandi og góðsemin skein úr andliti
hans. Besta lýsing á honum, bæði í
útliti og sem persónu, er að líkja hon-
um við engil í mannsmynd. Ég á erf-
itt með að sætta mig við að hann sé
farinn og þá staðreynd að við munum
aldrei sjást á ný. Þó svo að Nonni litli
sé horfinn á braut mun ég alltaf eiga
minningamai- um hann og þær getur
enginn tekið frá mér. Með minning-
unum verður hann alltaf hluti af mér
og ég get glaðst yfir þeim stundum
sem við áttum saman.
Þar sem við Nonni voram systra-
synir og lítill aldursmunur á milli
okkar vorum við ekki bara frændur
heldur leikfélagar og vinir. Nonni
kom oft í heimsókn í Kögurselið til
mömmu og þegar við voram þar báð-
ir fóram við oft út í skóla í fótbolta en
fótbolti var ein af sterku hliðum hans
Nonna, hann var mjög góður í bolt-
anum og þó að það væru þrjú ár á
milli okkar og ég stærri en hann þá
þurfti ég að hafa mig allan við svo að
hann ynni mig ekki. Þar sem hann
var lofandi knattspyrnumaður á unga
aldri birtist af honum mynd í einu
dagblaði og ég man hvað hann var
stoltur af því. Alltaf var líka gaman
að spila við hann en við gerðum nú
meira af því að svindla en að spila
heiðarlega þar sem það var jú meira
spennandi og hvoragur okkai' vildi
tapa.
Þegar ég hugsa tíl baka er margt
sem stendur upp úr, meðal annars
man ég sumarið þegar ég, pabbi og
Halldóra komum í heimsókn til þín,
Dísu og Garðars í Svíþjóð. Þá fórum
við strákarnir í borðtennis og keppt-
um af fullu kappi, auðvitað voram við
ósammála um hver okkar hefði sigr-
að en eins og alltaf vildum við hvor-
ugur tapa fyrir hinum. Ég vildi ekki
tapa fyrir frænda mínum sem var
yngri en ég og þú vildir vinna frænda
þinn sem var eldri.
Með eftirminnilegustu minningum
sem ég á era frá því þegar Nonni
kom í sumarfrí til Hólalands í Borg-
arfirði eystra með mér mömmu,
Jonna og Söndru. Þar vorum við
tveir saman alla daga og lékum okk-
ur í náttúranni. Við löbbuðum upp í
vötn að veiða og þó að aflinn hafi ekki
verið til að hrópa húrra fyrir þá voru
þær stundir sem við áttum á leið upp
fjallið ómetanlegar, það varð jú að
passa allar græjurnar og beituna en
allt dótið ferjuðum við á milli okkar
þegar við klifraðum yfir grindverk,
klöngraðumst upp hóla, hæðir og
skriður. Við fóram líka niður að á að
veiða síli og berfættir í pollunum
hjálpuðumst við að við að fanga sílin í
sigti og krúsir. í þessari Borgó-ferð
var ákveðið að fara með Nonna á
leynistaðinn okkar Jonna en það er
draumastaður allra steinasafnara,
fullur af fallegum kristöllum. Til að
komast á staðinn þai-f að klifra
hættuleg björg og leggja líf og limi í
hættu. Eg man að mér þótti erfitt að
samþykkja að Nonni litli mætti koma
með því ég var jú hræddur um hann
og vildi ekki að neitt slæmt kæmi fyr-
ir hann. Fyrir gönguna í hömrunum
batt Jonni reipi um okkur alla þijá
svo að við væram öraggir því hann
myndi bjarga okkur ef við rynnum
til. Eftir hættulega göngu voram við
komnir á staðinn og við Jonni fund-
um fljótt eitthvað af fallegum stein-
um en leitin gekk ekki eins vel hjá
Nonna og hann fann ekkert. Allt í
einu var hann með svarta kúlu í
hendinni og á meðan hann barði
henni í bergið og hálf kveinaði yfir að
vera ekki búinn að finna neitt flott
brotnaði kúlan og inni í henni kom í
ljós falleg holufylling, flottasti steinn-
inn í ferðinni. Alltaf þegar ég sé
þennan stein man ég eftir gleðinni og
stoltinu sem ég sá í augum hans á
þessari stundu.
Annað eftirminnilegt og broslegt
atvik í ferðinni varð á leiðinni heim í
jeppanum. Nonni varð bflveikur,
honum varð flökurt og þurfti að
kasta upp. Mamma rétti honum
drykkjarbox sem Sandra átti og
sagði honum að nota það svo að allt
færi ekki í sætið. Bfllinn var svo
stoppaður og Nonni fór út til að kasta
upp. Þegar hann kom út lagði hann
flátið að vöram sér og notaði það
þrátt fyrir að vera kominn út á auðan
sjó og hellti svo úr flátinu við vegar-
kantinn. Hann gerði jú það sem fyrir
hann var lagt og oft hef ég brosað að
þessu atviki en það minnir mig á að
Nonni fylgdi því eftir sem við hann
var sagt.
Aðrar minningar sem ég á era með
okkur öllum frændsystkinunum, allt-
af var gaman hjá okkur þegar við
hittumst, sérstaklega man ég eftir
öllum fjölskylduviðburðum eins og
afmælum og jólaboðum þar sem við
voram öll saman. Við voram einn
sterkur hópur og Nonni var einn af
okkur. Við fóram í bingó, leiki og
limbó.
Stórt skarð er nú höggvið í hópinn
sem aldrei verður hægt að fylla. Allt-
af þótti mér virðingarvert að sjá
hversu vel Nonni kom fram við fjöl-
skyldu sína, hann var fallegur, góður,
blíður, vinsamlegur og elskulegur í
alla staði. Ég er þakklátur fyrir þær
stundir sem við áttum saman og þær
minningar sem ég geymi. Ég sakna
hans mildð og er mjög sorgmæddur
en vona að tíminn lækni sárin.
Elsku Nonni minn, ég vil þakka
þér fyrir allar þær ánægjustundir
sem við áttum saman á meðan þú
lifðir, þú varst ímynd hins góða í
manninum. Ég mun alltaf muna síð-
asta faðmlag okkar, það var kveðju-
stund áður en ég lagði af stað út til
Köben í lok janúar. Við mættumst á
tröppunum á Gnoðó, við föðmuðumst
og kvöddumst.
Elsku Dísa, Birgh- og Tanja, Garð-
ar , Inga, Tómas Óli, Matthías og
Heiða Björk, ykkur votta ég alla
mína samúð. Þið hafið misst góðan
dreng en minningarnar sitja eftir.
Megi Guð veita ykkur styrk til að
takast á við sorgina.
Friðgeir Grímsson.
Við andlát Nonna myndast vand-
fyllt skarð í vinahópinn og líf okkar
allra sem þekktum hann. Það er bara
einn Nonni og við munum öll sakna
hans, en við verðum að trúa því að
honum líði vel hvar svo sem hann er.
Ég mun aldrei gleyma kvöldunum
þegar við Nonni slógumst um betra
sætið við tölvuna, hvort okkar ætti að
bjóða hinu í bíó eða jafnvel þegar við
háðum bardaga í þeirri von að fá að
lesa sögu fyrir Tönju þegar hún vildi
ekki fara að sofa.
Ég er stolt þegar ég segi að Nonni
hafi verið vinur minn. Hans verður
sárt saknað.
Rakel.
Elsku Nonni. Hafðu þökk fyrir
samverustundimar. Minning þín er
Ijós í lífi okkar.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist
aldreihannáburtufer.
Drottinn elskar, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(S.Rr. Pétursson.)
Valdimar og Snjólaug.
Elsku Nonni. Við þökkum þér fyr-
ir allar samverustundimar sem við
áttum með þér, og að þú hafir verið
hluti af okkar lífi. Með þér var lífið
litríkt og skemmtilegt, því hvert sem
þú komst og hvar sem þú varst var
alltaf gaman.
Margseraðminnast,
mai-gterhéraðþakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margseraðsakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
Hafðu þökk fyrir allt og allt. Minn-
ing þín er ljós í lífi okkar.
Þính- ástkæra vinir,
Alexei og Ingunn.
Okkur langai- að kveðja vinnufé-
laga okkar, hann Nonna.
Við störfuðum allir við pípulagnir
hjá honum Svenna í Borgarlögnum.
Nonni kom til okkar fyiir rúmu ári
og féll hann vel inn í hópinn, enda var
hann glaðlyndur og góður drengur.
Það er grátlegt að hugsa til þess
að við sjáum þig ekki aftur eða fáum
að njóta hnyttinna setninga þinna svo
sem: „Þetta þomar“ og „fáránlegt að
hafa einstefnu þama“.
Enginn tekur þessar minningar
frá okkur né aðrar minningar um
þennan yndislega dreng.
Við vottum fjölskyldu og aðstand-
endum Nonna okkar dýpstu samúð.
Missir ykkar er mikill en minningin
um góðan dreng lifir.
Böðvar, Heimir, Jón Ingi,
Magnús, Sveinn,
Ragnar og Þorlákur.
• Fleiri minningargreinar um Jón
Öm Garðarsson biða birtingar og
munu birtast íblaðinu næstu daga.
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 10-14.Léttur hádegis-
verður framreiddur. Mömmu- og
pabbastund í safnaðarheimilinu kl.
14-16.
Dómkirkja. Barnastarf í safnað-
arheimilinu kl. 14 fyrir 6-7 ára
börn, kl. 15.30 fyrir 8-9 ára börn
og kl. 17 fyrir 10-12 ára börn.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu
eftir stundina. Lestur passíusálma
kl. 12.15.
Hallgrímskirkja. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Laugarneskirkja. Fullorðins-
fræðsla kl. 20. Bæn, íhugun og
samtal. „Þriðjudagur með Þor-
valdi“ kl. 21. Lofgjörðarstund þar
sem Þorvaldur Halldórsson leiðir
söng, Gunnar Gunnarsson leikur á
flygil. Sóknarprestur flytur Guðs-
orð og bæn.
Langholtskirkja. Opið til bæna-
gjörða í hádeginu. Lestur passíu-
sálma kl. 18. Sorgarhópur kl.
20.30- 21.30.
Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri
borgara kl. 16.30 í umsjón Ingu J.
Backmann og Reynis Jónassonar.
Nýir félagar velkomnir.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgn-
ar í safnaðarheimilinu kl. 10-12.
Hittumst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðs-
þjónusta með altarisgöngu kl.
18.30. Bænaefnum má koma til
sóknarprests 1 viðtalstímum hans.
Æskulýðsstarf á vegum KFUM &
K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Starf aldraðra
kl. 11.15. Leikfimi ÍAK, léttur
málsverður, helgistund og sam-
vera. Sr. Bjarni Karlsson sér um
helgistund. Dagbjört Theodórs-
dóttir sér um samverustund TTT
10-12 ára starf á vegum KFUM og
K og Digraneskirkju kl. 17.
Fella- og Hólakirkja. Foreldr-
astund kl. 10-12. Kyrrðar- og bæn-
astund kl. 12.10-12.25. Organisti
kirkjunnar leikur á orgelið frá kl.
12. Þakkar- og bænaefnum má
koma til presta og djákna
kirkjunnar. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu að lokinni bæna-
stund. Starf fyrir 9-10 ára stúlkur
kl. 15-16. Starf fyrir 11-12 ára
stúlkur kl. 16.30-17.30. Æskulýðs-
félagið fyrir 8. bekk kl. 20-22.
Grafarvogskirkja. Kirkjukrakk-
ar í Rimaskóla kl. 18-19 fyrir 7-9
ára börn. KFUK fyrir stúlkur 9-12
ára kl. 18-19. Æskulýðsstarf fyrir
unglinga 15 ára og eldra kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorg-
unn í safnaðarheimilinu Borgum í
dag kl. 10-12. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund í dag kl. 12.30. Fyrir-
bænaefnum má koma til prests eða
kirkjuvarðar
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12. «
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30. Opið hús fyrir
8-9 ára börn kl. 17-18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið
hús kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Lágafellskirkja. Foreldramorg-
unn kl. 9.30-11.30. Umsjón Þórdís
og Þuríður.
Keflavíkurkirkja. Fjölskyldu-
stund í Kirkjulundi kl. 10.30-11.30.
Helgistund, fræðsla og samfélag
fyrir aðstandendur barna undir
grunnskólaaldri. Umsjón Brynja
Eiríksdóttir. Fermingarundirbún-
ingur kl. 13.40-15 í Kirkjulundi.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 16.30 kirkjuprakkarar.
Grindavíkurkirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. TTT tíu -tólf
ára starf alla þriðjudagakl. 17- 18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.15- 19.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Hvammstangakirkja. Æsku-
lýðsfundur í kvöld kl. 20.30 á
prestssetrinu.
Hólaneskirkja Skagaströnd. Kl.
10 mömmumorgunn í félagsheimil-
inu Fellaborg. Kl. 16 KFUM og
KFUK fyrir börn 9-12 ára.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
þriðjudögum kl. 10-12.
Frelsið, kristileg miðstöð.
Biblíuskóli í kvöld kl. 20.
t
Hugheilar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
GUÐLEIFAR JÖRUNDARDÓTTUR,
Álfhólsvegi 137a,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir viljum við færa Sigurði
Björnssyni, krabbameinslækni, Karitas heimaaðhlynningu og starfsfólki
deilda A-3 og A-7 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir dásamlega umönnun.
Ragnar Bjarnason,
Jörundur H. Ragnarsson,
Gunnar H. Ragnarsson, Edda Valsdóttir
og barnabörn.
t
Við þökkum af einlægni öllum þeim, er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
FANNÝJAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Ólafsvík,
Holtsgötu 41,
Reykjavík.
Sveinbjörn Helgason, Aud Mary Helgason,
Guðmundur Helgason, Sólveig Bótólfsdóttir,
Helga Helgadóttir, Bent Bjarnason,
Sólveig Sjöfn Helgadóttir, Jón Sören Jónsson,
Birna S. Helgadóttir, Bogi Ingimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.