Morgunblaðið - 14.03.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
HREIÐAR
VALTÝSSON
ALDUR er afstætt
hugtak og ekki öllum
gefið að útskýra hvað
við er átt, til dæmis
þegar talað er um að
einn sé gamall en ann-
ar ungur eftir aldri.
Því að eins og skáldið
Tómas Guðmundsson
sagði forðum:
Því menn eru bara ungir
einu sinni,
og ýmsir harla stutt, í
þokkabót.
Þetta á þó ekki við
um alla og sem dæmi
má taka Hreiðar Valtýsson sem
samkvæmt kirkjubókum er fæddur
fyrir 75 árum en lítur út fyrir að
hafa skákað árum og aldri svo ræki-
lega að undrum sætir. Maðurinn er
hreint út sagt ótrúlegur.
Mér hafa sagt frómir menn af Ar-
skógsströndinni að þeir feðgar Val-
týr Þorsteinsson, útgerðarmaður
og skipasmiður á Rauðuvík, og
Hreiðar, sonur hans, hafi þótt ein-
hverjir högustu skipasmiðir við
Eyjafjörð á þeirri tíð. Enda þótt
Hreiðar hafi hin síðari ár ekki feng-
ist við skipasmíðar leynir hand-
bragðið sér ekki þegar hann tekur
til hendi í sumarbústað þeirra hjóna
á Héraði, en þar erum við tengda-
bræður grannar til margra ára.
Hreiðar ólst upp hjá
foreldrum sínum í
Rauðuvík ásamt yngri
systur, Valgerði, með-
an Valtýr og Dýrleif,
kona hans, bjuggu
þar, en síðar á Akur-
eyri.
Hann fór síðar í
Verslunarskóla ís-
lands og lauk þaðan
góðu prófi. Fór eftir
það að vinna við fjöl-
skyldufyrirtækið, Val-
tý Þorsteinsson hf., og
eftir lát föður síns hef-
ir hann veitt því for-
stöðu. Sá sem þetta ritar hefir löng-
um haldið því fram að Hreiðar
Valtýsson sé einhver allra klárasti
rekstrarmaður á íslandi þegar út-
gerð er annars vegar. Hreiðar er
hamingjumaður í einkalífinu, kona
hans, hún Elsa Kristín Jónsdóttir,
einnig af Árskógsströndinni, stend-
ur við hlið hans í einu og öllu. Þau
eiga tvö börn, Valtý Þór og Val-
gerði Petru, og fallegan hóp afa- og
ömmubarna.
En ekki að orðlengja frekar. Ef
trúa má kirkjubókum þá er höfðing-
inn Hreiðar Valtýsson 75 ára í dag
og við hjónin sendum honum og
fjölskyldunni okkar bestu ham-
ingjuóskir.
Maria og Sveinn Sæm.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag
Kópavogs
Aðalsveitakeppni Bridsfélags
Kópavogs lauk síðastliðinn fimmtu-
dag. Lokaumferðin var æsispenn-
andi þar sem fjórar sveitir höfðu
möguleika á sigri. Fóru leikar þann-
ig að sveit Þorsteins Berg sigraði
með 197 stig. Með Þorsteini spiluðu í
sveitinni Guðmundur Grétarsson,
Óskar Sigurðsson, Gunnar Bragi
Kjartansson, Gísli Steingrímsson og
Baldur Bjartmanns. Hinar þrjár
sveitirnar sem áttu möguleika á sigri
röðuðu sér þannig:
í öðru sæti með 190 stig varð sveit
Baldvins Valdimarssonar, í því
þriðja með 189 stig sveit Armanns J.
Lárussonar, sveit Þróunar kom síð-
an í fjórða sæti með 188 stig.
Næsta fimmtudag hefst þriggja
kvölda Board a match keppni þar
sem 2-3 efstu pörin vinna sér rétt að
spila fyrir hönd B.K. í Reykjaness/
Isafjarðardjúpskeppninni.
Hvetjum við sem flesta til þess að
mæta og taka þátt í þessari keppni.
Spilað verður í Þinghól að venju.
L É I I A I k l/Pdll
DAHSSVE.FLO "SSS
DÖGUM! um hel§'na
557 7700
hringdu núna
BarnaPössun
Netfang: kod@simnet.is
Heimasíða: www.simnet.is/kod
Sparaðutuobúsundir
Endurvinnum flestar gerðir
tölvuprentborða svo
þeir verða sem nýir
Jvar@vortex.is
Bridsfélagið Muninn
Sandgerði
Miðvikudaginn 8. mars lauk Board
Match keppni félagsins með sigri
sveitar Karl G. Karlssonar. Loka-
staða efstu sveita var þessi.
Sveit stig
Karls G. Karlssonar 155
Heiðars Siguijónssonar 137
Svölu Pálsdóttur 131
Auk Karls voru í sveitinni Gunn-
laugur Sævarsson, Gísli Torfason,
Jóhannes Sigurðsson, Karl Her-
mannssonar og Arnór Ragnarsson.
Næsta miðvikudag 15. mars hefst
þriggja kvölda Landsbanka-tví-
menningur og fær efsta par eftir
hverja umferð frítt.
Undanúrslit í Bikarkeppni
Reykjaness
Akveðið hefir verið að undan-
keppni Bikarkeppni Reykjaness
fari fram í félagsheimili bridsspil-
ara á Suðurnesjum 17. marz nk. og
hefst spilamennskan kl. 18.30.
Fjórar sveitir taka þátt í úrslitun-
um og verður dregið á staðnum
hvaða sveitir mætast.
Dreifing: Logaland ehf.
Það mælir allt
með Kyolic
Áratuga notkun og fjöldi
vísindarannsókna staöfesta
hollustu Kyolic.
öheilsuhúsið Heimasíöa:
mælir meö KYOLIC www.kyollc.com
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 55
*
Helgi og Jóhann
tefla til úrslita á
Atskákmóti Islands
SKAK
Hellisheimilið
ATSKÁKMÓT ÍSLANDS
10.-19. mars 2000
, STÓRMEISTARARNIR Helgi
Ólafsson og Jóhann Hjartarson
munu tefla til úrslita um titilinn
„Atskákmeistari Islands" um
næstu helgi. Helgi sigraði Hannes
Hlífar Stefánsson í undanúrslitum
2-1 og Jóhann lagði Margeir Pét-
ursson 2-0. Þessir fjórir skákmenn
hafa allir unnið sér rétt tO þátttöku
á Heimsmótinu í skák sem fram fer
í Kópavogi 1.-2. apríl. Úrslita-
keppnin á Atskákmóti Islands
hófst á föstudagskvöld í Hellis-
heimilinu og urðu úrslit þessi:
Hannes H. Stefánss. - Sigurður Daníelss.
2-0
Margeir Péturss. - Bjöm Þorfinnss. 2-0
JóhannHjartars.-StefánKristjánss. 2-1
Helgi Ólafss. - Gylfi Þórhallss. 2-0
Þröstur Þórh.s. - Hlíðar Þ. Hreinss. 1%-J4
JónL.Amas.-KristjánEðvarðss. 2-0
Jón G. Viðarss. - Sigurbj. Björnss. Wt-Vz
Amar E. Gunnarss. - Áskell Ö. Káras. 2-3
Stefán Kristjánsson kom á óvart
með því að ná sigri gegn Jóhanni
Hjartarsyni í seinni skákinni og þvi
urðu þeir að tefla úrslitaskák þar
sem Jóhann sigraði. Harðast var
hins vegar barist í keppni þeirra
Arnars og Áskels og þurfti fimm
skákir til að skera úr um sigur-
vegarann. Áskell sigraði eftir ýms;
ar ævintýralegar uppákomur. í
átta manna úrslitum fóru leikar
síðan þannig:
Hannes H. Stefánsson - Áskell Ö. Káras.
VA-'á
Margeir Pétursson - Jón G. Viðarsson 2-1
JóhannHjartarson-JónL.Amason 2-0
Helgi Ólafsson - Þröstur Þórhallsson 2-1
Eftir þessa umferð voru ein-
göngu stórmeistarar eftir í keppn-
inni og þeir fyrstu tveir voru jafn-
framt slegnir út í þessari umferð.
Stórmeistaraslagnum í undanúr-
slitum lyktaði þannig:
Hannes H. Stefánss. - Helgi Ólafss. 1-2
Margeir Péturss. - Jóhann Hjartars. 0-2
Keppni þeirra Helga Ólafssonar
og Jóhanns Hjartarsonar um titil-
inn fer fram sunnudaginn 19. mars.
Fyrirhugað er að sýnt verði beint
frá keppninni í sjónvai'pi.
Skákstjórar á mótinu voru þeir
Gunnar Björnsson og Ríkharður
Sveinsson.
Skákþing Garðabæjar
Skákþing Garðabæjar 2000 fór
fram um helgina. Mótið var liður í
Bikarkeppni skákmanna. Alþjóð-
legi meistarinn Sævar Bjarnason
sigraði, eins og á fyrsta bikarmót-
inu, en hann hlaut 614 vinning í sjö
umferðum. Sævar er jafnframt
skákmeistari Garðabæjar árið
2000. Úrslit urðu annars þessi:
1. Sævar Bjamason 614 v.
2. Stefán Kristjánsson 6 v.
3. -5. Guðmundur Kjartansson, Dagur
Amgrímsson, Ólafur Kjartansson 4 v.
6.-7. Róbert Harðarson, Vigfús Ó.
Vigfússon 3'/2V.
8.-10. Pétur Atli Lámsson, Jóhann H.
Ragnarsson, Birkir Öm Hreinsson 3 v.
11. Sigurður Ingason 214 v.
12. Stefán Amalds 2 v.
13. Davíð Kjartansson ' 1 v.
Davíð Kjartansson og Pétur Atli
Lárusson hættu keppni eftir þrjár
umferðir og
Stefán Arnalds eftir 4 umferðir.
Nokkuð góð þátttaka var á mót-
inu, eins og í fyrra, en eins og þá
tóku einungis tveir félagsmenn
Taflfélags Garðabæjar þátt í mót-
inu.
Kramnik og Kasparov
sigra í Linares
Stórmótinu í Linares lauk með
sigri þeirra Kramniks og Kaspar-
ovs sem hlutu báðir 6 vinninga. Úr-
slit mótsins voru óvenjuleg að því
leyti, að allir hinir keppendurnir
urðu jafnir, með 4*4 vinning.
1.-2. Kramnik, Kasparov 6 v.
3.-6. Khalifm., Leko, Shirov, Anand 4Vz v.
Ymsir voru búnir að halda því
fram, að Alexander Khalifman,
heimsmeistari FIDE, ætti ekkert
erindi á mótið og stæði hinum
keppendunum langt að baki. Ann-
að kom hins vegar á daginn. Hann
gerði m.a. jafntefli við Kasparov í
innbyrðis skákum þeirra.
Hlíðar Þór sigrar
á atkvöldi
Hlíðar Þór Hreinsson sigraði
með 5 vinningum af 6 mögulegum á
atkvöldi Hellis sem haldið var 6.
mars. Davíð Kjartansson og Lárus
Rnútsson urðu í 2.-3. sæti með 4'Az
vinning.
1. Hlíðar Þór Hreinsson 5 v.
2. -3. Davíð Kjartansson og
Lárus Knútsson 4Vz v.
4. Bjami Ágústsson 4 v.
5. Birkir Öm Hreinsson 314 v.
6. -8. Vigfús Ó. Vigfússon, Andrés
Kolbeinsson og Pétur Pétursson 3 v.
9.-11. Valdimar Leifsson, Benedikt
EgilssonogGunnarNikulásson 214 v.
o.s.frv.
Skákstjóri var Vigfús Ó. Vigfús-
son. Næsta atkvöld verður haldið
mánudaginn 10. apríl 2000 og hefst
kl. 20.
Skákmót öðlinga
Skákmót öðlinga 2000 hefst mið-
vikudaginn 15. mars kl. 19:30. Mót-
ið er opið öllum sem náð hafa 40
ára aldri. Teflt verður á miðviku-
dögum og hefjast umferðir ætíð kl.
19:30. Tefldar verða sjö umferðir
með umhugsunartímanum 114 klst.
á 30 leiki og síðan 30 mínútur til að
ljúka skákinni. Hægt er að skrá sig
hjá Ólafi Ásgrímssyni í síma 567
6698.
Daði Örn Jónsson
Ein vinsælasta
lækningajurt heims!
iih
náttúrulegal
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Skattaþjónustan ent.
Bergur Guðnason hdl.
Einstaklingar með rekstur
í tilefni flutnings skrifstofunnar auglýsir undirritaður
starfsemi sína. Ég annast hvers konar aðstoð í skatta-
málum þínum. Gott er að eiga hauk í horni allt árið í
frumskógi fjárfestinga og gylliboða. Ég sé um frest-
beiðni, skattframtalið, skattútreikning og veiti þér
skattalega og lögfræðilega ráðgjöf allt árið gegn föstu
gjaldi. Innifalið í fastagjaldinu eru einnig öll svör við
fyrirspurnum skattayfirvalda og kærur, sem kunna að
spretta af framtali þínu. Ég nefni þetta SKATTA-
SKJÓL. Ég hefi orðið dágóða reynslu í skattamálum
og lofa þér traustri og persónulegri þjónustu.
Skattaþjónustan ehf.
Bergur Guðnason hdl.
Garðastræti 37,101 Reykjavík.
Tímapantanir frá kl. 9-17,
sími 511 2828.