Morgunblaðið - 14.03.2000, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 57
I DAG
BRIPS
Umsjón Guómuiidur
Páll Armu'.son
í NÝLEGU viðtali við Jeff
Meckstroth í mánaðarriti
bandaríska bridssamban-
dsins er að fínna 20 ára gam-
alt bútaspil, sem Meckstr-
oth hefur af skiljanlegum
ástæðum ekki gleymt. Hann
var í suður og opnaði í fyrstu
hendi á einu grandi og þar
við sat:
Norður
+ 1094
v G9
♦ K9854
+ 653
Vestur Austur
+ K5 * D873
v D1087 v K54
♦ DG72 ♦ A6
* DG2 * 10974
Suður
+ ÁG62
VÁ632
♦ 103
♦ ÁK8
Vestur kom út með tíg-
ultvist og Meckstroth lét lít-
ið úr blindum og fékk slag-
inn á tíuna þegar austur
ákvað að dúkka. Hann spil-
aði aftur tígli, gosinn úr
vestrinu, lítið úr borði og ás-
inn frá austri. Ágæt byrjun,
en það var enn langt í land.
Austur spilaði laufí, sem
Meckstroth tók með ás og
spilaði spaðagosa. Vestur
drap með kóngi og hélt
áfram með lauf. Meckstroth
dúkkaði, en fékk næsta slag
á laufkónginn. Hann spilaði
nú spaða á níuna. Austur
drap á drottninguna, tók
laufslaginn og spilaði síðan
hjarta í þessari stöðu:
Norður
+ 10
v G9
♦ K9
+ --
Vestur Austur
+ -- +87
v D108 v K54
♦ D7 ♦ -
* - * -
Suður
+ Á6
v Á63
♦ -
* -
Vörnin hefur fengið fimm
slagi þegar hér er komið
sögu. Meekstroth drap á
hjartaásinn og spilaði spaða
á tíuna. Sá slagur þvingaði
vestur, sem varð auðvitað að
halda í tvo tígla og neyddist
því til að fara niður á staka
hjartadrottningu. Meckstr-
oth spilaði þá hjarta úr
blindum. Sem hefur ótrúleg
áhrif. Ef vestur tekur slag-
inn á hjartadrottningu verð-
ur hann að spila tígli og gefa
tvo blindum á K9, og ef aust-
ur hoppar upp með hjarta-
kóng verður hjartasexan að
slag.
Ég fann hann á
flóamarkaði.
Árnað heilla
rj r ÁRA afmæli. í dag,
I fj þriðjudaginn 14.
mars, verður sjötíu og fimm
ára Hreiðar Valtýsson út-
gerðarmaður, Bjarmastíg
4, Akureyri. Hann og eigin-
kona hans, Elsa Jónsdóttir,
eru að heiman.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. febrúar í Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum af
sr. Kristjáni Björnssyni Ka-
derina Yatsenkoa og Hlyn-
ur B. Sigmundsson. Heimili
þeirra er á Brekastíg 12,
Vestmannaeyjum.
/
COSPER
Mjólk? Nei við höfum ekki efni á henni eftir síð-
ustu bensínhækkun.
Ég fékk gamla klef-
ann hans pabba.
SKAK
Uin.sjón Hclgi Áss
Grétarsson
1 # fÁÁ ■4 i
j|r
1 & A
Svartur á leik.
Þessi staða kom upp á
milli stórmeistaranna Ser-
gei Beshukov (2460) og Bor-
is Kantsler (2562) á opna al-
þjóðlega mótinu í Cappelle
la Grande sem lauk fyrir
skömmu. Sá síðarnefndi
hafði svart og fann snjalla
leið til að útkljá skákina.
36.. .Hxf2+ 37.Kxf2 Dxa7+
38.Hxa7 dl=D 39.Rc3 Aðrir
varnarmöguleikar voru ekki
mikið skárri: 39.Dxd7 He2+
40. Kg3 Dgl+ 41.KÍ4
Dxh2+ 42.Kg5 De5+ og
svartur mátar. 39.Re3 leiðir
einnig til taps eftir
39.. .Dd2+ 40.Kg3 Del +
41. Kh3 Hxe3. 39....Dd4+
40.Kg2 Dxa7 og hvítur gafst
upp.
LiOÐABROT
ALFAR
Þeir ganga um haustskóg
í heiðrökkri bláu
á hvítri mjöll,
handan við daginn
og dulheima nætur
að Dísahöll,
burtu úr mannheim
og myrkviði dalsins
á Mánafjöll.
En fylgdu þeim varlega.
- Ur álfheimum enginn
aftur fer.
Ef gistirðu Mánafjöll,
dýrkarðu drauminn,
sem drottnar hér.
Og yrkir um líf,
sem var öðrum gefið
en ekki þér.
Gunnar Dal.
STJORNUSPA
eftir Frances Urake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú leggur þigfram um að
kynnast öðru fólki og átt því
oft betra með að setja þigí
þeirra spor en aðrir.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Nú á tímum komast menn
ekkert upp með að læra ekki
tökin á hinni nýju tölvutækni.
Því verður þú að gera þetta ef
þú vilt ekki verða skilinn eftir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu að standa á móti öll-
um löngunum til þess að eyða
peningum í hluti sem þú ekki
þarft bráðnauðsynlega á að
halda. Annars áttu á hættu að
illa fari.
Tvíburar ^
(21. maí - 20. júní) AA
Reyndu að sýna þínar bestu
hliðar gagnvart vinnufélögum
þínum því þeir eiga ekkert
annað skilið og þín persónu-
legu vandamál eru ekki þeirra
mál.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Það getur verið freistandi að
hlýða kallinu og leggjast til
sunds en gættu þess þá að
synda ekki það langt að þú
eigir ekki örugga leið til lands
aftur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Lykillinn að velgengni er gott
samstarf auk þess sem sam-
starf við aðra kynnir manni ný
og skemmtileg viðfangsefni og
um leið spennandi tækifæriA
Mtzyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að festa sjónir á öllum
þeim smáatriðum sem nauð-
synleg eru svo þú fáir heildar-
myndina. Þetta skiptir sköp-
um íyrir fi-amhald mála og
framtíð þína.
Vog rrr
(23. sept. - 22. október) A 4
Reyndu að finna einhvern sem
kann að deila með þér reynslu
þinni. Síst af öllu þaiít þú á
einhverjum að halda sem ekk-
ert skilur og ekkert kann.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Oft veltir lítil þúfa þungu
hlassi svo þú skalt ekki líta af
hlutunum vHjir þú ekki eiga á
hættu að allt fai-i úr böndun-
umeðauppíloftA
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) Jky
Farðu vailega í viðskipti við
þá sem ekki láta uppi hvert
takmark þeirra er. Það er
aldrei of varlega farið þegar
þannig fólk er annars vegar.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Þú ert kominn í tímahrak með
alla hluti svo nú verðurðu að
stinga við fótum og hreinsa
dagbókina áður en þú tekur að
þér önnur og ný verkefni.
Vatnsberi f ,
(20. jan.r -18. febr.)
Það getur verið erfitt þegar
heilinn og hjartað takast á um
hvaða stefnu mál eiga að taka.
En það er ekki um annað að
ræða en taka ákvörðun fyrr en
seinna.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Farðu varlega í allar meiri-
háttar breytingar í lífi þínu og
gættu þín á þeirri tilhneigingu
að festast í föisku öryggi því
það kann ekki góðri lukku að
stýra.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöI. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
" T27
->ck
'TVfj
AHur er
varinn
góður!
Húðkrabbamein er vaxandi vandamál.
Þú getur varið þig og þína.
Sólarljós og sólbekkir eru helstu orsakavaldar húðkrabbameins.
Stundaðu sólböð í hófi. Forðastu hádegissólina þegar geislarnir eru
sterkastir. Sólbruni er sársaukafullur og getur leitt til húðkrabbameins.
Notaðu sólarvörn, ekki undir styrkleika 15. Hatt í mikilli sól. Sólgler-
augu til að vernda augun. Ljósar og léttar flíkur sem verja hörundið.
Hugsaðu vel um börnin þín, þeirra húð er sérlega viðkvæm.
Varastu endurkast af snjó, ám og vötnum. ?
Mundu, sólin getur valdið sama skaða á íslandi og í sólarlöndunum.
Leitaðu til læknis ef þú tekur eftir húðblettum sem eru stækkandi,
hreistrandi, blæðandi eða eru að breytast í lögun eða lit.
Landlæknisembættið
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu
www.landlaeknir.is
Sólin er ekkert notaleg...
.á skrifstofunni!
FILMA
A GLUGGANN LETTIR ÞER LÍFIÐ
• 3M "Scotchtint" sólarfilma
endurkastar allt að 80% af geislum sólarinnar.
• "Scotchtint" ftlman endurkastar allt að 99% af UV geislum sólar.
Munir í sýningargluggum verslana upplitast ekki fyrir vikið.
• "Scotchtint" er einnig fáanleg sem öryggisfilma.
Ef rúðan brotnar, heldur filman glerinu saman.
• Þeir sem hafa sett "Scotchtint" filmuna á gluggann hugsa hlýtt
til hennar á meðan öðrum er alltof hlýtt.
• Ásetning filmunnar er innifalin f verði.
Hafðu samband og fáðu verðtilboð.
ÁRVÍK
ÁRMÚL11 • REYKJAVÍK• SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295
VIÐSKIPTATÆKIFÆRI
ALDARINNAR!
www. earnfastnow. com
LÁTTU DRAUMA ÞÍNA RÆTAST!
hSólgleraugu
í miklu úrvali
Úhreinsunin
gsm 897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
Laugavegi 62, sími 511 6699