Morgunblaðið - 14.03.2000, Side 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Ófh ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
simi
551 1200
Stóra sóiðið kt. 20.00
GULLNA HLIÐIÐ — Davíð Stefánsson
Mið. 15/3 uppselt, sun 19/3 kl. 21.00. næstsíðasta sýning, lau. 25/3, síðasta sýning.
ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric-Emmanuel Schmitt
Fim. 16/3 uppselt, sun. 26/3. Takmarkaður sýningafjöldi.
LANDKRABBINN — Ragnar Arnalds
Frumsýning fös. 17. mars uppselt, 2. sýn. mið. 22/3 örfá sæti laus, 3. sýn. fim.
23/3 örfá sæti laus.
KOMDU NÆR — Patrick Marber
8. sýn. lau. 18/3 uppselt, 9. sýn. fös. 24/3 nokkur sæti laus, 10. sýn. mið. 29/3,
nokkur sæti laus. Sýningin er hvorki við hæfi barna né viðkvæmra.
GLANNI GLÆPUR í LATABÆ
Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson.
Sun. 19/3 kl. 14 uppselt, sun. 26/3 kl. 14 uppselt, sun. 2/4 kl. 14 nokkur sæti laus,
sun. 9/4 kl. 14 nokkur sæti laus, sun. 16/4 kl. 14 nokkur sæti laus.
KRÍTARHRINGURINN f KÁKASUS — Bertolt Brecht
Þri. 21/3, allra síðasta sýning, uppselt.
Litta sóiðið kt. 2030: ?"Bí
HÆGAN, ELEKTRA — Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir
Fös. 17/3 uppselt, lau. 18/3 nokkur sæti laus, fös. 24/3, sun. 26/3, fim. 30/3.
Smiðaóerkstœðið kt. 20.00: J
VÉR MORÐINGJAR — Guðmundur Kamban
Fös, 17/3 örfá sæti laus, lau. 18/3 örfá sæti laus, fös. 24/3, lau. 25/3.
Miöasalan er opin mánud.—þriðjud. kl. 13—18,
miðvikud.—sunnud. kl. 13—20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551 1200. thorev@theatre.is.
tnstíÖNk
GAMANLEIKRITIÐ
fös. 17/3 kl. 20.30 uppselt
fös. 24/3 kl. 20.30 örfá sæti laus
lau. 1/4 kl. 20.30
GRETTISSAGA
Bettina Rutsch — Dansleikhús
mið. 15. mars kl. 20.30.
g GAMANLEIKRIT
-1 BYGGTÁLÖGUM
O E. JIM STEINMAN
S OGMEATLOAF
þri. 14/3 kl. 20
sun. 19/3 kl. 20
MIÐASALA I S. 552 3000
Miðasala er opin virka daga 10-18, frá kl. 14
lau./sun. og fram að sýningu sýningardaga.
Athugið — ósóttar pantanir seldar
þremur dögum fyrir sýningu
I
Lærisveinn
galdrameistarans
Tónleikar í rauðu röðinni
16. mars kl. 20
Hljómsveitarstjóri og einleikari:
Dmitry Sitkovetsky
Dukas: Apprenti Sorcier
Chausson: Poem
Ravel: Zigane
Rachmanmoff: Sinfónía nr. 3
23. og 25. mars:
Kvikmyndatónlist
Hljómsveitarstjóri og einleikari:
Lafo Schifrin
Miöasala kl. 9-17 virka daga
Háskólabíó v/Hagatorg
Slml 562 2255
www.sinfonia.is
0
SINFÓNÍAN
isi.i:\sk v oi’i.itw
^ta1111 Sími 511 42110
Vortónleikar
auglýstir síðar
Camla Bíó — 551 1475
Tónleikar
HÖRÐUR TORFA
ásamt hlj'ómsveitinni 4. HÆÐ
föstudaginn 17. mars kl. 21.
Miðalala hefst 15. mars
, Listdansskóli Islands
' Keppni i kiassískum
listdansi
mið 15. mars kl. 20
Miðapantanir r síma 588 9188
Miðar seldir samdægurs í
Islensku óperunni
I
ÍMftipllBÍ
lau. 18. mars kl. 20
Síðasta sýning
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
fim 16/3 kl. 20 UPPSELT
fim 23/3 kl. 20 UPPSELT
fös 24/3 kl. 20 UPPSELT
ÞETTA ERU SÍÐUSTU
SÝNINGARNAR
Miðasala opin frá kl. 13-19, mán.—lau.
og alla sýningardaga frá kl. 13 og fram
að sýningu. Símapantanir frá kl. 10.
30 30
SJEIKLSPIR
EINS OG HANN
LEGGUR SIG
mið 15/3 kl. 20 4. kortasýn. UPPSELT
fös 17/3 kl. 20 5. kortasýn. UPPSELT
lau 18/3 kl. 23 aukasýn. örfá sæti laus
lau 25/3 kl. 20 6. kortasýning UPPSELT
lau 25/3 kl. 23 aukasýn. örfá sæti laus
STJÖRNUR Á
MORG UNHIMNI
fim 16/3 kl. 20 UPPSELT
fös 24/3 kl. 20 UPPSELT
lau 1/4 kl. 23. örfá sæti laus
LEIKIR: HÁDEGISLEIKHÚS
mið 15/3 kl. 12 örfá sæti laus
fös 17/3 kl. 12 örfá sæti laus
sun 19/3 ki. 12 örfá sæti laus
mið 22/3 kl. 12
FÓLK í FRÉTTUM
Eitr-
aður
taktur
LAGASMIÐURINN, texta-
höfundurinn og söngkonan
Tori Amos hefur allt frá því
um mitt árið 1992, á svipuðum tíma
og hún heimsótti Island þá nánast
óþekkt, notið mikilla vinsælda um
allan heim fyrir mjög sérstakan stíl,
persónulega texta og sterk tengsl
við aðdáendur sína. Ekkert lát virð-
ist vera á hylli aðdáenda og gott
dæmi um það eru nýleg könnun
meðal lesenda tímaritsins SPIN þar
sem Tori er valin besti sóló listamað-
urinn, besti tónlistarmaðurinn á
sviði, besta forsíðustjarna og hlaut
hún einnig heiðursnafnbótina Kyn-
þokkagyðja ársins.
Það þarf ekki annað en að horfa á
þessa lágvöxnu konu, fagurrautt
villt hárið til þess að gera sér grein
fyrir því að þarna er magnaður ein-
staklingur á ferðinni. Það er síðan
hin mikla útgeislun hennar við ein-
kennandi flutning á tónleikum, sem
dregur fólk að tónlist hennar þar
sem hún fer fimum fingrum um flyg-
ilinn eins og viljalaust verkfæri í
höndum tónlistargyðjunnar.
Kynni þeiira tveggja hófst þegar
Tori hafði vart slitið barnsskónum
og hefur frjótt samband getið af sér
nýja tvöfalda geislaplötu „To Venus
and Back“ þar sem er að finna bæði
nýjar tónsmíðar (venus orbiting) og
eldri lög í tónleikaútgáfum (venus
live). Það var samt nokkuð óvænt að
nýju lögin urðu til en Tori hafði kom-
ið sér vel fyrir í einkahljóðveri sínu í
Cornwall á Englandi til að taka sam-
an safn af óútgefnu efni þegar, eins
og Tori segir frá því „gyðjan greip
mig hálstaki" og linnti ekki látunum
fyrr en komin voru rúmlega tíu ný
lög. Kallað var saman hið einvala lið
hljóðfæraleikara sem eiga það sam-
merkt að hafa leikið undir með henni
á „Plugged" heimstónleikaferðinni
sem farin var árið 1998 og efnið tek-
ið upp hratt og örugglega undir ör-
uggri handleiðslu hennar hátignar
og hirðsveina hennar, þeirra Mark
Hawley og Marcel van Limbeek.
í framhaldi var ákveðið að hljóm-
sveitin ásamt Tori færi yfir upptök-
ur frá tónleikaferðinni, gæfi flutn-
ingnum einkunn frá 1 up í 4 og veldi
þannig best fluttu lögin sem nú
prýða venus live. Þarna kennir ým-
issa grasa en megin uppistaðan eru
lög af síðustu plötu Tori Amos,
„Songs for the Choirgirl Hotel“ en
tónleikaferðin var einmitt farin til að
fylgja eftir útgáfu hennar. Undirrit-
aður sá þá tónleika í San Francisco
þar sem kvað við alveg nýjan tón
með tilkomu hljómsveitarinnar en
fram til þessa hafði listamaðurinn
jafnan verið einn á sviði með Bosen-
dorfer flygilinn. Það var samt ljóst
að það tók smá stund fyrir aðdáend-
ur hennar að átta sig á þessari nýju
stefnu, jafnvel ríflega 200 manna
hóp sem hafði fylgt henni borg úr
borg og séð alla tónleika hennar sem
er lýsandi fyrir þau traustu bönd
sem aðdáendur listamannsins tengj-
ast henni.
Tori er einn þeirra listamanna
SALKA
ósta rsaga
eftir H a 11 d ó r Laxness
Fös. 17/3 kl. 20 nokkur sæti laus
Lau. 18/3 kl. 20 örfa sæti laus
Fös. 24/3 kl. 20 laus sæti
Lau. 25/3 kl. 20 laus sæti
Síðustu sýningar
I MIÐASALA S. 555 2222
Hafnarfjarðarleikhúsið
ERLENDAR
Kjai'tan Guðbergsson,
ráðgjafi hjá Gæðamiðlun
ski'ifar um „To Venus and
Back“, tvöfaldan
safndisk Tori Amos.
sem skilur þau völd sem fylgja því að
vera stjarna og hefur óspart nýtt sér
sviðsljósið til að vekja athygli á og
afla stuðnings þeim málefnum sem
hún styður af heilum hug eins og t.d.
RAINN (Rape Abuse Incest Nat-
ional Network) sem Tori tók þátt í
að stofna árið 1997, en samtökin
reka neyðarþjónustu í Bandaríkjun-
um fyrir konur sem beittar hafa ver-
ið kynferðislegu ofbeldi.
Snemma árs 1992 voru nokkrir Is-
lendingar á ferð á tónlistarráðstefnu
í Cannes í Suður-Frakklandi og
duttu af tilviljun inn á lítinn bar þar
sem stóðu yfir tónleikar ungrar
listakonu sem engin þeirra hafði
heyrt af. Að tónleikunum loknum
ákváðu þeir að bjóða henni að heim-
sækja Island og halda þar tónleika
og brást hún afar vel yið, enda mjög
áhugasöm um heiðna siði, hetjur
miðalda, álfa og tröll. Taldi söngkon-
band Tori við föður sinn er all sér-
stakt en hann er prestur í fæðingar-
borg hennar Baltimore og hefur
hann stutt hana í gegnum ferilinn og
þau áföll sem hún hefur orðið fyrh' á
lífsleiðinni. Hann til að mynda fylgdi
henni á skemmtistaði fyrii' kyn-
hverfa þar sem hún var að troða upp
um svipað leiti og jafnaldrar hennar
á íslandi voru að fermast.
„Glory of the 80’s“ er skemmtileg-
ur óðui' til níunda áratugarins þegar
konur í Bandarkjunum (þar á meðal
Tori) voru með afskaplega mikið og
uppsett hár, gengu í gallabuxum
rifnum af fagfólki og helst hvítum
leðurstígvélum. Leðurjakkar og
gaddaarmbönd þóttu einnig mjög
móðins. Textinn dregur upp mynd af
listakonunni þar sem hún reyndi fyr-
ir sér sem tónlistarmaður á sólbök-
uðum sótidrifnum strætum Los
Angeles horfandi upp á hræsnara
an sem oftar en ekki segist líta út
eins og álfastelpa að á Islandi gæti
hún rætt málin við kynjaverur og
baðað sig í sögulegum fróðleik sem
eflaust yrði henni innblástur.
Seinna þetta ár hafði undirritaður
umsjón með tvennum tónleikum
Tori á Hótel Borg og tókst með okk-
ur ágætur vinskapur sem haldist
hefur æ síðan. Ekki varð hún fyrir
vonbrigðum með samskipti sín við
ýmsar vættir en þegar farið var með
hana þennan týpíska túristarúnt var
það strax á Mosfellsheiðinni sem
hún settist á milli þúfna og spjallaði
við þau sem við hinir höfðum ekki
hæfileika til að sjá eða heyra. Það
sama var uppi á teningnum í Grafn-
ingnum en hvergi meira en þegar
komið var á Mýrdalsjökull og hún
heyrði marrið í jöklinum og brot-
hljóðin þegar þar hann skríður fram.
Þar fór sköpunargleðin af stað og
magnaður krafturinn varð kveikja
að bæði tónlist og einnig tveim nýj-
um köflum í bamabók sem hún var
þá með í smíðum. Bláa lónið varð
einnig vettvangur margra þeirra
ljósmynda sem skrýddu textabók
sem hún gaf út sama ár.
Fundum okkar bar aftur saman
seinna sama ár í Norður-Karólínu
þar sem hún var á tónleikaferðalagi
þar sem boðið var upp á mjög svip-
aða dagskrá en hún var orðin mun
opnari og náði strax mjög góðu sam-
bandi við gestina. A köflum var eins
og fólk væri í transi og mörgum var
mikið niðri fyrir og maður heyrði í
kringum sig frasa eins og „Oh my
God, she’s talking to me“ og „That’s
exactly how I feel“. Þarna sá ég
muninn á íslenskum og erlendum að-
dáendum og gerði mér grein fyrir
því hversu miklu opnari t.d. Banda-
ríkjamenn eru fyrir hugverkum
listafólks.
Fyrri platan sem hefur að geyma
nýja efnið byrjar á laginu „Bliss“
þar sem fjallað er um togstreituna í
sambandi föður og dóttur en sam-
sjúga línu af dufti upp í nösina með
annari hendi og greiða tíu dollara
gíróseðil til styrktar LiveAid með
hinni til að sýna hversu þeir kenndu
í brjóst um þá sem minna mega sín.
Lagið „Datura“ er lofsöngur til
samnefndrar plöntu sem talin er
geta valdið ofskynjunum og jafnvel
dauða ef hennar er neytt og hefur
lengi verið tákn í heiðnum sið Mexi-
kóa og óspart notuð í gjörðum þar-
lendra töfralækna enda áhrifin sögð
opna samskiptaleiðir við æðri mátt-
arvöld. Tori ræktar þessa jurt í
garði sínum I fjöllum Nýju Mexikó
og segir hana hafa komist fyrir eigin
tilstilli á.
„Jurez“ er stórt „klirnax" á plöt-
unni en hugmyndina af því fékk
listamaðurinn þegar hún las grein í
breska dagblaðinu The Guardian um
smábæ á landamærum Mexíkó og
Bandaríkjanna þar sem nokkur
hundruð konum hafði verið nauðgað
og þær drepnar. Þegar Tori átti leið
um svæðið stóðst hún ekki mátið og
heimsótti staðinn. Magnþrunginn
textinn er skrifaður út frá sjónar-
horni eyðimerkurinnar sem heyrði
síðustu andardrætti þeirra látnu.
Önnur lög bíða eftir að maður
uppgötvi þau svona svipað og hefur
gerst með fyrri fjórar plötur hennar.
Tónleikaupptökurnar eru skemmti-
leg upprifjun og spilamennskan þar
framúrskarandi og auðséð að nánast
ekkert hefur verið gert í eftirvinnslu
og því skilar sér vel að hér er um læf
spilamennsku að ræða.
To Venus and Back er eiguleg
plata sem hljómar sem rökrétt fram-
þróun á tónlistarstefnu Tori þar sem
hún fer nýjar leiðir með því að
kynna til leiks eitraðan takt ásamt
hljómsveitarútsetningum laga sinna
sem kunna að hljóma undarlega í
fyrstu fyrir þá sem þekkja tónlist
hennar vel en ætti um leið að opna
eyru miklu stærri hóps sem á það
fyllilega skilið að uppgötva hæfileika
hennar.