Morgunblaðið - 14.03.2000, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
FORVITNILEG
TÓNLIST
Women of Istanbul
Traditional Crossroads
USA
Tyrkneskir
söngfuglar
KONURNAR frá Istanbúl eða
„Women of Istanbul" er framandi,
fallegur og nostalgískur diskur. Petta
er safn laga sem sungin eru af vinsæl-
ustu þokkagyðjum Tyrklands á tíma-
bilinu 1920-1945. Þetta voru tímar
mikilla breytinga í Tyrklandi. Undir
forystu umbótasinnans Mustafa
Kemal Ataturk varð þetta foma
múslimaríki vestrænt, konur komu
undan slæðum sínum og poppmenn-
ing ættuð frá Amerflcu og Evrópu
varð til í landinu. Á disknum má
heyra mót þessara menningar-
strauma þar sem vestrænar kabarett-
stemmningar blandast fomri tyrk-
neskri tónlistarhefð.
Á þessum tíma var áhættusamt
fyrir tyrkneskar konur að syngja
opinberlega. Þær vom útskúfaðar
úr fjölskyldum sínum, kallaðar hórur
og þaðan af verra. Það þurfti hug-
rekid til að standa á sviði og skemmta
fólki.
Þær átján söngkonur sem prýða
þennan disk vora hugrakkir braut-
ryðjendur poppmenningar í Tyrk-
landi. Sumar vora stórstjömur og
njóta enn vinsælda í Tyrklandi en
aðrar féllu í gleymsku. Þessi útgáfa er
einstaklega vel muiin og útgefendur-
nir þurftu að róta í rykfollnum skran-
búðahillum til að finna sumar upptök-
umar og mikil vinna hefur farið í að
afla upplýsinga um hverja söngkonu.
Textar laganna fylgja með í enskri
þýðingu og það er gaman að lesa ynd-
islegar sögur um smalastúlkur í
fjallakofum og horfna elskhuga þeirra
meðan seiðandi tónlistin lullar í spil-
aranum. Einnig má finna þurrpumpu-
leg ævisöguágrip söngkvennanna í
bæklingnum, sem mættu vera safa-
ríkari, því þarna era margar spenn-
andi konur eins Safiye Ayla, sem köll-
uð var Edith Piaf þeirra Tyrkja.
Tónlistin er austræn og dulúðug og
þama má greina leifar af horfnum
heimi ópíumhúsa og magadans.
Upptökumar sem í flestum tilfell-
um era fengnar af upphaflegu
vaxrúllunum era hreinsaðar með staf-
rænum aðferðum og því sarglausar
og hreinlegar og tónlistin kemst vel til
skila. Konumar frá Istanbúl fylla
hvert heimili framandi og munúðar-
fullri stemmningu.
Ragnar Kjartansson
Alanis
Morriss-
ette verð-
launuð
SÖNGKONAN Alanis Morrissette
fékk Juno-verðlaunin fyrir bestu
plötu síðasta árs þegar Juno-hátíðin
var haldin í Toronto á dögunum.
Kanadamenn eru að vonum stoltir
áf poppstjömunni sinni en hún hef-
ur einnig hlotið ýmsar alþjóðlegar
viðurkenningar á ferli sinum. A
Juno-hátiðinni var hún verðlaunuð
fyrir aðra breiðskífu sína, „Suppos-
ed Former Infatuation Junkie" sem
einnig hefur notið mikifla vinsælda
utan kanadískra landamæra.
Reuters
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
Suðurlandsbraut 56 • Austurstræti 20 • Kringlan
ÞriðjudagAr
daðar
/V\
McDonalds
■ ■ B™
McHamborgari
AÐEINS
AÐEINS
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 61
Peter Begg er kominn aftur.
Hann er gestur okkar í eldhúsi La Primavera
til 22. marz. Peter er yfirkokkur á einum
skemmtilegasta veitingastað í Evrópu,
The River Cafe í London. Gagnrýnendur
hafa kallað River Cafe hið fullkomna eldhús
og nú gefst okkur færi á að njóta þess.
Við munum að þessu tilefni bjóða upp
á sérstakan ítalskan vínseðil og gefa gestum
kost á að bragða á nokkrum tegundum
áður en þeir velja sér vín.
Borðapantanir í síma 561 8555.
T H E
R I V E R
C|
c
B
R I V E R
C A F E
C O O K
B OO K
T W O
r
PRIMAVERA
RISTORANTE
AUSTURSTRÆTI 9 - SÍMI 561 8555
.4