Morgunblaðið - 14.03.2000, Page 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Nú varstu heppin. Eða varstu kannski heppinn? Skiptir ekki máli.
Þú ert heppnari en margir því þú varst að taka eftir auglýsingu fyrir
námsstyrki Landsbankans. Ef þú ert í Námunni skaltu senda inn umsókn
fyrir 15. mars nk. Allar nánari upplýsingar um Námustyrk á www.naman.is.
Lantfsbankínn
FOLKI FRETTUM
%vi€/V(VvV - Gœðavara
Gjafavara — matar- og kaffislell
Allir verðflokkar. .
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Kærast-
inn er
kúreki
POPPSTJARNAN Jewel á
kærasta sem er kúreki.
Hann heitir Ty Murrey og
tekur oft þátt í kúrekasýn-
ingum af ýmsu tagi. A dög-
unum er Jewel var stödd í
New York til að horfa á
eina af þeim sýningum sem
kúrekakærastinn tók þátt í
fékk hún það hlutverk að
halda f hestinn á meðan
knapinn gerði sig tilbúinn.
Reuters
Einfaldara og
þægilegra!
Skiptu yfir í nutímaiegra greiðsluform!
Frá og með mánaðamótunum mars-apríl hætta blaðberarað innheimta
áskriftargjöld. Þess í stað geta áskrifendur valið um að greiða
áskriftina að Morgunblaðinu með greiðslukorti eða beingreiðslu.
Þannig verður innheimtan einfaldari og þægilegri fyrir áskrifendur.
Vinsamlegast hafðu samband við okkur fyrir 21. mars í síma 800 6122.
Við hlökkum til að heyra í þér.
ÁSKRIFTARDEILD
Sími: 569 1122 • Bréfasími: 569 1115 • Netfang: askrift@mbl.is
Áskriftardeildin er opin kl. 8-20 mánudaga, 6-20 aðra virka daga, 6-21 á laugardögum og 8 -14 á sunnudögum.
Starfsmenn okkar munu hafa samband á næstu dögum
við þá áskrifendur sem ekki hafa hringt inn.
'vl
MYNDBOND
Grimm
örlög
VITFIRRT ÁST
(Love and Rage)
DRAMA
★★
Leikstjóri: Cathal Black. Handrit:
James Carney og Brian Lynch. Að-
alhlutverk: Greta Scacchi, Daniel
Graig og Stephen Dillane. (97 mín.)
Bretland. Skífan, 2000.
Bönnuð innan 12 ára.
ÞESSI breska kvikmynd er einkar
sérstæð, ef ekki stórfurðuleg. Sagan
sem þar er sögð mun vera byggð á
raunverulegum atburðum, sem eru
sérlega óhugnanlegir. Við kynnumst
hhhhbh aðalskonunni Agn-
es McDonnel sem á
miklar landeignir á
írsku eyjunni
Achill. Með hörk-
unni og sjálfs
traustinu ferst
henni rekstur jarð-
anna vel úr hendi,
allt þar til dular-
fullur ungur maður
kemur inn í líf hennar. Þetta er
loddarinn James Lynchehaun sem er
jafn varhugaverður og hann er heill-
andi. Sagan sem á eftir fylgir er sem
fyrr segir óhugnanleg og kemur ef til
vill flatt upp á áhorfandann vegna
þess hversu ómarkviss sögufléttan
er. Myndin er hins vegar vel tekin,
umgjörðin vönduð og Greta Scacchi
er heillandi í hlutverki hinnar vilja-
sterku og lífsglöðu aðalskonu. Með
sterkum leik sínum nær hún jafn-
framt að koma dálítilli ljósglætu inn í
þessa annars niðurdrepandi kvik-
mynd.
Heiða Jóhannsdóttir
Villti tryllti
Villi
VILLTA VESTRIÐ
(Wild Wild West)
V E S T It I
★ 1/2
Leikstjóri: Barry Sonnenfeld.
Handrit: Jim Thomas, John Thom-
as. Aðalhlutverk: Will Smith, Kevin
Kline, Kenneth Branagh, Salma
Hayek. Bandaríkin 1999. (107 mín.)
Wamer-myndir. Öllum leyfð.
I IÐNAÐARBORGINNI henni
Hollywood gerist það alltaf annað
veifið að menn týna sér í mikilmenn-
skunni. I sanngirni hendir þetta þó
einkum þá sem ekki standa undir
velgengninni sem þeim hefur hlotn-
ast. Þetta kom skýrt í Ijós í Godzilla
þar sem Roland Emmerich afhjúp-
aði hversu grunnur
kvikmyndagerðar-
maður hann í raun
er þrátt fyrir tvær
vinsælar og býsna
vel heppnaðar
myndir þar á und-
an. Hið sama kem-
ur upp á teninginn i
Villta vestrinu. Allt
síðan Barry Sonn-
enfeld fór úr tökustjórastólnum í
leikstjórastólinn hefur hann notið
ótrúlegrar velgengni en myndimar
hans hefur samt flestar skort eitt-
hvað. Innihaldið er jafnan sáralítið,
sagan rýr og tilfinningin nánast eng-
in. Útlitið bara flott. Fagmannleg
tæknivinna, flottar brellur og mikill
hasar. I Villta vestrinu er Sonnen-
feld enn að klikka á þessum lykila-
triðum en nú augljósar en áður. Hon-
um tókst vel að skýla sér bak við
skemmtilegar brellur í Svartklæddu
mönnunum en í vestra duga brellur
skammt jafvel þótt þessum sé ætlað
að vera óvenjulega tæknilegur.
Leikurum verður ekki um kennt.
Þeir gera sitt til að bjarga málunum
og gaman væri að sjá þá Smith og
Kline leika saman á ný með kjöt-
meira handrit milli handanna.
Skarphéðinn Guðmundsson