Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 64. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Forsætisráðherra Kína harðorður fyrir forsetakosningar á Taívan Zhu ver yfírlýstan rétt Kína til valdbeitingar VFP, AP, Reuters. Zhu Rongji Peking. AFP, ZHU Rongji, forsætisráðherra Kína, hvatti á blaðamannafundi í gær taív- anska kjósendur til að sýna ekki hvatvísi í forsetakosningunum á laugardag með því að kjósa þann sem vildi eyjuna sjálfstæða og sagði hann Kín- verja reiðubúna til að úthella blóði sínu til að vinna Taívan á ný. Forsætisráð- herrann, sem hef- ur verið sá maður í forystusveit kommúnista- stjómarinnar í Peking sem einna mest hefur lagt sig fram um vinsam- leg samskipti við Vesturlönd, varði rétt Kína til valdbeitingar ef Taívan- ar gerðu alvöru úr sjálfstæðiskröfum og hvatti Taívana til að sniðganga Chen Shui-bian, sem er einn þriggja frambjóðenda sem sækjast eftir taív- anska forsetaembættinu og sá eini þeirra sem er yfírlýstur sjálfstæðis- sinni. Hinir tveir eru Lien Chan, nú- verandi varaforseti og frambjóðandi stjómarflokks þjóðemissinna, Kuomintang, og hinn óháði James Soong. Þeir snera í gær allir bökum saman til að mótmæla hótunum frá Peking. Tjáðu þeir hundraðum þús- unda stuðningsmanna á útifundum að eyjan nyti „sjálfstæðs fullveldis". Sagði Zhu að íbúar Taívan stæðu nú á krossgötum og mikilvægt væri Dow Jones tekur kipp en Nasdaq lækkar enn Ncw York. AP.AFP. DOW Jones-verðbréfavísitalan í New York styrktist um rúm- lega 320 punkta í gær, eða um 3,3%, er fjárfestar losuðu fé úr hátæknifyrirtækjum og fjár- festu þess í stað í hlutabréfum í hefðbundnum aðallistaiðn- fyrirtækjum. Þetta var fjórða mesta aukning sem orðið hefur í eins dags viðskiptum í þessari umsvifamestu kauphöll heims. Samtímis þessu héldu hluta- bréf í hátæknifyrirtækjum áfram að falla. Nasdaq-vísital- an lækkaði um 124 punkta, eða 2,6%. Samtals hefur fall vísitöl- unnar sl. þrjá daga verið 9,2%. Líftæknifyrirtæki, sem áttu stærstan þátt í hrani Nasdaq í fyrradag - í kjölfar samkomu- lags brezkra og bandarískra stjórnvalda um opinn aðgang að grunn-erfðaupplýsingum - réttu lítillega úr kútnum í gær. Bréf í Human Genome Sciences, einu samkeppnisfyr- irtækja Islenzkrar erfðagrein- ingar, hækkuðu t.a.m. nokkuð. ■ Þáttaskil /26 Stuðningsfólk taívanska forsetaframbjóðandans James Soong var glaðbeitt á kosningafundi í Tafpei f gær. að þeir forðuðust ákvarðanir sem þeir myndu síðar iðrast. „Leyfið mér að ráða íbúum Taívan heilt. Látið hvatvísina ekki ráða í málefnum þar sem framtíðarstefna Taívan mun ráðast. Annars óttast ég að ekki verði veitt annað tækifæri til iðrunar," sagði Zhu og kvaðst trúa því að Taívanar létu skynsemina ráða. Stjómvöld í Peking hafa ítrekað varað íbúa Taívan við að frekari sjálfstæðisumleitanir muni leiða til stríðs, en Kínverjar líta á Taívan sem uppreisnarhérað innan kínverska ríkisins. „í hófsamara lagi“ Á fundinum hæddist Zhu að er- lendum stjórnmálaskýrendum sem segðu Kína ekki geta náð Taívan undir sína stjóm. „Kínverjar munu úthella blóði sínu og fóma lífi tíl að verja einingu og virðingu ættjarðar- innar og kínversku þjóðarinnar," sagði hann. Þá sagði hann Kínverja reiðubúna til viðræðna við sigurvegara forseta- kosninganna en ítrekaði að Kína myndi aldrei gefa Taívan eftir. Að sögn Davids Zweig, Kínasér- fræðings við Tækniháskóla Hong Kong, vora ummæli Zhus „í hófsam- ara lagi“ miðað við aðrar yfirlýsingar um Taívan sem frá Pekingstjórninni hafa komið. Hart í ári í Mongólíu HIRÐINGJABÖRN í Mongólíu reka hér sauðahjörð heim að vetrarbúð- um sínum í Uvurkhangai-héraði, um 350 km suðvestur af höfuðborg- inni Ulan Bator. Veturinn í Mong- élíu hefur verið sá harðasti í 30 ár og hefur það valdið miklum fjár- felli, einkum í Uvurkhangai-héraði. Fjárbúskapur er undirstaða mann- lífs á þessum sléðum. Afhending 6,1% Yest- urbakkans samþykkt Jerúsalem, Beirút. AP, AFP. ÖRYGGISRÁÐ ísraela samþykkti í gær með fimm atkvæðum gegn þrem- ur að ísraelar láti af hendi 6,1% Vest- urbakkans áður en friðarviðræður við Palestínumenn heljast í Washington í næstu viku. Tillaga fsraela hefúr ver- ið samþykkt af Yasser Arafat, leið- toga Palestínumanna, sem hefur hafnað fyrri tillögum ísraela um hvaða landsvæði skyldu látin af hendi. Talið er líklegt að svæðin, sem era byggð fjölda Palestínumanna, verði afhent á sunnudag eða mánudag, en í byrjun næstu viku hefst tíu daga samningalota í Washington um fram- hald friðarferlisins. Nokkrar breyt- ingar urðu á afhendingartillögum Ehud Baraks, forsætisráðherra Isra- els, en ekki varð af því að í sraelar létu þorpið Anata við útjaðar Jerúsalem- borgar af hendi vegna harðra mót- mæla, m.a. af hálfu þingmanna í stjóm Baraks, sem hótuðu stjómar- slitum ef af yrði. Hörð viðbrögð ísraela hafa vakið upp spumingar um framtíð friðarferl- isins, en gert er ráð fyrir að þjóðimar þurfi að ná sátt um fjögur lykilatriði, m.a. stöðu Jerúsalemborgar. Súkkulaði- deila leyst Strassborg. AP. EVRÓPUÞINGIÐ afnam í gær 30 ára bann við sölu á bresku mjólkur- súkkulaði á meginlandinu. Hefur verið deilt um það hvemig skilgreina skuh súkkulaði. Evrópuþingið samþykkti nýja reglugerð um súkkulaði en sam- kvæmt henni má jurtafita eða jurta- olía, önnur en kakósmjör, vera allt að 5% af súkkulaðinu. í bresku mjólk- ursúkkulaði er meira af jurtaolíu en minna af kakói en á meginlandinu en breska súkkulaðið er ódýrara. Það verður kallað „fjölskyldusúkkulaði" er það kemur í búðir á meginlandinu. Súkkulaðiunnendur, ekki síst í Belgíu, hafa lengi mótmælt innflutn- ingi á bresku súkkulaði og halda því fram að súkkulaði, sem sé aðeins súkkulaði að hluta, eigi ekki skilið að vera kallað því nafni. Tilraunir til að sameina borgina Kosovska Mitrovica hafnar Kosovska Mitrovica. AP, AFP, Reuters. FRANSKIR friðargæzluliðar áttu í gær í átökum við hundrað Serba, sem reyndu að brjótast inn á örygg- issvæði, sem komið var upp í einu hverfi borgarinnar Mitrovica í Kos- ovo-héraði. Höfðu gæzluliðarnir áð- ur bolað sjálfskipuðum „brúareftir- litsmönnum" úr hópi serbneskra íbúa borgarinnar frá mikilvægri brú, í því skyni að hrinda í framkvæmd áætlun um að sameina borgina. Tals- menn Atlantshafsbandalagsins, sem fer fyrir KFOR-friðargæzluliðinu, segja áætlunina eiga að geta dregið úr spennu milli þjóðernishópanna tveggja, Serba og Kosovo-Albana. Serbneskar konur fóra í fylking- arbrjósti mótmælenda og grýttu þær hermennina, sem svöraðu fyrir sig með táragasi og höggsprengjum. Átök milli Serba og gæzluliða Talsmenn KFOR sögðu tvo franska hermenn hafa hlotið lítilsháttar meiðsl. Serbar sögðu fimmtán manns úr sínu liði hafa slasazt, þar af tvo alvarlega. Fréttamaður Reuters nefbrotnaði. „Okkur tókst að koma „brúareftir- litsmönnunum" á brott; það er það mikilvægasta," sagði þýzki hershöfð- inginn Klaus Reinhardt, yfirmaður KFOR-sveitanna, er hann kom til Mitrovica skömmu eftir átökin. Serbar og Albanar bjuggu áður saman í borginni, en nú er henni skipt upp eftir þjóðemi. Vilja Serbar ekki hleypa Albönum inn í sín hverfi og segja, að gæzluliðarnir muni ekki geta varið þá fyrii’ hefndaraðgerðum Albana, sem eru miklu fleiri en Serb- arnir. Javier Solana, æðsti talsmaður Evrópusambandsins í utanríkis- og öryggismálum, sagði í gær í Skopje í Makedóníu að miklir erfiðleikar væra í Kosovo. „Við skulum ekki búast við neinum kraftaverkum þar, en við megum ekki gefast upp við að reyna að þoka málunum áleiðis," sagði Solana að loknum fundi með Aleksander Dimitrov, utanríkisráð- herra Makedóníu. Solana sagði að væntanlegar kosn- ingar í Kosovo 1. október nk. myndu ráða miklu um framhaldið og hann skoraði á leiðtoga Kosovo-Albana að styðja lýðræðislega þróun og stöðva ofbeldið í landinu. MORGUNBLAÐIÐ16. MARS 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.