Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 66
MORGUNBLAÐIÐ 66 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 -------------------------- Dýraglens Ljóska HVERNIG LIST t>ER A AÐP EG BREYtl GARÖINUM OKKALÍPÚTTFLÖT, ÁSITN MÍN ? " " EG GERIPETTA ALLJ SJALFUR. EG FÆRI LÍSTPERÁ? ÉG ÚTSKÝR6IPETTA ALLT FYRIR HENNI,') Fyrirgefðu að ég skyldi ekki Nógu stór, ha. ná þessum stjóri, kannski er luí veist hanskinn minn ekki nógu stór. hvað er að. BREF TTL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Framtið Samfylk- ingarinnar Frá Sverri Ólafssyni: TILURÐ Samfylkingarinnar sem kosningabandalags og komandi flokksstofnun hennar, hefur svo sannarlega tekið nokkurn tíma. Mörgum flnnst reyndar að aðdrag- andi þessa máls sé orðinn langur, það er þó ekki skoðun þess sem þetta ritar. Ýmsir „fjósbitapúkar" hafa talið sig finna mikinn veislukost í þeirri umræðu og spekúlasjónum sem nauðsynlegar hafa verið til þess að Samfylkingin gæti orðið að veru- leika. Ekki tel ég ástæðu til að hafa frekari áhyggjur af mataræði fjós- bitapúkanna, enda eiga þeir það sameiginlegt með forföður sínum að fítna helst af því sem miður fer en veslast upp við það sem vel er gert, í þessu tilviki aukið réttlæti, bættan hag og kjör almennings. Reyndar er það skoðun mín, að þessi undanfari að stofnun Samfylk- ingarinnar, hafi ekki með nokkru móti getað, né átt að hafa tekið skemmri tíma. Það er einfaldlega svo, að í lýðræðislegum stjórnmála- samtökum þurfa félagamir að geta óhikað skipst á skoðunum og opin- skátt tekist á um stefnumálin. Þetta hefur verið gert á vettvangi Samfylkingarinnar á undanförnum misserum og öll þau skoðanaskipti munu verða flokknum drjúgt vegar- nesti og þjóðinni allri til framdráttar. Framundan er stofnfundur Sam- fylkingarinnar, formanns- og stjórn- arkjör. Hugsanlega er um að ræða eitt örlagaríkasta skref Samfylking- arinnar til langrar framtíðar. Val okkar á fyrstu forystu mun að vissu marki móta allt framhaldið og því skiptir öllu máli að vel verði að valinu staðið. Við íslendingar búum, Guði sé lof, við lýðræðislegt þjóðskipulag, þó að vissulega megi til sannsvegar færa að betur mætti halda utan um og vernda þetta fjöregg þjóðarinnar. Af lýðræðinu leiðir einnig að Samfylk- ingin verður að vera í stakk búin til að vinna í samstarfi við önnur pólit- ísk öfl t.d. í ríkisstjóm, án þess þó að fórna stefnumálum sínum. Forysta Samíylkingarinnar verður að vera trúverðug. Hún verður að vera með þeim hætti, að aldrei leiki vafi á að orðum okkar fólks megi treysta. Önnur stjórnmálaöfl á Islandi, sem mynda pólitískt landslag okkai’, verða að geta treyst því að Samfylk- ingin vinni af heilindum og stefnu- festu, en láti ekki stjómast af henti- stefnu og stundarhagsmunum. Af hverju er ég að setja þessi orð á blað? Jú, við kjör forystu Samfylk- ingarinnar höfum við hugsanlega um að velja tvo kosti. Annarsvegar trú- verðugleika og stefnufestu, sem vita- skuld mun leiða okkur til valda í þessu landi og þar með gefa okkur tækifæri á sköpun betra og réttlát- ara samfélags, en hinsvegar að leiða fram á völlinn foiystu sem ekki er trúverðug og gerir þvi Samfylking- una að einskonar „krónískum" stjórnarandstöðuflokki, sem aldrei fær tækifæri til þess að sanna verð- ugleika stefnumála sinna. Valið er í reynd ekkert flóknara en þetta! Sem betur fer hefur Samfylkingin óvenjulega mörgu, hæfileikaríku og vel gerðu fólki á að skipa og því alls ekki ætlan mín að gera því skóna að líkur séu miklar á að til forystunnar veljist fólk sem þangað á lítið erindi. Við verðum hinsvegar að vanda okk- ar val með þeim hætti að okkar besta fólk, veljist til verka. Við þurfum fólk með stefnufestu og lífsýn frelsis, jafnaðai- og félags- hyggju að leiðarljósi. Við þurfum fólk með mikla og víðtæka reynslu, hvort heldur um er að ræða pólitísk- an feril eða persónulega, mannlega reynslu, og er í nánum tengslum við og skilur þarfir og væntingar fólks- ins í landinu. Við þurfum fólk sem er jafnvel að sér í sveitarstjórnarmál- um og í landsmálum. Við þurfum fólk sem hefur kjark og þor til að fylgja stefnu okkar fast eftir, en hefur einnig til að bera þann trúverðugleika og samvinnuvilja að geta á heilsteyptan hátt unnið með fólki sem deilir ekki endilega öllum okkar skoðunum og baráttumálum. Við þurfum fólk sem ekki hengir sig í gamlar og úreltar hugsjónakreddur sem ekkert erindi eiga við nútíman. Við þurfum forystu sem lætur sátt- fýsi, bjartsýni, víðsýni og réttsýni stjórna ákvörðunum og gjörðum. Fólk sem mætir hverju málefni með opnum huga. Stöndum því saman um að gera framtíð Samfylkingarinnar bjarta og gifturíka og vöndum valið. SVERRIR ÓLAFSSON, myndhöggvari, Kirkjuvegi llb, Hafnarfirði. SLYSAVARNAFÉLAGID LAWDSBJÖRG Lanðuambond bjðrgunarsveita Happdrætti Slysavarnafélagsins Landsbjargar Dregið hefur verið í öðrum útdraetti happdrættisins. Aðeins dregið úr greiddum miðum. Eftirtaldir uðilur hlutu vinning: 1. IBM PC heimilistölvo fró Nýherjo að verómæti 160.000 kr. Nafn: Halldór Vilhjólmsson, Kirkjubraut 36,780 Höfn Miði nr. 49864 2. Ferð til Dublinar fyrir tvo að verðmæti 75.000 kr. Nafn: Hallgrímur I. Guðmundsson, Hótúni 29, 230 Keflavik Miðinr. 37575 3. Ferð til Dublinor fyrir tvo að verðmæti 75.000 kr. Nafn: Áhöfnin ó Múlabergi ÓF 032, Aðalgötu 16, 625 Ólafsfirði. Miði nr. 124367 Allt efni sem birtist í Morgunblað- inu og Lesbók er varðveitt í upplýs- ingasafni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbir- tingu eða á annan hátt. Þeir sem af- henda blaðinu efni til birtingar telj- ast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. (BIODROGA^I Snyrtivörur Q-10 húðkremið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.