Morgunblaðið - 16.03.2000, Side 66
MORGUNBLAÐIÐ
66 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
--------------------------
Dýraglens
Ljóska
HVERNIG LIST t>ER A AÐP EG BREYtl
GARÖINUM OKKALÍPÚTTFLÖT,
ÁSITN MÍN ? " "
EG GERIPETTA ALLJ SJALFUR. EG FÆRI
LÍSTPERÁ?
ÉG ÚTSKÝR6IPETTA ALLT FYRIR HENNI,')
Fyrirgefðu að ég skyldi ekki Nógu stór, ha.
ná þessum stjóri, kannski er luí veist
hanskinn minn ekki nógu stór. hvað er að.
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Framtið Samfylk-
ingarinnar
Frá Sverri Ólafssyni:
TILURÐ Samfylkingarinnar sem
kosningabandalags og komandi
flokksstofnun hennar, hefur svo
sannarlega tekið nokkurn tíma.
Mörgum flnnst reyndar að aðdrag-
andi þessa máls sé orðinn langur,
það er þó ekki skoðun þess sem þetta
ritar.
Ýmsir „fjósbitapúkar" hafa talið
sig finna mikinn veislukost í þeirri
umræðu og spekúlasjónum sem
nauðsynlegar hafa verið til þess að
Samfylkingin gæti orðið að veru-
leika. Ekki tel ég ástæðu til að hafa
frekari áhyggjur af mataræði fjós-
bitapúkanna, enda eiga þeir það
sameiginlegt með forföður sínum að
fítna helst af því sem miður fer en
veslast upp við það sem vel er gert, í
þessu tilviki aukið réttlæti, bættan
hag og kjör almennings.
Reyndar er það skoðun mín, að
þessi undanfari að stofnun Samfylk-
ingarinnar, hafi ekki með nokkru
móti getað, né átt að hafa tekið
skemmri tíma. Það er einfaldlega
svo, að í lýðræðislegum stjórnmála-
samtökum þurfa félagamir að geta
óhikað skipst á skoðunum og opin-
skátt tekist á um stefnumálin.
Þetta hefur verið gert á vettvangi
Samfylkingarinnar á undanförnum
misserum og öll þau skoðanaskipti
munu verða flokknum drjúgt vegar-
nesti og þjóðinni allri til framdráttar.
Framundan er stofnfundur Sam-
fylkingarinnar, formanns- og stjórn-
arkjör. Hugsanlega er um að ræða
eitt örlagaríkasta skref Samfylking-
arinnar til langrar framtíðar. Val
okkar á fyrstu forystu mun að vissu
marki móta allt framhaldið og því
skiptir öllu máli að vel verði að valinu
staðið.
Við íslendingar búum, Guði sé lof,
við lýðræðislegt þjóðskipulag, þó að
vissulega megi til sannsvegar færa
að betur mætti halda utan um og
vernda þetta fjöregg þjóðarinnar. Af
lýðræðinu leiðir einnig að Samfylk-
ingin verður að vera í stakk búin til
að vinna í samstarfi við önnur pólit-
ísk öfl t.d. í ríkisstjóm, án þess þó að
fórna stefnumálum sínum. Forysta
Samíylkingarinnar verður að vera
trúverðug. Hún verður að vera með
þeim hætti, að aldrei leiki vafi á að
orðum okkar fólks megi treysta.
Önnur stjórnmálaöfl á Islandi, sem
mynda pólitískt landslag okkai’,
verða að geta treyst því að Samfylk-
ingin vinni af heilindum og stefnu-
festu, en láti ekki stjómast af henti-
stefnu og stundarhagsmunum. Af
hverju er ég að setja þessi orð á
blað? Jú, við kjör forystu Samfylk-
ingarinnar höfum við hugsanlega um
að velja tvo kosti. Annarsvegar trú-
verðugleika og stefnufestu, sem vita-
skuld mun leiða okkur til valda í
þessu landi og þar með gefa okkur
tækifæri á sköpun betra og réttlát-
ara samfélags, en hinsvegar að leiða
fram á völlinn foiystu sem ekki er
trúverðug og gerir þvi Samfylking-
una að einskonar „krónískum"
stjórnarandstöðuflokki, sem aldrei
fær tækifæri til þess að sanna verð-
ugleika stefnumála sinna. Valið er í
reynd ekkert flóknara en þetta! Sem
betur fer hefur Samfylkingin
óvenjulega mörgu, hæfileikaríku og
vel gerðu fólki á að skipa og því alls
ekki ætlan mín að gera því skóna að
líkur séu miklar á að til forystunnar
veljist fólk sem þangað á lítið erindi.
Við verðum hinsvegar að vanda okk-
ar val með þeim hætti að okkar besta
fólk, veljist til verka.
Við þurfum fólk með stefnufestu
og lífsýn frelsis, jafnaðai- og félags-
hyggju að leiðarljósi. Við þurfum
fólk með mikla og víðtæka reynslu,
hvort heldur um er að ræða pólitísk-
an feril eða persónulega, mannlega
reynslu, og er í nánum tengslum við
og skilur þarfir og væntingar fólks-
ins í landinu. Við þurfum fólk sem er
jafnvel að sér í sveitarstjórnarmál-
um og í landsmálum.
Við þurfum fólk sem hefur kjark
og þor til að fylgja stefnu okkar fast
eftir, en hefur einnig til að bera þann
trúverðugleika og samvinnuvilja að
geta á heilsteyptan hátt unnið með
fólki sem deilir ekki endilega öllum
okkar skoðunum og baráttumálum.
Við þurfum fólk sem ekki hengir sig í
gamlar og úreltar hugsjónakreddur
sem ekkert erindi eiga við nútíman.
Við þurfum forystu sem lætur sátt-
fýsi, bjartsýni, víðsýni og réttsýni
stjórna ákvörðunum og gjörðum.
Fólk sem mætir hverju málefni með
opnum huga.
Stöndum því saman um að gera
framtíð Samfylkingarinnar bjarta og
gifturíka og vöndum valið.
SVERRIR ÓLAFSSON,
myndhöggvari,
Kirkjuvegi llb, Hafnarfirði.
SLYSAVARNAFÉLAGID LAWDSBJÖRG
Lanðuambond bjðrgunarsveita
Happdrætti
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Dregið hefur verið í öðrum útdraetti
happdrættisins.
Aðeins dregið úr greiddum miðum.
Eftirtaldir uðilur hlutu vinning:
1. IBM PC heimilistölvo fró Nýherjo að verómæti 160.000 kr.
Nafn: Halldór Vilhjólmsson, Kirkjubraut 36,780 Höfn
Miði nr. 49864
2. Ferð til Dublinar fyrir tvo að verðmæti 75.000 kr.
Nafn: Hallgrímur I. Guðmundsson, Hótúni 29, 230 Keflavik
Miðinr. 37575
3. Ferð til Dublinor fyrir tvo að verðmæti 75.000 kr.
Nafn: Áhöfnin ó Múlabergi ÓF 032, Aðalgötu 16,
625 Ólafsfirði. Miði nr. 124367
Allt efni sem birtist í Morgunblað-
inu og Lesbók er varðveitt í upplýs-
ingasafni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endurbir-
tingu eða á annan hátt. Þeir sem af-
henda blaðinu efni til birtingar telj-
ast samþykkja þetta, ef ekki fylgir
fyrirvari hér að lútandi.
(BIODROGA^I
Snyrtivörur
Q-10 húðkremið