Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ ÍDAG BRIDS Umsjún (luúmundur l'áll Arnarson EFTIR opnun austurs á tígli keyrir suður í slemmu, nán- ast upp á eigin spýtur. Austur gefur; allir á hættu. Norður * 97653 * KD74 * 1052 + 2 Suður * 5 v A3 * A98 * AKDG1097 Vestur Noröur Austur Suður 1 tígull Dobl Pass lspaði Pass 2tíglar Pass 3hjörtu Pass 61auf Pass Pass Pass Sagnir suðurs bera vott um mikla bjartsýni og hann má teljast heppinn að makk- er skuli leggja tvo slagi í púkkið. Samt vantar einn og hann virðist ekki auðfenginn þegai- vestur spilar út tígul- sjöu upp á gosa austurs. Hvernig myndi lesandinn spila? Ekki þýðir að dúkka fyrsta slaginn, svo sagnhafi drepur og tekur öll laufin. Það þarf ekki mikla kunnáttu í þving- unarfræðum til að sjá að eina vonin er sú að austur eigi fjórlit í hjarta til hliðar við mannspilin í tígli, sem hann virðist eiga. Sé sú raunin ætti að vera hægt að ná fram svokallaðri „forþvingun": Norður ♦ 97653 ¥ KD74 ♦ 1052 ♦ 2 Vestur Aujtur * D1082 ♦ AKG v 985 ¥ G1062 * 74 ♦ KDG63 * 8654 * 3 Suður * 5 ¥ A3 * A98 * AKDG1097 Eftir tígulásinn og sjö slagi á lauf eru fimm spil eftir á hendi: í blindum eru KDxx í hjarta og einn tígull, en heima á sagnhafi Áx í hjarta, spaðahundinn sinn og 98 í tígli. Austur verður að halda dauðahaldi í hjörtun fjögur og neyðist því til að henda öll- um spöðunum og fara niður á blankan tígulhónór. I þeirri stöðu spilar suður tígli og fríar þar tólfta slaginn. „Forþvingun" einkennist af því að slagur er gefinn eft- ir að þvingunin hefur skilað sínu hlutverki. SKAK ílniNjún llclgi Áss Grúlarsson Svartur á leik. MEÐFYLGJANDI staða kom upp á milli Króatans Nedvad Sulava, hvítt, (2486) og rússneska stórmeistarans Sergei Ionov (2543) á opna alþjóðlega mótinu í Cappelle la Grande. 21.Rxg3! 22.Dd3 Eftir 22.hxg3 Dxg3 verður stutt í það að hvítur verður mátaður. 22.Rf5 23.bxc3 Bxf2+! Tætir hvitu kóngs- stöðuna í sundur. 24.Kxf2 Hxc3 25.Dd7 Hc7! 26.Dd8 Hc8 27.Dd2 Dxal 28.e4 Rh4 29.Bb2 Dxa2 30.Hgl Rg6 31.Hal Db3 32.Bdl Dh3 og hvítur gafst upp. Árnað heilla O pf ÁRA afmæli. Áttatíu OU og fimm ára verður í dag, fimmtudaginn 16. mars, Ólafur Þórðarson, fyrrverandi bóndi á Ökrum á Mýrum. Hann og eigin- kona hans, Ingibjörg Jó- hannsdóttir, eru búsett á Sandabraut 8, Akranesi. Þau eru að heiman í dag. /\ ÁRA afmæli. Sextug- Vl \/ ur verður á morgun, fóstudaginn 17. mars, Þor- leifur Kristinn Valdimars- son, Hjarðai'haga 23, Reykjavík, framkvæmda- stjóri og starfsmaður Fiski- félags fslands. Eiginkona hans er Theodöra Þórðar- dóttir. Þau hjónin taka á móti gestum í Valsheimilinu að Hlíðarenda á morgun, af- mælisdaginn, frá kl. 17-19. Með morgunkaffinu 2-12 að vera sigurvegarar þótt enginn sé lottó-vinningurinn. olíupinna. Þessi virkar ekki lengur. COSPER • n Þú og þínar hugmyndir um landslagsarkítektúr valda því að ég er að missa af strætó. UQÐABROT Hafísinn Ertu kominn, landsins forni fjandi? Fyrstur varstu enn að sandi, fyrr en sighng, sól og bjargarráð. Silfurfloti, sendur oss að kvelja! Situr ei í stafni kerling Helja, hungurdiskum hendandi’ yfir gráð? Svignar Ránar kaldi móðurkviður, knúinn dróma, hræðist voðastríð, stynur þungt, svo engjast iður, eins og snót við nýja hríð. Veikur maður, hræðstu eigi, hlýddu, hreyk þér eigi, þoldu, stríddu. Þú ert strá, en stórt er drottins vald. Hel og fár þér finnst á þínum vegi. Fávís maður, vittu svo er eigi, haltu fast í herrans klæðafald! Lát svo geisa lögmál fjörs og nauða, lífið hvorki skilur þú né hel. Trú þú: - Upp úr djúpi dauða drottins rennur fagrahvel. Matthías Jochumsson. STJ ÖRJVUSPÁ eftir Frances Drake FISKAR Afmælisbarn dagsins: Þú ertjarðbundinn með ein- dæmum og missir aldrei sjónar á takmarkinu; traust- ur félagi tii hvers sem er. Hrútur (21. mars -19. apríl) Ekki láta aðra þagga niður í þér, þegar þú vilt tjá tilfinn- ingar þínar í orðum. Rödd hjartans þarf að fá að njóta sín; það er nóg af hinu í heim- inum. Naut (20. apríl - 20. maí) Þótt þér finnist þú hafa stjórn á öllum hlutum; gættu þess að sofna ekki á verðinum. Það þarf svo lítið til; oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Tvíburar . ^ (21. maí - 20. júní) 'DA Hálfnað er verk, þá hafið er. Hlustaðu ekki á úrtölur ann- arra, heldur gríptu tækifærið strax og láttu hæfileika þína leiða þig til öndvegis. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Nú er rétti tíminn til þess að fitja upp á einhverju nýju, hvort heldur er í einkamálum eða atvinnu. Njóttu svo breytinganna út í æsar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) M Haltu þangað sem hugboðið leiðir þig. Vel má vera að þú hafnir þar sem draumar þínir uppfyllast. Leyfðu láninu að leika við þig meðan það varir. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) (Ð5L Þú kannt eitthvað illa við þig í þeim hópi, sem atvinnan hef- ur skipað þér. En vertu þolin- móður; þú færð að njóta þín, þegar allir hafa slópast sam- Vog m (23. sept. - 22. október) 4k 4) Láttu ekki þörfina fyrir fé- lagsskap blinda þig svo að þú sýnir ekki aðgæzlu í um- gegngi við ókunnuga. Gættu þess að skuldbinda þig ekki á nokkurn hátt. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Þetta er dagurinn sem þú hefur beðið eftir til þess að hefjast handa við nýtt verk- efni. Leyfðu hugmyndunum að flæða og þá fer allt á bezta veg.____________________ Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) ACr Aðrir eiga ekki að ráða skapi þínu. Þú ert þinn eiginn herra og lítur bara á björtu hliðarn- ar; sinnir þínum störfum og þínum vinum sem þú vilt. Steingeit (22. des. -19.janúar) Láttu ekki dagdrauma spilla fyrir árangri þínum í dag. Sinntu þínu starfi af kost- gæfni og þegar starfsdegin- um er lokið máttu láta hug- ann reika. Vatnsberi (20. jan.r -18. febr.) QSLi Það eru margir lausir endar, sem þú þarft að hnýta, áður en þú getur haldið áfram. En gefðu þér tíma til þess því öðru vísi veðurðu ekki frjáls. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) >W> Láttu ekki tímann líða í leti, heldur reyndu að finna þér eitthvað skemmtilegt að gera; eitthvað sem leyfir þér að lifa áhyggjulausa stund. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindaiegra staðreynda. FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 69 — 10 ára afmælistónleikar Drengjakórs Laugarneskirkju EínsÖngvarar: Þóra Einarsdóttir, sópran, Jónas Guðmundsson, tenór, og félagar úr kórnum. Tónleikarnir verða haldnir í Langholtskírkju laugardaginn 18. mars kl. 15.00. Miðasala við innganginn. ~BESTA VERÐ A ÍSLANDI VERKFÆRADAGAR FRÁ 16/3 TIL 23/3 Verkfæraskista. L. 47 cm, h. 23 cm, b. 25 cm. Verö kr. 998. Verkærakista, nýtist einnig sem trappa. Stærö h. 31 cm, I. 45 cm, b 33 cm. Verö kr. 998. Verkfærataska með 7 vönduðum skrúfjárnum. Verð kr. 398. Glæsileg 100 stykkja verkfærataska. Verö kr. 998. Skrúfurekkar 4 stk. Verö kr. 98. Hundruðir smáverkfæra á kr. 98. 98. Plastrekkar 3 stk. Verð kr. i Ath. Takmarkaðar birgðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.