Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 30
SOTT fOtK McCANN'ERICKSON • S(A ■ »171
30 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Vor 2000
l!iíi!Í
KYNNING
a ný|ungum
í Evitu, Kringlunni,
í dag og á morgun,
frá kl. 13-18.
I
„Góðurvinur minn benti mérá
ffiSgfF fæðubótaefnið Zinaxin, sem ég tek
|8f' dagiega. Þökk sé Zinaxin. Nú liður
|w mér miklu betur og þarf ekki að hafa
neinar áhyggjur af aukaverkunum. Með
hjálp Zinaxin vonast ég til að geta lifað
eðlilegu lifi, án óþæginda, allt tll æviloka“.
PW* CarlLewis.
i Lyfju Lagmula i dag
kl. 14-18 og á morgun
17. marskl. 14-18.
20% afsláttur
Nýtt kortatímabil
Afengismálastefna Svía og Evrópusambandið
Takmörkun á mnflutn-
ingi felld úr gildi 2003
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
OLLUM á óvart ákváðu fjármála-
ráðherrar Evrópusambandsland-
anna á fundi á mánudaginn að Svíar
fengju framlengingu á takmörkun-
um á innflutningi einstaklinga á
áfengi. Fyrir fundinn hafði Bosse
Ringholm, fjármálaráðherra Svía,
persónulega hringt til allra evrópsku
starfsbræðra sinna til að tryggja sér
stuðning þeirra í málinu og uppskar
einróma stuðning.
Akvörðunin kom á óvart því í
Stokkhólmsheimsókn í síðustu viku
sagði Frits Bolkestein, sem fer með
þessi mál í framkvæmdastjóm
Evrópusambandsins, ESB, að Svíar
yrðu að sætta sig við sömu reglur og
aðrir. Eftir fundinn á mánudaginn
sagði Bolkestein að ánægjulegt væri
að Svíar hefðu nú fallist á endanlegt
afnám undanþágnanna.
Niðurstaðan er túlkuð með ólíkum
hætti eftir hver segir frá. í Svíþjóð
hefur hún verið túlkuð sem sigur
Svía. Fyrirsagnir í sænskum blöðum
vom á þá leið að Svíar hefðu fengið
undanþágur sínar framlengdar. f
Financial Times var fyrirsögnin hins
vegar: „Svíar samþykkja tímamörk á
áfengistakmörkunum." Blaðið bend-
ir á að nú verði Svíar að gera sér að
góðu sömu reglur og Danmörk og
Finnland hafi þegar samþykkt að
lúta.
Ringholm hefur lagt á það ofurá-
herslu að breyttar reglur muni auka
fjölda dauðdaga af völdum áfengis
um þúsund dauðsföll á ári. Þau rök
hefur Bolkestein ekki viljað viður-
kenna, heldur bent á að ESB-regl-
urnar gætu dregið úr smygli og
heimabruggi. Ringholm sagði eftir
fundinn að Svíar hefðu nú rúmt 3 1/2
ár til að aðlaga sig breyttum aðstæð-
um.
Málið hefur verið mikið hitamál í
Svíþjóð. Þar hefur almenningur þó
verið sáttur við afskipti ESB og
skoðanakannanir sýna að mikill
meirihluti er fyrir að ESB-reglunum
verði fylgt. Skrifstofa Bolkestein
hefur undanfamar vikur og mánuði
fengið send ókjörin öll af bænabréf-
um frá Svíum um að ESB-reglurnar
taki gildi í stað sænsku takmarkan-
anna.
Takmarkanimar hafa þau áhrif að
Svíar, sem koma frá ESB-landi
mega aðeins taka með sér einn lítra
af sterku áfengi, fimm lítra af víni og
15 lítra af bjór. ESB-reglumar
kveða hins vegar á um að einstakl-
ingar megi taka með sér áfengi til
einkanota. Þá er miðað við tíu lítra af
sterku áfengi, 90 lítra af víni og 100
lítraaf bjór.
Lítill vafi þykir á að breyttar
reglur muni leiða til lægri áfengis-
skatta í Svíþjóð og um leið lækkaðs
áfengisverðs, þar sem mun hærra
áfengisverð í Svíþjóð en í Danmörku
orsaki stórinnkaup almennings yfir
landamærin. Þetta muni snarlækka
tekjur ríkisins af áfengissölu og um
leið þrýsta á velferðarkerfið sænska.
Iðulega hefur verið bent á það í um-
ræðum um málið í Svíþjóð að það sé
hálfgerð hræsni af stjórninni að
höfða til heilbrigðissjónarmiða í Ijósi
þess hve áfengisskattar séu ríkinu
mikilvæg tekjuleið.
Neikvæður hagvöxtur í Japan
N eyzlusamdrátt-
ur helzta orsökin
Varað við
tíðum flug-
slysum
Washington. Reuters.
ALVARLEG flugslys munu
verða á sjö til tíu daga fresti
árið 2010 ef flugumferð í
heiminum heldur áfram að
vaxa í sama mæli og hún hef-
ur gert undanfarin ár. Þetta
segir Norman Mineta, einn
yfirmanna bandarísku Lock-
heed-flugvélaverksmiðjanna.
Mineta spáir því að ef flug-
umferðarstjórn verði ekki
breytt til að mæta aukinni
umferð sé hætta á að sex til
sjö alvarleg flugslys verði í
Bandaríkjunum á hverju ári
og eitt alvarlegt flugslys ann-
ars staðar í heiminum á tíu
daga fresti.
Aösendar greinar á Netinu
vg>mbl.is
-ALLTAÆ GITTHVAO HÝTT
Tókýó. AFP, AP.
HAGVÖXTUR í Japan, öðru stærsta
hagkerfi heims, á síðasta árs-
fjórðungi síðasta árs var neikvæður
um 1,4 prósentustig, samkvæmt nýj-
ustu hagtölum. Þar með var staðfest
að samdráttur var í japönsku efna-
hagslífi tvo ársfjórðunga í röð, en
samkvæmt alþjóðlegum efnahags-
málastöðlum eru þar með uppfylltar
forsendur fyrir því að kalla ástandið
kreppu. Er þetta þriðji mesti sam-
dráttur á þriggja mánaða tímabili
sem sést hefur í japönskum hagtöl-
um frá stríðslokum.
Þrátt fyrir þetta lýsti Keizo
Obuchi, forsætisráðherra Japans, sig
í gær, miðvikudag, bjartsýnan á
framhaldið; sagði hann hinar nýju
neikvæðu hagtölur ekki breyta því að
í það stefndi að hagvöxtur í landinu
yrði - á fjárlagaárinu sem lýkur um
næstu mánaðamót - jákvæður í
fyrsta sinn í þrjú ár. Obuchi tjáði
blaðamönnum í gær að hinar nei-
kvæðu hagtölur fælu í sér nokkrar
vonarglætur, þar á meðal á sviði iðn-
framleiðslu. Sagði Obuchi enn raun-
hæft að ná því markmiði að hagvöxt-
ur yrði jákvæður um 0,6% á
fjárlagaárinu, þrátt fyrir að til þess
þurfi hagvöxtur á síðasta fjórðungi
fjárlagaársins að vera yfir 2%. Hann
viðurkenndi þó að erfitt kynni að
reynast að ná þessum 2%.
Hagfræðingar eiu flestir á þeirri
skoðun, að flest bendi til þess að jap-
anskt efnahagslíf sé á leiðinni að
rétta úr kútnum. Hinn neikvæða
hagvöxt seinni hluta síðasta árs, sem
var mun meiri en óháðar efnahags-
málastofnanir höfðu spáð, megi fyrst
og fremst rekja til þess að japanskir
neytendur haldi enn að sér höndum.
Þeir bregðist við lækkandi launum
og stórauknu atvinnuleysi í landinu
með því að draga úr útgjöldum.
Japanskir ráðamenn lögðu áherzlu
á að raunverulegt ástand efnahags-
lífsins væri ekki eins slæmt og ætla
mætti af hinum neikvæðu hagtölum.
„Jafnvel þótt þjóðarframleiðsla
hafi dregizt saman tvo ársfjórðunga í
röð lítum við ekki svo á að efnahags-
lífið sé í kreppu," sagði Taichi Sakai-
ya, aðstoðarfjármálaráðherra og yf-
irmaður hinnar áhrifamiklu
efnahagsáætlanastofnunar japanska
ríkisins, á blaðamannafundi í Tókýó.
ÁÐUR EN LANGT UM LÍÐUR GETUR ÞÚ NÝTT ÞÉR
T E T R