Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ( Aukahlutapakki ) Handfrjáls búnaður Bílhleðslutæki Leðurtaska Þetta þrennt á aðeins 1.980 kr. (^Chatbox) er handhægt lítið lyklaborð sem hægt er að tengja við nýrri gerðir Ericsson GSM síma. Þetta er nýr búnaður sem auðveldar þeim lífið sem eru iðnir við að skrifa SMS skilaboð. Tilboðsverð aðeins 2.480 kr. FÆST í VERSLUNUM SÍMANS SÍMINN-GSM FÆRIR ÞÉR FRAMTÍÐINA ÞáttaskiJ í „genastríðinu“ AP Verðbréfasali í New York ræðir hlutabréf í Celera Genomics við einn viðskiptavina sinna á þriðjudag. Yfírlýsing leiðtoga Bandaríkjanna og Bret- lands um að aðgangur að grunnupplýsingum um gen manna skuli ekki takmarkaður með einkaleyfum hefur vakið mikla athygli. MARGIR hafa á undanfömum árum lýst áhyggjum yfír því að einkafyrir- tæki muni í framtíðinni geta einokað rannsóknir á genamengi mannsins með því að fá einkaleyfi á einstökum genum. Nú hafa stjómvöld í Banda- ríkjunum og Bretlandi bmgðist við með því að hvetja til þess að gmnn- upplýsingar um genin verði „öllum frjálsar" til afnota. Átt er við að kort- lagning sjálfra genanna, sem talin em vera um 100.000, verði sem slík ekki notuð til að fá einkaleyfi. Þekk- ing af því tagi eigi að vera eign alls mannkyns og aðgangur að henni öll- um heimill að kostnaðarlausu. Með yfirlýsingunni hafa ríkin tvö tekið afstöðu í deilu sem hefur harðn- að mjög síðustu vikumar. Eiga einkaaðilar að geta hagnast á því að safna gögnum um genamengið eða eiga opinberir aðilar sjá um rann- sóknimar sem kosta ínikið fé? Geta einkaleyfi tafið fyrir framfomm? „Bandaríkin og Bretland krefjast þess nú þegar af þeim sem standa að Genamengisáætluninni (The Human Genome Project) að birt séu öll leyndarmál sem þeir komast að innan 24 stunda," sagði Bill Clinton Banda- ríkjaforseti í ræðu. „Ég hvet allar aðrar þjóðir, vísindamenn og fyrir- tæki til að taka upp þess stefnu og starfa í anda hennar.“ Afdrifaríkar ákvarðanir Á hinn bóginn lögðu þeir Clinton og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, áherslu á mikilvægan þátt einkafyrirtækja í þróun lyfja og með- ferðar. Þrátt fyrir það virtust fjár- festar líta svo á að niðurstaðan væri áfall fyrir líftæknifyrirtæki. Hluta- bréf þeirra á bandaríska Nasdaq- markaðnum féllu um 200,6 stig og drógu allan markaðinn með sér, hann hrapaði um 4% á einum degi sem er næstmesta fall hans frá upphafi á ein- um degi. Einkum vom það fyrirtæki sem fást við genamengisrannsóknir, eins og Human Genome Sciences, Incyte Pharmaceuticals, Millennium Pharmaceuticals og Celera Genomics í Maryland, sem urðu hart úti. Sí- ðastnefnda fyrirtækið féll um 22%. Mikil og stöðug hækkun bréfa í há- tæknifyrirtækjunum sem Nasdaq notar sem viðmiðun síðustu mánuð- ina hefur valdið því að ýmsir fjárfest- ar hafa verið smeykir og því reiðu- búnir að selja ef einhver teikn birtust um að bréfin væm ofmetin. „Þetta er frábært dæmi um það sem getur gerst þegar stefna ríkis- stjóma breytist skyndilega," sagði Donald Luskin, sem er stjómarfor- maður fjárfestingarfyrirtækisins Metamarkets.com. „Stefnufesta skiptir miklu varðandi nýsköpun í tækni og viðskiptum, ekki eingöngu hvað snertir einkaleyfisveitingu held- ur einnig skatta, eignarrétt, peninga- málastefnu og alþjóðaviðskipti.“ Hann sagði að yfirlýsing leiðtoganna hefði beint athygli manna að því hvemig aðgerðir stjómvalda gætu „á svipstundu" lagt gmndvöll að eða gert út af við viðskiptahugmyndir. Deila má um það hvemig skilja beri stefnuyfirlýsingu forsetans og forsætisráðherrans, hvort augljóst sé að með henni sé verið að takmarka olnbogarými líftæknifyrirtækja al- mennt; flest þeirra hagnast aðallega á uppfinningum sem byggðar era á erfðaupplýsingum, ekki sjálfum erfðavísunum (genunum). „Clinton og Blair fóra ekki fram á að sett yrðu ný lög um einkaleyfi eða aðrar breyt- ingar sem myndu breyta í gmndvall- aratriðum reglunum fyrir líftækni- fyrirtækin,11 sagði í fréttaskýringu í The Washington Post. Starfssvið líf- tæknifyrirtækja skarast að vísu oft en áherslumar era samt mismun- andi. Varla fer milli mála að Celera, sem hefur einbeitt sér að kortlagn- ingu genamengisins, þykir að sér þrengt en hvað um önnur fyrirtæki? Viðbrögð Incyte vora athyglisverð. Aðalframkvæmdastjóri þess, Roy Whitfield, sagði fullum fetum að yfir- lýsingin væri „afskaplega jákvæð“ fyrir framtíð fyrirtækisins. Hann er varla hlutlaus í mati sínu en þá verð- ur að minna á að Incyte selur gagna- gmnna um hlutverk gena og prótína í líkamanum, þekkingu sem vísinda- menn geta notað til dæmis við að finna upp ný lyf. Mikið af því sem fyr- irtækið fæst við byggist því á upp- lýsingum um genamengið sem þegar hafa verið birtar og era aðgengilegar á Netinu. Whitfield sagði að fengi Incyte að nýta sér frítt allar niður- stöðurnar sem ofurtölvur Celera hafa leitt í ljós yrði það gríðarlega hag- kvæmt fyrir rekstur fyrirtækisins. Hlutabréf í breskum líftæknifyrir- tækjum lækkuðu í gær í kjölfar falls- ins á Nasdaq á þriðjudag. Talsmenn bresku fyrirtækjanna lögðu áherslu á að þau yrðu að geta fengið einkaleyfi á uppfinningum sem byggðust á genarannsóknum, ella yrði útilokað að fá fjármagn til rannsókna. Lyfja- fyrirtæki myndu aldrei fást til að verja sem svarar tugmilljörðum króna og 10-15 árum í rannsóknir í von um ný lyf ef ekki væri tryggt að þau fengju kostnaðinn til baka með hjálp einkaleyfa. „Ekkert einkaleyfi, engin lækning“ „Þetta er einfaldlega þannig að ekkert einkaleyfi merkir engin lækn- ing,“ sagði Andrew Sheard, formaður ráðgjafamefndar á sviði hugverka- réttinda hjá samtökum breskra líf- tæknifyrirtækja, BIA. Sheard sagði ennfremur að yfirlýsing stjómmála- leiðtoganna ætti ekki að breyta neinu í þessum efnum. Með henni væri að- eins vísað til grannvitneskju um bas- aröð í geni sem í mörgum tilvikum merkir ekki að menn viti neitt um hlutverk gensins. Margir erfðavís- indamenn hafa einmitt gagnrýnt harkalega sum starfsystkin sín fyrir að vilja taka einkaleyfi á gagnasöfnun eins og fer fram þegar genamengið er kortlagt. Þá sé verið að biðja um einkaleyfi á einhverju sem einkaleyf- ishafinn viti nánast ekkert um og hafi ekki lagt fram neina sjálfstæða vinnu í, ekkert nýtt hafi verið skapað. Búist er við að kortlagningu gena- mengisins ljúki að mestu á árinu og fullkomin greining á því verði að veraleika eftir fáein ár. Menn gera sér vonir um að nákvæm vitneskja um basaraðirnar í hveiju geni muni auðvelda vísindamönnum að finna ráð við ýmsum sjúkdómum, annað- hvort með því að búa til lyf eða efla forvamir á grandvelli þekkingar á áhættuþáttum einstaklinga og hópa. Tveir aðilar hafa síðustu árin keppt um ná þessu marki, að greina allt genamengið og milli þeirra hefur geisað kalt stríð. Annars vegar er um að ræða samtök nokkurra háskóla og stofnana í Bandaríkjunum og Bret- landi, Genamengisáætlunina (The Human Genome Project) sem kostuð er af opinberam aðilum. Gögnin sem verða til era jafnóðum sett á Netið. Að vísu hefur Genamengisáætlunin sótt um mörg einkaleyfi á mannagen- um en forráðamenn hennar segja að það sé einvörðungu til að tryggja að aðrir verði ekki fyrri til og torveldi þannig notkun þekkingarinnar fyrir vísindamenn um heim allan. Þess má geta að einkaleyfastofnun Bandaríkjanna er sú eina sinnar teg- undar í veröldinni sem hefur léð máls á því að veita einkaleyfi á mannagen- um. Ekki er enn búið að staðfesta endanlega veitingu neinna slílcra leyfa enn þá. Kapphlaupið við Celera Hins vegar er það einkafyrirtækið Celera Genomics sem er í eigu tölvu- fyrirtækisins Elmer-Perkins. Elmer- Perkins er nú metið á nokkra millj- arða dollara, einkum vegna þess að margir veðja á að tölvubúnaðurinn sem Celera notar muni duga fyrir- tækinu til að vinna kapphlaupið. En stjómandi þess, Craig Venter, hyggst fjármagna rannsóknimar með því að fá einkaleyfi á nokkur hundrað genum sem líkleg era til að geta nýst við lyfjagerð. Celera hefur sótt um einkaleyfi á þúsundum gena en það segir hann nú að sé aðeins formsatriði, raunveralegu einkaleyf- in verði mun færri. Flest gögnin verði gerð aðgengileg á Netinu innan tíðar, jafnvel á þessu ári. En talsmenn þeirra sem standa að Genamengis- áætluninni era ekki sáttir og fyrir nokkram vikum sigldu samningavið- ræður milli þeirra og fulltrúa Celera í strand, nánast áður en þær hófust. Einkum svíður starfsmönnum op- inbera rannsóknanna að Celera skuli ekki hika við að nýta sér opinberu upplýsingamar til að fylla upp í eyð- ur en ætla síðan að hagnast á einka- leyfum fyrir heildarmyndina. Margir af vísindamönnum Gena- mengisáætlunarinnar, þriðjungur þeirra starfar hjá Sanger-stofnuninni í Bretlandi, fögnuðu yfirlýsingunni á þriðjudag en talsmenn Celera og Human Genome Sciences bára sig einnig vel. Þeir sögðu að ekki væri deilt um annað en tímasetningu birt- ingar á genamengisgögnunum. Get- um var að því leitt í gær að markmið þeirra Clinton og Blairs hefði fyrst og fremst verið að fá Celera til að deila gögnum með Genamengisáætluninni. Talsmenn beggja liða hafa sagt að slíkt samstarf myndi flýta fyrir því að kortlagningunni lyki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.