Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Grimur Gíslason
Ráðgert er að sjósetja Huginn VE um miðjan maí en hægra megin á
myndinni má sjá skrokk skipsins. Asmar skipasmíðastöðin smíðar fyrir
útgerðarfélagið Gjögur en áætlað er að afhendaþað ílok sumars.
Smíðum miðar
vel í Chile
Stærsta sjávarútvegssamsteypa heims í burðarliðnum?
Sameiginleg velta
yrði um 90 milljarðar
í ASMAR-skipasmíðastöðinni í
Chile er nú verið að smíða fjögur
skip fyrir íslendinga; hafrann-
sóknaskipið Arna Friðriksson RE,
nóta- og togveiðiskipin Huginn VE
fyrir Huginn ehf. í Vestmannaeyj-
um og Ingunni AK fyrir Harald
Böðvarsson hf. Auk þess er þar ver-
ið að smíða nóta- og togveiðiskip
fyrir Gjögur ehf.
Smíði Hugins VE hefur gengið
ágætlega síðustu vikurnar, skrokk-
ur skipins er að mestu samsettur en
þó er talsverð suðuvinná eftir. Asm-
ar ráðgerir að suðuvinnu í skrokkn-
um verði að mestu lokið um miðjan
mánuðinn og að skipið verði sjósett
6. maí nk. Aðalvél, ljósavélar, gír og
ketill eru komin á sinn stað í skip-
inu en að öðru leyti er ekkert farið
að ganga frá tækjum um borð. Af-
hending Hugins er áætluð í lok júlí.
Ráðgert er að afhenda Ingunni
AK um miðjan apríl en nú er unnið
að innréttingum í skipinu, ásamt
niðursetningu tækja og búnaðar.
Þá miðar smíði Gjögurskipsins vel,
nú er unnið að suðuvinnu í skrokk
skipsins og áætlað er að afhenda
það í lok sumars.
ÓSTAÐFESTAR fréttir frá Noregi
herma að líkur séu á samstarfi milli
SÍF og Norway Seafood, stærsta
sjávarútvegsfyrirtækis Noregs. Ef af
yrði, yrði sameiginleg velta þeirra
nálægt 90 milljörðum íslenzkra
króna. Það yrði þá stærsta sjávarút-
vegssamsteypa í veröldinni með út-
flutningsverðmæti sem væri um það
bil jafnmikið og verðmæti alls sjáv-
arafurðaútflutnings frá íslandi og
með þriðjung útflutningsverðmæta
Norðmanna.
Gunnar Örn Kristjánsson, forstjóri
SÍF, vildi ekkert um málið segja er
Morgunblaðið ræddi við hann í gær.
SIF sendi síðan frá sér eftirfarandi
tilkynningu vegna málsins: „Eins og
fram hefur komið áður í fjölmiðlum,
þá áttu íslenskar sjávarafurðir hf og
Norway Seafood a.s. í viðræðum um
mögulegt samstarf í Frakklandi.
Stjómendur SIF hf og Norway Sea-
food a.s hafa átt óformlegar viðræður
um samstarf, sem ekki hafa leitt til
neinnar niðurstöðu og alls er óvíst
hvort þeim verði haldið áfram.“
Það var norska sjávarútvegsblaðið
Fiskaren, sem greindi frá þessu í
gær. Norway Seafood er í eigu Aker
RGI, sem aftur er í eigu norska auð-
kýfingsins Kjell Inge Rökke.
Sterk staða á mörkuðum
Norway Seafood hefur selt alla
starfsemi sína í Bandaríkjunum, en
þar var fyrirtækið umsvifamikið í
veiðum og vinnslu á Alaskaufsa. Nú
Rætt um sam-
vinnu SIF og
Norway Seafood
er starfsemi þess mest í Noregi, þar
sem það á bæði Frionor og Melbu-
samsteypuna. Það á 12 togara eða
þriðjung norska togaraflotans, rekur
frystingu, brauðunarverksmiðju og
laxeldi í Noregi, er með verksmiðju á
Taívan og laxareykingu í Danmörku
og söluskrifstofur í Asíu, Ástralíu, á
Norðurlöndunum og víða í Evrópu.
Frionor hefur mjög sterka stöðu á
þessum mörkuðum, einkum á Norð-
urlöndunum og er vörumerki þess
mjög mikils virði. Velta Norway
Seafood á síðasta ári var nálægt 40
milljörðum króna, en velta SÍF um 50
milljarðar.
I frétt Fiskaren er sagt að viðræð-
ur milli Norway Seafood og Islend-
inga hafi hafizt um mitt síðasta ár,
þegar rætt var um samstarf við ís-
lenzkar sjávarafurðir. Þessar viðræð-
ur hafi síðan hajdið áfram eftir sam-
einingu SÍF og ÍS.
Rætt um sámvinnu
um framleiðslu fískrétta
Haft er eftir upplýsingafulltrúa
Aker RGI að ekki sé verið að tala um
sölu á Norway Seafood til SÍF, en
hann útilokar ekki að um breytingar
á eignarhaidi geti orðið, verði af sam-
vinnu fyrirtækjanna.
Ljóst er að samvinna fyrirtækj-
anna getur skilað þeim báðum mikil-
vægum aðgangi að markaði fyrir
framleiðsluvörur sínar og verulegri
hagræðingu. Meðal annars hefur það
komið til tals að færa fullvinnslu á
fiski á vegum Norway Seafood í fisk-
réttaverksmiðju SÍF í Boulogne sur
Mer í Frakklandi, en þar er afkasta-
geta ekki fullnýtt. Saman eru fyrir-
tækin með mjög breitt vöruúrval,
sem auðveldar þeim viðskipti við
risastórar verzlanakeðjur eins og Val
Mai-t.
Góð tengsl við íslendinga
Morgunblaðið leitaði eftir staðfest-
ingu Kjell Inge Rökkes á þessari
frétt, en fékk ekki samband við hann.
Upplýsingafulltrúi Norway Seafood,
Svein Berg, staðfesti það við Morg-
unblaðið, að viðræður stæðu yfir við
tvo til þrjá aðila um samstarf, en vildi
ekki segja hverja. „Það er ekkert
leyndarmál, að við höfum verið að
ræða samstarf við vissa aðila. Það er
heldur ekkert leyndarmál að við höf-
um lengi haft góð tengsl við íslend-
inga. Ég get hins vegar ekkert sagt
við hveija við erum að ræða. Vonandi
verður framvindan ljós fljótlega,
hvort við förum í samstarf við ein-
hverja eða höldum áfram starfsemi
okkar án þess,“ segir Svein Berg.
Berg segir að afkoma Norway
Seafood á síðasta ári hafi verið góð,
þótt töluvert tap hafi orðið á einstök-
um þáttum starfseminnar.
I
I
AFSLATTUR AF1. FL0KKS UNGNAUTAKJÖT1'
'ú. M
Hamborgarar
4 stk. mlbraudi 4f%i
Sirloin-steik 1.539 krikg
Entre cote 1.799 Mkg Innralæri
Snitsel 1.299 knkg ÍTÁ*ef)
Gúllas 1.199 kr/kg 1599 kr,k°
AAA VUIICId 1« Kr/Kg
JWknpk. Hakk (8.l2%flta) 799
Prime-ribs <8'
1.399 krikg_ Fille 1.799 k*
krlkg
Nýkaup
Þar semferskleikinn býr
www.nykaup.is