Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 + Guðbjörg Arn- órsdóttir fædd- ist á ísafirði 6. des- ember 1937. Hún lést á heimili sínu 7. mars siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Kópavogs- kirkju 15. mars. Vegna mistaka urðu þessar tvær greinar viðskila við minningargreinarn- ar um Guðbjörgu Arnórsdóttur sem birtust í blaðinu í gær, 15. mars. Hlut- aðeigendur eru beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum. Það var sunnudagur fyrir rúmum 20 árum. Við mæðgurnar fórum í okkar fyrstu heimsókn í Skólagerði ásamt Hilmari elsta syni Stellu. Við áttum þar góðan eftirmiðdag , en þegar að heimför kom sagði Stella: „Af hverju leyfið þið henni Höllu ekki að vera hérna hjá mér og skreppið saman í bíó?“ Svo það varð úr að við fórum í bíó. Þegar við kom- um til baka og ég ætlaði heim með barnið sagði hún „mamma, getum við ekki verið hérna lengur" og við fórum ekki heim fyrr en búið var að ákveða næstu heimsókn. Þarna eignaðist dóttir mín yndislega ömmu, en svona var Stella, hún lað- aði að sér börn. Hún kunni og vissi í raun og veru allt sem börn langaði til að heyra og vita. Það var ekkert skrítið þó nafn róluvallarins sem hún vann á breyttist úr Holtsvöllur í „Stelluróló". Og þegar barnabörnin fóru að koma á róló og kölluðu hana að sjálfsögðu ömmu, þá breyttist Stella í „amma Stella" hjá öllum börnunum á róló og henni fannst það ekki leiðinlegt. Stella var yndisleg manneskja , höfðingi heim að sækja og átti stórt hjarta og hlýjan faðm. Aðaláhugamál hennar vai- fjölskyld- an. Tvisvar sinnum fór öll fjölskyld- an saman til útlanda um jólin. Þá var Stella í essinu sínu með drengina sína og þeirra fólk í kringum sig alla daga. Hún naut þess að útbúa morg- unverðarborðið á hveijum morgni og dekra við fólkið eins og hún mögulega gat. Af einstöku æðru- leysi tókst hún á við þann illvíga sjúkdóm sem tók hana frá okkur en þar stóð Þórarinn maðurinn hennar eins og klettur við hlið hennar. Stella hlýtur að hafa verið búin að sinna verkefnum sínum hér á jörð og er því kölluð til annarra starfa. Við sem eftir stöndum söknum hennar sárt, en allar yndislegu minningarn- ar sem við eigum munu hjálpa okkur og verma hjarta okkar í framtíðinni. „Einstakur" er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt. Faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur" lýsir fólki sem stjómast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“áviðþá sem era dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur" er orð sem best lýsir þér. Elsku Stella mín. Ég þakka þér fyrir samfylgdina og allt sem þú gafst mér og börnunum mínum Ég veit að þú færð góða heimkomu á himnum. Hafðu þökk fyrir allt. Birna. Guð hefur nauðsynlega þurft á Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netf- ang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer nöfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nötn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. þér að halda er hann sendi engla sína hingað á jörðu niður til þess að sækja þig. Amma mín, hann hefur ætlað þér mikilvægt hlutverk þarna efra. Söknuðurinn og sorgin ríkir meðal ætt- ingjanna er svo náinn ástvinur er tekinn frá okkur. Margs er að minnast og yndislegar stundir rifjast upp, en eitt er þó víst, að það mun enginn fylla það skarð er þú skilur eftir þig í hjarta mínu. Þú lýstir veg minn með ljósi þínu og kenndir mér margt um hinar ýmsu þrautir lífsins. Minn- ingarnar, minningarnar sem. eru mér efst í huga, þær minningar eru svo margar að þær eru óritanlegar og munu þess vegna lifa innra með mér uns við hittumst á ný og endur- tökum þær stundir. Allt það góða er þú leiddir af þér í þessu lifi er ólýsanlegt. Þú áttir stóran þátt í lífi allra barna er léku sér á rólóvelli þínum, örugglega ekkert minni þátt en þann er þú skipaðir í lífí okkar bamabarnanna þinna. Þú varst ekki kölluð amma Stella fyrir ekki neitt. Elsku amma mín, það er sárt að horfast í augu við þá staðreynd að þú sért farin, en ég veit að Guð mun vera með þér og að þú munt vaka yf- ir okkur og vernda. Ég vil þakka þér fyrir þær stundir er við áttum sam- an og glöggt ég sé það nú að þú unn- ir mér og hjálpaðir mest, þér ég þakka, amma, fyrir þá trú og tryggð og er ég því stolt af að fá að standa undir nafni þínu. Þín Stella. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, FJÓLA GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 29. febrúar. Útförin hefur þegar farið fram. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbjörg Ólafsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR HÓLM RANDVERSSON, fyrrv. iögregluvarðstjóri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánu- daginn 13. mars sl. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mið- vikudaginn 22. mars nk. og hefst athöfnin kl. 13.30. Katrín Sigurðardóttir, Jóhann Frímann Gunnarsson, Randver Páll Gunnarsson, Gyða Jóna Gunnarsdóttir, Júlíus Þór Tryggvason, Guðlaug Hrönn Gunnarsdóttir, Garðar Hallgrímsson og barnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð, vináttu og stuðning við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ERLENDAR HILMARS BJÖRNSSONAR, Hæðargarði 29, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við öllu starfsfólki hjartadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur. Guð blessi ykkur öll. Helga ívarsdóttir, Björn Erlendsson, Þórunn Brandsdóttir, ívar Erlendsson, Þóra Ingvarsdóttir, Magnús Erlendsson, Sigríður Erlendsdóttir, Jón Víkingur Hálfdánarson og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður og afa, MAGNÚSAR GUÐJÓNSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans og heimahlynningar Krabba- meinsfélagsins. Laufey Kristinsdóttir, Guðmunda Þorbjörg Jónsdóttir, Brynhildur Magnúsdóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Rúnar Reynisson og afabörn. GUÐBJÖRG (STELLA) ARNÓRSDÓTTIR t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN ÁSBJÖRG FANNLAND frá Sauðárkróki, Faxabraut 13, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðju- daginn 14. mars sl. Jarðarförin auglýst síðar. Ásta Pálsdóttir, Haukur Pálsson, Sigurlaug Steingrímsdóttir, Óskar Pálsson, Hörður Páisson, Inga Sigurðardóttir, Kolbeinn Pálsson, Kolbrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, EINAR PÉTURSSON fyrrv. bóndi á Arnhólsstöðum, er látinn. Guðrún Einarsdóttir, Ingibjörg Einarsdóttir, Erla Sólveig Einarsdóttir, Örn Sigurður Einarsson og fjölskyldur t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, sonar, afa og bróður, VALSTEINS HEIÐARS GUÐBRANDSSONAR, Árnesi, Súðavík. María Kristófersdóttir, Guðmundur Birgir Heiðarsson, Heiðveig Jóhannsdóttir, Kristófer Heiðarsson, Ragnheiður Jóhannesdóttir, Albert Heiðarsson, Guðný Hanna Jónasdóttir, Ármann Heiðarsson, Guðbrandur Rögnvaldsson, Bjarndfs Inga Albertsdóttir, Brimrún Irma, Marfa Kristín og systkini hins látna. t Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR BENEDIKTSSONAR læknis, Miðleiti 12. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar í Efstaleiti fyrir ómetanlega hjálp. Elínborg Stefánsdóttir, Steindór Guðmundsson, Inga Jóna Jónsdóttir, Áslaug Guðmundsdóttir, Sigurður Thorarensen, Þórunn Guðmundsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Ari Eggertsson og barnabörn. t Þökkum innilega samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, OTHARS ELLINGSEN, Ægisíðu 80, Reykjavík. Sigríður Ellingsen, Dagný Þóra Ellingsen, Garðar V. Sigurgeirsson, Óttar Birgir Ellingsen, Stefania Lóa Jónsdóttir, Steingrímur Ellingsen, Anna Birna Jóhannesdóttir, Lára María Ellingsen, Erlingur Aðalsteinsson, Björg Ellingsen, Broddi Broddason, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.