Morgunblaðið - 16.03.2000, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*
Ahrifa samnings Flóabandalags og S A þegar farið að gæta
Stefnir í verkfall í
mj öl verksmiðj um
ÚTLIT er fyrir verkfall í mjölverksmiðjum eftir
árangurslausan sáttafund Samtaka atvinnulífs-
ins og fjögurra verkalýðsfélaga af Norður- og
Austurlandi hjá sáttasemjara. Atvinnurekendur
vilja bjóða sambærileg kjör og um samdist í
tveimur mjölverksmiðjum á suðvesturhorninu í
tengslum við samninga Flóabandalagsins en því
hafna formenn landsbyggðarfélaganna með öllu.
Mikið ber á milli
Sigurður Ingvarsson, verkalýðsleiðtogi á
Eskifirði og forseti Alþýðusambands Austur-
lands, segir ekkert annað en verkfallsátök blasa
við. „Það er greinilegt að þeir vilja semja á sömu
nótum og við Flóabandalagið," sagði hann. „Það
kom kannski ekki á óvart. Það hefur væntanlega
heldur ekki komið á óvart sú afstaða okkar að
vilja ekki ræða málin á þeim nótum. Það ber ein-
faldlega allt of mikið á milli,“ sagði Sigurður.
Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka
fiskvinnslustöðva og einn fulltrúa SA í viðræð-
unum, tekur undir að mikið beri á milli. „Með
nýgerðum kjarasamningi við Flóabandalagið var
um leið gerður sérkjarasamningur við verk-
smiðju SR-mjöls í Helguvík og Faxamjöl í
Reykjavík. Þar teygðum við okkur eins og fram-
ast var unnt og lengra förum við ekki. Það liggur
fyrir að nýgerðir samningar eru stefnumarkandi
af okkar hálfu fyrir vinnumarkaðinn í heild sinni
og það væri beinlínis út í hött að fara að semja út
og suður við aðra aðila litlu seinna,“ sagði Arnar.
Ekki hefur annar fundur verið boðaður í deil-
unni, en Sigurður Ingvarsson sá ekki annað en
verkfall í spilunum þegar Morgunblaðið ræddi
við hann í gær. „Við stöndum harðir á okkar,“
sagði hann.
25% minni
hagnaður
Sjóvár-Al-
mennra
HAGNAÐUR Sjóvár-Almennra
trygginga nam 346 milljónum króna
á síðasta ári, en var 464 milljónir árið
á undan og lækkaði um 25%. Segir
félagið að ástæður minni hagnaðar
megi fyrst og fremst rekja til verri
afkomu lögboðinna ökutækjatrygg-
inga vegna meiri tjóna.
Bókfærð iðgjöld félagsins námu
5.509 milljónum króna sem er aukn-
ing um 14%. Einnig jukust tekjur af
fjármálarekstri um 22% en þær
námu um 1.504 milljónum króna og
hafa aldrei verið meiri. Bókfærð tjón
námu 4.371 milljón króna og hækk-
uðu um 34% á milli ára.
Ákveðið var að veita starfsfólki
hlutdeild í afkomu félagsins en þetta
er í fimmta sinn sem slíkt er gert. Er
það gert, líkt og 1998, í formi hluta-
bréfa í félaginu sem hver starfsmað-
ur mun fá að nafnvirði 2.500 kr. Jafn-
gildir það um 112.000 krónum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fulltrúar Alþjóðasamtaka flutningaverkamanna stöðvuðu uppskipun við Hafnarfjarðarhöfn í gær. Borgþór
Kjærnested, eftirlitsfulltrúi samtakanna (t.v.), stóð vaktina ásamt fleiri fulltrúum við skipið.
Tölvustýrt vöktunakerfí Vatnamælinga
Upplýsingar
sendar á Netið
Uppskipun stöðvuð í
Hafnarfirði
TÖLVUSTÝRT vöktunarkerfi Vatn-
ælinga, sem fylgist með flóðum og
hlaupum í ám, er bylting í rekstri
vatnshæðarmælikerfis landsins,
hvað varðar öflun og miðlun gagna,
en tölva sækir upplýsingar sjálfvirkt
í mælistöðvar þess í gegnum fars-
ímakerfi, framkvæmir fyrstu vinnslu
gagna og birtir þau á Netinu.
Þessu lýsti Arni Snorrason, for-
stöðumaður Vatnamælinga, á árs-
fundi Orkustofnunar, sem haldinn
var í gær, og sagði hann að þróun og
uppbygging vöktunarkerfisins væri
eitt stærsta fagverkefnið sem
Vatnamælingar hefðu unnið á und-
anfömum árum og að tilkoma þess
gjörbreytti allri vinnu á þessu sviði.
Hann sagði ljóst að nútímatækni við
öflun og miðlun upplýsinga byði upp
á mörg sóknarfæri í samþættingu
umhverfisvöktunar og rannsókna.
Ellefu stöðvar hins símtengda vökt-
unarkerfis Vatnamælinga eru rekn-
ar í ám víða um land sem almennar
vatnsbúskaparstöðvar. Þar mæla
þær vatnshæð og sumar einnig aðra
þætti, svo sem vatnsrennsli, hitastig
lofts, vindhraða, vindstefnu, loftraka
og rafleiðni vatnsins.
I ársskýrslu Orkustofnunar kem-
ur fram að samið hafi verið við Neyð-
arlínuna um að taka á móti upp-
hringingum frá stöðvunum og miðla
boðum til starfsmanna Vatnamæl-
inga.
ÍSLENSKIR fulltrúar Alþjóðasam-
taka flutningaverkamanna stöðv-
uðu í gærdag uppskipun úr skipinu
Frio Crima í Hafnarfjarðarhöfn.
Ástæðan er óviðunandi kjör starfs-
manna um borð, að sögn Borgþórs
Kjærnested, eftirlitsfulltrúa sam-
takanna hér á landi.
Frio Crima siglir undir fána Pan-
ama en er í eigu grískra aðila. Um
borð eru hins vegar Rússar, búsettir
í Lettlandi. Skipið kom hingað til
lands frá Taívan með tæplega eitt
þúsund tonn af smokkfíski fyrir
heildverslun Jóns Ásbjörnssonar.
Þegar aðgerðirnar hófust um kl. 13
í gær var búið að landa um helmingi
farmsins.
„Við gripum til þessara aðgerða
eftir árangurslausar tilraunir til að
fá upplýsingar um kjör áhafnarinn-
ar og aðbúnað," sagði Borgþór við
Morgunblaðið. „Skipið kom hingað
til Iands á mánudag og þá þegar leit-
uðum við eftir þessum upplýsingum.
Því var tekið mjög fálega af skip-
stjóranum og ekki tókst einu sinni
að fá afhentan áhafnarlistann nema
með fortölum," bætti hann við.
Jón Ásbjörnsson sagðist í gær-
kvöldi ekki skilja hvaðan hvatinn til
slíkra aðgerða væri eiginlega kom-
inn. Hann benti á að skip þetta hefði
þegar komið við í Bandaríkjunum
og Kanada án vandræða og væri á
leið til Færeyja og Noregs.
„Hér ríkir fyrir mikil fákeppni í
flutningum og þessar aðgerðir eru
ekkert annað en atlaga að almennu
verslunarfrelsi. Ég tel afar ólfldegt
að hægt sé að fá slík skip hingað til
Iands eftir svona uppákomu og þar
með hverfur það litla aðhald sem
stóru skipafélögin þó höfðu.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Nokkrar skemmdir hlutust af í
anddyri fjölbýlisliússins við
sprenginguna.
Kveikt í
bensínbrúsa í
fjölbýlishúsi
SPRENGING varð þegar kveikt var í
bensínbrúsa í stigagangi fjölbýlishúss
við Háholt í Hafnarfirði í fyrrinótt.
Um þrjátíu manns búa í húsinu í sex
íbúðum og varð fólki mjög hverft við
þegar sprengingin varð. Þustu marg-
ir út á náttklæðunum, en engan sak-
aði.
Brúsanum var komið fyrir milli úti-
dyrahurðar og millihurðar þar sem
eldur var borinn að honum. Hann
sprakk og talsverður hvinur heyrðist
og mikill svartur reykur myndaðist í
stigaganginum. Nokkur reykur barst
einnig inn í íbúðir á efstu hæð hússins.
Ibúamir tilkynntu lögreglu og
slökkviliði um atvikið kl. 3.28 í fyrri-
nótt.
Töluverðar skemmdir urðu í and-
dyri hússins þar sem brúsinn sprakk
og sviðnaði hurð og loft.
Málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni í Hafnarfirði sem leitar til-
ræðismannsins, en hafði ekki fundið
hann í gær.
-------♦-4-4-------
A
RSI metur
tilboð SA
TILBOÐIN gengu á víxl í viðræð-
um Samtaka atvinnulífsins og Raf-
iðnaðarsambandsins í gær. Á
þriðjudag hljóp snurða á viðræð-
urnar en betur gekk í gær.
Guðmundur Gunnarsson, formað-
ur RSÍ, segir að komið hafi í ljós á
þriðjudag að atvinnurekendur hafi
ekki undirbúið sín mál nógu vel og
því gefið lítið fyrir ítarlegar tillögur
rafiðnaðarmanna um texta væntan-
legs samnings. „Þeir spurðu okkur
hvort við ætluðum ekki að fara að
gera eitthvað og draga kröfurnar til
baka svo ganga mætti frá þessum
samningi," sagði Guðmundur.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að formaður RSÍ hafi ekki tekið
þeim ummælum þegjandi því hann
skellti hurðum í nýjum húsakynn-
um sáttasemjara svo á eftir honum
fylgdi hluti dyraumgjarðarinnar.
„Þetta bar einhvern árangur, því
allt annað hljóð var komið í menn í
gær. Þeir lögðu fyrir okkur tilboð
og við fórum yfir það og gerðum
gagntilboð,“ sagði Guðmundur.
Gert er ráð fyrir að SA svari því til-
boði eftir hádegi í dag.
Sérblöð í dag
mwmm
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir tímaritið
24-7. Útgefandi:
Alltaf ehf.
Ábyrgðarmaður:
Snorri Jónsson
4SBUR
Spenna á Sauðárkróki fyrir leik
gegn KR-ingum /C2
Oruggur sigur Manchester
United /C4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is