Morgunblaðið - 16.03.2000, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjárhirðirinn.
Yilja að áætlunarflug til
Húsavíkur haldi áfram
SKORAÐ hefur verið á samgöngu-
ráðherra, þingmenn, Húsavíkur-
kaupstað og Flugfélag íslands að
beita öllum ráðum til að framhald
megi verða á áætlunarflugi milli
Reykjavíkur og Húsavíkur. Verslun-
armannafélag Húsavíkur samþykkti
nýlega áskorun þessa efnis og lýsir
félagið yfir þungum áhyggjum vegna
þeirrar stöðu sem komin er upp.
Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags íslands, segir
áform ekki uppi að hefja á ný áætl-
unarflug á þessari leið. Leiðin hafi
einfaldlega ekki borið sig þrátt fyrir
að hún væri ágæt að sumrinu. „En
við höfum sagt að vilji heimamenn
eða samgönguyfirvöid koma að
þessu og finna einhverja lausn enim
við alltaf tilbúnir til viðræðna," sagði
Jón Karl.
I ályktun Verslunarmannafélags
Húsavíkur segir meðal annars að sú
ákvörðun Mýflugs að hætta áætlun-
arflugi sé reiðarslag fyrir íbúa í
Þingeyjarsýslum. „Verði ekki hafið
áætlunarflug að nýju til Húsavíkur
er ljóst að það hefur mjög neikvæð
áhrif á búsetu í Þingeyjarsýslum og
þá sérstaklega á ört vaxandi ferða-
þjónustu á svæðinu. í því sambandi
má benda á að ferðaþjónustuaðilar í
Þingeyjarsýslum hafa á síðustu
misserum hlotið sérstakar viður-
kenningar fyrir þá miklu uppbygg-
ingu sem verið hefur í ferðaþjónustu
á svæðinu. Því er hér um mikilvægt
byggðamál að ræða og nauðsynlegt
að sem flestir komi að lausn þess.“
FO 2150
• Faxtæki, sími, Windows
litaprentari, skanni,
tölvufax og Ijósriti
- allt í einu tæki
• Sjálfvirkur deilir fax/sími
• Bleksprautuprentun
• Prentar á A-4 pappír
• 20 blaða frumritamatari
• 200 blaða pappírsbakki
FO - 4700
• Prentar á A-4 pappír
• Leiserprentun
• 1 mb i minni (um 50 síður)
• 50 blaða frumritamatari
• 250 blaða pappírsgeymsla
FO 3600M
• Faxtæki,sími,Windows-
prentari ,skanni,
tölvufax, og Ijósriti
í einu tæki
• Sjálfvirkur deilir fax/sími
• Leiserprentun
• Prentar á A4 pappír
• 30 blaða frumritarmatari
• 100 blaða pappírsbakki
UX-370
• Innbyggður sími
• Sjálfvirkur deilir fax/sími
• Símsvara tengimöguleiki
• Hitafilmu prentun
• Prentar á A4 pappír
• 10 blaða frumritamatari
• 60 blaða pappírsbakki
a 8
Sími 530 2800
www.ormsson.is
Hjálparátak Zonta
Gegn ofbeldi
og umskurði
kvenna
Birna Frímannsdóttir
TÁKN Zonta er gul
rós. Áttunda rnars
er dagur gulu rós-
arinnar og alþjóðadagur
kvenna. Bima Frímanns-
dóttir, svæðisstjóri Zonta-
klúbbanna á Islandi, fræð-
ir okkur um átak þeirra
sem í ár er dagana 17.-18.
mars, ogum alþjóðafélags-
skap Zonta.
„Síðasta landsverkefni
íslensku klúbbanna var
sala á gulum silkirósum í
mars 1998.
Ágóðinn, sem var 3,8
milljónir, rann allur til
Umhyggju, félags til
styrktar langveikum böm-
um.
I ár munu Zontakonur á
íslandi selja lítil gjafakort
með mynd af gulum rós-
um. Helmingur ágóðans
árið 2000 rennur til styrktar
landsverkefnis íslensku Zonta-
klúbbanna, en það er að aðstoða
og hjálpa konum sem hafa orðið
fyrir kynferðislegu ofbeldi. Mun
hann að þessu sinni renna til
Kvennaathvarfsins í Reykjavík,
sem þjónar allri landsbyggðinni.
Þar geta konur sem orðið hafa fyr-
ir ofbeldi á heimilum sínum leitað
húsaskjóls með böm sín, fengið
stuðning til sjálfshjálpar og ýmsa
þjónustu fyrir bömin. Eins og
með aðra þjónustu á einum stað er
þyngri róður fyrir konur sem búa
við ofbeldi úti á landi að leita
þangað. Á Akureyri var stofnað
Kvennaathvarf árið 1984, en ein-
ungis starfrækt um eitt ár, því
reynslan sýndi að konur kusu
heldur að leita út fyrir heima-
byggðina til Reykjavíkur og dvelj-
ast þar. Eignir kvennaathvarfsins
á Akureyri mnnu þá þangað og
stofnaður svokallaður ferðasjóður
fyrir konur utan af landi sem ekki
höfðu fjárhagslegt bolmagn til að
komast til Reykjavíkur. I dag er
sjóðurinn uppurinn og hafa Zonta-
konur hug á að verða þar að liði.
Hinn helmingur ágóðans af
kortasölunni rennur svo í alþjóða-
verkefni Zonta, sem nú og næstu
ár er baráttan gegn umskurði
kvenna, sem er ótrúlega útbreitt
og skelfilegt ofbeldi. Byrjað verð-
ur í smáríkinu Burkina Faso í Afr-
íku, en þar em 66% 6-7 ára
stúlkubarna umskorin þrátt fyrir
að lög banni umskurð frá 1996.
Markmiðið með verkefninu er
að lækka þessa tölu um a.m.k.
þriðjung í fyrstu atrennu. Laga-
legi gmnnurinn er tryggður.
Markmið alþjóðasamtaka Zonta
er að breyta afstöðu fólks til þessa
verknaðar. Þetta verkefni sem og
önnur em unnin í samvinnu við
UNICEF, barnahjálp SÞ.“
Kvaðst Birna vona að allir
landsmenn taki Zontakonum á ís-
landi vel og kaupi gjafakortin með
gulu rósunum föstudaginn og
laugardaginn 17. og 18. mars og
leggi þar sinn skerf til
að hjálpa konum og
bömum í neyð til betra
lífs og bjartari framtíð-
ar. En kortin verða
seld á stöðum þar sem Zonta-
kiúbbar era.
-En hvað eru Zontasamtökin?
„Zontasamtökin era alþjóðleg
þjónustusamtök kvenna úr ýms-
um starfsstéttum. Þau hafa það að
markmiði að efla stöðu og rétt
kvenna á sviði menntunar, efna-
hags og stjórnmála og vinna að
líknarmálum. Fyrstu Zontaklúbb-
arnir vom stofnaðir 8. nóv. 1919 í
Buffalo í Bandaríkjunum af 600
► Bima Frímannsdóttir er svæð-
isstjóri Zontaklúbbanna á ís-
landi. Hún er fædd á Akranesi,
en ólst upp á Strönd á Rangár-
völlum. Lauk kennaraprófi frá
KI1950 og söngkennaraprófi
sama ár. I framhaldsnámi í
Kaupmannahöfn 1976-77 lagði
hún aðallega stund á danskar
bókmenntir og bamabókmennt-
ir. Var kennari á Hvolsvelli í 22
ár og eftir það við Gmnnskólann
í Hveragerði. Hún hefur tekið
þátt í ýmsum félagasamtökum. I
Zontaklúbbi Selfoss frá stofnun
1972 og er nú svæðisstjóri allra
klúbbanna. Bima er gift Trú-
manni Kristiansen fyrrverandi
skólastjóra. Börnin era fjögur.
konum. í dag starfa 33 þúsund
konur í Zontahreyfingunni, klúbb-
arnir em 1224 í 70 löndum í öllum
heimsálfum. Umdæmin em 30.
Fyrstu klúbbamir í Evrópu vom
stofnaðir árið l 930, á Norðurlönd-
um 1935 og á íslandi 1941. í fyrstu
náði umdæmi 13 yfir Norðurlönd-
in fimm, en nú nær það yfir þrjú
svæði, eitt er Damörk/Litháen,
svæði þrjú er ísland og svæði
fjögur er Noregur.
Zontaklúbbamir á íslandi em
sex, tveir í Reykjavík, tveir á Ak-
ureyri, einn á Selfossi og einn á
Isafirði. Allir vinna klúbbarnir að
alþjóða- og landsverkefnum.
Einnig vinna þeir að ýmsum líkn-
ar- og mannúðarmálum í sinni
heimabyggð. T.d. hefur Zonta-
klúbbur Reykjavíkur frá upphafi
unnið mikið starf fyrir heyrnar-
lausa og Zontaklúbbur Akureyrar
séð um og rekið Nonnahús. Við
greiðum árlega í ýmsa alþjóða-
sjóði sem veitt er úr til að stuðla
að menntun ungra kvenna sem
skara fram úr á ýmsum sviðum.
Einnig í fjölmörg alþjóðaverkefni
sem em til að hjálpa konum og
börnum í þróunarlöndunum til
náms. Frá því að Sameinuðu þjóð-
irnar vora stofnaðar hefur Zonta
unnið í nánum tengsl-
um við stofnanir þeirra.
ZISVAW er eitt af
stóram verkefnum
Zonta undanfarin ár,
en það er áætlun Zonta um að
vinna gegn ofbeldi á konum og
börnum. Fyrir ágóða af þjónustu-
verkefnunum hafa yfir 700 þúsund
konur notið aðstoðar Zonta á
ýmsa vegu. Enn er þó mikið óunn-
ið. Höfum í huga að af 1,3 milljón-
um fátækra í heiminum em 70%
konur, af ólæsum em 66% konur
og af öllum þeim bömum sem ekki
ganga í skóla em 66% stúlku-
börn.“
Gul rós er
tákn Zonta