Morgunblaðið - 16.03.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 13
FRÉTTIR
Dagbók með fræðsluefni fyrir
kr abbameinssj úklinga
SAMSTARFSHÓPUR hjúkrunar-
fræðinga á krabbameins- og blóð-
sjúkdómalækningadeildum Land-
spítalans háskólasjúkrahúss hefur
staðið fyrir samantekt á fræðsluefni
fyrir krabbameinssjúklinga sem
nefnd er krabbameinsdagbókin.
Tilgangurinn er að bæta fræðslu
íyrir krabbameinssjúklinga.
Fræðsluefni í lausblaðaformi
Nanna Friðriksdóttir, hjúkrunar-
fræðingur á Landspítala við Hring-
braut, segir að hjúkrunarfræðingar
á báðum sjúkrahúsunum hafi íyrir
löngu komið auga á nauðsyn þess að
bæta fræðsluefni fyrir krabbameins-
sjúklinga. „Við töldum að við þyftum
að leggja okkur betur fram í því að
fræða sjúklinga sem eru í margs
konar meðferð vegna krabbameins.
Með því að virkja krafta fólksins
sjálfs má draga úr álagi sem sjúk-
dómur og meðferð geta haft í för
með sér og jafnvel hefur það sýnt sig
að dregið getur úr innlögnum," segir
Nanna í samtali við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Golli
Nýja fræðsluefnið er í lausblaða-
formi, einblöðungar, sem menn geta
sett í filofax-dagbækur sem sjúkling-
ar fá að gjöf þegar þeir koma í með-
ferð. Hver og einn fær það efni sem
að meðferð hans snýr og tekur til
dæmis til lyfja- og geislameðferðar,
aukaverkana og ýmissa einkenna
þeirra. Dagbækurnar má síðan nota
til að skrá minnisatriði um gang
mála meðan á veikindum stendur,
t.d. dagsetningar rannsókna, niður-
stöður þeirra og meðferð.
Krabbameinsdagbókin var kynnt
nýverið fyrir heilbrigðisstarfsmönn-
um. Margar fagstéttir komu við sögu
auk sjúklinga og aðstandenda. Land-
spítalinn háskólasjúkrahús gefur
bókina út.
Hér sýnir Nanna Friðriksdóttir
sjúklingi Krabbameinsdagbúk-
ina en í henni er margs konar
fræðsluefni um meðferð og
aukaverkanir lyfja, svo nokkuð
sé nefnt.
Helgi ráðinn
í Iðnaðar-
ráðuneytið
IÐNAÐARRÁÐHERRA hefúr
skipað Helga Bjarnason verkfræð-
ing í stöðu skrifstofustjóra orku- og
stóriðjumála í iðnaðarráuneytinu.
Skipunin gildir frá 15. mars 2000 til
fimm ára. Þrír sóttu um stöðuna.
Helgi er fæddur 1947. Hann er
með stúdentspróf frá Menntaskólan-
um í Reykjavík og lauk fyrrihluta-
prófi frá Verkfræði- og raunvísinda-
deild Háskóla íslands 1970. Hann
stundaði framhaldsnám við Lunds
Teknisk Högskola frá 1970 til 1973
og lauk M.sc prófi þaðan með vatna-
og virkjunarfræði sem sérgrein.
Helgi hefur m.a. starfað sem verk-
fræðingur við byggingu Hrauneyja-
fossvirkjunar og Sultartangastíflu.
Frá árinu 1984 starfaði hann við
hönnun og áætlanagerð virkjana hjá
Landsvirkjun og frá árinu 1993 við
umhverfis- og grunnrannsóknir.
Hann hefur verið deildarstjóri um-
hverfisdeildar Landsvirkjunar frá
1995.
Helgi Bjamason er kvæntur
Svanhildi Eddu Þórðardóttur, deild-
arstjóra hjá Alþingi.
Veldu þann sem
þolir samanburð
Loftpúðar
Ilnakkapúðar
Fjarstýrð hljómtæki
Já
nei
Hátalarar
Þokuljós
Verð frá
Hestöfl
107
110
101
101
ABS
nei
nei
nei
nei
nei
J'á
nei
nei
nei
1.678.000 kc
1.680.000 kr.
1.660.000 kr.
1.690.000 kr.
Tegund
Laguna
Avensis
Vectra
Passat
Vélarstærð
1600 16v
1600 16v
1600 16v
1600 8v
Gijótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Renault Laguna kostar frá 1.678.000 kr.
Staðalbúnaður: ABS bremsukerfi, 4 loftpúðar, fjarstýrð samlæsing, vökvastýri, öryggisbelti
með strekkjurum og dempurum, fjarstýrt útvarp/kassettutæki m/6 hátölurum, þrjú
þriggja punkta belti í aftursætum, 3 höfuðpúðar að aftan, barnalæsing, útihitamælir,
þjófavörn/ræsivörn, þokuljós, samlitir stuðarar, litað gler, snúningshraðamælir o.m.fl.
RENAULT