Morgunblaðið - 16.03.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 25
Frumvarp til laga um veiðar krókabáta
Lögunum verði
frestað um eitt ár
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
lagði á Alþingi í gær fram frumvarp
til laga sem kveður á um að gildist-
öku laga um veiðar krókabáta verði
frestað um eitt ár. Þannig frestast
kvótasetning aukategunda og inn-
göngu hluta sóknardagabáta í aflam-
arkskerfið. Auk þess er í frumvarp-
inu lagt til að fækkun sóknardaga úr
23 í 21 dag verði frestað um eitt ár,
sem og framsali sóknardaga.
Samkvæmt núgildandi lögum áttu
krókabátar sem á yfirstandandi fisk-
veiðiári mega stunda veiðar í 23
daga með handfærum eingöngu að
fá 21 sóknardag úthlutað á fiskveið-
iárinu 2000/2001. Sóknardagarnir
áttu að vera framseljanlegir milli
báta samkvæmt ákveðnum reglum.
Öðrum sóknardagabátum átti að út-
hluta aflahlutdeild á næsta fiskveið-
iári, auk þess sem kvótasetja átti
veiðar á aukategundum, ýsu, ufsa og
steinbít, en krókabátar hafa til þessa
haft frjálsa sókn í þessar tegundir.
Ástæða þess að þetta er lagt til er
fyrst og fremst sú að nú fer fram
heildarendurskoðun laga um stjórn
fiskveiða sem ljúka á fyrir lok fisk-
veiðiársins 2000/2001. Þykir ekki
heppilegt að taka upp nýja skipan
við stjórn veiða smábáta meðan
þessi endurskoðun stendur yfir. í
frumvarpinu er lagt til að gildistaka
laganna frestist um eitt ár og því
verði skipan á næsta fiskveiðiári sú
sama og á því sem nú stendur yfir.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
segir að flestir þeir bátar sem átti að
færa inni í aflamarkskerfi á næsta
fiskveiðiári hefðu fengið mjög litlar
veiðiheimildii’. „Það er útlokað að
menn hefðu getað gert út með þess-
ar heimildir. Það getur því skipt
sköpum fyrir marga að fá þarna eitt
ár til aðlögunar kerfinu. Hvað varð-
ar kvótasetningu aukategundanna
hafa þessar tegundir hafa ekki náðst
á undanförnum árum. Það er bein-
línis nauðsynlegt að hafa ákveðið
frjálsræði, til dæmis til þess að línu-
veiðar verði yfir höfuð stundaðar.
Kvótasetning aukategunda hefði
auk þess þýtt að afli þorskaflahá-
marksbáta í aukategundum hefði að-
eins verið um fimmtungur frá því
sem verið hefur undanfarin ár.“
Örn segir að fyrir þá báta sem fái
úthlutað 23 sóknardögum séu dag-
amir alltof fáir, einkum þegar afli
dragist saman eins og raunin hafi
verið að undanförnu. Þá muni mikið
um hvern dag og því sé mikilvægt að
framvarpið nái fram að ganga því
fyrirsjáanlegt sé að dögunum fækki
um tvo á næsta fiskveiðiári sam-
kvæmt núgildandi lögum.
Seinkun á
veiðum við
Suður-Afríku
N Ó A T Ú N
YFIRVÖLD í Suður-Afríku hafa
loks, eftir mánaðar töf, gefið út veiði-
heimildir fyrir ansjósu og sardínu.
Ákvörðun átti að liggja fyrir um miðj-
an janúar en kom ekki fyrr en mánuði
síðar. Fyrir vikið hófust veiðar mun
seinna en venjulega og sama var uppi
á teningnum í fyrra. Fyrir vikið náð-
ist ekki mikill hluti leyfilegs afla, með
tilheyrandi telqutapi útgerðar, sjó-
manna og fiskverkenda.
Nú hefur verið úthlutað helmingi
bráðabirgðakvóta upp á 102.000 tonn
af sardínu og 50.000 tonnum af
ansjósu til þeirra sem stunduðu veið-
amar í fyrra og í sama hlutfalli og þá.
Talið er að endanlegur sardínu-
kvóti verði ekki meiri en kvóti síðasta
árs, sem var 136.000 tonn, enda benda
rannsóknir til þess að bæði nýliðun og
veiðistofn fari minnkandi. Á hinn bóg-
inn er búizt við því að kvóti á ansjósu
verði aukinn, enda er stofn hennar á
uppleið. Vonir standa til að leyft verði
að veiða allt að 236.000 tonn, en í fyrra
varð ansjósuaflinn 150.000 tonn. Sfld-
arstofninn er á uppleið og er vonazt til
að leyft verði að veiða meira en þau
6.000 tonn sem veiða mátti í fyrra.
Dráttur á úthlutunum veiðiheim-
ilda í fyrra leiddi til þess að ekki náð-
ist að veiða 25.000 tonn af sardínu og
80.000 tonn af ansjósu.
Veiðistjóm hefur nú verið breytt í
Suður-Afríku og ráða nú stóm fyrir-
tækin aðeins yfir 56% leyfilegs afla,
en miðlungs og lítil fyrirtæki em með
44%. Nýliðar í útgerð frá árinu 1992
em nú með 46% leyfilegs afla.
Dráttur á úthlutun veiðiheimilda
hefur bitnað verst á smærri útgerð-
um og fengu sumar úthlutun svo seint
að þær náðu ekki neinu.
iBI
Vor- og sumarlistarnir
komnir!
Ármúla 17a • S: 588-1980
v www.otto.is J
Ferskir
sveppir
íslenskir
nn ult
N Ó A T Ú N
NÓATÚN117 • R0FABÆ 39 • HÓLAGARÐI • HAMRAB0RG 14 KÓP. •HVERAFOLD • FURUGRUND 3, KÓP.
• ÞVERH0LTI 6, M0S. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 -AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68