Morgunblaðið - 16.03.2000, Side 28
YDDA/SÍA
28 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Gore og Bush öruggir um að verða forsetaefni
Búa si g undir langa o g
harðvítuga baráttu
Austin. Tallahassee. AFP. AP.
AL Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, og George W. Bush, ríkisstjóri
Texas, eru nú öruggir um að verða
tilnefndir forsetaefni demókrata og
repúblikana í kosningunum í nóvem-
ber eftir forkosningar flokkanna í
sex ríkjum í fyrradag. Þeir sögðust
báðir búa sig undir harða baráttu um
Hvíta húsið næstu átta mánuðina.
Bush kvaðst vera staðráðinn í að
„binda enda á Clinton-Gore-tímabiI-
ið í Washington" en Gore varaði
kjósendur við því að Bush myndi
endurvekja hægristefnu föður síns
sem hefði valdið efnahagslegum
samdrætti í landinu.
Gore og Bush hafa nú báðir fengið
nógu marga kjörmenn til að verða
tilnefndir forsetaefni flokka sinna,
tæpri viku eftir að keppinautar
þeirra, Bill Bradley og John MeCain,
ákváðu að draga sig í hlé.
Gore þurfti að fá 2.169 kjörmenn
og hefur nú fengið 2.575 eftir for-
kosningar demókrata í sex suður-
ríkjum Bandaríkjanna á þriðjudag -
Flórída, Texas, Louisiana, Mississ-
ippi, Oklahoma og Tennessee.
Bush hefur fengið rúmlega 1.100
kjörmenn og þurfti 1.034 til að verða
tilnefndur forsetaefni repúblikana á
flokksþingi þeirra í sumar.
Hyggst hefna ósignrs föður síns
Bush gaf til kynna að hann hygðist
ná sér niðri á Gore og Bill Clinton
forseta, sem sigraði föður hans,
George Bush, fyrrverandi forseta, í
kosningunum árið 1992. „Við stönd-
um enn einu sinni frammi fyrir bar-
áttu við Clinton-Gore,“ sagði ríkis-
Reuters
George W. Bush, ríkisstjóri Tex-
as, og fagnar sigri sínum í for-
kosningum repúblikana með
eiginkonu sinni, Lauru, í Austin
í Texas.
stjórinn þegar hann ávarpaði
stuðningsmenn sína í Texas. Hann
lagði áherslu á að tengja Gore við
hneykslismál Clintons. „Þessum
sigri fylgir heilög skylda. Banda-
ríkjamenn vilja leiðtoga sem þeir líta
upp til. Þeir vilja forseta sem stend-
ur við eiðstafinn og heldur reisn
sinni.“
Gore lagði hins vegar áherslu á
efnahagsuppganginn í Bandaríkjun-
um á valdatíma Clintons. „Við stönd-
um á hátindinum í sögu okkar!“
sagði hann á fundi á Flórída. „Lítið á
árangur okkar, lengsta hagvaxtar-
skeið sögunnar."
Gore kvaðst vilja halda áfram á
sömu braut, tryggja áframhaldandi
hagsæld og nota fjárlagaafganginn
til uppbyggingar í Bandaríkjunum.
„Hin leiðin er í átt að hægrikantinum
og bugðum sem færa okkur aftur til
þeirrar stefnu sem brást á valdatíma
Bush-Quayle.“
Bush enn með meira fylgi
Skoðanakannanir hafa sýnt að
Gore hefur saxað á forskot Bush sem
var um 20 prósentustig á síðasta ári.
Ný Gallup-könnun fyrir USA Today
og CWNbendir til þess að fylgi Bush
sé nú 49% og Gore 43%.
Lítil kjörsókn var í forkosningun-
um á þriðjudag, um 10-20% í flestum
ríkjanna, enda var lítil spenna í kosn-
ingabaráttunni eftir að McCain og
Bradley drógu sig í hlé.
Bush fékk 85% atkvæðanna í
heimaríki sínu, Texas, og Gore fékk
76% atkvæðanna í forkosningum
demókrata í ríkinu.
Varaforsetinn fékk hins vegar
92% kjörfylgi í heimaríki sínu, Tenn-
essee, og Bush fékk þar 75% at-
kvæða repúblikana.
Ríkisstjórinn vildi ekki útiloka að
Colin Powell, fyrrverandi forseti
bandaríska herráðsins, yrði varafor-
setaefni repúblikana. „Það er of
snemmt að tala um varaforseta, en
enginn vafi leikur á því að jafnvirtur
maður og Colin Powell myndi senda
kröftug skilaboð til Bandaríkja-
manna um að ég geti laðað að bestu
hugsuði Bandaríkjanna. Ég ætla
auðvitað að ræða við hann. Og ég
vonast til að geta reitt mig á stuðn-
ing hans.“
Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf.
verður haldinn í Listasafni Islands, Reykjavík,
fimmtudaginn 30. mars 2000 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf (samræmi við ákvæði greinar
4.06 (samþykktum félagsins.
2. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins
þess efnis að heímila stjórn að hækka hlutafé um
300 m. kr.að nafnverði með sölu nýrra hluta.
il
llfSii %
mm M3|t •
n
■ mmm
WI&iWW'''
mmmmm '
mmmm
mmmmm
m & &
mmm
m m m
Tillaga stjórnar um breytingar á greinum 1.04, 2.05,
2.06, 2.07, 4.01,4.02, 4.05, 4.07, 5.03, 5.05, 6.01,
6.02, og kafla 12 í samþykktum félagsíns vegna
áforma um að sækja um heimild til að starfa sem
fjárfestingarbankí.
Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutabréfum
í félaginu.
Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
eða umboðsmönnum þeirra á skrifstofu félagsins að
Slðumúla 28, 2. hæð, Reykjavík dagana 27.-29. mars nk.
milli kl. 10-15 og á fundarstað.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 1999
ásamt tillögum þeim, sem fyrir
fundinum liggja, verða hluthöfum til
sýnis á sama stað frá 23. mars nk.
Reykjavfk, 10. mars 2000
Stjórn Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf.