Morgunblaðið - 16.03.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 28
Baráttan vegna forsetakjörsins í Rússlandi
AP
Vladímír Pútín, starfandi forseti Rússlands, heilsar helsta leiðtoga
múslima í Tsjetsjníu, Akhmad Alikhadzhi Kadírov múfta, í Kreml í gær.
Fylgi
Pútíns
minnkar
heldur
Moskvu. AFP.
KANNANIR sýna, að stuðningur
við Vladímír Pútín, settan forseta
Rússlands, meðal kjósenda hefur
minnkað nokkuð en er samt enn yf-
ir 60%.
I könnun, sem skoðanakannana-
fyrirtækið ARPI gerði og birt var í
gær, fékk Pútín stuðning 52,7%
kjósenda en 55% fyrir viku. Til að
sigra í forsetakosningunum 26.
mars nk. þarf a.m.k. 50% atkvæða
en ella verður efnt til annarra kosn-
inga milli tveggja efstu 16. apríl.
Gennadí Zjúganov, frambjóðandi
kommúnista, kemur næstur Pútín
með 24% atkvæða en hafði 26,5%
fyrir viku. Umbótasinninn Grígórí
Javlínskí er með 7,3% og þjóðernis-
öfgamaðurinn Vladímír Zhírinovskí
með 4%.
Borgarstjórinn í Moskvu, Júrí
Lúzhkov, lýsti í gær stuðningi við
Pútín. Fyrir aðeins örfáum mánuð-
um var Lúzhkov talinn mjög líkleg-
ur til að sigra í forsetakosningunum
ef hann færi fram.
Tsjetsjníu-stríðið hefur aukið
mjög vinsældir Pútíns og svo viss er
hann um sigur, að hann hefur ekki
haldið uppi neinni eiginlegri kosn-
ingabaráttu. Helsta áhyggjuefni
hans manna er, að kjörsóknin fari
niður fyrir 50%, en þá eru kosning-
arnar ógildar. Verður þá að efna til
annarra innan þriggja mánaða. Um
108 milljónir manna er á kjörskrá.
Hófst kosning utan kjörstaða í gær.
A kjördag verða kjörstaðirnir
94.000 og áætlað er, að allt að
450.000 her- og lögreglumenn haldi
uppi gæslu við þá eða einn fyrir
hverja 250 kjósendur.
CLINIQUE
Ofnæmisprófað.
Frábær gjöf
Nýjasti kaupaukinn þinn frá Clinique er hér
Komdu og fóSu sex af mest notuðu og vinsælustu Clinique förðunar- og húðvörunum.
Allt í handhægri snyrtitösku sem hægt er að taka með sér hvert sem er. Þessi taska er þín
án endurgjalds ef keyptar eru Clinique snyrtivörur fyrir 3.500 kr. eða meira.
Gjöfin þín inniheldur: Dramatically Different Moisturizing Lotion, Stop Signs dropa,
Superbalanced farða í vanilla, Cubby Stick tvenna með yddara í Nude lce/Vanilla Brownie,
Longstemmed Lashes maskara í svörtu. Ein gjöf fyrir hvern viðskiptavin á meðan birgðir
endast. Þú verður að drífa þig.
Clinique.
Ofnæmisprófað. 100% ilmefnalaust. www.dinique.com
Ráðgjafi verður í Hagkaupi, Kringlunni, í dag, fimmtudag, kl. 13-18,
föstudag kl. 13-18 og laugardag kl. 12-16.
HAGKAUP
Kringlunni
Tilboðið gildir einnig í Hagkaupi Smáranum, Skeifunni og Akureyri.
Brady fær ekki
að deyja í friði
London. Morgunblaðið.
HÆSTARÉTTARDÓMARI í gripu svo til þess ráðs, að næra
Liverpool hefur hafnað beiðni Ian
Brady, sem ásamt Myra Hindley
myrti fimm ungmenni fyrir fjörutíu
árum, um að hætt verði að neyða
næringu ofan í hann og hann fái að
deyja í friði. Dómarinn tók fram að
úrskurði sínum yrði ekki áfrýjað,
en fyrir réttarhöldin sagði Brady,
að hann myndi leita til mannrétt-
indadómstóls Evrópu, ef úrskurður
brezkra dómstóla yrði sér í óhag.
Brady var fluttur frá Ashworth-
sjúkrahúsinu til réttarins' í Liver-
pool í öflugri lögreglufylgd. Þar las
dómarinn honum úrskurð sinn und-
ir fjögur augu og þegar Brady hafði
verið fluttur á burt, var réttarsalur-
inn opnaður og dómarinn las dóm-
inn og dómsorðin í heyranda hljóði.
Ian Brady hóf hungurverkfall í
Ashworth-sjúkrahúsinu í september
sl. eftir að hann var fluttur til innan
sjúkrahússins vegna ótta forráða-
manna þess um að hann hygðist
fremja sjálfsmorð. Spítalayfirvöld
Brady nauðugan og nú hefur dóm-
ur fallið á þann veg, að þar hafi
verið um löglega, skynsamlega og
réttláta aðgerð að ræða. Sagði
dómarinn, að geðheilsu Brady væri
þannig háttað, að hann væri ekki
fær um að ákveða slíkt sjálfur og
með hliðsjón af því og eðli málsins
væri beiðni hans hafnað.
Kínverjar
1.259 milljónir
KÍNVERJUM fjölgaði um tæp-
ar ellefu milljónir á síðasta ári
og hefur dregið úr fjölgun í
Kína, en þeir eru nú sagðir vera
1.259 milljónir, samkvæmt upp-
lýsingum kínversku hagstof-
unnar. Fjölgun í Kína var 0,87%
á síðasta ári, þegar 19,09 mil-
ljónir Kínverja fæddust, en 8,10
milljónir létust. Um 6,9% þjóð-
arinnar eru yfir 65 ára aldri.
Ný brezk-rússnesk
njósnadeila
loskvu. AFP.
NÝ njósnadeilda virtist í gær vera
komin upp milli stjórnvalda í
Moskvu og Lundúnum, í kjölfar þess
að rússneska leyniþjónustan FSB,
arftaki sovézku leyniþjónustunnar
KGB, tilkynnti um handtöku rúss-
nesks ríkisborgara sem sagður var á
mála hjá brezku leyniþjónustunni.
í örstuttri yfirlýsingu frá FSB var
tilkynnt að rannsókn væri hafin á
málinu, en ekki var þess getið nánar
hver sá handtekni væri.
Sakaði FSB leyniþjónustu Eist-
lands um að eiga „beinan hlut“ að
þessu njósnamáli. Fulltrúar rúss-
neskra yfirvalda neituðu að tjá sig
frekar um málið í gær. Ekki lá fyrir
hvar og hvenær hinn meinti njósnari
hafði verið handtekinn.
í Tallinn sagðist Priit Poiklik, tals-
maður eistnesku ríkisstjórnarinnar,
ekki hafa neitt um málið að segja og
eins og hefð er fyrir í slíkum málum
vörðust talsmenn brezkra yfirvalda
allra frétta.
Mál þetta kemur upp aðeins
nokkrum dögum eftir að Töny Blair,
forsætisráðherra Bretlands, heim-
sótti Vladimír Pútín, settan forseta
Rússlands, í Kreml.
Við stórlækkum verðið
á Bœn parketi um 20-30%
Vegna hagstæðra samninga bjóðum við norska gæðaparketið
frá BOEN á einstöku verði á meðan birgðir endast.
Einnig nýkomið mikið úrval af stökum teppum og mottum.
Margar stærðir. Frábært verð.
7 mismunandi gerðir. Yerð frá: 2.690 kr. pr. m2
teppabOdin
Suðurlandsbraut 26 Sími: 568 1950 Fax: 568 7507 Slóð: www.glv.is