Morgunblaðið - 16.03.2000, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Þingflokkur
Samfylkingarinnar
A ferð um
Norðurland
eystra
I DAG og á morgun verða þing-
menn Samfylkingarinnar á ferð
um Norðurland eystra. í kvöld kl.
20.30 er opinn þingflokksfundur á
Hótel Húsavík. Allt stuðningsfólk
er velkomið á fundinn.
A föstudag verða fyrirtæki og
stofnanir heimsótt. Farið verður í
Islenskan harðvið og Heilbrigðis-
stofnunina og á verkalýðsskrijstof-
una á Húsavík fyrir hádegi. A Ak-
ureyri verður m.a. farið í
Verkmenntaskólann, Heilsugæsl-
una, Háskólann á Akureyri og
fjölmiðlar heimsóttir.
Fundur með stuðningsfólki
Samfylkingarinnar verður í Deigl-
unni, Akureyri, kl. 19.30 á föstu-
dagskvöldið.
-----M-*------
Fyrirlestur í
Hofsstaðaskóla
um tilfínningar
FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 16.
mars kl. 20 heldur Elías Jón
Sveinsson, deildarstjóri á meðferð-
arstöðinni Teigi, fyrirlestur um til-
fínningar fyrir foreldrafélag
Hofsstaðaskóla.
Elías ætlar að upplýsa foreldra
um hvernig þeir geta orðið heil-
brigðari og færari uppalendur.
Elías ætlar einnig að fjalla sér-
staklega um reiði, ótta, sektar-
kennd og sorg í sínum mismunandi
myndum. Fyrirlesturinn verður
haldinn í sal Hofsstaðaskóla og eru
allir velkomnir.
UMRÆÐAN
Lýðræði, Evrdpusam-
bandið og innanríkismál
AKVEÐIN og hröð
viðbrögð 14 aðOdar-
ríkja Evrópusam-
bandsins (ESB) við
þátttöku Frelsisflokks
Haiders í ríkisstjórn
Austurríkis komu
mörgum í opna skjöldu.
Ýmsir hafa lýst skiln-
ingi á þeim viðhorfum
sem liggja að baki við-
brögðum ESB-ríkj-
anna á meðan aðrir
hafa bent á að þau feli í
sér óeðlileg afskipti af
innanríkismálum. Þeir
segja að Frelsisflokkur John
Haiders hafi unnið hylli Maddison
kjósenda í lýðræðisleg-
um kosningum og virða þurfi vilja al-
mennings. Það er kjarni lýðræðisins.
Ennfremur hefur verið varað við því
að viðbrögð aðildarríkja ESB geti
ýtt undir vinsældir Haiders. Hann
getur komið fram sem vörður þjóð-
arinnar gegn afskiptum umheims-
ins. Þessir atburðir gefa tilefni til að
ræða um lýðræði, mannréttindi og
tilgang Evrópusambandsins.
Viðbrögð aðildar-
ríkjanna og ESB
Evrópusambandið er ekki aðeins
fríverslunarbandalag heldur sam-
starf sem byggir á sameiginlegum
viðhorfum um hvað er mikilvægt og
hvað er rétt og rangt. Tilgangurinn
með stofnun ESB upp úr 1950 var að
tryggja frið, mannréttindi og lýð-
ræði í Evrópu og koma í veg fyrir
átök og tortryggni. Lýðræðisleg
gildi samstarfsins voru styrkt í 6.
grein Sáttmálans um Evrópusam-
NTV fikólamir í Kopavogi og Hoftirtrfirði
bjóðrt upp rt ( \'ö hrtgnýt og morkvlss
tólvunómskeið fyrir bvi jendur.
J
60 klst. eða 90 kennslnst undir:
«- Grunnatiiðí í upplýslngatækni
► Wtndows 98 stýrikerfíð
► Word riivinnsla
► Excel töflureiknir
► Accessgagnagmnnur
- PorverPoint (gcrð kynningarefnis)
- Interaetlð (vefurinn og tölvupóstur)
48 klst eða 17. kennslust undic J
► Aimennt um tölvur og Windows 98
► Word rit vinnsld
► Excel töflureiknir
► Jníernetiö fvefurinn og tölvupóstur)
Boðið erupp á bæði morgun og
kvöldnrtmskeið og hefjrtst næstu
nrtmskeiö 20. og 2B. mrtrs.
Opplýsingtu- og innritun í símum
544 4500 og 555 4980
ntv
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnartirðí - Slmi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hlíðasmára 9- 200 Kópavogi - Sfmi: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasfða: www.ntv.is
band (Maastrichtsátt;
málans svokallaða). í
sáttmálanum er skýrt
kveðið á um að sam-
bandið byggi á gildum
um frelsi, lýðræði, virð-
ingu fyrir mannrétt-
indum og á réttarrík-
inu. Grein 7 gefur kost
á aðgerðum af hálfu
ESB ef eitt aðildarríkj-
anna brýtur gegn þeim
grundvallargildum sem
fjallað er um í grein 6.
Aðgerðirnar geta falið í
sér að viðkomandi ríki
missi atkvæðarétt í
ráðherraráðinu. Þess-
um ákvæðum verður
ekki beitt nema ríkt tilefni sé til og
það hefur ekki komið til umræðu að
grípa til þeirra vegna ríkisstjórnar-
þátttöku Frelsisflokks Haiders.
Ráðherraráð ESB hefur raunar ekki
gefið frá sér neinar yfirlýsingar um
málið. Þegar aðildarríki ESB utan
Austurríki lýstu sameiginlega yfir
31. janúar síðastliðinn að dregið yrði
úr tvíhliða, pólitískum samskipti við
Austumki var um yfirlýsingar við-
komandi 14 ríkja að ræða, ekki ráð-
herraráðsins.
Framkvæmdastjóm Evrópu-
sambandsins sagði frá því 1. febrúar
að hún deildi þeim áhyggjum sem
bjuggu að baki yfirlýsingu aðildar-
ríkjanna 14, að hún tæki hlutverk
sitt sem vörður sáttmálanna alvar-
lega og fylgist því vel með þróun
mála en að starfsemi ESB myndi
ekki raskast vegna nkisstjórnar-
þátttöku Frelsisflokks Haiders.
Þann 3. febrúai- samþykkti Evrópu-
þingið yfirlýsingu með 406 atkvæð-
um gegn 53 og 60 sem sátu hjá sem
meðal annars hvatti framkvæmda-
stjórnina og ráðherraráðið til að
hafa vakandi auga með kynþátta-
hyggju í Austurríki og annars staðar
í Evrópu og vera tilbúin til að beita
sér gagnvart aðildam'ki ef það bryti
gegn grundvallargildum sáttmál-
anna um mannréttindi.
Lýðræði
Ef enginn setur fótinn
niður er hætta á að
mörk þess sem menn
sætta sig við þokist
smám saman til og
verði óljós, segir John
Maddison. Slík þróun
getur grafið undan
þeim gildum sem
lýðræðið byggist á.
Viðbrögð aðildarríkjanna snerta
aðeins tvíhliða samskipti þeirra við
Austurríki. Starfsemi ESB hefur
ekki raskast. ESB hefur ekki gripið
til nokkurra aðgerða gagnvart Aust-
urríki og það er ekki á dagskrá að
gera það, nema sannarleg og alvar-
leg brot eigi sér stað á sáttmálunum.
Lýðræði og innanrfldsmál
Umræðan um viðbrögð aðildar-
ríkjanna 14 við ríkisstjórnarþátttöku
Frelsisflokks Haiders snertir grund-
vallarspurningar um lýðræði. Geta
aðeins þjóðríki verið lýðræðisieg?
Lýðræði varð til í samspili við þjóð-
ríkið en nú sjáum við merki um að
það vaxi út fyrir þann ramma. Dæmi
um þetta er samstarf aðildarríkja
Evrópusambandsins og aukin
áhersla á mannréttindi í alþjóðleg-
um samskiptum. Ekki er lengur ein-
falt fyrir ríki að skýla sér bak við
fullyrðingar um „innanríkismál“ í
mannréttindamálum. Alþjóðasamfé-
lagið hefur blandað sér í „innanríkis-
mál“ ríkja í gegnum Oryggis- og
samvinnustofnun Evrópu (OSE) og
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
(S.þ.) þegar mannréttindi eru brotin.
Einföld skilgreining á lýðræði er
INNRÖMMUNM
<D
FAKAFENI 11 • S: 5531788
að það feli í sér frjálsar kosningar.
En það þarf meira til. Lýðræði er
grundvallað á gildum þar sem virð-
ing fyrir réttindum og mikilvægi
hvers og eins einstaklings er horn-
steinninn. Haider hefur í fjölda um-
mæla sinna sett spurningamerki við
þessi gildi. Lýðræði tryggir mál-
frelsi - málfrelsi er einmitt eitt af
gildum lýðræðis - en þegar stjórn-
málaflokkur sem stendur fyrir önn-
ur gildi kemst til valda verða menn
að vera á varðbergi. Evrópusam-
bandið er byggt á grundvallargild-
um um mannréttindi og lýðræði.
Þess vegna er eðlilegt að aðildarríki
sambandsins nýti málfrelsi sitt til að
láta í sér heyra þegar flokkur sem er
gagnrýninn á viðkomandi gildi
kemst til valda í einu aðildarríkj-
anna. Náið samstarf byggii- á trausti
og trausti er viðhaldið með hrein-
skilnum og opinskáum samskiptum
um grundvallargildi samstarfsins.
Aðildarríki ESB hafa ákveðið að
fara að vissu marki sameiginlega
með vald í vissum málaflokkum.
Sáttmálum ESB, sem stjórnvöld að-
ildarríkjanna hafa komið sér saman
um og samþykktir hafa verið í þjóð-
aratkvæðagreiðslu í aðildarríkjun-
um, má líkja við stjórnarskrá og þeir
setja löggjöf og aðgerðum sam-
bandsins ramma. Löggjafarvaldið
liggur hjá ráðherraráðinu, sem er
skipað ráðherrum aðildarríkjanna,
og Evrópuþinginu, sem er valið í
kosningum um alla álfuna. Aðildar-
ríkin beita fullveldi sínu saman í
þeim málaflokkum sem samstarfið
tekur til. Ef grundvallargreinum
sáttmálana er talið ógnað í einu að-
ildarríkjanna er það ekki aðeins inn-
anríkismál viðkomandi ríkis heldur
að vissu marki „innanríkismál“ að-
ildarríkja ESB.
Að lokum
Viðbrögð aðildarríkjanna 14,
Bandaríkjanna og fleirí ríkja við rík-
isstjórnaraðild Frelsisflokks Haid-
ers hefur gefið tilefni til mikillar um-
ræðu í Austurríki. Ef til viii getur
Haider nýtt sér viðbrögðin til að
auka á vinsældir sínar til skemmri
tíma en vonandi verða langtíma-
áhrifin þau að fólk um alla álfuna
horfi gagnrýnni augum á hreyfingar
sem geta unnið gegn lýðræði og
mannréttindum. Ef enginn spyrnir
við fótum er hætta á að mörk þess
sem menn sætta sig við þokist smám
saman til og verði óljós. Slík þróun
getur grafið undan þeim gildum sem
lýðræðið byggir á.
Höfundur er sendiherra og fer fyrir
fastanefnd framkvæmdastjórnar
ESB gagnvart íslandi og Noregi.