Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 47
UMRÆÐAN
Ó, þessi blind-
fiillu börn
MIKIÐ er talað um
drykkjuskap ungl-
inga. Samviskuþrung-
nir góðborgarar setja
upp svip og tala af
innlifun um þá skelf-
ingu sem fyrir augu
beri á Halló Akureyri
eða í miðbæjum
kaupstaða um helgar.
Flestir kenna ungl-
ingunum um. Petta er
þeim sjálfum að
kenna, þessum illa
uppöldu krakkagop-
um. Enginn kannast
þó við að hafa ekki al-
ið barnið sitt upp.
Sé unglingadrykkj-
an vandamál er vandans einhvers
staðar að leita. Ef ég lít aðeins í
kringum mig hér nyrðra kemur í
ljós hópur manna sem hefur það
fyrir stafni meðal annars að lokka
börn og unglinga langt undir aldri
til að neyta áfengis. Pað er að því
er ég best veit brot á landsins lög-
um.
í Dagskránni, auglýsingablaði
sem dreift er í öll hús á Akureyri,
eru auglýsingar frá flestum
skemmtistöðum og krám á Akur-
eyri. Þær eru undantekningarlítið
brot á lögum um áfengisauglýsing-
ar. I 8. tbl. Dagskrárinnar er
auglýst:
Odd-Vitinn hefur tvö merki frá
Víkingi efst á síðu.
Við Pollinn segir: „Slökkvið
þorstann með Víking.“
„Gullið frá Egils“ er auglýst á
Kaffi Akureyri.
Dátinn tilkynnir partí á fimmtu-
dagskvöldi og þar er vörumerki
Tuborg mest áberandi í auglýs-
ingunni.
Club 13, en ef tekið er mark á
myndum í auglýsingum þaðan
virðist markhópurinn vera 16-18
ára unglingar, auglýsir á
fimmtudegi: 2 fyrir 1 til mið-
nættis, 5 í fötu 1.500 kr., Vi
Thule í gleri 450 kr., 2 skot á
400 kr. Á föstudags- og
laugardagskvöldi
eru auglýstir 2 fyrir
1 til miðnættis, V2
Thule í gleri 450
kr., Club 13 650 kr.
og Jungle Boogie
Siðblinda á 200
krónur.
Svipaðar auglýsing-
ar eru í 9. og 10. tölu-
blaði. Auðvitað eru
þetta allt áfengis-
auglýsingar og þær
eru bannaðar á ís-
landi. Og hér er ekki
verið að auglýsa létt-
öl. Menn eru hættir
að nenna svoleiðis
skrípaleik.
Það alvarlegasta er að staðirnir
í neðri sætunum á listanum gera
einkum út á skólafólk, þeir halda
uppi starfsemi á fimmtudagskvöld-
um fram á rauðanótt og lokka til
sín ungt fólk með afsláttarkjörum,
sértilboðum og jafnvel brennivíns-
gjöfum til þess að börnin hafi efni
á að dyekka sig full í miðri skóla-
viku. Á meðan reynt er að koma á
virku forvarnastarfi í skólum og
efla jafningjafræðslu meðal nem-
enda lauma vínsalar dreifiritum og
boðsmiðum inn í skólana og reyna
allt til að gera áfengi eftirsóknar-
vert, jafnvel með drykkjukeppni
ungmenna.
Sjónvarpsstöðin Aksjón kallar
sig „Sjónvarp Norðurlands, gagn-
legan miðil“. Ég sá þar sjónvarps-
þátt föstudagskvöldið 18. febrúar.
Þetta á að vera „opinn“ og „frjáls"
og „hress“ skemmtiþáttur. Tveir
ungir menn tala saman um það
sem „er að ske á Akureyri um
helgina“, lesa upp úr Dagskránni
auglýsingar um áfengissölu og
sértilboð kránna og „kíkka“ á eitt
og annað í bæjarlífinu, aðallega
partí ungs fólks eða fyllirí um
komandi helgi. Þátturinn heitir „í
annarlegu ástandi11 og nafnið eitt
sýnir þann hug er að baki býr. í
dagskrá segir: „Doddi tekur púls-
inn á mannlífinu." Og hver er sá
Unglingadrykkja
Ef ég lít aðeins í kring-
um mig hér nyrðra,
segir Sverrir Páll
Erlendsson, kemur í
ljós hópur manna sem
hefur það fyrir stafni
meðal annars að lokka
börn og unglinga langt
undir aldri til að
neyta áfengis.
púls? 18. febrúar voru sýndar
myndir frá vínbörum á fimmtu-
dagskvöldinu (kvöldið áður) þar
sem greinilegt var að allt of ung-
um krökkum var selt áfengi. Þarna
var líka myndband af hetjum, út-
úrdrukknum, röflandi skólanem-
endum á karlaklósettinu - og
skóladagur morguninn eftir!
I þættinum 18. febrúar var
rækilega kynnt að næsta fimmtu-
dag yrði „partí á Dátanum". Þang-
að yrðu allir að koma, þar yrði fjör
og alls konar skemmtun og svo
yrði „frítt að drekka,“ sögðu þátt-
arstjórarnir og grettu sig mjög og
krepptu fingur og sögðu saman:
„GOOOOOOOOS!!!“ Með öðrum
orðum, hér átti að gefa unglingum
áfengi á opinberum vínsölustað.
Auglýsing í Dagskránni, 8. tbl.,
staðfestir þetta: „í annarlegu
ástandi býður þér í party á Dátan-
um,“ segir þar. „Teitið byrjar kl.
22.00 og eru veitingar í boði til kl.
23.00! Þyrstir koma, þyrstir fá.“
Enginn lætur sér koma til hugar
að það sem í boði var ókeypis og
þáttarstjórarnir vikuna áður köll-
uðu „goooooos!!!" hafi verið Egils
gull-appelsín. Stundum er dyra-
varsla sums staðar. Hún var lítil
Sverrir Páll
Erlendsson
þarna.
I þættinum I annarlegu ástandi
25. febrúar var sýnt frá þessu
gjafabrennivíns-kvöldi Aksjónar á
Dátanum. Þarna var haldin svo-
kölluð skotkeppni, kapphlaup um
þveran sal, 5 eða 6 ferðir, til að
tæma úr staupum af lakkrís-
brennivíni. Sigurvegarinn,
skotmeistarinn, var stúlka fædd
10. september 1981(hún var í
nokkuð annarlegu ástandi í viðtali
að drykkju lokinni).
I annarlegu ástandi 3. mars var
myndskot frá einum þessara staða
þar sem 16-17 ára skólastúlkur
voru áberandi mikið ölvaðar að
„skemmta sér“. Svo bar við 10.
mars, eftir að birst höfðu blaða-
greinar og útvarpsviðtöl um þessi
mál, að myndum af fullum börnum
var sleppt!
Ég er ekki á móti áfengi,
skemmtistöðum eða vínveitinga-
húsum, hvað þá auglýsingum eða
sjónvörpum. Hins vegar á ég bágt
með að sætta mig við að fjölmiðlar
og veitingastaðir auglýsi áfengi
þegar það er bannað, börnum og
unglingum sé selt áfengi á vínveit-
ingahúsum, að sjónvarp skuli
halda úti „skemmtiþætti" sem
byggist nær eingöngu á því að
gera áfengisneyslu barna og ungl-
inga spennandi og eftirsóknar-
verða, að vínsalar skuli halda ungl-
ingum undir áfengiskaupaaldri
hótíðir þar sem þeim er gefið
áfengi eða boðið áfengi á afsláttar-
verði til að ginna þá til drykkju, að
vínsalar standi fyrir unglinga-
drykkju, jafnvel í miðri skólaviku,
og geri með því vísvitandi tilraunir
til að eyðileggja fyrir krökkunum
skólanámið og leggja framtíð
þeirra í rúst.
Hér er ekkert ofsagt, því miður.
Um það er auðvelt að sannfærast
ef að er gáð. Margt heimilið nötrar
út af togstreitunni við vínsölu-
staðina um óharðnaða unglinga.
Margur unglingurinn er illa hald-
inn af þunglyndi og sálarkvölum af
völdum þessa stríðs. Það er mikil
vá fyrir dyrum og dæmin sanna að
bilið á milli neyslu áfengis og ann-
arra vímugjafa styttist óðum. En
jafnvel áfengið eitt er nóg óstæða
til þess að aðhafast eitthvað í mál-
inu, þó ekki væri annað en að
tryggja að farið sé að lögum.
Höfundur er menntaskólakennari á
Akureyri.
INNLENT
Fyrirlestur
um kolefn-
ishringrás
í mýrum
FÖSTUDAGINN 17. febrúar flyt-
ur dr. Hlynur Óskarsson, Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins, fyr'x'
irlestur á vegum Líffræðistofnun-
ar Háskóla Islands. Fyrirlesturinn
ber yfirskriftina CONGAS Flæði
gróðurhúsalofttegunda í mýrum á
norðlægum slóðum og hefst kl.
12.20 í stofu G6 á Grensásvegi 12.
CONGAS-verkefnið er styrkt af
Evrópuráðinu og er til þriggja ára
(1998-2000). Um er að ræða viða-
miklar samhæfðar rannsóknir á
kolefnishringrás mýra í fimm lönd-
um, en utan íslands fara rann-
sóknir fram á Grænlandi, í Sví-
þjóð, Finnlandi og Síberíu.
Þátttaka íslands í þessu verkefni
er mikilvæg vegna landfræðilegrar
og loftlagslegrar stöðu landsins
(þ.e. lágarktískt og hafrænt lofts-<i
lag), segir í fréttatilkynningu.
Rannsóknir á vegum verkefnisins
hér á landi fara fram á tveim
mýrasvæðum í Borgarfirði.
Aðalfundur
- Island -
Palestína
AÐALFUNDUR félagsins ís-
land -Palestína verður haldinn
í veitingahúsinu Lækjarbrekku
við Bankastræti, sunnudaginn
19. mars og hefst klukkan 15.
Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra verður gestur
fundarins. Halldór greinir frá
samskiptum íslands og Palest-
ínu, nýlegri þróun í þeim mál-
um og aðstoð Islands. Síðan
verða venjuleg aðalfundar-
störf.
R A
3AUGLÝ5INGA
-
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hnúkabyggð
33, Blönduósi, þriðjudaginn 21. mars 2000 kl. 11.00 á eftirfar-
andi eignum:
Fellsbraut 1, efri hæð og ris, Skagaströnd, þingl. eig. Sigurbjörn In-
gólfsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki íslands hf„ Lífeyrissjóðir
Bankastræti 7, Lífeyrissjóður sjómanna og Vátryggingafélag (slands
hf.
Kirkjubær, Vindhælishreppi, eignarhl. gerðarþola, þingl. eig. Þórarinn
Baldursson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn í Keflavík.
Sýslumaðurinn á Blönduósi.
Blönduósi, 14. mars 2000,
Kjartan Þorkelsson.
ATVIIMIVIUHÚSNÆÐI
Laugavegur — til leigu
Verslunarhúsnæði með góðu lagerplássi
til leigu á besta stað við Laugaveg.
Upplýsingar í símum 897 2555
og 895 9808.
Skipholt — til leigu
Til leigu 21 fm skrifstofuherbergi á 3. hæð.
Laust 1. apríl nk.
Upplýsingar veitir Fasteignamarkaðurinn ehf.,
Óðinsgötu 4, sími 570 4500.
TIL SÖLU
Til sölu
fatahreinsun og þvottahús úti á landi.
Er í fullum rekstri. Er í leiguhúsnæði. Öllum
fyrirspurnum svarað. Tilboð berist til augl.-
deildar Mbl. merkt „F — 1949" fyrir 24. mars.
TILKYNNINGAR
Frá Öskjuhlíðarskóla
Öskjuhlíðarskóli, sími 568 9740.
Umsóknir um skólavist fyrir nýja nemendur
skólaárið 2000—2001 þurfa að berast skólan-
um fyrir 7. apríl nk. Foreldrar sækja um skóla-
vist fýrir börn sín.
Óski foreldrar eftir að koma í kynningarheim-
sókn í skólann, eru þeir vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við skólastjórnendur
með góðum fyrirvara.
. Skólastióri.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
TIL SÖLU
Gullmoli
Mitsubishi Lancer, vínrauður,
árg. '90, reyklaus, ekinn 140 þús.
km. Ásett verð 350 þúsund.
Mjög vel með farinn bill.
Upplýsingar í síma 896 4833 eða
896 4834.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 11 = 1803168Y2 = F.R.
I.O.O.F. 5 - 1803167 = km.
Aðaldeild KFUK,
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.00
Kaflar úr kvikmynd þegar
500 drengir fóru með Gull-
fossi inn Hvalfjörð.
Umsjón:
Vilmundur Þór Gíslason,
Hugleiðing:
Sr. Árni Bergur Sigurþjörnsson.
Allir karlmenn velkomnir.
; |
DULSPEKI
Hjálpræðis-
herinn
/ Kirkjustræti 2
Kl. 20.30 Vitnisburðarsam-
koma í umsjón forsöngvar-
anna.
Heilarinn Karina Becker
útskrifuð frá heilunarskóla Barb-
öru Brennan, sem þekktust er
fyrir bókina „Hendur Ijóssins",
verður með námskeið i heilun
(The human energy field and
spine cleaninglhelgina 8.-9.
apríl nk. Helgina 15. —16. apríl
(Supporting the immune syst-
em). Einkatímar. Nánari upplýs-
ingar í síma 551 6146,
Nuddstofan Umhyggja.