Morgunblaðið - 16.03.2000, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 49
------------------------h
UMRÆÐAN
Þjófar og þurfamenn
STJÓRNVÖLDUM
hefur tekist að neyða
stóran hluta lands-
manna inn í hlutverk
þjófa annars vegar og
þurfamanna hins veg-
ar með kvótasölukerf-
inu, einnig nefndu
gj afakvótakerfi.
Árið 1984, er flestir
töldu að takmarka
þyrfti sókn í sjávar-
afla, var hámarksafli á
Islandsmiðum ákveð-
inn og aflaheimildum
síðan skipt milli starf-
andi útgerðaraðila í
hlutfalli við afla árin á
undan. Voru heimild-
irnar bundnar veiðiskipunum. Þótti
þetta tiltölulega réttlát skipting þá
miðað við aðstæður.
Árið 1990 tókst ríkisstjórninni að
tæla Alþingi til að gera veiðikvóta
„frjálsa" með þvi að binda þá ekki
lengur við skip heldur gera þá að
almennri verslunarvöru sem allir
gátu verslað með. Einnig þeir sem
hvorki höfðu komið um borð í fiski-
skip né migið í sjó. Þetta gat gerst
þrátt fyrir - eða hugsanlega vegna
þess - að Alþingi hafði ítrekað að
samkvæmt stjórnarskrá væri nátt-
úra sjávarins og þar með fiskistofn-
arnir eign þjóðarinnar.
Með þessu var þjóðareigninni í
raun stolið frá þjóðinni. Alþingi
lögleiddi þjófnaðinn. Handhafar
kvótans gátu þar með selt sinn
hluta af þjóðareigninni og farið að
leika sér með aurana meðan aðrir
héldu áfram útgerð og hafa haldið
kvótanum í heimabyggðum sínum.
Heiðarlegir fiskimenn við strönd-
ina verða nú víða að kaupa eða
leigja á okurverði rétt til að veiða
fisk - jafnvel á sínum heimamiðum
- af þeim sem áður fengu kvótann
gefins ellegar af þeim sem hafa
keypt hann af hinum lögskipuðu og
lögvernduðu þjófum.
Þegar heilar sjávarbyggðir eru
orðnar kvótalitlar, af því að hand-
hafar kvótans seldu hann burt,
kemur svo byggðakvótinn eins og
flóttamannahjálp úr hendi lands-
feðranna og Byggðastofnun úthlut-
ar þurfamönnunum. Áður voru háð
þorskastríð gegn erlendum „veiði-
þjófum“. Átök nú yrðu íslenskt
þrælastríð.
Lög þjóða eru eftir allt saman
ekki annað en birting á réttlætis-
og siðferðisvitund viðkomandi þjóð-
ar. Barn sem elst upp við gott at-
læti öðlast innbyggða réttlætis-
kennd sem segir hvað er rétt og
rangt. Þegar þjóðareign er stolið
með „lögum“, hún afhent aðilum
sem mega selja hana eða jafnvel
verða að gera það, þá skilur venju-
legt fólk ekki að neitt siðferði eða
réttlæti ríki hjá löggjafarsamkomu
þjóðarinnar. Kvótasölukerfið og
það sem af því leiðir grefur undan
siðferðisvitund og
trausti. Grefur sundur
samfélagið. Alþingi og
ríkisstjórn stjóma.
Þetta íslenska mál-
tæki, þótt dönsku-
blandið sé, talar skýru
máli. Illa fengið fjár-
magn flæðir um í
höndum þeirra sem
ekki unnu fyrir því.
Allir kunna sögur um
nýríka fólkið; konuna
sem keypti verslunar-
hæð í flaustri eða
drenginn sem keypti
Ingólfur S. Mercedes-Benzana í
Sveinsson stykkjatali. Við opnum
varla blað án þess að
lesa um athafnamenn eiturlyfjasöl-
unnar, svo að ekki sé minnst á alla
sem enn eru í „smáglæpunum“, að
Mistök
Afglöp stjórnmála-
manna okkar verða
varla að fullu leiðrétt en
fyrsta skrefið er að við-
urkenna þau, segir
Ingólfur S. Sveinsson.
Síðan að leiðrétta.
ræna sjoppur og saklaust fólk.
Konur, kvóti og dóp eru töfraorð.
Nýlega neitaði greiðslukortafyrir-
tæki að skipta við nektarsýningar-
klúbb vegna óskiljanlegrar eyðslu
gestanna yfir kvöldið. Eigandi
klúbbsins, orðinn „veiðarfæralítill“,
ákvað að höfða mál og sagði við það
tækifæri: „Ég er hvorki dópsali né
melludólgur. Menn verða að gera
sér grein fyrir því að fjöldi manna
hér hefur orðið góðar tekjur. Menn
sem munar ekkert um að strauja út
nokkur hundruð þúsund krónur á
kvöldi, t.d. sægreifasynir og verð-
bréfaguttar." Hér skín sú stað-
reynd að fiskveiðiheimildir dreif-
býlisins gagnast vel í borginni.
Sægreifasynirnir þurfa ekki að líða
af kvenmannsleysi. Þeir geta leigt
sér yndisþokka fyrir fé fengið á
þurru af sölu og leigu lifandi fiska í
sjónum, fiska sem þeir áttu aldrei.
Landsfeðratal
Kvótaflokkarnir eru Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur.
Foringi Framsóknarflokksins, einn
af aðalhöfundum kerfisins og gildur
kvótaeigandi, gaf þá skýringu fyrir
síðustu kosningar á „göllum kvóta-
kerfisins" að fyrirfram hefði enginn
getað séð hvernig það myndi
þróast. Afsakaði þannig kerfið og
gjörðir sínar með sakleysi einfeldn-
ingsins. Litlu síðar fékk hann
ágætiseinkunn frá hinum kvóta-
flokksformanninum sem einn af
færustu endurskoðendum landsins.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
sagði fyrir kosningar í hálfkveðinni
vísu að nauðsyn bæri til að ná sátt
um fiskveiðistjórnunarkerfið. Þótti
ýmsum þörf orð og rámaði í að
maðurinn hefði áður staðið við orð
og þóttust einnig vita hvað orðið
sátt þýddi. Nýlega, eftir svonefnd-
1 fimm litum
. . . sérsmíðaðar eftir
þínum óskum
Hjarðarhagi - endaibúð
með glæsiutsýni - bílskúr
Vorum að fá i einkasölu í þessu
fallega nýviðg. fjölbýli fallega 113 fm
endaíbúð á 3. haeð í vestur með glæsil.
útsýni. 28 fm bílskúr fylgir. Mjög gott
skipul. m. mögul. á að hafa 4.
svefnherb. Einstakt tækifærí til að
eignast góða ibúð á þessum vinsæla
stað. Lítið áhvflandi. Verð 12.650.000
Yalhöll fasteignasala, sími 588 4477.
an Vatneyrardóm, birtist botn fyrr-
nefndrar vísu í formi ameríska
aulabrandarans: Let’s make an
agreement now, let’s do it my way.
Sættumst nú, gerum eins og ég vil.
í alvarlegri ræðu hefur forsætis-
ráðherra þjóðarinnar nú ítrekað þá
skoðun að þá fyrst muni þjóðin
verða sátt við fiskveiðistjórnunina
er hún áttar sig á að núverandi
kerfi færi henni mesta „hagsæld“.
Boðorðið er: Það sem borgar sig
fjárhagslega er rétt. Einnig að
selja ömmu sína. Takist forsætis-
ráðherra að sannfæra þjóðina um
réttmæti umrædds þjófakerfis hef-
ur honum unnist vel í að rugla þjóð-
ina og afsiða. Æ fleiri gerast kvóta-
eigendur og missa áttir um leið.
Verði nógu margir að „löglegum"
þjófum eða þjófsnautum mun
þeirra siðferði ráða. Þá yrðum við
þjófaþjóð. Almenn umræða og ótal
blaðagreinar segja að þjóðin er
ósátt við þetta siðlausa kerfi. Afla-
takmörkun og stýring veiða er
nauðsyn og því fremur sem veiði-
geta hefur margfaldast. Sem stýri-
tæki er núverandi kerfi ófreskja og
vanskapningur sem þvingar menn
til sóunar og brottkasts afla. Við
þurfum stýrikerfi sem mótast af
virðingu fyrir rétti fiskimannanna
en einnig fyrir náttúrunni alli>£.„
andrúmsloftinu, sjávarbotninum,
fiskimiðunum og veiðidýrum okkar.
Afglöp stjórnmálamanna okkar
verða varla að fullu leiðrétt en
fyrsta skrefið er að viðurkenna
þau. Síðan að leiðrétta. Eitt er víst.
Hver sá er vekur upp draug sem
gengur ljósum logum, spillir mann-
lífi, eyðir byggðum og lyftir síðan
ekki hendi til að kveða drauginn
niður, sá á ekki erindi sem leiðtogi
lengur. Sem betur fer finnast enn á
Alþingi menn sem kunna á kompás
og greina höfuðátth'.
Höfundur er læknir og fyrrum
fiskimaður.
andlitsböð
C171
'snyrtishrfja
m
Skipholti 70 * sími 553 5044
Triuntph
nfsláttur
LJIvmpii
KRINGLUNNI 8-12, SÍMI
3600
553
Ekki klikka á SímaLottóinu
Hringdu strax í 907 2000
Tryggðu þér þátttöku með því að hringja
strax - annars geturðu misst af vinningi
Fylgstu með í kvöld í DAS 2000 þættinum
öA7 ir\r\r\
j\j 1 cuuu