Morgunblaðið - 16.03.2000, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 16.03.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 5 7 -------------------------f Jökulsána ásamt þeim sem vildu fylgja honum síðasta spölinn. Taldi hann það sjálfsagt og komu þau Vil- borg bæði og leystu það af hendi með mestu prýði. Vorið 1999 bauðst Björn til að koma og vera með námskeið hjá Flugbjörgunarsveitinni Varmahlíð og kenna björgun úr straumvatni, var það þegið með þökkum og tókst það mjög vel og lærðu menn mikið. Björn dvaldi hér margar helgar á hverju sumri og stjórnaði bátasigl- ingum á Jökulsánum. Og Vilborg sá um siglingarnar á Hvítánni. Þau voru samhent með þetta allt. Björn kom hér við ef hann var á ferðinni og hann kom hingað með vinum sínum á leið á hreindýraveiðar undanfarin haust og segja má að hann hafi tekið ástfóstri við Skagafjörðinn. Oft var rætt um hina ýmsu mögu- leika sem ferðaþjónusta hefur upp á að bjóða, ekki síst hvað hægt væri að gera yfir veturinn. Hann var hug- myndaríkur og átti eftir að gera svo margt fleira. Nú eftir áramótin var farið að ræða um möguleika á óvissu- ferð með starfsfólk af ferðaskrifstof- um hingað norður og vann hann að undir búningi ferðarinnar fyrir sunnan og við hér fyrir norðan. Það voru margir sem vildu fara í óvissuferðina og lagt var af stað. En skjótt skipast veður og hræðilegt slys verður og hrífur með sér þrjú mannslíf og enn aðrir slasast og eða hljóta áföll sem seint eða aldrei verða bætt. Og nú skiljast leiðir og viljum við láta í ljós þakklæti fyrir samveruna. Minningin um góðan dreng mun lifa í hjarta okkar. Elsku Vilborg og börn, ættingjar og vinir, guð styrki ykkur öll. Klara og Sigurður, Bakkaflöt. Við kynntumst Bimi í byrjun árs 1997. Þá stóð yfir umfangsmikil stefnumótunarvinna í ferðaþjónustu fyrir samgönguráðuneytið og kom- um við að þeirri vinnu ásamt Bassa og fleiri góðum aðilum. Bassi kom að þessu verkefni sem aðili úr afþrey- ingargeiranum, þar sem fyrirtæki hans og Villu eiginkonu hans, Báta- fólkið, var orðið ieiðandi á því sviði. Strax og vinna hófst kom í Ijós mikill kraftur, frísklegar hugmyndir og leiðtogahæfileikar Bassa. í þessu starfi kynntumst við vel þeim góðu eiginleikum sem Bassi bjó yfir, hlý- leika og hógværð í allri framgöngu, en samt svo fastur fyrir og fylginn sér. Samstarf okkar átti síðan eftir að verða enn meira. Upphafið að því var þegar þú í byrjun vetrar 1998 hafðir samband við okkur og ræddir hug- myndir þínar um nýjar leiðir í ferða- þjónustu sem fælust í því að tengja saman ráðgjöf og skemmtilega af- þreyingu við ögrandi aðstæður í ís- lenskri náttúru. Upp úr þessu varð til fyrirtækið Stjórnun og Efling ehf. og í samstarfi við Pricewaterhouse- Coopers hrintum við hugmyndinni í framkvæmd. Þú lifðir að sjá þennan draum þinn verða að veruleika og slíta bamsskónum. Framganga þín á undanförnum mánuðum á mestan þátt í þvi hversu vel hefur tekist til með þetta verkefni. Það verður erfitt að fylla það skarð sem þú skilur eftir nú þegar fyrstu erlendu verkefnin eru í augsýn. Við munum heiðra minningu þína best með því að halda þínu merki á lofti og byggja áfram á þeim grunni sem þú vannst svo ötul- lega að því að leggja. Það er skarð fyrir skildi í íslenskri ferðaþjónustu þegar svo öflugur liðs- maður og frumkvöðull fellur frá í blóma lífsins. Þó er það skarð hjóm eitt miðað við missi fjölskyldunnar við fráfall svo góðs drengs. A kveðju- stundu þökkum við gefandi kynni og samstarf og vottum Vilborgu og börnunum okkar dýpstu samúð. Kristófer Oliversson, Svali H. Björgvinsson, Drífa Sigurðardóttir. Það hefur oft verið sagt að lífið sé hverfult en sjaldan hefur merking þessara orða verið jafn ljós og hinn örlagaríka dag þegar okkur var til- kynnt að góðvinur okkar hann Bassi hefði látist af slysförum. Leiðir okkar lágu saman í gegnum gúmmíbátasiglingarnar og þróaðist samband okkar við hann fljótlega frá því að hann væri yfirmaður yfir í góðan vinskap. Það var gott að eiga Bassa að því alltaf hvatti hann okkur til að stíga yfir hindranir sem virtust ófærar og var alltaf reiðubúinn að rétta hjálparhönd, þá sérstaklega við pínlegar aðstæður, glottandi út í annað. Bassi var mikill grallari og prakkarastrikin óteljandi. Oft hugs- uðum við honum þegjandi þörfina þegar hann skildi okkur eftir kjaft- stopp og algerlega óhæf að svara fyrir okkur. Við kynntumst líka fljót- lega hugtakinu „þetta reddast“ sem var í hávegum haft hjá Bassa því aldrei höfðum við kynnst slíkum reddingum, oft á síðustu stundu, með mest lítið í höndunum og alltaf var hann svo sallarólegur yfir þessu öllu saman. Þótt Bassi hafi verið rólyndismað- ur var hann framtakssamur með af- brigðum. Það voru ekki mörg svið ferðaþjónustunnar sem hann átti eft- ir að koma nálægt og hann er án efa farinn að bjóða upp á eitthvað nýtt í þeim bransa þarna hinum megin. í dag er komið að því að kveðja góðan vin. Við slík tímamót veltir maður fyrir sér hvemig stendur á því að jafn ósigrandi maður og Bassi fékk kallið svo snemma, en það er þá rétt að þeir bestu fari fyrstir. Elsku Villa, Elín, Gísli, Gréta og aðrir ástvinir, við færum ykkur okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur í sorginni og gefi ykkur styrk til að takast á við það sem framtíðin ber í skauti sér. Pétur, Fífa, Halldór Vagn, Guðrún Sjöfn, Askur og Alison. Föstudagskvöldið 25. febrúar rennur okkur vinunum seint úr minni. Tilkynning barst okkur um að Bassi væri fallinn frá. Það var sem kaldur gustur færi um og tíminn stóð í stað. Obætanlegt skarð hafði verið höggvið í vinahópinn. Ótal minning- ar úr fortíð, blandaðar spurningum á borð við hvar, hvernig og hvers vegna, runnu gegnum hugann. En enginn getur svarað því af hverju sum okkar eru kölluð úr jarðríki þessu langt fyrir aldur fram. Þegar okkur var ljóst að það var ekkert sem við gátum gert til að breyta þessum tíðindum, stóð eftir að sætta sig við að lífshlaupi góðs vinar og fé- laga væri nú lokið. Hugur okkar er hjá Villu og börn- um þeirra, Elínu, Gísla og Grétu. Bassa kynntumst við mjög ungir og frá upphafi tókust með okkur sterk og góð vináttubönd. Áhuga- málin lágu saman, ferðalög og allt þeim tengt. Allt sem gat komið blóð- inu ærlega af stað, hleypt roða í kinnar og gefið lífinu lit. Bassi var alla tíð þar fremstur í flokki, hug- myndaríkur og maður framkvæmd- anna. Það var ekki nóg að fá ófram- kvæmanlega hugmynd, það varð að reyna á hvort hún væri í raun ófram- kvæmanleg og oftar en ekki reyndist raunin vera önnur. Sigurglottið hans verður lengi í minnum haft. Bassi átti glæstan feril á sviði björgunar- starfa, lögreglustarfa og á síðari ár- um ekki síst í því að gera ísland að skemmtilegri stað fyrir ferðamenn, innlenda sem erlenda. Ekki bara skoða ísland heldur njóta þess. Tak- ast á við þær margbreytilegu hættur og áskoranir sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða. Án kunnings- skapar við Bassa ætti maður enn margt ólært, reynslusafnið væri mun fátækara. Undanfarin ár höfum við félagarn- ir farið í viku hreindýraveiðiferð á hverju hausti, austur á hérað. Á hverju ári styrktust vinaböndin enn frekar og hver ferðin varð annarri betri. Hápunktur hverrar ferðar var síðan að koma aftur heim í faðm fjöl- skyldunnar eftir viku fjarvist, segja veiðisögur og matreiða það sem veiðst hafði, koma heim í hellinn. Okkar besta veiðiferð var farin í haust og nú er ljóst að hún verður sú besta sem þessi vinahópur mun nokkru sinna fara. Elsku Villa, Bassi lifir í börnum ykkar og hugum okkar til framtíðar. Guð gefi þér styrk og baráttuþrek til þess að halda áfram því starfi sem þið hjónin hafið unnið að undanfarin ár. Okkar aðstoð máttu ávallt treysta á. Það hefur verið sagt að mannfólk- inu megi líkja við fjallgarð. Þar blæs mest um hæstu tindana, ekki bara vegna þess að þeir eru háir, heldur vegna þess að þeir hafa staðist þá raun sem á þá er lögð. Við trúum því að þú og börnin ykkar séu meðal þessara háu tinda, það hefur svo margsýnt sig í kunningsskap okkar við ykkur. Við treystum því og trúum að Bassi sé nú farinn í annan heim, sjálfsagt ólíkan okkar á margan hátt, en líkt og hann hefur verið okkar fé- lagi í þessu lífi vonum við að þegar okkai’ stund kemur, megi vegir okk- ar liggja saman á ný. Hann verður þá búinn að finna það sem við köllum á veiðimannamáli, „réttu staðina“. Okkar lokaorð um Bassa eru orð spámannsins: „Þú skalt ekki hryggj- ast þegar þú skilur við vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér ljósara í fjar- veru hans, eins og fjallgöngumaður sér fjallið best af sléttunni." Stefán, Arnbergur og Ásmundur. Bezti vinur minn. Bassi minn, nú ertu horfinn á slóðir hins óþekkta. Þú varst alltaf frumkvöðull og þurft- ir alltaf að vera í fremstu línu. Við kynntumst í Lögregluskóla ríkisins 1985. Hugmyndir þínar urðu þess valdandi að mikil þróun átti sér stað í lögregluskólanum og í lögreglunni almennt. Ég hugsa oft til þess hve öflugur lögreglumaður þú varst, þegar leysa þurfti erfið lögreglu- og björgunarverkefni. Hikaðir ekki við að hafa afskipti af vopnuðum af- brotamönnum eða kasta þér tvívegis til sunds í Reykjavíkurhöfn til að bjarga fólki sem hafði fallið í höfnina. Lögreglustarfið býður upp á hin ótrúlegustu ævintýri en það nægði ekki, þú þurftir annað og meira. Þú leitaðir að spennandi áskorun og varð óplægður akur ferðaþjónust- unnar fyrir valinu. Þar var nóg svig- rúm fyrir nýjar hugmyndir og þró- unarverkefni. Þú ruddir veginn fram ó við fyrir okkur hina sem komum í plógfarinu á eftir þér. Sá maður verður seint fundinn sem alltaf var tilbúinn í að fram- kvæma hlutina og ryðjast af stað. Studdir félaga og hvattir þá til dáða. Sportið átti stóran þátt í lífi þínu, jeppaferðir og snjósleðaferðir þvert og endilangt yfir hálendið og jökla. Voru þá eiginkona og börn jafnan með í ferðum. Bátsferðir niður hverskonar ár. Kafandi í ám, vötnum og sjó. Flaugst flugvélum í allskyns útsýnisflugi. Skotveiðin átti hug þinn allan hvort sem um var að ræða rjúpnaveiði, gæsaveiði eða hreindýraveiði. Sérstaklega eru minnisstæðar rjúpnaveiðiferðirnar sem farnar voru með föður þínum að Sveina- tungu í Norðurárdal. Það kom fyrir að mönnum gekk ekki vel við veið- arnar, þá varst þú alltaf tilbúinn að deila veiði þinni með þeim sem veiði- gyðjan stóð ekki með í það skiptið. Allir vildu vera félagar þinir og þú tókst vel á móti öllum sem eitthvað höfðu fram að færa. Þú og við félagarnir lentum oft í kröppum dansi hvort sem var í sér- sveit lögreglunnar, í björgunar- sveitastarfi og í veiðiferðum. Flogið var með þyrlum og flugvélum við mjög erfiðar aðstæður. Vélsleðar fóru annað en þeim var ætlað, bátum hvolfdi bæði í óm og úti á sjó en alltaf stóðum við hlæjandi upp. Hörmungin er algjör en ég veit að þú gast ekki varist köllun þinni hversu mikið sem þú reyndir. Hug- myndaríkur vinnufélagi, traustur ferðafélagi, mikill veiðifélagi ojg frá- bær vinur er horfinn á braut. Eg hef orðið fyrir ýmiss konar reynslu í líf- inu og þó einna mest eftir 18 ára starf í lögreglu. Þrátt fyrir mikla reynslu get ég ekki annað en bognað í baki og fellt tár yfir þessum hörm- ungum. Við hinir sem eftir sitjum vitum ekki hvaðan á okkur stendur veðrið en lífíð heldur áfram. Þrátt fyrir það munum við alltaf finna fyrir nálægð þinni og söknuðurinn er mik- ill. Villa mín, stórt skarð hefur verið höggvið. Enginn veit hvers vegna. Þó verður maður að trúa því að Bassi muni nú ekki sitja aðgerðalaus á þeim vettvangi, þar sem hann er staddur nú. Eg votta þér, börnum þínum, tengdamóður og foreldrum þínum innilega samúð vegna fráfalls Bassa. Þinn vinur. Herbert Hauksson, rann- sóknarlögreglumaður. í dag er kvaddur góður vinur og samstarfsmaður, Björn Gíslason eða Bassi eins og hann var kallaður af kunnugum. Sjaldan hef ég kynnst eins einörðum og duglegum dreng sem Bassi var. Hann og Villa konan hans voru frumkvöðlar á ýmsum sviðum afþreyingar fyrir ferðamenn. Hugmynd varð til, hún var strax skoðuð og prófuð, og síðan var henni hrint í framkvæmd og fylgt eftir. Þessi ferill var einkenni á störfum Bassa. Hann hreif með sér fólk í leik og starfi og aldrei sást á honum þreyta né streita. í viðskiptum var gott að leita ráða hjá honum, og það var hægt að treysta því sem hann sagði. Ég hef leitað til Bassa undanfarin ár til að koma í kennslustund í Ferðamála- skólanum í Kópavogi og segja frá því hvernig hann byggði upp sitt fyrir- tæki, Bátafólkið, hvernig það hefði vaxið og dafnað í höndum þeirra hjóna. Alltaf tókst Bassa að láta líta svo út að hann hefði nú svo sem ekk- ert gert, það væri hans góða og sam- stillta starfsfólk sem ætti heiður skil- ið fyrir framlagið og árangurinn. Sömuleiðis gerði hann öryggismál að umræðuefni og mikilvægi góðs sam- starfs til að ná árangri. Það er horfinn góður drengur, hans verður sárt saknað í ferðaþjón- ustunni. Ég bið góðan Guð að styrkja fjölskyldu Bassa og óska þess inni- lega að Villu og samstarfsmönnum verði gefið þrek til að halda hans fána á lofti. Hildur Jónsdóttir. Sjaldan hef ég orðið vitni að eins samhentum og lífsglöðum hjónum og þau Villa og Bassi heitinn voru. Dugnaður þeirra og framsýni smit- aði út frá sér og ég held að margir innan ferðamennskunnar hafi orðið fyrir mikilli hvatningu bara með því að starfa með þeim og njóta þeirrar þjónustu sem þau buðu fram, gúmmíbátaferðir fyrir sunnan og norðan, jeppaferðir o.fl. Mig skortir í raun orð að lýsa harmi mínum yfir þessu öllu saman, en geymi minning- una um er við síðast hittumst nýver- ið uppi við Litlu kaffistofuna og svo daginn stórkostlega á Langjökli síð- astliðið sumar. Geislandi sól og hiti, blár himinn og allir í góðu skapi, enda mikill dagur hjá öllum sem starfa við fjallaferðamennsku þegar nýi trukkurinn hjá Geysi bílaleigu var vígður. Ég skil við minninguna um Bassa á þessum mikla gleðidegi og minnist hans þar sem við sátum uppi á þaki fjallatrukksins og nutum útsýnisins til Jarlhettna og út í óendanleikann. Öllum aðstandend- um, vinum og samstarfsmönnum votta ég samúð. Friðrik Á. Brekkan leiðsögumaður. Hörmulegt umferðarslys, þrír menn látast og fjölmargir slasast. Björn Gíslason, góðvinur minn og ferðafélagi til margra ára, er einn hinna látnu. Þriggja barna faðir og hamingjusamlega giftur. Vart þarf að segja hve áfallið er mikið og sárt, það veit fólk sem slíkt hefur þurft að reyna. Hvem grunar að manni sem reynt hefur ýmislegt í svokölluðunv áhættuíþróttum sé hættast í umferð- inni. Við Bassi, eins og hann var allt- af nefndur, höfðum þekkst síðan á áttunda áratugnum í Æfingaskólan- um, þá táningar. Við urðum fljótt miklir mátar og líklega réð þar ein- hverju um að í fari hvor annars fund- um við mikla útþrá og löngun til þess að halda á vit ævintýra í náttúrunni. í þá daga vógu þyngst fjöll og klifur. Þeirri íþrótt stóð fólki okkur ná- komnu oft nokkur stuggur af enda er sums staðar hættur þar að finna og við vorum ungir að árum. Við létum þó fátt draga úr okkur kjarkinn,- fannst allt fært hvort sem um var að ræða klifur í snjó og ís að vetrarlagi eða í klettum að sumarlagi. Okkur sem unglingum þótti lítið mál að sitja vetrarnótt í frosti og hríð í snjóholu þó boðin væri hlý og notaleg vera í skála skammt frá. Ferðirnar sem við fórum saman urðu auðvitað stærri og meiri en það og þær treystu vin- áttuböndin og kenndu ýmislegt um náttúruna og okkur sjálfa. Utivist sem reynir á kennir fólki að meta eitt og annað sem gagnast í hinu daglega h'fi. Meðal þess sem lærist á íjöllum og í klifri er að hættur eru af tvennum toga: Annars vegar eru þær sem þekking og áunnin reynsla forðar'- manni frá. Þannig sveigir maður fyr- ir sprungu- eða snjóflóðasvæði og leitar frá lausu bergi vegna þess að áhættan er þekkt. Hins vegar er sú vá sem venjulega er sögð vera utan- aðkomandi eða sem ekki er hægt að afstýra. Þar um ræðir t.d. ef ís- eða SJÁNÆSTU SÍÐU Gróðrarstöðin ® 0^ miÚHLÍÐ • Hús blómanna Blómaskreytingar við öil tækifæri. Dalveg 32 Kópavogi sími: 564 2480 TÖWflDOiiWÍMJÁ um ttFINHHWJÖÍ flÖTflL flOflC Mrauwihi (Mt Upplýsingar í s: 551 1247 jJULxxxiiiiiirxrijn Erfisdrykkjur ■+- H H H H H H H H H H H H £ P E R L A N H H Sími 562 0200 i riiiTiiiini tx Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 AUan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.