Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 60
60 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
íw
f320
Vinsældalisti þar sem
|ui liefur álirif!
á uppieið ^ á niðurleið
■^stendur í stað ;V nýtt á lista
Vikan 16.03.-22.03.
1. Hann
Védís H. Árnad.
4
♦
♦
♦
♦
4
4
4
4
2. Other side
Red Hot Chili Peppers
3. Hryllir
Védís H. Árnad.
4. Falling Away From Me
Korn
5. Maria Maria
Santana
6. Run to the Water
Live
7. Starálfur
Sigur Rós
8. Okkar nótt
Sálin hans Jóns míns
9. Sexx Laws
Beck
10. Dolphins Cry
Live
11. Sex Bomb
Tom Jones
12. Show me the meaning
Backstreet Boys
13. Crushed
Limp Bizkit
14. Bad Touch
Bloodhound Gang
15. The Great Beyond
REM
16. Born to make you happy
Britney Spears
17. Break Out
Foo Fighters
18. Whatlam
Tin Tin Out & Emma B.
19. So Long
Everlast
20. What a girl wants
Christina Aguilera
Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is.
mbl.is
SKJÁRE/NN
Bulldoze
► Þau í hljómsveitinni Bulldoze koma frá Reykjavík og
Staðarsveit og heita Leifur Bjömsson gítarleikari og
söngvari, Guðjón Guðjónsson trommari, Ágúst Bene-
diktsson bassaleikari, Helgi Axel Svavarsson gítarleik-
ari og Edda Bjömsdóttir sellóleikari. Þau segjast spila
„bara rokk“ og er meðalaldurinn um tuttugu ár.
Heift
► í hljómsveitinni Heift eru þeir Atli Viðar Þorsteins-
son söngvari og bjögunarmaður, Anton Ivarsson tölvu-
leikari, Stefán Ólafsson rappari og skrámari og Ragn-
ar Pétursson öskrari. Þeir koma úr Reykjavík og
Keflavfk og meðalaldur þeirra er sautján ár. Þeir segj-
ast spila grænlenskt eldhúspopp.
Músíktilraunir Tónabæjar
Átjándu tilraun-
irnar að hefjast
Músíktilraunir,
hlj ómsveitakeppni
Tónabæjar hefst í
kvöld. Árni
Matthíasson segir
frá tilraunum og
tíundar þær sveitir
sem taka þátt.
MÚSÍKTILRAUNIR heitir
hljómsveitakeppni sem
haldin hefur verið af fé-
lagsmiðstöðinni Tónabæ allt frá ár-
inu 1982, en í kvöld hefjast átjándu
tilraunirnar. í keppninni taka þátt
hljómsveitir hvaðanæva af landinu
og leika frumsamin lög í von um að
hreppa hljóðverstíma. Grúi hljóm-
sveita hefur stigið fyrstu skrefin á
sviðinu í Tónabæ, vel á sjöunda
hundrað tekið þátt, og fjölmargar
hafa skipað sér í fremstu röð í
kjölfarið og sent frá sér metsölu-
skífur.
Með tímanum hafa tilraunirnar
orðið umfangsmeiri og nokkuð er
síðan fjölga varð tilraunakvöldun-
um til að koma öllum að sem vildu.
í ár taka 35 hljómsveitir þátt á
fjórum tilraunakvöldum. Fyrsta til-
raunakvöldið verður í kvöld, eins
og getið er, annað tilraunakvöldið
verður fimmtudaginn 23. mars nk.,
þriðja kvöldið föstudaginn 24. og
fjórða og síðasta tilraunakvöldið
verður 30. mars. Úrslitakvöld Mús-
íktilrauna 2000 verður svo 31. mars
næstkomandi.
Hljómsveitirnar sem sigrað hafa
í músíktilraunum hafa leikið mjög
ólíka tónlist og sigurvegaralistinn
er einskonar spegilmynd af tónlist-
arþróun síðasta áratugar. í fyrstu
tilraununum 1982 sigraði Dans-
hljómsveit Reykjavíkur og ná-
grennis, DRON. 1983 kvennasveit-
in Dúkkulísur. 1985 þungarokks-
sveitin Gipsy. 1986 sumarpopp með
Greifunum. 1987 enn sumarpopp
með Stuðkompaníinu. Sumarpopp
sigraði enn 1988, þá Jójó. Laglaus-
ir sigruðu 1989. 1990 sigraði önnur
Hafnarfjarðarsveit Nabblastrengir.
1991 sigraði dauðarokksveitin Infu-
soria. Kvennasveitin Kolrassa
krókríðandi 1992. Yukatan 1993.
* 1
Vegg-fóður
► Hljómsveitin Veggfóður er skipuð þeim Arnari Guðmundssyni slag-
verksleikara, Þórami Arnarssyni bassaleikara, Hirti Pálssyni gítarleikara,
Einari Helga Helgasyni trommara, Skúla Pálmasyni hljómborðsleikara og
Jóni Karlssyni söngvara. Meðalaldurinn er þrettán ár og þeir spila popp.
Morfín
► Reykvísku hljómsveitina Morfín skipa þeir Björn Heiðar Jónsson gítar-
leikari og söngvari, Einar Jakob Jónsson bassaleikari, Ómar Þór Sigfússon
trommari og Hjalti Þorkelsson gítarleikari og söngvari. Meðalaldurinn er
um tuttugu ár og segjast þeir spila rólegt og rómantískt sveitarokk.