Morgunblaðið - 16.03.2000, Side 62
MORGUNBLAÐIÐ
^62 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
DANS
Hrafh Hjartarson og Helga Björnsdóttir í flokki
14-15 ára Unglingar II.
Karl Bernburg og Helga Soffía Guðjónsdóttir í flokki Böm IIK.
Sigurður Ragnar Arnarsson og Sandra Espersen Iiðu
fallega um gólfið.
Efni í heims-
meistara
- segir danski dómarinn Jesper Sör-
ensen um Isak og Helgu
EINS og fram kom í greininni í
gær tókst framkvæmd íslands-
meistaramótanna í dansi með af-
brigðum vel í nær alla staði. Pó held
ég að flestir séu sammála því að
keppendur hafi dansað betur á
laugardeginum og er þar e.t.v. fyrst
og fremst um að kenna þreytu. Það
er þó engum blöðum um það að
fletta að íslenzkt dansíþróttafólk er
í fremstu röð í heiminum í dag og að
Islendingar eiga mikinn og góðan
efnivið í framtíðinni.
Keppni í hinum 10 samkvæmis-
dönsum fór fram í íþróttahúsinu
1 við Strandgötu í Hafnarfirði á
sunnudeginum. Mér finnst alltaf
gaman að horfa á 10 dansa keppnir,
því þær sýna ákveðna breidd hjá
þeim pörum sem taka þátt í þeim,
þó svo að sérhæfingin verði nokkru
minni. Oft á tíðum eru þær einnig
meira spennandi, þ.e.a.s. úrslitin
eru dreifðari á milli para.
Það kom einnig fram í greininni í
gær um Islandsmeistaramótið í
5&5 dönsum og 10 dönsum, að í dag
myndi birtast álit þriggja dómara á
pörunum í fyrstu tveimur sætunum
í keppnunum. Það eru álit Cecilie
Brinck Rygel frá Noregi, Jesper
Sörensen frá Danmörku og Lindu
Bellinger frá Bretlandi. Allt eru
þetta virtir þjálfarar og dansarar
frá heimalöndum sínum. Eg læt álit
þessara virtu dómara nægja að
þessu sinni!
Það er víst að við íslendingar
getum litið björtum augum til fram-
tíðar hvað dansinn áhrærir, það
staðfestist í huga mínum eftir ís-
landsmótið um síðustu helgi. Það
verður forvitnilegt að sjá árangur
islenzkra para á danshátíðinni í
Blackpool um páskana.
Álit dómaranna
I flokknum unglingar II voru ein-
ungis tvö pör og fóru Friðrik og
Sandra Júlía með sigur af hólmi.
Hvað viljið þið segja um þau?
Cecilie: .Ákaflega efnilegt og
Akralind
Tll leigu
iiliHIll
Höfum til leigu 5 bil á jarðhæö sem eru 110 til 120 fm hvert
á þessum frábæra stað í Lindahverfi. Lofthæð 3,80 m.
Góðar innkeyrsludyr á hverju bili. Til afhendingar fljótlega.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Skeifan fasteignamiðlun,
Suðurlandsbraut 46, sími 568 5556.
4
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Isak Halldórsson Nguyen og Helga Dögg Helgadóttir í suðrænni sveiflu.
Björn Sveinsson og Berg-
þóra Bergþórsdóttir hrifs-
uðu til sín þrenn verðlaun.
slappaðri í dansinum hjá sér.“
Jesper: „Dansinn þeirra var
nokkuð hreinn og beinn. Þau mættu
passa svolítið að missa ekki jafn-
vægispunktinn sinn svona fram,
eins fannst mér loturnar þeirra
ekki nógu flæðandi, of hikandi á
stöku stað.“
Linda: „Ásgrímur heillaði mig
uppúr skónum. Hann er svo mikill
töffari. Mig langaði svo að setja þau
í 1. sæti, og það kemur eflaust að
því. Þau þyrftu aðeins að laga hjá
sér fótavinnu og nota gólfið betur,
sem myndi gefa þeim meiri hreyf-
ingu og sveigjanleika 1 líkamann.“
Davíð Gill og Halldóra Sif sigr-
uðu í flokki unglinga 2. Hvað
fannst ykkur um þau?
Cecilie: „Það var
engin spurning í
mínum huga að þau
voru sigurvegarar í
þessum aldursflokki. Dav-
íð er einstaklega sterkur
dansari og lítur út fyrir að
vera orðinn fullorðinn á gólf-
inu. Þau dönsuðu þó mun bet-
ur á laugardeginum, af miklu
meiri krafti. Halldóra er líka
mjög góður dansari, þó fannst
mér vanta svolítinn kraft í
hana, sérstaklega á sunnudeg-
inum.“
Jesper: „Frábært par, sér-
staklega á laugardeginum. Þau
nota tónlistina einstaklega vel og
virðast vita nákvæmlega hvað
gott par. Mér fannst þau hafa góða
stjórn á hreyfingum sínum og hafa
mikla persónutöfra."
Jesper: „Mér fannst þau nota
tónlistina mjög vel og hafa vel á til-
finningunni hvað þau voru að gera.
Eins var mjög gott „flæði“ í hreyf-
ingunum hjá þeim.“
Linda: „Þau líta mjög vel út og
eru að gera góða hluti. Ég myndi
helst vilja benda þeim á að skerpa
svolítið línurnar sínar í suður-amer-
ísku dönsunum, gera þær hreinni.
Eins myndi það gera mikið
fyrir þau að nota gólfið enn
betur, það myndi skapa
enn meira flæði í hreyf-
ingum hjá þeim.“
I öðru sæti voru
Ásgrímur Geir og
Bryndís María.
Hvað viljið þið
segja við þau?
Cecilie:
„Þau vinna
vel úr
grunnin-
um sínum,
mættu
kannski
vera
af-
þau eru að gera. Að mínu mati eru
þau betri en þau pör sem við Danir
eigum í sama aldursflokki. Halldóra
mætti vera snarpari í suður-amer-
ísku dönsunum, mér virtist eins og
hún væri svolítið þreytt, sérstak-
lega á sunnudeginum."
Linda: „Mjög sterkt og efnilegt
par. Virtust svolítið þreytt á sunnu-
deginum, en engu að síður fram-
úrskarandi dans.“
Til silfurverðlauna unnu Hrafn
og Helga. Hvað hafið þið að segja
þeim?
Cecilie: „Þarna er á ferðinni
ákaflega efnilegt par með mikla út-
geislun. Þau þyrftu aðeins að
hreinsa axlarlínuna hjá sér í sígildu
samkvæmisdönsunum, hún virkar
ekki nógu hrein á köflum. Mjög
hrein og ákafleg sterk í suður-am-
erísku dönsunum.“
Jesper: „Þau líta frábærlega út,
eins og klippt út úr blaði. Virðast
vera svolítið upptekin af því að vera
alltaf að laga kjólinn eða buxurnar.
Ég vildi helst segja þeim að hætta
þessu, því þau líta svo vel út. Þau
þyrftu að hafa meiri trú á sjálfum
sér, þau hafa alveg efni á því. Þau
náðu mun betur að dansa saman á
sunnudeginum. Þau voru svolítið að
dansa sitt í hvoru lagi á laugardeg-
inum og kom það svolítið niður á
dansinum. Ég setti þau í fyrsta sæti
í Jive, sem var mjög vel dansað hjá
þeim.“
Linda: „Þau þurfa að bera höfuð-
ið hærra og hafa meiri trú á sjálfum
sér, þá kemur þetta, því þau hafa
allt til að bera til þess að komast
enn lengra."
í flokki ungmenna var mjög hörð
keppni. ísak og Helga Dögg stóðu
uppi sem sigurvegarar. Eitthvað að
segja við þau?
Cecilie: „Öruggir sigurvegarar að
mínu mati. Þau eru mjúk, snörp og
nota tónlistina ákaflega vel. Akaf-
lega hæfileikaríkt par.“
Jesper: „Gott efni í heimsmeist-
ara, ef þau halda rétt á spöðunum.
Eiga það kannski á hættu að fá ekki
næga keppni hér heima fyrir.
Keppið þá við ykkur sjálfi. Það
bezta sem gert væri fyrir svona par
væri að hjálpa þeim að hjálpa sér
sjálf. Gamalt kínverskt máltæki
segir: Ef hungraður maður kemur
til þín og biður um mat, láttu hann
þá fá veiðistöng og kenndu honum
að veiða. Að mínu mati þyrfti bara
að kenna Isak og Helgu að veiða!
Frábærir dansarar!"
Linda: „Mjög sterkt par í báðum
greinum. Þau eru geislandi á gólf-
inu og líta vel út. Þau mættu aðeins
vinna í því að víkka toppstöðuna og
auka dýptina hjá sér í sígildu sam-
kvæmisdönsunum, þá eru þeim allir
vegir greiðfærir!"
Silfurverðlaunin komu í hlut
Hilmis og Ragnheiðar. Hvað hafið
þið að segja þeim?