Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJONUSTA/FRETTIR
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 65
öldrunarlækningadeild er fijáls heimsóknartími e.
samkl. Heimsóknartími barnadeildar er frá 15-16 og
frjáls viðvera foreldra allan sólarhringinn. Heimsóknar-
tími á geðdeild er fijáls.
GRENSÁSDEILD: Mánud.-fóstud. kl. 16-19.30, laugard.
og sunnud. kl. 14-19.30 og e. samkl.
LANDAKOT: A öldrunarsviði er fijáls heimsóknartími.
Móttökudeild öldrunarsviðs, ráðgjöf og tímapantanir í s.
525-1914.____________________________________
ARNARHOLT, Kjalarnesi: Fijáls heimsóknartími.
LANDSPÍTALINN: Kl. 18.30-20.
BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD, Dalbraut 12: Eftir
samkomulagi við deildarstjóra.
BARNASPÍTALIHRINGSINS: Kl. 15-16 eða e. samkl.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS KLEPPI: Eftir sam-
komulagi við deildarstjóra.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS Vífilsstöðum: Eftir sam-
komulagi við deildarstjóra.
KVENNADEILD, KVENLÆKNINGADEILD: Kl. 18.30-
20.
SÆNGURKVENNADEILD: Kl. 14-21 (feður, systkini,
ömmur og afar).
VÍFILSSTAÐASPÍTALI: Kl. 18.30-20.
SUNNUHLÍÐ hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heimsóknar-
tími kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
ST. JÓSEFSSPÍTALIHAFN.: Alla daga kl. 15-16 og 19-
19.30.
SJÚKRAHÚS SUÐURNESJA, KEFLAVÍK: Heimsóknar-
tími a.d. kl. 15-16 og kl. 18.30-19.30. Á stórhátíðum kl. 14-
21. Símanr. sjúkrahússins og Heilsugæslustöðvar Suð-
urnesjaer 422-0500.
AKUREYRI - SJÚKRAHÚSIÐ: Heimsóknartími alla daga
kl. 15.30-16 og 19-20. Á barnadeild og hjúkrunardeild
aldraðra Sel 1: kl. 14-19. Slysavarðstofusími frá kl. 22-8,
s. 462-2209._________________________________
bilanavakt___________________________________
VAKTÞJÓNUSTA. Vegna bilana á veitukerfí vatns og
hitaveitu, s. 552-7311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgi-
dögum. Rafmagnsveitan bilanavakt 568-6230. Kópavog-
ur: Vegna bilana á vatnsveitu s. 892-8215. Rafveita Hafn-
arfjarðarbilanavakt 565-2936___
SOFN
ÁRBÆJARSAFN: Safnhús Arbæjar eni lokuð frá 1. sept-
ember en boðið er upp á leiðsögn fyrir ferðafólk á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 13. Einnig er
teluð á móti skólanemum og hópum sem panta leiðsögn.
Skrifstofa safnsins er opin frá kl. 8-16 alla virka daga.
Nánari upplýsingar í síma 577-111L_________
ÁSMUNDARSAFN í SIGTÚNI; Opið a.d. 13-16.
BORGARBÓKASAFN REYKJAVÍKUR: Aðalsafn, Þing-
holtsstræti 29a, s. 552-7155. Opið mán.-fím. kl. 9-21, fóst-
ud. kl. 11-19, laugard. kl. 13-16.
BÖRGARBÓKASAFNIÐ í GERÐUBERGI 3-5, mán.-fim.
kl. 9-21, fóst. 11-19, laugard. og sunnud. kl. 13-16. S. 557-
9122.
BÚSTAÐASAFN, Bústaðakirkju, mán.-fim. 9-21, fóst 12-
19, laugard. kl. 13-16. S. 553-6270.
SÓLHEIMASAFN, Sólheimum 27, s. 553-6814. Ofangreind
söfn og safnið í Gerðubergi eru opin mánud.-fim. kl. 9-
21, fostud. kl. 11-19, laugard. kl. 13-16.
GRANDASAFN, Grandavegi 47, s. 552-7640. Opið mán. kl.
11-19, þrið.-fóstkl. 15-19.
SEUASAFN, Hólmaseli 4-6, s. 587-3320. Opið mán. kl. 11-
19, þrið.-mið. kl. 11-17, fim. kl. 15-19, fóstud. kl. 11-17.
FOLDASAFN, Grafarvogskirkju, s. 567-5320. Opið mán.-
fim. kl. 10-20, föst. kl. 11-19, laugard. kl. 13-16._
BÓKABÍLAR, s. 553-6270. Viðkomustaðir víðsvegar um
borgina.
BÓKASAFN DAGSBRÚNAR: Skipholti 50D. Safnið verð-
ur lokað fyrst um sinn vegna breytinga.
BÓKASAFN KEFLAVÍKUR: Opið mán.-fóst. 10-20. Opið
laugd. 10-16 yfir vetrarmánuði.
BÓKASAFN KÓPAVOGS, Fannborg 3-5: Mánud.-fimm-
tud. kl. 10-21, fóstud. kl. 10-17, laugard. (1. okt.-30. apr-
íl)kl. 13-17.
BÓKASAFN SAMTAKANNA ’78, Laugavegi 3: Opið
mán.-fim. kl. 20-23. Laugard: kl. 14-16.
BÖRGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR, Tryggvagötu
15: Opið mánudaga til fóstudaga kl. 9-12 og kl. 13—16.
Sími 563-1770.____________________
BYGGÐASAFN ÁRNESINGA, Húsinu á Eyrarbakka: Op-
ið alla daga frá kl. 10-18 til ágústloka. S: 483-1504.
BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR: Sívertsen-hús,
Vesturgötu 6,1. júní - 30. ágúst er opið alla daga frá kl.
13-17, s: 555-4700. Smiðjan, Strandgötu 60,16. júní - 30.
september er opið alla daga frá kl. 13-17, s: 565-5420.
Siggubær, Kirkjuvegi 10,1. júní - 30. ágúst er opið laug-
ard.-sunnud. kl. 13-17. Skrifstofur safnsins verða opnar
alla virka daga kl. 9-17.
BYGGÐASAFNIÐ í GÖRÐUM, AKRANESI: Opið kl.
13.30-16.30 virka daga. Sími 431-11255.
FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, Loftskeytastöðinni
v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá kl.
13-17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir sam-
komulagi.
FRÆÐASETRIÐ í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði,
sími 423-7551. Bréfsími 423-7809. Opið alla daga kl. 13-
17 og eftir samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvfk er opið alla daga t sumar
frákl.9-19.
GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, ReyKjavík. Opið
Sud. og miðvikud. kl. 15-19, fimmtud., fóstud. og
w irdaga kl. 15-18. Sími 551-6061. Fax: 552-7570.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar
opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18.
KJARVALSSTAÐIR: Opið daglega frá kl. 10-18. Safna-
leiðsögn kl. 16 á sunnudögum.
landsbókasafn íslands _ HÁSKÓLABÓKA-
SAFN: Opið mán.-fimmtud. kl. 8.15-22. Föstud. kl. 8.15-
19 og laugd. 9-17. Sunnud. kl. 11-17. Þjóðdeild lokuð á
sunnud. og handritadeild er lokuð á laugard. og sunnud.
_ S: 525-5600. Bréfs: 525-5615.________________
ÍÍSTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703.
LISTASAFN EINAIIS JÓNSSONAR: Safnið er opið laug-
ard. og sunnud. frá kl. 14-17. Höggmyndagarðurinn er
opinn alla daga.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað
mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið-
sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið
þriðjud.-fóstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið-
vikudögum. Uppl. um dagskrá á intemetinu: http//
www.natgall.is
USTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 11-17 nema mánud. Á fimmtud. er opið til kl. 19.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplvsingar i síma
663-2906.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið
alla daga frá kl. 13-16. Sími 663-2530.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjamamesi. Lokað
yfir vetrarmánuðina. Hópar geta skoðað safnið eftir
samkomulagi.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akui-eyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462-4162. Opið frá 16.9.-31.5. á
sunnudögum milli kl. 14-16. Einnig eftir samkomulagi
fyrir hópa. Skrifstofur opnar virka daga kl. 8-16.
MÍNJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og handverks-
munum. Kaffí, kandís og kleinur. Sími 471-1412, netfang
minaust@eldhom.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sunnudögum kl. 15-17 og eftir sam-
komulagi. S. 567-9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Safnið er opið maí-sept.
kl. 13-17 alla daga. Hægt er að panta hjá safnverði á öðr-
um tímum í síma 422-7253.
IÐN AÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní tíl 31. ágúst kl. 14-18, en lokað á mánudögum.
Sími 462-3550 og 897-0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tíma eftír samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi
12. Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfísgötu
116 era opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30-16.
NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam-
kvæmt samkomulagi.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.-sun. 12-17.
Lokað 20.4-24.4. (páskar) Sýningarsalur opinn þri.-sun.
kl. 12-17, lokað mán. Lokað 21.4. og 23.4. Kaffistofan op-
in mán.-laug. kl. 8-17, sun. kl. 12-17. Lokað 21.4. og 23.4.
Skrifstofan opin mán.-fóst. kl. 9-16, lokað 20.-24.4. Sími
551-7030, bréfas: 552-6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is
- heimasíða: hhtpý/www.nordice.is.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið laugardaga
og sunnudaga til ágústsloa frá 1.13-18. S. 486-3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið laugard. og sunnud. frá kl. 13-17 og eftir samkomu-
lagi. S: 565-4242. Skrifstofa Lyngási 7, Garðabæ, s: 530-
2200, netfang: aog@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard. frá kl. 13-
17. S. 581-4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl.ís: 483-1165,483-1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10-18.
Sími 435-1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Ámagarði v/Suður-
götu. Handritasýning er opin þriðjudaga til fóstudaga kl.
14-16 til 15. maí.
STEINARÍKIÍSLANDS Á AKEANESI: Opið aUa daga U.
13-18 nema mánudaga. Sími 431-5566.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema mánu-
dagakl. 11-17. *
AMTSBÓKASAFNIÐ k AKUBEYRI: Mánudaga til fóstu-
daga kl. 10-19. Laugard. 10-15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14-
18. Lokað mánudaga.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ á Akureyri, Hafnarstræti 81.
Opið skv. samkomulagi yfir vetrartímann. Hafið sam-
band við Náttúrafræðistofnun, Akureyri, í síma 462-
2983.______________________________________
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10-17 frá 1. júní -
1. sept. Uppl. í síma 462-3555.
NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
arfrákl. 11-17.__________________________
ORÐ PAGSINS________________________________
Reykjavík súni 551-0000.
Akureyri s. 462-1840.__
SUNPSTAÐIR_________________________________
SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl.
8-20.30. Kjalameslaug opin v.d. 17-21, helgar 11-15. Á
frídögum og hátíðisdögum verður opið eftir nánari
ákvörðun hveiju sinru. Upplýsingasími sunstaða í
Reykjavíker 570-7711.
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30-22.
Laugd. og sud. 8-18 (vetur) 8-19 (sumar).
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.-fóst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mád.-
fóst. 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12.
VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl.
6.30- 7.45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18.
SUNDLAUGIN í GRINDAVÍK:Opið alla virka daga kl. 7-
21 og kl. 11-15 um helgar. Sími 426-7555.
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45-8.30 og 14-22,
helgar 11-18.
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-fóstad. kl.
7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16.
SUNDLAUGIN í GARÐI: Opin mán.-fóst kl. 7-9 og 15.30-
21. Laugardaga og sunnuaaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. ld. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Sími 461-2532.
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mán.-fóst 7-
20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30.
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mán.-fóst 7-
21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643.
BLÁA LÓNID: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21.
ÚTIVISTARSVÆÐI
HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10-17. Lok-
að á miðvikudögum. Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjöl-
skyldugarðurinn er opinn sem útivistarsvæði á vetuma.
Sími 5757-800._____________________________
SORPA ~~~
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endur-
vinnslustöðvar era opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðar á
stórhátíðum. Að auki verða Ánanaust, Garðabær og
Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími
520-2205.
Erindi um stjórnmála-
ástandið í Rússlandi
VYAEHESLAV A. Nikonov, forseti
Polity-stofnunarinnar í Moskvu,
heldur erindi um stjórnmálaástandið
í Rússlandi á sameiginlegum fundi
Samtaka um vestræna samvinnu
(SVS) og Varðbergs í Sunnusal, Hót-
el Sögu, laugardaginn 18. mars nk.,
sem hefst klukkan 12.00. Aðalfundur
Varðbergs hefst strax að fundi lokn-
um kl. 14.30 á sama stað.
Það er mj ög mikilvægt fyrir okkur
Islendinga að fylgjast grannt með
stjórnmálaþróuninni í Rússlandi, en
hún hefur bein áhiif á öryggis-, utan-
ríkis- og alþjóðamál Evrópu, segir í
fréttatilkynningu. Framundan eru
forsetakosningar í stærsta ríki álf-
unnar og ljóst er að nýr forseti mun
hafa veruleg áhrif á framtíðarþróun
utanríkis- og stjórnmála Rússa sem
mótuð voru af Jeltsín fyrrum forseta.
Nikonov er einn af kunnustu
stjórnmálasérfræðingum Rússa og
er vel þekktur jafnt innan lands sem
utan, enda hefur hann mikla reynslu
í rússneskum stjórnmálum. Hann
ætlar í erindi sínu að fjalla um stjórn-
málaástandið í Rússlandi, væntan-
legar forsetakosningar og þróun ut-
anríkismála.
Nikonov, sem er fæddur 1956, er
með MA- og doktorsgráðu í sögu frá
Ríkisháskólanum í Moskvu og árið
1989 lauk hann svo annarri doktors-
gráðu frá sama háskóla. Á árunum
’88 til ’91 var Nikono ræðuritari hjá
miðstjórn Sovéska kommúnista-
flokksins, eða þar til hann hóf störf
við embætti forseta Rússlands í tíð
Gorbachevs. Um tíma gegndi Nikon-
ov starfi hjá Reforma-stofnuninni í
Moskvu og kenndi í eitt ár við Cali-
fornia Institute of Technology, Nik-
onov var þingmaður í Dúmunni frá
’94 til ’96 og var m.a. formaður undir-
nefndai- þingsins í öryggis- og af-
vopnunarmálum.
Nikonov hefur verið forseti Polity-
stofnunarinnar í 7 ár og átt sæti í
fjölmöi'gum nefndum og ráðum fyrir
forseta Rússlands, þingið, stofnanir
og félagasamtök. Nikonov hefur
skrifað fimm fræðibækur og mikinn
fjölda greina í fjölmiðla, þ.m.t. fasta
dálka um stjórnmál fyrir rússnesku
blöðin Izvestía og Trud.
Fundurinn er opinn öllu áhuga-
fólki um erlend málefni og þróun ör-
yggis- og stjómmála í Evrópu.
Námsmenn frá 50% afslátt.
Athugasemd
frá Fram
í TILEFNI þess að margii' virðast'—■
hafa skilið fréttaflutning fjölmiðla
um áformaða sölu Fram á félags-
heimili sínu, þannig að Knatt-
spyrnufélagið Fram væri að selja
félagsheimili sitt í einhverri neyð,
þá skal það tekið fram að því fer
víðs fjarri.
Ástæðan er fyrst og fremst sú að
við tilkomu íþróttahúss félagsins er
þessi fasteign félagsins stórlega
vannýtt. Húsið er dýrt í rekstri og
mikið óhagi'æði hlýst af því að
stærstu deildir félagsins starfi hvor
í sínu húsnæðinu. Félagið hefur því^.
tekið fagnandi þeim áhuga sem
fram hefur komið hjá forsvars-
mönnum Iþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkur að nýta fasteign-
ina fyrir félagsmiðstöð fyrir börn
og unglinga í hverfinu.
Skuldir Fram eru í dag um 110
milljónir, þar af 60 vegna íþrótta-
hússframkvæmdanna. Aðrar skuld-
ir eru uppsafnaðar rekstrarskuldir
knattspyi-nudeildar til margra ára.
Heildarskuldir Fram eru aðeins lít-
ill hluti af heildareignum félagsins.
Félagið stendur því vel, þó stund-
um vanti lausafé.
Sveinn Andri Sveinsson formað-
ur Fram.
Norræna skólahlaupið
í nóv.-des. 1999
Fundur um
mikilvægi
trúarlífs
FÖSTUDAGINN 17. mars klukkan
12.15-14 koma fulltrúar ólíkra trúar-
bragða heims saman í sal 4 í Há-
skólabíói í tilefni af alþjóðlega trúar-
bragðadeginum. Tilgangurinn með
því að halda slíkan fund er að stuðla
að einingu og friði milli ólíkra trúar-
hópa hér á landi, segir í fréttatil-
kynningu. Fulltrúar kristinna, ba-
há’í, múslima, gyðinga og búddista
munu halda stutt erindi út frá eigin
trúabrögðum. Fyi-irlesarar eru Lena
Rós Matthíasdóttir, Eðvai'd T. Jóns-
son, Michael A. Levin, Susan Arfik
Hama og Eygló Jónsdóttir. Fundar-
stjóri Þorkell Á. Óttarsson. Efni
fundarins er „trúarlíf ‘ og mikilvægi
þess í nútímasamfélagi.
Boðið verður upp á fyrirspurnir að
fyrirlestrunum loknum. Aðgangur er
ókeypis og fundurinn er opinn öllum.
Stjórn Félags guðfræðinema
skipuleggur fundinn.
Námskeið
um bakpoka
FERÐAFÉLAG íslands efnir til sér-
staks bakpokanámskeiðs. í Risinu,
Mörkinni 6, mánudaginn 20. mars nk.
Þar ætlar Dagbjört Gunnarsdóttur
að fara yfii' innihald bakpokans,
hvernig á að búa um það, hvernig á
pokinn sjálfur að vera, hvernig á að
stilla hann og hvernig á að bera hann.
Dagbjört hefur sjálf pakkað í poka
oftar en tölu verður á komið og geng-
ið með hann vítt og breitt. Þá hefur
hún ráðlagt ferðamönnum við val á
útbúnaði til margra ára.
Félagsmenn FÍ greiða ekki þátt-
tökugjald en aðiir greiða þúsund kr.
Vegna takmarkaðrar þátttöku er
nauðsynlegt að áhugasamir skrái sig
sem allra fyrst á skirfstofu FÍ.
Grunnskólanemendur lögðu að
baki vegalengd sem samtals
samsvarar hlaupi rúmlega 42 sinn-
um kringum landið
Rúmlega þriðjungur grunnskól-
anemenda hér á landi tók þátt í
norræna skólahlaupinu í nóv.-des.
sl. og var það í 15. sinn sem skóla-
hlaup þetta fór fram.
Alls hlupu 12.094 nemendur úr
71 skóla og lögðu samtals að baki
54.448,5 km. Til samanburðar má
geta þess að þessi vegalengd, sem
grunnskólanemendurnir hlupu
samtals, samsvarar því að hlaupið
hafi verið rúmlega 42 sinnum
kringum landið eftir hringvegin-
um.
„Með norræna skólahlaupinu er
leitast við að hvetja nemendur,
Á FÖSTUDAG hefst vetraríþrótta-
vika íþróttabandalags Reykjavíkur í
samvinnu við Reykjavík - menning-
arborg. Dagskrá vikunnar er fjöl-
breytt en hún hefst klukkan 12 með
ýmsum uppákomum.
Risaleikfimitími verður í Laugar-
dalshöllinni, sem er öllum opin, en
þar munu fimm líkamsræktarstöðv-
ar taka höndum saman og stjórna
tímanum. Einnig verður kennsla í
sundi í Laugardalslaug klukkan 12-
13 og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri fer í göngutúr í kring um
Tjörnina í Reykjavík ásamt föru-
neyti. Aðstandendur íþróttavikunn-
ar vonast til að fyrirtæki í Reykjavík
kennara og annað starfslið skól-
anna til þess að æfa hlaup og auka
við hreyfingu sína. Lögð er áhersla
á að kynna nauðsyn þess að hreyfa
sig og reyna á líkama sinn á ýmsan
hátt og stuðla þannig að betri
heilsu og vellíðan. <
Keppt er að því, fyrst og fremst,
að sem flestir, helst allir, verði
með í hlaupinu í hverjum skóla og
að þessu sinni hlupu allir nemend-
ur 14 skóla.
Allir þátttakendur fengu sér-
staka viðurkenningu og skólarnir
hver fyrir sig viðurkenningarskjal,
sem Mjólkurdagsnefnd íslenska
mjólkuriðnaðarins veitti. Umsjón
með norræna skólahlaupinu hefur
samstarfsnefnd í menntamálaráðu-
neytinu," segir í fréttatilkynningu.
gefí starfsfólki sínu lengra hádegis-
hlé þennan dag til hreyfingar og
þátttöku í hátíðinni.
Á laugardeginum verða flest
íþróttafélög í Reykjavík með kynn-
ingu á sínu starfi. Listskautasýning
verður í Skautahöllinni sama dag,
þar sem erlendir og íslenskir aðilar
koma fram. Sunnudaginn 19. mars
verður frítt á skíði, skíðafélögin í
Reykjavík taka á móti almenningi í
Bláfjöllum, Skálafelli og á Hengils-
svæðinu, þar verður boðið upp á fría
skíðakennslu og bai’naleikvöllur
verður á öllum svæðunum.
Upplýsingar um vetraríþróttahá-
tíðina er að finna á heimasíðunni
www.ibr.is
Stafræn framköllunar-
V etraríþróttavika
í Reykjavík
Málstofa um
þróun stjórnmála
í Austurríki
Á þýskukennaradögum 2000 sem
Félag þýzkukennara stendur fyr-
ir verður fyrirlestur um þróun
stjórnmála í Austurríki. Málstof-
ari ber yfirski’iftina Aktuelles aus
Österreich. Politik-Gesellschaft-
Bildung. Þar munu Helga
Langauer-Hohengafiner og
Wolfgang Malik frá Centi’um fur
Österreichstudien í Skövde fjalla
um þróun stjórnmála í Austurríki.
Þeir sem áhuga hafa á þessu efni
eru velkomnir í málstofuna föstu-
daginn 17. mars kl. 13.30 til 15.00 í
Odda, stofu 101. Fyrirlestrar
verða á þýsku.
stöð hjá Hans Petersen
á Laugavegi
HANS Petersen hefur tekið í notkun
stafræna framköllunarstöð sem
prentar á hefðbundinn ljósmynda-
pappír. Með þessari nýju vél frá
Noritsu er hægt að prenta myndir
frá hefðbundnum filmum negatívum
og positívum, geisladiskum, minnis-
kortum myndavéla og taka við staf-
rænum myndum gegnum Internetið.
Noritsu 2701-vélin getur skrifað
út myndir allt að 30x45cm. Með vél
af þessari tegund gefst færi á að
meðhöndla myndir með nýjum
hætti, myndirnar er hægt að laga til
áður en þær eru skrifaðar á pappír
og auk þess gefst færi á að nota staf-
rænar leiðréttingar á hefðbundin --
vandamál, þannig að í raun tekur
þessi útprentun því fram sem áður
hefur þekkst, segir í fréttatilkynn-
ingu. Vélin er á Laugavegi 178 þai’
sem stafræn fagverslun Hans Peter-
sen er til húsa og er þar leitast við að
lausnir, tæki og búnaður tengdur
stafrænu myndaumhverfi sé á einum
stað.