Morgunblaðið - 16.03.2000, Side 80
tlEF«KETT!liII{( -
4 myndbandi 23.mars
Síðan 1972 1*
Leitið tilboða! ■■
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLJJNNI 1,103REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Veijandi útgerðarmanns Vatneyrarinnar BA við málflutning í Hæstarétti
Utgerðarmanninum meinað
' að njóta atvinnuréttar síns
BOGI Nilsson ríkissaksóknari lét þau orð falla í
málflutningi í Vatneyrarmálinu fyrir Hæstarétti í
gær að um pólitískt vandamál væri að ræða og
löggjafans væri að leysa úr því.
Hann gat þess sérstaklega að einungis einu
sinni í sögu Hæstaréttar Danmerkur hefði réttur-
inn vikið frá almennum lögum á grundvelli þess að
þau samrýmdust ekki stjómarskrá Dana. Hefði sá
dómur fallið á síðasta ári.
Lúðvík Kaaber hdl., verjandi Björns Kristjáns-
sonar, skipstjóra Vatneyrarinnar BA, sagði í mál-
flutningsræðu sinni að Alþingi hefði með lögum
um stjóm fiskveiða lögfest vilja hagsmunaaðila en
4'. fcitt hjá sér hagsmuni meirihlutans.
Höfuðatriði málsins væri að vinnuveitandi
ákærða hefði þurft aflaheimildir til veiða en hefði
ekki átt kost á þéim nema að kaupa þær með fé-
greiðslu sem rynni í einkavasa annars aðila. Af
þeim sökum hefði hann sent Vatneyrina á sjó til
veiða.
Lúðvík sagði að Alþingi hefði aldrei tekið fyrir
þá spurningu hvort unnt væri að útiloka suma frá
auðiindinni. Ekki hefðu fræðimennirnir Sigurður
Líndal og Þorgeir Örlygsson heldur svarað spurn-
ingunni en þeir gerðu á sínum tíma úttekt á fisk-
veiðistjórnunarlögum og stjómarskránni. Hlyti
það að vekja furðu. Lúðvík sagði spurninguna
vera lögfræðilega og að ummæli þingmanna eða
annarra aðila svömðu henni á engan hátt.
I máli sínu vitnaði Lúðvík ennfremur í bréf sem
alþingismaðurinn Kristinn Pétursson ritaði sjáv-
arútvegsnefnd Alþingis árið 1990. Sagði hann að
þar kæmi fram beiðni um að lögfræðileg úttekt
færi fram um nákvæmlega þau atriði sem deilt
væri um i Vatneyrarmálinu. Beiðni Kristins hefði
hins vegar verið virt að vettugi.
Atvinnufrelsið gengur kaupum og sölum
Magnús Thoroddsen, verjandi Svavars Guðna-
sonar og Hyrnó ehf., sagði í ræðu sinni að lögin um
stjórn fiskveiða væm hin verstu ólög. Skjólstæð-
ingi sínum væri meinað með þeim að njóta at-
vinnuréttar síns.
Magnús sagði að það væm mannréttindi Svav-
ars að fá að veiða en atvinnufrelsið gengi aftur á
móti kaupum og sölum fyrir offjár í dag þrátt fyrir
að vera vemdað í 75. gr. stjórnarskrárinnar. í
greinargerð með stjórnskipunarlögum hefði rík
áhersla verið lögð á mikilvægi þess að löggjafinn
legði mat á hvort takmarka mætti atvinnuréttindi
manna. Almannahagsmunir yrðu að krefjast þess
að takmörkunum væri beitt, ekki hagsmunir
minnihlutahópa.
Veijandinn sagði ennfremur að stjómarskrár-
bundinn réttur yrði ekki gerður refsiverður með
almennum lögum eða reglugerð. Eftir því hefði
ekki verið farið við setningu laga um stjórn fisk-
veiða.
■ Tekist á um/40—41
Framkvæmdir hafnar við endurný.iun Rey k j avíkur flugvallar
Ein flugbraut lokuð
fram á haust
FRAMKVÆMDIR eru nú að hefjast
við endumýjun flugbrauta Reykja-
víkurflugvallar og var austur-
vesturbrautinni lokað í gær af þeim
sökum. Flugumferð verður því
. j£inkum að vera um norður-suður-
brautina auk þess sem nota má suð-
vestur-norðausturbrautina í
ákveðnum tilvikum.
I haust hefur verið unnið við upp-
fyllingar og öryggissvæði vestan
við suðurenda norður-suðurbraut-
arinnar en í gær var hafist handa
við austur-vesturbrautina, þ.e. á
brautinni sjálfri. Verður unnið við
hana fram í september. Dagana 10.
til 24. ágúst verður unnið á brauta-
mótunum og verður völlurinn þá
lokaður.
Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
sQ'óri Flugfélags íslands, sagði að
198 MANNS sem hafa stungið af af
vettvangi umferðaróhapps hafa
verið kærðir til lögreglunnar í
Reykjavík frá áramótum, sem jafn-
gildir 2-3 kærum á dag. Að auki
hafa 78 tilvik verið kærð til lög-
reglu utan Reykjavíkur.
Einkum er um að ræða tilvik þar
sem ökumenn keyra á kyrrstæðar
búast mætti við því að innan-
landsflugið yrði jafnvel að notast
við Keflavíkurflugvöll dag og dag,
til dæmis ef austanátt væri sterk og
hliðarvindur því of mikill á norður-
suðurbrautina. Þó er gert ráð fyrir
að flugvélar sem nota mjög stuttar
brautir geti í ákveðnum tilvikum
notað þann hluta austur-vestur-
brautarinnar sem ekki er verið að
vinna við.
bifreiðir og hverfa af vettvangi. Árið
1999 bárust 579 kærur vegna slíkrar
háttsemi til lögreglunnar í Reykja-
vík og á fjórða hundrað kærur til
viðbótar í öðrum umdæmum. Ekki
tekst þó að upplýsa öll þau mál sem
kærð eru. Það færist þó í vöxt að
ökumenn láti vita af því er þeir valda
tjóni á kyrrstæðum bílum.
Ármót í Rangár-
vallahreppi
104 naut-
gripum
fargað
ÖLLUM nautgripum á bænum Ár-
mótum í Rangárvallahreppi, 104
talsins, hefur verið fargað. Þetta
kom fram í samtali Morgunblaðsins
við Katrínu Andrésdóttur, héraðs-
dýralækni í Suðurlandsumdæmi.
„Þetta voru gripir sem voru smit-
aðir af salmonellu og mjög ólíklegt
að þeir hefðu nokkum tímann orðið
til einhvers nýtir,“ sagði Katrín.
Að sögn Katrínar tók Gunnar Jó-
hannsson, forstjóri Fóðurblöndunn-
ar, sem er núverandi eigandi Ár-
móta, ákvörðun um að farga
dýrunum og af fyrrgreindum ástæð-
um sagði hún ákvörðunina hafa verið
rétta. Dýrunum var lógað á bænum
og hræin flutt á urðunarstaðinn
Strönd.
Katrín sagði að Þorkell Steinar
Ellertsson, fyrrverandi bóndi á Ár-
mótum, hefði síðan sjálfur fargað 13
hundum af 20, en þeir, eins og önnur
dýr á bænum, hefðu verið smitaðir af
salmonellu. I janúar var 45 hrossum
lógað vegna vanhirðu og því hefur
alls 162 dýrum af bænum verið farg-
að.
Enn um 300
hross á jörðinni
Katrín sagði að enn væru sjö
hundar og um 300 hross á jörðinni.
Hún sagði að líklega væru öll hrossin
smituð og því vissi hún ekki hvað nýr
eigandi þeirra, Jónas Ingi Ketilsson,
hygðist gera við þau, en farbann er á
öllum dýrum frá bænum. Hún sagði
að hægt væri að losa dýrin við sal-
monelluna, en að sú aðgerð krefðist
mikillar vinnu.
Jónas Ingi sagði í samtali við
Morgunblaðið að ekki nema hluti af
hrossunum væri smitaður og að ver-
ið væri að ná salmonellunni úr þeim
eftir ákveðnu kerfi. Hann sagðist
hafa keypt hrossin fyrir stuttu en
vildi ekki gefa upp kaupverðið.
SÍF ræðir
við Norway
Seafood
LÍKUR eru á samstarfi SÍF hf. og
norska sjávarútvegsrisans Norway
Seafood að þvi er segir í norska blað-
inu Fiskaren. Yrði það stærsta sjáv-
arútvegssamsteypa í heiminum en
sameiginleg velta fyrirtækjanna yrði
nálægt 90 milljörðum króna.
Talsmenn fyrirtækjanna vildu í
gær ekkert tjá sig um málið en SÍF
hf. sendi í gær tilkynningu til Verð-
bréfaþings Islands vegna viðræðna
fyrirtækisins við Norway Seafood. í
tilkynningunni sagði að eins og fram
hefði komið áður í fjölmiðlum, ættu
íslenskar sjávaraftu-ðir hf. og
Norway Seafood a.s. í viðræðum um
mögulegt samstarf í Frakklandi.
Stjómendur SÍF hf. og Norway Sea-
food a.s. hefðu átt óformlegar viðræð-
m- um samstarf, sem ekki hefðu leitt
til neinnar niðurstöðu og alls væri
óvíst hvort þeim yrði haldið áfram.
Upplýsingafulltrúi Norway Sea-
food staðfesti við Morgunblaðið í gær
að viðræður stæðu yfir við tvo til þijá
aðila en vildi ekki upplýsa hvaða fyr-
irtæki það væru.
■ Sameiginleg velta/24
198 kærðir fyrir
að stinga af