Morgunblaðið - 11.04.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
86. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR11. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Angela Merkel kjörin nýr formaður kristilegra demókrata í Þýskalandi
Markið sett á sigur
í næstu kosningum
Essen. Morgunblaðið.
ANGELA Merkel var í gær kjörin nýr formaður
kristilega demókrataflokksins í Þýskalandi, CDU,
á flokksþingi í Essen. Varð hún þar með fyrsta
konan til að veljast í leiðtogasæti eins af stóru
stjómmálaflokkunum í Þýskalandi. Á óvart kom
hve sannfærandi stuðning hinn 45 ára austur-
þýski efnafræðingur fékk hjá hinum tæplega eitt
þúsund fulltrúum sem þingið sátu, eða tæp 96%.
Öll forystusveit CDU var endurnýjuð á flokks-
þinginu. I stöðu eftirmanns síns sem fram-
kvæmdastjóra flokksins tilnefndi Merkel hinn lítt
þekkta þingmann Ruprecht Polenz. Hann hlaut
rúm 88% atkvæða. Nýr fjármálastjóri CDU er
Hans Cartellieri, sem tekur við þeirri stöðu af
Mathias Wissmann. Þá voru sjö varaformenn og
26 stjómarmenn kjömir; sumir þeirra áttu þar
reyndar áður sæti.
Hápunktur þingsins
Ræða sú sem Merkel flutti fyrir kjörið var há-
punktur flokksþingsins, sem hófst á sunnudag og
lýkur í dag. Merkel þurfti oft að gera hlé á máli
sínu vegna lófakiapps, en í ræðunni - sem form-
lega var skýrsla fráfarandi framkvæmdastjóra -
útlistaði hún þá þætti sem hún teldi að CDU ætti
að leggja aðaláherslu á í stefnu sinni. Hún reyndi
einnig að benda á veika punkta hinnar „rauð-
grænu“ stjórnarstefnu jafnaðarmanna og græn-
ingja, sem CDU þyrfti nú að einbeita sér að í hlut-
verki sínu sem forystuafl stjórnarandstöðunnar
og með sigur í næstu sambandsþingkosningum ár-
ið 2002 að leiðarljósi. Að flutningi ræðunnar lokn-
um linnti lófataki ekki fyrr en eftir rúmar sex mín-
útur. Þakkaði Merkel kærlega fyrir hinn mikla
stuðning og bætti við að hún vonaðist til að hann
héldist.
Ræðu Stoibers beðið með eftirvæntingu
Á lokadegi flokksþingsins í dag er þess beðið
með allnokkurri eftirvæntingu hvað Edmund
Stoiber, formaður CSU, systurflokks CDU í Bæj-
aralandi, og forsætisráðherra þar, segir í ávarpi
sínu. Þykir Stoiber vera einhver mesti þungavigt-
arstjómmálamaðurinn í forystusveit kristilegu
flokkanna í Þýskalandi eftir endumýjun flokksfor-
ystu CDU á flokksþinginu í Essen, og líklegt að
hann hafi metnað til að gera tilkall til þess að
verða næsta kanslaraefni CDU og CSU.
■ Scháuble eftirlætur/31
AP
Angelu Merkel, nýkjörnum formanni Kristi-
legra demókrata, var fagnað gífurlega á
flokksþingi í Essen í gær.
Álitínn
vera keppi-
nautur um
kvenhylli
Ósld. AP.
NORÐMAÐURINN öystein
Froysnes er nú á batavegi eft-
ir að hafa hlotið umtalsverð
meiðsl er strútur réðst á hann.
Froysnes elur strúta í bæn-
um Bygland suðvestur af
Ósló. En á laugardag taldi
einn fugla hans eiganda sinn
vera annan karlkyns strút
sem hefði hug á að veita sér
samkeppni um athygli kven-
fuglanna í búrinu.
Strúturinn, sem er af afr-
ísku kyni og um tveir metrar
á hæð, sparkaði því í Froysnes
sem féll á jörðina. Strúturinn
sparkaði þar áfram í hann
með þeim afleiðingum að
Froysnes rifbeinsbrotnaði og
lungu hans féllu saman, en að
sögn lækna er hann nú á bata-
vegi.
I Noregi fjölgar sífellt þeim
bændum sem leita nýrra
ræktunarmöguleika og ala
óvenjuleg eldisdýr á borð við
strúta í því skyni að reyna fyr-
ir sér á nýjum mörkuðum.
Enn fellur Nasdaq
New York. AFP.
NASDAQ-verðbréfavísitalan lækk-
aði um 5,81% í gær og telst það
annað mesta fall vísitölunnar til
þessa.
Nasdaq lækkaði um 258,25
punkta og stendur nú í 4,188.20, en
fyrir viku féll Nasdaq um 349
punkta í kjölfar úrskurðar dómara
í máli Microsoft-hugbúnaðarfram-
leiðandans. Vísitalan hækkaði síð-
an á ný um 4,1% í vikulok, en hefur
nú lækkað um 17% frá því hún stóð
sem hæst, 10. mars sl. Nasdaq hef-
ur engu að síður hækkað um 2,92%
frá ársbyrjun. Það er mat margra
sérfræðinga að verðgildi Nasdag
vísitölunnar sé nú mun raunhæfara
en áður eftir lækkanir sem átt hafa
sér stað undanfarið.
Þá hækkaði Dow Jones-iðnaðar-
vísitalan um 75,08 punkta í gær og
stendur nú í 11,186.56 punktum og
hefur því lækkað um 2,7% frá ára-
mótum.
Reuters
Aukin spenna
í Bólivíu
MÓTMÆLENDUR veifa hér bóliv-
íska fánanum þar sem þeir taka
þátt í mótmælaaðgerðum vegna
hækkunar á vatnsskatti í landinu.
Tugir þúsunda íbúa Bólivíu mót-
mæltu hækkuninni á torgi í bænum
Cochamba í gær og kröfðust þess
að stjórnvöld breyttu út frá fyrri
ákvörðun sinni um einkavæðingu á
vatnsveitum í landinu. Óeirðir hafa
verið í Bóliviu undanfarna daga og
höfðu fimm látist á sunnudag.
Leiðtogafundur N- og S-Kóreu
Vonir um bætt
tengsl ríkjanna
Seoul. AP, AFP.
LEIÐTOGAR Norður- og Suður-
Kóreu munu hittast á sögulegum
fundi í júní á þessu ári, að því er fram
kom í sameiginlegri tilkynningu ríkj-
anna í gær. Forseti S-Kóreu, Kim
Dae-Jung, mun fljúga á fund Kims
Jongs-Il, leiðtoga N-Kóreu, í Pyong-
yang og munu viðræðumar standa í
þrjá daga, frá 12.-14. júní. Dagskrá
viðræðnanna hefur ekki verið birt en
búist er við því að leiðtogamir muni
ræða hugsanlega efnahagssamvinnu,
málefni sundraðra fjölskyldna og
möguleika á friðsamlegri sambúð
ríkjanna. Æðstu ráðamenn N- og S-
Kóreu hafa aldrei áður hist á fundi.
Stórveldin fagna
tíðindunum
Fulltrúar erlendra ríkja fognuðu í
gær fyrirhuguðum leiðtogafundi
Kóreu-ríkjanna og létu í ljósi vonir
um að hann yrði til að stuðla að því að
drægi úr spennu í samskiptum
þeirra.
Bandarísk stjómvöld lofuðu við-
leitni Kims Dae-Jungs til að bæta
tengsl ríkjanna á síðustu missemm
og sögðu að hann hefði með hinni s.k.
„sólskinsstefnu sinni“ lagt gmnninn
að væntanlegum fundi leiðtoganna.
Bandaríkjamenn hafa síðustu ár lagt
hart að ráðamönnum í báðum ríkjum
að hefja viðræður. „Við höfum lengi
sagt að skilyrði þess að skapa megi
fríð og stöðugleika á Kóreu-skaga sé
að beinar viðræður fari fram milli
norður- og suðurhlutans," sagði Jam-
es Rubin, talsmaður bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins, í gær.
„Við höfum bæði unnið að því með
beinum og óbeinum hætti að ríkin
tækju upp viðræður.“ Rubin sagði
einnig að Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, hefði
hringt í utanríkisráðherra Suður-
Kóreu, Lee Joung-bin, í gær og lýst
yfir eindregnum stuðningi banda-
rískra stjómvalda við fund leiðtog-
anna.
Stjómvöld í Kína lýstu líkt og
Bandaríkin ánægju með fyrirætlanir
N- og S-Kóreumanna. „Kínverjar
vona að fundurinn muni skila raun-
vemlegum árangri,“ sagði talsmaður
kínverska utanríkisráðuneytisins,
Zhu Bangzao. „Kínversk stjómvöld
hafa ætíð stutt viðleitni til að bæta
samskipti ríkjanna og tilraunir til að
sætta norður- og suðurhluta Kóreu-
skagans, viðræður og samráð sem
leitt geti til friðsamlegrar sameining-
ar.“
í yfirlýsingu frá rússneskum
stjómvöldum í gær sagði að þau fögn-
uðu tilkynningunni um leiðtogafund
Kims Dae-Jungs og Kims Jongs-Il.
Þar sagði að viðræðumar yrðu „mik-
ilvægar til að efla stöðugleika og fríð
á Kóreu-skaga og í norðaustur-Asíu“.
■ Lýkur lengstu/31
MORGUNBLAÐH) 11. APRIL2000
5 690900 090000