Morgunblaðið - 11.04.2000, Qupperneq 4
4 ÞRIÐ JUDAGUR 11. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
\ \ VVVttt-hML//
Áætlaður komutími 10. maí
númer eitt!
Til sölu Volvo 850 T5,
4 dyra, sjálfskiptur, 220 hö,
svartur, leður, álfelgur. Ásett
verð 1.980.000. Ath! Skipti á
ódýrari.
Nánari upplýsingar hjá Bfla-
þingi Hekiu, sími 569 5500.
Opnunartlmi: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. I2-I6
BÍLAÞING HEKLU
Nu'mer ciH í hHvPum Nhrnj
Laugavegi I74,105 Reykjavfk, sfmi 569-5500
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is
Yfírmenn bandarísku strandgæslunnar
kynna sér notkun togvíraklippna
Samskip verja 10 milljónum
til baráttu gegn fíkniefnum
SAMSKIP ætla að verja að minnsta
kosti 10 milljónum króna til baráttu
gegn fíkniefnavandanum á Islandi.
Þetta kom fram í ræðu Ólafs Ólafs-
sonar forstjóra á aðalfundi Sam-
skipa á Hótel Sögu í gær. Leitað
verður samráðs við fagfólk um
hvemig þessum fjármunum verði
best og áhrifaríkast varið í forvarn-
arstarfi, rannsóknum eða meðferð-
armálum.
Forstjóri Samskipa sagði að þótt
síðasta ár hefði verið fyrirtækinu á
margan hátt hagstætt hefði einn at-
burður sem hann yrði að nefna orðið
félaginu og starfsmönnum þess
verulegt áfall. „Það var þegar lög-
regla og tollayfirvöld upplýstu síð-
sumars eitt umfangsmesta smygl á
fíkniefnum til íslands sem dæmi eru
um. Nokkrir starfsmenn Samskipa
tengdust málinu og misnotuðu trún-
að og traust félagsins í þágu skipu-
lagðrar glæpastarfsemi undir stjórn
manna sem einskis svífast við iðju
sína.“
Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam-
skipa, sagði að í þessu og öðru tilviki
tengdu félaginu hefðu menn verið
minntir á að fíkniefnabarónar hafi
auga á fyrirtækjum í flutningaþjón-
ustu og spari hvergi fjármuni eða
krafta til að fínna veikleika sem
kunni að vera til staðar hjá starfs-
mönnum þessara fyrirtækja.
Innra eftlrlit styrkt
„Samskip hafa brugðist við með
því að styrkja innra eftirlit félagsins
og herða öryggiskröfur á starfsstöð-
um sínum, hérlendis og erlendis, til
að reyna að koma í veg fyrir það,
með öllum ráðum, að flutningatæki
félagsins séu tekin í þjónustu undir-
heimalýðs til fíkniefnasmygls. Fé-
lagið ræður ekki fólk til starfa sem
hefur tengst fíkniefnabrotum af ein-
hverju tagi,“ sagði Ólafur.
Togvíraklippurnar frægu sem
hreildu breska landhelgisbrjóta.
Gangan hofst
10. mars
Haraldur hefur nu lagt að baki
um 271 km af rúmlega 770 km
göngu á pólinn eftir 31 dags göngu
Borqar
fjörour
eystri
r—
vegalengdin eftir hringveginum
suður um til Borgarfjarðar eystri
er tæplega 800 km.
Sé sú vegalengd notuð sem við-
miðun við pólsgönguna þá væri
Haraldur kominn yfir Mýrdalssand.
Djúpi-
vogur
Reykjavik
Höín
Setfoss
Kirkjubæjarklaustur
sQ
Morgunblaðið/Jim Smart
Yilrmenn í bandarísku strandgæslunni ásamt yfirmönnum hjá Landhelgisgæslunni í stafni varðskipsins Ægis.
Leita fanga í vopnabúri
Landhelgisgæslunnar
„VIÐ erum hér til þess að kynna
okkur notkun Landhelgisgæslunnar
á togvíraklippum. Við ætlum hugs-
anlega að notfæra okkur þessa að-
ferð við löggæslu í efnahagslögsögu
okkar hvaivetna í Bandaríkjunum,"
segir Dave McKensie, yfirmaður í
bandarísku strandgæslunni. Hann
er staddur hér á landi ásamt fjórum
öðrum yfírmönnum frá bandarísku
strandgæslunni til að kynna sér að-
ferðir Landhelgisgæslunnar í bar-
áttu gegn landhelgisbrjótum í síð-
ustu þorskastríðum.
Einfaldar og áhrifaríkar
„Togvíraklippumar eru einkar
einfaldur og afar áhrifaríkur búnað-
ur. Þetta er ein af mörgum aðferðum
sem við erum að velta fyrir okkur,“
segir McKensie.
Togvíraklippumar voru þannig
hannaðar að á venjulegt ankeri voru
soðnar hefiltennur. Varðskipin
sigldu aftur fyrir togarana og klipptu
á togvírana með þessu verkfæri.
Hann segir að ástæðurnar fyrir
því að strandgæslan bandaríska leiti
nú nýrra lausna við eftirlitsstörf sín
innan bandarískrar lögsögu séu
áhyggjur sem stjórnvöld hafi af því
að gengið sé um of á auðlindir sjávar.
„Við ræddum í morgun við yfirmenn
Landhelgisgæslunnar um hvemig
íslendingar beittu þessum búnaði
með góðum árangri í þorskastríðun-
um á áttunda áratugnum. Það era til
margar aðferðir til þess að stöðva
landhelgisbrjóta en togvíraklippurn-
ar virðast mér vera afar áhrifaríkar
og það er kostur að þurfa ekki að
beita valdi,“ segir Dave McKensie.
Flug'leiðir gefa
farþegum kost á að
breyta ferðaáætlun
FLUGLEIÐIR sendu í gær frá
sér tilkynningu til farþega sem
bókað eiga far með millilandaflugi
félagsins frá hádegi fimmtudag-
inn 13. apríl, þar sem þeim er bent
á að boðað verkfall Flugvirkjafé-
lags Islands geti raskað ferðum
þeirra ef það kemur til fram-
kvæmda.
Félagið hefur ákveðið að fella í
takmarkaðan tíma niður skilmála
sem binda ferðadaga farþega sem
þegar hafa bókað ferðir frá og
með hádegi 13. apríl og greitt far-
seðla. Farþegum er að sinni heim-
ilt að breyta ferðadegi meðan sæti
era til á öðram dögum. Þeir sem
þess óska era beðnir að hafa sam-
band við söluskrifstofur Flugleiða
eða fjarsölu.
Haraldi Erni pólfara
miðar vel á göngunni
Hefur gengið
271 km á 31 degi
PÓLFARINN Haraldur Öm Ólafs-
son hefur gengið ríflega þriðjung
leiðarinnar á norðurpólinn á helm-
ingi þess tíma sem hann ætlaði sér í
að nátakmarki sínu 10. maí. Hann
hefur verið 31 dag úti á ísnum og
35% leiðarinnar em að baki.
Hann gekk 13,8 km á sunnudag,
hefur alls gengið 271 km og á um
500 km eftir ófama.
Tjald Haraldar rak um 250 metra
til suðurs á ísnum í fyrrinótt. Haf-
straumar eru það sterkir í Norður-
ishafinu að íshellan færist stöðugt
til og mega pólfarar því ætíð búast
við ísreki.
Allt gengur vel hjá Haraldi enda
þótt búnaðurinn hafi eðlilega látið
nokkuð á sjá, einkum sleði hans
sem hann vonast til að dugi út vik-
una uns hann fær nýjan sendan
flugleiðis út á ísinn ásamt 40 daga
nesti.
„Allur búnaður hefur reynst
mjög vel í ferðinni, en þó eru eink-
um þrjú vandamál sem komið hafa
upp,“ sagði Haraldur við leiðang-
ursstjórn sína í gær. „Fyrst duttu
skinnin undan skíðunum, en við því
mátti alltaf búast. Það virkaði hins
vegar mjög vel að skrúfa skinnin
undir skfðin og þau hafa æ síðan
haldist á sínum stað. Annað vanda-
mál fólst í því að sólamir á skónum
mínum hafa brotnað en það leysti
ég með því að bora göt á sólana
beggja vegna brotsins og batt þann-
ig hvorn skó saman með fallhlífa-
stökkslfnu. Síðar fór ég að nota
gorma til að halda sólanum saman
sem minnkar álagið á þá mikið. Þá
hefur nokkuð löng rifa á sleðanum
sífellt verið að stækka og gapir inn
úr sleðanum en fer þó ekki alveg í
gegn. Ekki nóg með að rifan sé Iá-
rétt heldur er hún einnig lóðrétt
með þeim afleiðingum að talsvert
mikill snjór treðst inn fyrir. Ég hef
þó þann möguleika að geta bundið
hann saman til bráðabirgða ef hann
versnar meira. Þetta vandamál
verður þó úr sögunni þegar ég fæ
nýjan sleða. Annars er heilsan góð
og héðan allt gott að frétta."