Morgunblaðið - 11.04.2000, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
••
Ossur Skarphéðinsson birtir stefnuskrá í 10 liðum
Veiðiheimildir verði
leigðar út til langs tíma
ÖSSUR Skarphéðinsson alþingis-
maður hefur sent frá sér stefnuskrá
í 10 liðum vegna formannskjörsins í
Samfylkingunni. Auk Össurar er
Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði í framboði til formanns.
Atkvæðaseðlar voru sendir út í gær,
en um póstkosningar er að ræða.
í fréttatilkynningu sem Össur
sendi frá sér í gær leggur hann sér-
staka áherslu á fjóra punkta í
stefnuskránni; auðlindaleigu,
Evrópumál, stofnun upplýsingahá-
skóla í tengslum við einkavæðingu
og loks beint lýðræði í tengslum við
Netið.
í stefnuskránni segir Össur m.a.
að þjóðin eigi öll að fá sanngjarnan
hlut af afrakstri sameiginlegra auð-
linda sjávar með því að veiðiheim-
ildir séu leigðar út til langs tíma.
,A-ð því gefnu tel ég að stýra eigi
fiskveiðum með aflamarkskerfi þar
sem sérstaklega yrði tekið á brott-
kasti.
Ég vil að allur ferskfiskur fari um
fiskmarkaði og að almannavaldið
ráðstafi takmörkuðum hluta veiði-
heimilda til staðar sem byggja af-
komu sína algerlega á veiðum og
vinnslu sjávarfangs. Ég styð útrás
íslenskra sjávarútvegs-
fyrirtækja erlendis,
hún endurspeglast í
vaxandi lífsþrótt grein-
arinnar.
Ég vara við sam-
þjöppun veiðiheimilda
á hendur fáum fyrir-
tækjum, skipulag sjáv-
arútvegs verður að
standast stjórnarskrá
og má ekki brjóta í
bága við réttlætis-
kennd landsmanna.
Ég er algerlega and-
vígur núverandi gjafa-
kvótakerfi stjórnar-
flokkanna. Sátt um
sjávarútvegsmál getur
aldrei byggst á því að viðhalda kerfi
sem tryggir vald og auð til hinna fáu
eins og stjórnarflokkarnir hafa fest
í sessi,“ segir Össur í stefnuskránni.
Komið verði á fót
upplýsingaháskóla
„Ég legg til að afrakstur af sölu
ríkisfyrirtækja eins og Landssím-
ans verði nýttur til þess að hrinda af
stað þjóðarátaki í upplýsingaiðnaði,
meðal annars með því að koma á fót
upplýsingaháskóla í
fremstu röð. Við eig-
um að taka forystu á
mikilvægustu sviðum
upplýsingatækni og
stokka upp mennta-
kerfið með hliðsjón af
upplýsingabylting-
unni,“ segir Össur
m.a. í kaflanum um
menntamál.
Össur segir í stefnu-
skránni að upplýs-
ingaflæði sé ein mikil-
vægasta stoð nútíma
lýðræðis. „Upplýs-
ingatækni Netsins
gjörbreytir möguleik-
um fólks til að taka af-
stöðu á grundvelli þekkingar og til
að veita valdhöfum aðhald. Þetta
gerir okkur kleift að stíga nýtt skref
í þróun íslensks lýðræðis með því að
innleiða beint lýðræði til viðbótar
hinu hefðbundna fulltrúalýðræði.
Landið á að vera eitt kjördæmi
sem fyrst. Ég vil taka upp þjóðar-
atkvæðagreiðslur um mikilvæg mál
og stuðla að því að sveitarstjórnir
skjóti þýðingarmiklum ákvörðunum
til almennrar atkvæðagreiðslu.
Netið á að þróa til að nota í þessum
tilgangi og til að opna stjórnkerfið
betur fyrir borgurunum. Hæfni ráði
faglegum stöðuveitingum."
Tími bollalegginga um
Evrópumálin er liðinn
I kaflanum um Evrópumál segir
Össur að tími bollalegginga um
Evrópumálin sé liðinn.
„Nú þurfum við að hefja skipu-
lega umræðu um samningsmarkmið
Islendinga. Skýr meirihluti þjóðar-
innar þarf að vera samtaka um þau
til þess að ráðlegt sé að sækja um
aðild að Evrópusambandinu. Að því
tilskildu að Islendingar einir nýti
fiskmiðin við landið virðast kostirn-
ir fleiri en gallarnir.
EES-samningurinn hefur rutt
brautina fyrir bætta neytenda-
vernd, félagslegar umbætur og við-
skiptalegt frjálsræði. Staða samn-
ingsins hefur hins vegar veikst og
til lengdar verður hann ekki full-
nægjandi fyrir samskipti íslands og
Evrópu. Evrópusambandið er að
breytast og stækka og við skulum
vera viðbúin því að gera upp hug
okkar til aðildar á næstu misser-
um,“ segir Össur.
Össur
Skarphéðinsson
Stefán L.
Stefánsson
verður
forseta-
ritari
STEFÁN
Lárus Stef-
ánsson, aðal-
ræðismaður
Islands í New
York og
varafastafull-
trúi hjá Sam-
einuðu þjóð-
unum, hefur
verið ráðinn í embætti for-
setaritara frá og með 11. apríl.
Stefán hefur auk núverandi
starfa sinna unnið í sendiráð-
um Islands í Washington og
Moskvu, á upplýsinga- og
menningarskrifstofu utanrík-
isráðuneytisins og einnig á
viðskiptaskrifstofu þess. Þá
starfaði hann um tíma á veg-
um íslenskra sjávarútvegsfyr-
irtækja við könnun á
markaðsmálum.
Stefán er lögfræðingur að
mennt, var fréttamaður hjá
Ríkissjónvarpinu og vann
einnig við blaðamennsku.
Hann er fæddur árið 1957.
Eiginkona hans er Guðrún
Bryndís Harðardóttir og eiga
þau tvo syni.
Helgi S. Guðmundsson, formaður
bankaráðs Landsbanka Islands
Skoða þarf
malið í ljosi
nýrra aðstæðna
HELGI S. Guðmundsson, formað-
ur bankaráðs Landsbanka íslands
hf., kveðst hafa fullan skilning á
afstöðu bankaráðs Búnaðarbanka
Islands hf. um að ekki sé tímabært
að skoða sameiningu Búnaðar-
bankans og Landsbankans fyrr en
farið hefurfz-am mat innan bank-
ans á nýjum samkeppnisaðstæð-
um.
„Það þarf að skoða málin í ljósi
nýrra aðstæðna. Athuga þarf
hvernig samlegðaráhrifin koma út
og einnig þarf að skoða samkeppn-
isstöðu bankanna vegna stærðar-
hlutfalla og hve starfsemi þeirra
er víðtæk á mörgum sviðum, sam-
anber hve stórir þeir eru sem
eignaraðilar í greiðslukortafyrir-
tækjunum. Þetta geta menn skoð-
að án þess að viðræðum sé komið
á. í þessu máli, eins og í hlutafé-
lögum almennt, verður ekkert gert
nema stærsti hluthafinn, ríkið, sé
sammála því að eitthvað sé gert.
Við höfum ekki fengið tilmæli um
það að hefja skuli undirbúning að
sameiningu,“ segir Helgi.
Hann segir að bankaráð
Landsbankans hafi þegar látið
vinna að athugun á því hver sam-
legðaráhrif bankanna yrðu, sem
gefin var út í skýrslu. Það yrði
kallað eftir slíkri vinnu hjá bönk-
unum ef ríkið tæki um það ákvörð-
un að sameina þá.
Helgi segir að hlutirnir gangi
mjög hratt fyrir sig í bankaum-
hverfinu en það breyti þó ekki því
að Landsbankinn geti áfram þróað
sína starfsemi. Hann segir að
bankaráðið hafi ekki sett tíma-
ramma um hugsanlegar viðræður
við Búnaðarbanka.
Lögmenn sýknaðir af
kæru um aðgerðarleysi
HERAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sýknað fyrrverandi og núver-
andi eiganda lögfræðistofu af kröf-
um konu sem taldi stofuna ekki
hafa gætt hagsmuna sinna sem
skyldi með þeim afleiðingum að
hún fékk ekki bætur vegna vinnu-
slyss er leiddi til örorku.
Konan fór fram á að hinir
stefndu yrðu dæmdir fyrir aðgerð-
arleysi og vanrækslu í máli hennar
og til að borga henni 4,9 milljónir
króna með vöxtum.Var þeirri kröfu
hafnað en konan fékk gjafsókn í
• málinu og í'íkissjóður greiðir
málsvarnarlaun verjanda hennar,
400 þúsund krónur.
Lenti í vinnuslysi
15 ára gömul
Málavextir eru þeir að haustið
1989 varð konan, sem þá var 15
ára, fyrir slysi við vinnu við færi-
band í frystihúsi í Höfnum á
Reykjanesi. Fyrirtækið varð
seinna gjaldþrota og kröfulýsing
lögmanna konunnar í skiptabú þess
barst of seint til að hún yrði tekin
til greina. Áður hafði tryggingafé-
lag fyrirtækisins hafnað bótakröfu
hennar þar sem fyrirtækið, sem
hún vann hjá, hafði ekki ábyrgðar-
tryggingu eins og talið hafði verið.
Meðan á þessu stóð hvarf eigandi
lögmannsstofunnar til annarra
starfa og dóttir hans tók við
rekstrinum og máli konunnar.
Stefnandi byggði málsókn sína á
því að yfirgnæfandi líkur hafi verið
fyrir skaðabótaábyrgð fyrirtækis-
ins sakir ófullnægjandi aðstæðna á
vinnustað félagsins. Slysið var á
sínum tíma ekki tilkynnt Vinnueft-
irlitinu, hvorki þegar það átti sér
stað né síðar. í ljós kom að starfs-
menn þess höfðu engar athuga-
semdir haft við búnað færibandsins
sem slysið varð við.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Rekinn
vel nýttur
REKINN er vel nýttur í Ár-
neshreppi á Ströndum. í sögunar-
húsi Sigursteins Sveinbjörnsson-
ar, bónda í Litlu-Ávík, er unnið
allan veturinn. Þegar myndin var
tekin var Sigursteinn að saga
millistaura í girðingar en hann
sagar einnig girðingarstaura,
sperrur og uppistöður og um-
búðalista. Allt er nýtt því afgang-
arnir eru sagaðir í brettakubba
og eldivið til að kynda upp íbúð-
arhúsið. Rekinn virðist alltaf vera
að minnka. Þó rak nokkuð í Ár-
neshreppi í haust og um áramót
en lítið siðan.