Morgunblaðið - 11.04.2000, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 11.04.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 13 FRÉTTIR -— ~m\ í1 ~v''' V.V > X' ; f I 4 isf 1 i|i 8 ik W • \ «1 - Jórdaníukonung- ur væntanlegur í heimsókn KONUNGUR Jórdaníu, Abdullah II, og Rania drottning munu heim- sækja Island í lok maí og dvelja hér í tvo daga. Konungshjónin munu ferð- ast um og kynna sér atvinnulíf hér- lendis og heimsækja m.a. tölvufyrir- tæki. I heimsókninni mun Abdullah eiga viðræður við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta íslands, og Davíð Oddsson forsætisráðherra, samkvæmt upj)- lýsingum frá skrifstofu forseta Is- lands. Þá mun Abdul-Illah Khatib, utanríkisráðheiTa Jórdaníu, vera með í för og mun hann ræða við Hall- dór Ásgrímsson utamTkisráðherra. Abdullah II er 38 ára gamall og tók við konungdómi af Hussein föður sínum við lát hans í febrúar á síðasta ári. Hann er nú í þriggja daga opin- berri heimsókn í Noregi, en að sögn norska utanríkisráðuneytisins var Hussein að undirbúa opinbera heim- sókn til Noregs í fyrra, en aflýsti þeim vegna veikinda sem síðan drógu hann til dauða. Hussein Jórdaníukonungur kom nokkrum sinnum til íslands, bæði í opinberar og óformlegar heimsókn- ir. Fjölmenn kynning á háskólanámi ÞUSUNDIR væntanlegra nýnema á háskólastigi notuðu tækifærið á sunnudag til að kynna sér margvís- legt nám sem í boði verður næsta vetur. Allir skólar landsins sem kenna á háskólastigi voru með kynningu þennan dag. Að sögn Valdísar Gunnarsdóttur, kynningarfulltrúa HI, var kynning- in vel sótt og heppnaðist vel í alla staði. I fyrra var tekið upp nýtt fyr- irkomulag á námskynningunni þeg- ar háskólastigið tók sig út úr, en áð- ur hafði námskynningin verið mjög umsvifamikil með öllum sérskólum landsins. Valdís segir að líklega hafi þó verið meiri aðsókn í fyrra, því þá hafi afskaplega gott veður orðið til þess að aðsókn var með mesta móti. Borgarstjórn sendir heilbrigðisyfírvöldum áskorun Flýtt verði uppbyggingu heilsugæslu í Grafarvogi BORGARSTJÓRN hefur samþykkt samhljóða tillögu minnihluta Sjálfstæðisflokks um að skora á heilbrigðisyfirvöld að flýta uppbyggingu nýrrar heilsugæslustöðvar í Spönginni í Grafarvogi og sjá til þess að fleiri en ein heilsugæslustöð þjóni hverfinu í framtíðinni. I tillögunni er tekið fram að borgarstjórn styðji óskir íbúa í Foldahverfi um að heilsugæsluþjón- usta verði ekki flutt á brott þaðan þegar ný stöð rís í Spönginni. Jafnframt segir að borgarstjórn leggi áherslu á að heilsugæslustöð Hlíðahverfis í Drápuhlíð 14 fái hið íyrsta til afnota fyrrverandi aðsetur Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. I greinargerð með tillögu sjálfstæðismanna segir að þeir hafi flutt tillögu árið 1998 í borgar- stjórn, þar sem mótmælt var áformum um að loka heilsugæslustöðinni við Hverafold, þegar ný stöð risi í Spönginni. Jafnframt var lögð áhersla á að fleiri en ein heilsugæslustöð þjónaði Grafar- vogi í framtíðinni. Meirihluti Reykjavíkurlista í borgarstjórn hafi vísað tillögunni til stjórnar heilsugæslunnar, en meirihluti stjórnar heilsu- gæslunnar vilji að ein heilsugæslustöð þjóni Grafarvogshverfi. Fram kemur að borgarráð hafi samþykkt samhljóða ályktun um uppbyggingu heilsugæslunnar með áherslu á að þjónusta í suð- urhluta hverfisins verði áfram til staðar þó hafin verði uppbygging annarsstaðar. Bent er á að meirihluti heilsugæslunnar í Reykjavík hafi enn ekki brugðist við þeirri samþykkt og er athygli vakin á að enn hafi ekki verið undirritaður kaup- eða leigusamningur vegna nýs húsnæðis í Spöng- inni. - bíll fyrir Mazda Premacy er sannkallaöur fjölskyldubíll. Viö hönnun hans var kappkostaö við að tryggja ítrasta öryggi, bestu þægindi, nægilegt rými og fjölbreytta notkunarmöguleika. Nú kostar Premacy aðeins kr. 1.749.000 Komdu og kynntu þér hann nánar! Skúlagötu 59. slmi 540 5400 www.raesir.is Isafjðrður: Bflatangi ehf. Akureyri: BSA hf. Egilsstaðir: Bflasalan Fell Selfoss: Betri bílasafan Vestmannaeyjar: Ðifreiðaverkstaeöi Muggs Akranes: Bllás Keflavlk: Bflasala Keflavlkur Hornafjörður: Vílsmlöja Hornafjarðai
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.