Morgunblaðið - 11.04.2000, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Fyrsta skóflustungan að leikskóla með 80 rýmum var tekin í Asahverfí í gær
María Grétarsdóttir, formaður leikskólanefndar Garðabæjar, tekur fyrstu skóflustunguna
en hjá henni standa Ingimundur Sigurpálsson bæjarsljóri og aðrir bæjarfulltrdar.
Leikskólinn mun rísa við Bergás 1 í Ásahverfi.
Utlit hússins
nokkuð
óvenjulegt
Garðabær
í GÆR var tekin fyrsta
skóflustungan að íjögurra
deilda leikskóla 1 Asahverfi
í Garðabæ. Gert er ráð fyr-
ir að leikskólinn verði tek-
inn í notkun næsta vor.
Húsið sjálft verður um
710 fermetrar, en lóðin er
um 5000 fermetrar, og er
leikskólanum ætlað að geta
sinnt um 80 börnum. Gert
er ráð fyrir að fram-
kvæmdum Ijúki í apríl 2001
og að kostnaður við þær
nemi 120 milljónum króna.
Útlit hússins er nokkuð
óvenjulegt en steinsteyptir
vcggirnir verða klæddir
grásteini og bandsagaðri
furu að hluta og verður
þakið klætt 10 sentimetra
þykku torflagi. Arkitekt
hússins er Albina Thordar-
son en Kjartan Mogensen
landslagsarkítekt er hönn-
uður lóðar. María Grétar-
sdóttir formaður leikskóla-
nefndar Garðabæjar tók
fyrstu skóflust.unguna í
gærmorgun og börn af
leikskólunum Bæjarbóli og
Kirkjubóli aðstoðuðu við
moksturinn og sungu „Á ís-
lensku má alltaf finna
svar“ fyrir viðstadda.
Gunnar Einarsson för-
stöðumaður fræðslu- og
menningarsviðs Garðabæj-
ar segir að með þessum
nýja leikskóla verði staða
leikskólamála í Garðabæ
orðin mjög góð. Með þess-
um áttatíu viðbótarrýmum
sé bærinn kominn langleið-
ina með að hafa 400 heils-
dagsleikskólapláss til ráð-
stöfunar og þar sem börn á
aldrinum tveggja til sex
ára í Garðabæ séu rúmlega
500 talsins verði hægt að
bjóða öllum börnum bæjar-
ins leikskólavist
Morgunblaðið/Kristinn
Börn af leikskólunum Bæjarbóli og Kirkjubóli voru viðstödd þegar fyrsta skóflustungan var
tekin. Þau mættu, hvert með sína skóflu, og aðstoðuðu við moksturinn.
Reynt að breyta viðhorfí foreldra í Vesturbæ til áfengisdrykkju unglinga
Forvarnarvinna er
eilífðarverkefni
Vesturbær
UNNIÐ er að sérstöku átaki í
forvarnarmálum í Vestur-
bænum um þessar mundir, en
á síðasta ári var skipaður sér-
stakur stýrihópur sem í sam-
vinnu við forvamardeild SÁA
hefur haft það meginmarkmið
að mynda heildstæða stefnu í
forvömum í hverfinu. Þetta
kom fram í samtali Morgun-
blaðsins við Hildigunni Gunn-
arsdóttur, námsráðgjafa í
Hagaskóla og fulltrúa í stýri-
hópnum, en forvamarverk-
efnið er framlag til áætlunar-
innar „ísland án eiturlyfja".
Að sögn Hildigunnar er
fyrst og fremst verið að reyna
að hafa áhrif á það hvenær
unglingar byrja að drekka
áfengi, og þá sérstaklega bjór
því hann sé undanfari sterkra
drykkja, en hún sagði að þeim
mun seinna sem unghngar
byrjuðu að drekka áfengi
þeim mun betra. Hún sagði að
mikil áhersla væri lögð á það
að breyta viðhorfi foreldra til
áfengisdrykkju unglinga, en í
nýlegri könnun um vímuefn-
aneyslu unglinga í 10. bekk í
Vesturbænum hefði komið í
ljós að af þeim sem drekka
bjór, gera um 70% þeirra það
í heimahúsum.
„Hugmyndafræði verkefn-
isins er byggð á því að allir
beri vissa ábyrgð, en ekki
bara skólinn, bara foreldrar
eða bara félagsmiðstöðvam-
ar,“ sagði Hildigunnur. „Við
viljum reyna að breyta hverf-
isvitundinni og viðhorfum hér
þannig að við samþykkjum
ekki að unglingar drekki bjór
í heimahúsum. Skilaboðin
þurfa að vera skýr - einn sopi
er einum sopa of mikið.“
Stýrihópur forvamarverk-
efnisins er skipaður sjö aðil-
um frá ýmsum stofnunum og
félögum í hverfinu og sótti
hópurinn námskeið hjá SÁA
um fornvamarmál og sagði
Hildigunnur að stefnt væri að
því að miðla þeirri þekkingu
til íbúa hverfisins, þannig að
hún gæti nýst í áframhald-
andi þróun forvamarstarfs.
Hildigunnur sagði að stýri-
hópurinn hefði gert forkönn-
un á ástandinu í hverfinu,
m.a. með því að ræða við
svokallaða lykilaðila, sem
koma að málefnum bama og
unglinga. Þeir lykilaðilar sem
koma að verkefninu eru m.a.
kirkjan, KR, skólinn, skátar,
heilsugæslan, RKÍ og ÍTR.
Auk þess að ræða við þessa
Morgunblaðið/Kristinn
Hildigunnur Gunnars-
dóttir, námsráðgjafi í
Hagaskóla, á sæti í stýri-
hópi sem hefur það
markmið að marka heild-
stæða stefnu í forvamar-
málum í Vesturbænum.
aðila var stuðst við rannsókn-
ir á vímuefnaneyslu unglinga.
Að sögn Hildigunnar leiddi
forkönnunin í ljós að umburð-
arlyndi gagnvarnt unglinga-
drykkju, sérstaklega bjór-
dykkju, væri til staðar í
hverfinu og að unglingar ættu
auðvelt með að útvega sér
vímuefni. Þetta endurspegl-
ast síðan í könnuninni sem
vitnað var í hér að ofan, en í
henni kom einnig í ljós að rúm
46% nemenda í Vesturbæ
höfðu dmkkið bjór einu sinni
eða oftar síðustu 30 daga áður
en könnunin fór fram.
Hildigunnur sagði að eftir-
litsleysi eða umsjónarleysi
með börnum og unglingum
væri þáttur sem sérstaklega
þyrfti að huga að. Foreldrar
ynnu margir hverjir langan
vinnudag og ungmennin væra
mikið ein, ábyrgð þeirra á
sjálfum sér og yngri systkin-
um væri því mikil. Hún sagði
að hlutverk stýrihópsins væri
m.a. að beita sér fyrir fræðslu
og ráðgjöf til fullorðinna um
ýmsa þætti sem tengdust
uppeldi.
Foreldrar þakklátir
Hildigunnur sagði að í
Hagaskóla væri aðaláherslan
lögð á það að styrkja foreldr-
ana með því að bjóða þeim
upp á fræðslufundi og nem-
endurna í gegnum lífsleikni-
tímana, en í þeim tímum er
rætt um allt mögulegt, sem
tengist daglegu lífi, þar á
meðal vímuefni. Hún sagði að
frumkvæðið þyrfti að koma
frá foreldram.
„Við verðum að vinna þetta
saman því skólinn er engan
veginn undir það búinn að
vinna þetta einn, foreldrarnir
verða að vera með því börnin
era meirihluta dagsins í
þeirra umsjá.“
Hildigunnur sagði að hald-
inn hefði verið fundur með
bekkjarfulltrúum 8. bekkjar
og staðan rædd. í framhaldi
af því hefðu verið haldnir
fundir með öllum foreldrum
fjögurra af sjö 8. bekkjum
skólans og að þeir foreldrar
sem hefðu mætt hefðu verði
mög þakklátir fyrir framtak-
ið.
Starfi stýrihópsins lýkur
formlega í haust þegar for-
vamarstefna Vesturbæjar
liggur fyrir. Hildigunnur
sagði að í stefnunni yrði fyrst
og fremst lögð áhersla á það
að efla samstarf lykilaðila í
hverfinu, styrkja foreldra og
bjóða upp á fjölbreytt tóm-
stundastarf á hagstæðu verði.
„Þetta er lokapunkturinn á
starfi hópsins, en auðvitað er
forvarnarvinna eilífðarverk-
efni.“
Salti dreift
í skíða-
brekkurnar
í Skálafelli
Skálafell
UNDANFARIÐ hefur salti
verið dreift í skíðabrekkurnar
í Skálafelli og snjórinn þannig
frystur, en að sögn Hauks
Stefánssonar, rekstrarstjóra
Skálafells, er þetta tilraun til
að búa til betra skíðafæri og
jafnvel lengja skíðavertíðina.
„Við notum snjótroðarana í
verkið, en framan á þá höfum
við sett glussadrifmn áburð-
ardreifara, en í staðinn fyrir
að setja áburð í dreifarann þá
setjum við salt,“ sagði Hauk-
ur. „Síðan keyrum við um
brekkurnar og söltum þær,
en þegar saltið blandast
snjónum frýs hann og síðan
myndast smá salli ofan á hon-
um sem gerir það að verkum
að til verður algjört drauma-
færi.“
Haukur sagði að þetta
hefði verið gert hérlendis fyr-
ir skíðakeppnir en aldrei fyrir
almenning.
„Þetta er bara tilraun hjá
okkur, en það er greinilegt að
fólki líkar þetta vel. Um dag-
inn söltuðum við bara öðrum
megin við diskalyftuna og eft-
ir það skíðuðu nánast allir
þeimmegin, enda mun auð-
veldara þar sem færið verður
mun betra við þetta.“
Haukur sagði að þetta
kostaði að vísu sitt en samt
ekki það mikið að það væri
ekki væri þess virði að prófa.
„Það fara svona um 1,5 til 2
tonn af salti á dag í brekkurn-
ar, en tonnið kostar svona
9.000 krónur."
Að sögn Hauks eru allar
brekkur saltaðar á hverjum
degi á vissum stað í Colorado
í Bandaríkjunum og sagði
hann að fyrir vikið væri skíða-
vertíðin þar um 2 mánuðum
lengri en hjá öðram stöðum í
nágrenninu. Hann sagði því
vel mögulegt að lengja skíða-
vertíðina hér með þessu móti.
Að sögn Hauks er færið í
Skálafelli ágætt um þessar
mundir, en hann sagði að það
hefði ekki verið meiri snjór í
fjallinu í 10 ár.
„Snjóalög era almennt
hrikalega góð og við eram al-
veg í skýjunum með það. Að-
sóknin hefur hinsvegar verið
dræm í vetur því veðrið hefur
verið mjög leiðinlegt og
óvenju miklir umhleypingar."
-----*-+-*-----
Knatt-
spyrnuhús í
Vetrarmýri
BÆJARSTJÓRN Garða-
bæjar hefur samþykkt að
heimila Knatthúsum, Skelj-
ungi og P. Samúlessyni
(Toyota) að vinna tillögu að
deiliskipulagi fyrir lóð í
Vetrarmýri í samstarfi við
skipulagsyfirvöld, en þar
hyggjast aðilarnir reisa
knattspyrnuhús og aðlaga
bygginguna að þeirri at-
vinnustarfsemi, sem fyrir-
tækin standa fyrir.
Aðilarnir þrír sendu bæj-
aryfirvöldum í Garðabæ
bréf þann 31. mars, þar sem
þeir fóru fram á að fá út-
hlutað 7,9 ha lóð í Vetrar-
mýri, á svæði sem afmark-
ast af Reykjanesbraut í
vestri og Vetrarmýrarbraut
í austri. Formleg úthlutun
lóðarinnar er háð samþykki
bæjarstjórnar á deiliskipu-
lagi svæðisins.