Morgunblaðið - 11.04.2000, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Bæjarstjórinn á Akureyri segir hæga fjölgun íbúa nokkurt áhyggjuefni
Bærinn vel í stakk búinn til
að taka á móti nýjum íbúum
Launagreiðslur og launatengd gjöld
bæjarins hækkuðu um 9,2% milli ára
en heildarskatttekjur um 5,7%
Möguleikhúsið sýnir á
Dalvík og Húsavík
Langafi
prakkari á
fjalirnar
MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir barna-
leikritið Langafi prakkari á Dalvík og
Húsavík dagana 12. og 13. apríl.
Leikritið, sem er eftir Pétur Eggerz,
byggist á sögum sögum Sigrúnar
Eldjárn, „Langafi drullumallar“ og
„Langafi prakkari“.
í leikritinu segir frá lítilli stúlku,
Önnu, og langafa hennar. Þó langafi
sé blindur og gamall er hann alltaf til-
búinn að taka þátt í einhverjum
skemmtilegum uppátækjum með
Önnu litlu. Hann passar hana alltaf á
daginn þegar pabbi hennar og
mamma eru í vinnunni. Þá hefur
hann nægan tíma til að sinna henni
og þau gera ýmislegt skemmtilegt
saman. Þau skoða mannlífið, baka
drullukökur, veiða langömmur og
fleira. Þetta er enginn venjulegur
langafi.
Langafi og Anna eru leikin af þeim
Bjarna Ingvarssyni og Hrefnu Hall-
grímsdóttur, leikstjóri Pétur Eggerz,
búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir
og tónlist er eftir Vilhjálm Guðjóns-
son.
Sýningin á Dalvík verður í sal Dal-
víkurskóla miðvikudaginn 12. apríl
og hefst kl. 18 og á Húsavík verður
sýnt í Borgarhólsskóla fimmtudaginn
13. apríl kl. 17. Einnig verður sýnt í
nokkrum leikskólum á Akureyri.
ÁRSREIKNINGAR Akureyrar-
bæjar fyrir síðasta ár voru lagðir
fram á fundi bæjarstjórnar í vik-
unni. í máli Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar bæjarstjóra kom fram að
fjárhagstaða bæjarins væri sterk
og að hún hafi batnað á síðasta ári.
Framkvæmdir hafi verið miklar á
árinu, sérstaklega hjá bæjarsjóði
og að vel hafi verið búið í haginn
fyrir íbúana og atvinnulíf í bænum.
Kristján Þór sagði þó að hæg
fjölgun íbúa væri nokkurt
áhyggjuefni en óhætt væri að
segja að Akureyrarbær bjóði íbú-
um sínum bætta þjónustu og af-
þreyingarmöguleika með þeim
áföngum sem lokið var við á árinu.
„Vil ég leyfa mér að fullyrða að sú
fjölbreytta og víðtæka þjónusta,
sem bærinn veitir, sé með því
besta sem gerist hjá sveitarfélög-
um. Þannig viljum við líka hafa
það og Akureyrarbær er því vel í
stakk búinn til að taka á móti nýj-
um íbúum.
Kristján Þór sagði að rekstur
bæjarins hafi verið í góðu jafnvægi
og í öllum meginatriðum í sam-
ræmi við áætlun, þegar á heildina
sé litið. Engur að síður sé ætíð
nauðsynlegt að halda vöku sinni og
gæta aðhalds og ráðdeildar í
rekstri. Launagreiðslur og launa-
tengd gjöld í bæjarsjóði á sl. ári
voru rúmir 2,5 milljarðar króna og
hækkuðu um 9,2% frá árinu áður,
að sögn Kristjáns Þórs. Heildar-
skatttekjur bæjarsjóðs voru á
sama tíma 2,4 milljarðar króna og
hækkuðu um 5,7% frá fyrra ári.
78 íbúðir innleystar í
félagslega kerfínu
Bæjarstjóri fjallaði einnig um
félagslegar íbúðir en miklar breyt-
ingar áttu sér stað í félagslega
íbúðakerfinu um áramótin 1998-
1999, er ný löggjöf um íbúðalána-
sjóð tók gildi. Hætt var að veita
lán til sveitarfélaga til byggingar
félagslegra íbúða, annarra en leig-
uíbúða og tekin upp svokölluð við-
bótarlán til einstaklinga. íbúða-
lánasjóður sagði upp samningi sem
verið hafði í gildi milli Akureyrar-
bæjar og Húsnæðsstofnunar ríkis-
ins um rekstur Húsnæðisskrifstof-
unnar á Akureyri. Allt kallaði
þetta á breytingar hjá bænum, að
sögn bæjarstjóra, og var Húsnæð-
isskrifstofan lögð niður á árinu og
verkefnin flutt til húsnæðisdeildar
á fjármálasviði og til bygginga-
deildar.
I fyrra voru 20 íbúðir í smíðum í
Snægili á vegum húsnæðisnefndar
og voru 16 þeirra afhentar kaup-
endum í desember sl. og 4 íbúðir
voru afhentar nú í ársbyrjun.
Þetta eru jafnframt síðustu íbúð-
irnar sem húsnæðisnefnd lætur
byggja, að minnsta kosti að sinni.
í máli bæjarstjóra kom einnig
fram að Akureyrarbær innleysti
78 íbúðir í félagslega kerfinu á síð-
asta ári. Tólf íbúðum var ráðstafað
sem félagslegum íbúðum til þeirra
sem höfðu sótt um íbúð fyrir 15.
júní 1998, en þeir áttu rétt á kaup-
um á íbúð samkvæmt eldri lögum.
Þá voru 20 íbúðir gerðar að leigu-
íbúðum og 40 seldar á frjálsum
markaði. I árslok voru 6 íbúðir
óseldar.
ítrekaðar óskir um
greiðslur úr varasjóði
Kristján Þór sagði að ein af
þeim breytingum sem gerð var um
áramót á húsnæðislöggjöfinni var
að stofnaður var varasjóður, sem
hefur m.a. það hlutverk að fjár-
magna hluta þess halla sem getur
myndast við sölu á félagslegum
íbúðum úr „kerfinu". Skipuð var
nefnd félagsmálaráðuneytisins og
Sambands íslenskra sveitarfélaga
um kostnaðarskiptingu hallans við
sölu íbúðanna á frjálsum markaði
milli varasjóðsins annars vegar og
viðkomandi sveitarfélags hins veg-
ar.
„Félagsmálaráðherra hefur ekki
staðfest samkomulagið og hafa því
engar greiðslur borist úr varasjóði
til þeirra sveitarfélaga sem selt
hafa íbúðir úr félagslega húsnæð-
iskerfinu með tapi. Akureyrarbær
á nú inni hjá varasjóði á 5. tug
milljóna króna sem ekki hafa feng-
ist greiddar þrátt fyrir ítrekaðar
óskir þar um. Er sá dráttur sem
verið hefur á afgreiðslu mála með
öllu ólíðandi, sagði bæjarstjóri.
Akureyrarbær á nú 182 leigu-
íbúðir en á síðasta ári fjölgaði
þeim um 20 og var kaupverð
þeirra 131,3 milljónir króna eða að
meðaltali rúmar 6,5 milljónir
króna hver íbúð. Ný langtímalán
að fjárhæð 118 milljónir króna
voru tekin vegna þessa á árinu.
Nema langtímaskuldir samtals 822
milljónum króna vegna leiguíbúða.
------------------
Borgara-
fundur um
áfeng’is-
og fíkni-
efnamál
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra ávarpar borgarafund um
áfengis- og fíkniefnamál sem haldinn
verður í Gryfjunni, sal Verkmennta-
skólans á Ákureyri, í kvöld, þriðju-
dagskvöld, 11. apríl.
Skólameistarar framhaldsskól-
anna, Hjalti Jón Sveinsson og
Tryggvi Gíslason, flytja ávörp, Kar-
en Malmquist, forvarnarfulltrúi í
VMA, ræðir um forvarnir í fram-
haldsskólum, Steinnunn Vala Sigfús-
dóttir, fráfarandi formaður Hugins,
skólafélags MA, ræðir um félagslíf í
framhaldsskólum og Guðný María
Jóhannsdóttir, formaður Þórdunu,
skólafélags VMA, fjallar um
skemmtanalífíð. Hildur Jana Gísla-
dóttir háskólanemi fjallar um það að
lenda á glapstigum og Daníel
Snorrason, lögreglufulltrúi í rann-
sóknardeild lögreglunnar á Akur-
eyri, segir frá eiturlyfjabylgjunni á
Ákureyri.
Að loknum erindum verða pall-
borðsumræður með framsögumönn-
um auk sýslumannsins á Akureyri.
Þá fjallar Kjartan Ólafsson hjá
Rannsóknum og greiningu frá nýj-
um neyslutölum úr 10. bekk og
tengsl neyslu við uppeldishætti og
tómstundir. Ólafur Thoroddsen
skólastjóri segir frá stöðunni í
grunnskólanum, fulltrúi sjálfshjálp-
arhóps foreldra ræðir um aðhald og
aðstoð foreldra, Helga Steinunn
Guðmundsdóttir, formaður KA, seg-
ir frá forvarnarverkefni KA og Ak-
ureyrarkirkju, María Jónsdóttir í
Kompaníinu ræðir um þátt félags-
miðstöðvanna, Fjölskylduvænn bær
er heiti á erindi Kristjáns Þórs Júl-
íussonar bæjarstjóra og loks greinir
Kristín Sigfúsdóttir, formaður
áfengis- og vímuvarnarnefndar, frá
því hvaðbæjarfélagið hefur gert í
forvarnarmálum.
I sóknarhug
EF VÆRI EG SA SEM Æ7TI AÐ
SEUA ÍMYND EYJAFJARÐARSVÆÐISINS...
Hádegisverðarfundur með
Einarí Karii Haraldssyni, forstöðumanni
almenningstengsla GSP - Gœðamiðlunar, og
Ómari Ragnarssyni, fréttamanni á Sjónvarpinu,
á Fiðlaranum, Skipagötu 14, miðvikudaginn
12. aprfl frá kl. 12.00 til 13.00
•Hverskonar ímynd vilja þeir selja?
•Hvaö þurfa heimamenn aö laga til aö selja þá ímynd?
•Hvernig ættu þeir að móta þá ímynd?
•Hafa Akureyri og Eyjafjörður sömu ímynd?
•Um hvaö snýst ímynd?
Þetta, og ýmislegt fleira, munu Einar Karl og
Ómar fjalla um og svara spurningum fundarmanna.
Verð kr. 1.000 (léttur hádegisverður innifalinn)
Allir velkomnir
Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 461 2740
eða á netfangi benedikt@afe.is.
Norðurlands
Ársfundur
Lífeyrissjóðs Norðurlands
verður haldinn í félagsheimili Húsavíkur
miðvikudaginn 19. aprfl 2000 kl. 1400
_______Dagskrá:_________________
1 Venjuleg ársfundarstörf
2 Breytingar á samþykktum
3 Önnurmál
Fundurinn eropinn öllum sjóðfélögum
og eru þeir hvattir til að mæta.
Lifeyrissjoður Norðurlands • Skipagötu 14 • 600 Akureyn
Sfmi: 4Ó0 4500 • Fax: 460 -501 • Netfang: lnord@lnord.is
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000 Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is