Morgunblaðið - 11.04.2000, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Luku
dans-
kennslu
með sýn-
ingu
Flateyri - Það var ánægður
hópur ungmenna sem sýndi
glæsileg tilþrif í dansmennt-
inni í Félagsheimili Flateyrar
fyrir skemmstu. Sjá mátti
hvern glæsidansinn á eftir
öðrum og ekki laust við að
þar væri margur efnilegur
dansarinn á ferð. Eftir viku-
námskeið undir styrkri stjórn
danskennarans, Hinriks N.
Valssonar, var boðið til sýn-
ingar þar sem foreldrar og
vandamenn mættu og höfðu
gaman af.
Dansnámskeiðið á Flateyri
var styrkt myndarlega af
Rauða krossi Íslands, Grunn-
skóla Flateyrar og íbúasam-
tökum Önundarfjarðar. Einn-
ig var boðið upp á
dansnámskeið á Suðureyri og
Þingeyri.
Hinrik, sem er sjálfstætt
starfandi danskennari, kvaðst
ferðast víða um landsbyggð-
ina á veturna til að kenna
dans, sá tími væri bestur þar
eð enginn áhugi væri fyrir að
læra dans á sumrin þegar sól
skini utandyra.
Morgunblaðið/Ásmundur Friðriksson
Vöruval að-
alstyrktar-
aðili pæju-
mótsins
Vestmannaeyjum - Nýlega var
gengið frá samningum villi verslun-
arinnar Vöruvals í Vestmannaeyj-
um og IBV, íþróttafélags, en Vöru-
val verður nú aðalstyrktaraðili hins
vinsæla pæjumóts.
Vöruval er fyrsta fyrii-tækið í
Eyjum sem verður stærsti stjrktar-
aðili þessa móts. Mótið heitir því
Vöruvalsmótið og verður haldið
dagana 14. til 18. júní nk. og er
reiknað með 1.000 þátttakendum.
Endurbótum á hótelinu
í Stykkishólmi lokið
Stykkishólmi - Lokið er miklum
endurbótum á hótelinu í Stykkis-
hólmi og var þeim áfanga fagnað
laugardaginn 8. apríl og hótelið
formlega tekið í notkun að nýju.
Bæjarbúum var boðið að skoða
breytingarnar og þiggja veitingar.
Húsið var tekið allt í gegn að
innan. Skipt var um gler í öllu hús-
inu, öll herbergi tekin í gegn, keypt
húsgögn og gluggatjöld. Sjónvarp
er í hverju herbergi og eins tölvut-
enging fyrir netþjónustu. Lyfta var
sett í húsið. Eftir er að mála hótel-
ið að utan og verður það gert eins
fljótt og veður leyfir.
Það er eigandi hótelsins, Þór hf.,
sem kostaði framkvæmdirnar og
kostuðu þær 34 milljónir króna. Yf-
irumsjón með verkinu hafði Ólafur
Sveinsson iðnráðgjafi, en verkið
var að mestu leyti unnið af heima-
mönnum.
Hótelið mikilvægt fj rir
ferðaþjónustuna
Sturla Böðvarsson samgöngur-
áðherra ávarpaði gesti og lýsti
endurgerð hótelsins lokið. í máli
hans kom fram að hótelið í Stykk-
ishólmi skiptir miklu máli fyrir
ferðaþjónustuna á Snæfellsnesi og
þessar endurbætur koma til með
að efla þá þjónustu til muna. Hann
var að vonum ánægður með hvern-
ig til hefur tekist en hann hefur
fylgst vel með rekstri hótelsins frá
því hann hófst. Ferðaþjónusta á
Þessir menn tengjast rekstri hót-
elsins í Stykkishólmi og voru
mættir til gleðjast yfir að endur-
bótiun á hótelinu er lokið. Sitj-
andi frá vinstri: Rúnar Gíslason,
forseti bæjarstjórnar, Óli Jón
Gunnarsson bæjarsljóri. Stand-
andi frá vinstri: Ólafur Sveins-
son, umsjónarmaður með endur-
bótum, Ölafur Hilmar Sverris-
son, formaður hótelfélagsins
Þórs hf., Sæþór Þorbergsson
hótelstjóri, Ólafur Haukur
Magnússon, framkvæmdastjóri
Fosshótela, og Hallgunnur
Skaptason, markaðsstjóri Foss-
hótela.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Hótelið í Stykkishólmi var tekið
í notkun árið 1977. Það stendur
á fögrum stað í bænum og út-
sýnið yfir Breiðafjörð er sérlega
fallegt úr herbergjunum.
íslandi er mikilvæg atvinnugrein
og Sturia fagnaði hverjum nýjum
áfanga á landsbyggðinni sem
styrkti þá atvinnugrein.
Fosshótelkeðjan tók við rekstri
hótelsins fyrir ári og var gerður
samningur við eigendur hótelsins
til 10 ára. Hótelstjóri er Sæþór
Þorbergsson.
Halla B. Albertsdóttir, Þórunn Torfadóttir og Berg-
ur Jónmundsson höfðu gaman af ungviðinu.
Landbúnaðar-
kynning í Borg-
arhólsskóla
Laxamýri - Þema um landbúnað stendur nú yfir í 4. bekk
Borgarhólsskóla á Húsavík, en námsefnið er fléttað inn í
samfélagsfræðikennsluna. Reynt er að gera efnið lifandi
og eftirminnilega tilbreytingu í skólastarfinu og stendur
jrfir í nokkrar vikur.
Á dögunum fóru nemendur í rútuferð á nokkra bæi þar
sem þeir fengu að sjá búfénað. Farið var í fjós að
Fremstafelli í Ljósavatnshreppi þar sem er nýlegur
mjaltabás með fullkomnum mjaltabúnaði og að því loknu
var farið í heimsókn að bænum Rauðá þar sem mikið er
af geitum.
Nýfæddir kiðlingar vöktu mikla hrifningu og allir vildu
halda á þeim og klappa.
Pylsuveisla var á ferðaþjónustunni að Fosshóli og ferð-
in endaði á hestabýlinu Saltvík þar sem boðið var á hest-
bak í reiðskálanum hjá Vilhjálmi Pálssyni og Védísi
Bjarnadóttur.
Ullarvinna í handavinnutímum
Kynning þessi á landbúnaði kemur inn á mörg svið at-
vinnugreinarinnar og hafa krakkamir áður heimsótt
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Nemendur handleika ullarkambana.
Mjólkursamlagið sem þeim fannst mjög gaman af að
skpða.
I skólanum sjálfum fer fram ýmisleg verkefnavinna og
tengist þemað list- og verkgreinum þannig að í handa-
vinnutímum er farið í ullarvinnu. Skólinn hefur komið sér
upp ullarkömbum og snældum til þess að geta leyft nem-
endum að kynnast gömlum vinnubrögðum og er það vin-
sælt námsefni. Þá smíða þau kindur úr tré í smíðatímum
og syngja um dýrin í tónlistinni auk þess að vinna við
vísna- og Ijóðagerð um húsdýrin.
Skriflegt verkefnahefti, Áð lesa, reikna og skrifa um
sveitina, er unnið í kennslustundum, en þar er reynt að
tengja grunngreinarnar við landbúnaðarþemað. Byggist
það á texta um daglegt líf í sveit og verkefnum um húsdýr
og gróður.
Venja er að allir 4. bekkingar Borgarhólsskóla taki
þátt í verkefni sem þessu.
Slökkvilið Bolungarvíkur
Átta ritköll á
síðasta ári
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Frá starfi Slökkviliðs Bolungarvíkur.
Bolungarvík - Bol-
víkingar urðu ræki-
lega minntir á
slökkvilið bæjarins í
liðinni viku er liðið
hélt eina af sínum
reglulegu æfingum,
því öllum bílaflota
Hðsins ásamt
sjúkrabíl og lög-
reglu var ekið um
bæinn með tilheyr-
andi blikkljósum og
sírenuvæU.
Að sögn Ólafs
Þórs Benediktsson-
ar slökkviliðsstjóra
var helsta verkefni
æfingarinnar að
æfa notkun dælu-
bílanna og tengingu
þeirra við bruna-
hana, ekki síst þar sem 6 nýUðar voru
að koma inn í Uðið.
Liðsmenn slökkviUða í Utlum bæj-
arfélögum þurfa að vera vel að sér í
öllum þeim þáttum er lúta að slökkvi-
starfi því ekki getur verið um sérhæf-
ingu að ræða þar sem breytilegt get-
ur verið hversu margir Uðsmenn eru
til staðar ef til útkaUs kemur.
í aðalUði slökkviUðs Bolungarvíkur
eru 24 einstakUngar en auk þeirra eru
á skrá í svokölluðu varaliði allnokkrir
einstaklingar sem áður hafa verið í
aðaUiðinu og eru til taks ef til stórað-
gerða kemur. Einnig er mjög gott
samstarf við slökkvilið ísafjarðar.
Að sögn Ólafs Þórs var slökkviUðið
kallað átta sinnum út á sl. ári en í öU-
um tilfellum var um minniháttar
bnma að ræða og í sumum tilfellum
aðeins grunur um eld.
Liðsmenn slökkviUðsins annast
einnig sjúkraflutninga og voru útköll
vegna þeirra 48 á sl. ári.
Boðunarkerfi slökkviHðs Bolungar-
víkur er í gegnum símboða sem ræst
er frá 112 eða yfirmönnum liðsins en
fyrir liggur að það kerfi verði lagt nið-
ur um næstu áramót og er ekki enn
ljóst hvers konar útkallskerfi kemur
til með að taka við.
Ólafur Þór sagði að önnur verkefni
liðsins væru t.d. eldvarnaeftirUt og
ýmiskonar forvamarstarf því tengdu,
t.d. hafa stjórnendur grunnskóla Bol-
ungarvíkur verið í mjög góðu sam-
starfi við slökkviHðið í hverskonar
fræðsluverkefnum fyrir nemendur
skólans og í skólabyggingunni er virk
rýmingaráætlum sem æfð er reglu-
lega.
Mengunareftirlit
vaxandi þáttur
Annar þáttur sem er að verða vax-
andi í starfi og þjálfun Uðsins er meng-
unareftirlit og viðbrögð við mengunar-
slysum.
Tækjakostur slökkviliðsins er kom-
inn nokkuð tU ára sinna, en þar er um
að ræða Bedford-dælubíl árgerð 1963.
Bens-dælubíl árgerð 1967 og Bens-
tankbíl árgerð 1987. Ólafur sagði að
það gæfi augaleið að
allt viðhald og umhirða þessara
tækja væri tU muna tímafrekara og
dýrara þegar um er að ræða svona
gamlan búnað.