Morgunblaðið - 11.04.2000, Síða 23

Morgunblaðið - 11.04.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 23 VIÐSKIPTI Jón Sigurðssoii, forstjóri Össurar hf., um kaupin á bandaríska fyrirtækinu Flex-Foot Markaður okkar er heim- urinn allur Stoðtækjafyrirtækið Flex-Foot er í mynd- arlegu húsnæði á Los Angeles-svæðinu, í hjarta Orange-sýslu. Að sögn kunnugra er hvergi í Bandaríkjunum að fínna fleiri fyrir- tæki á einum stað, sem framleiða lækninga- tæki og ýmiss konar búnað fyrir heilbrigðis- stofnanir og sjúklinga. Ragnhildur Sverrisdóttir heimsótti höfuðstöðvar Flex- Foot, þar sem lögð er mikil áhersla á öflugt rannsóknar- og þróunarstarf. FORSVARSMENN Flex-Foot eru stoltir af fyrirtækinu, sem þeir segja leiðandi á sínu sviði, í framleiðslu gerviökkla, og við heimsókn í höfuð- stöðvarnar leynir sér ekki að mikil áhersla er lögð á rannsóknar- og þró- unarstarf, enda ætlar Flex-Foot sér að halda forystuhlutverkinu. Þar stendur fyrirtækið nú sterkar að vígi en áður, því með kaupum Össurar hf. á fyrirtækinu eru sameinuð fyrir- tækin annar stærsti framleiðandi stoðtækjalausna í heiminum. Starf- semi þeirra fellur vel saman, styrk- leiki Flex-Foot felst í gerviökklun- um, auk þess sem það hefur þegar þróað gervihné, fyrirtækin tvö munu halda áfram því þróunarstarfi sem nú er hafið við gerð fullkomins, tölvustýrðs gervihnés og Össur hf. er leiðandi á sviði hulsa. „Kaup Össurar á Flex-Foot skapa ný og stórkostleg sóknarfæri," segir Maynard C. Carkhuff, forstjóri Flex-Foot. „Við verðum í stakk búin til að bjóða við- skiptamönnum okkar heildstæðar lausnir, en áður þurftu þeir að fá ökkla hjá okkur, þeir leituðu ef til vill ef hnjáliðum annars staðar ogþurftu svo að fá hulsur hjá Össuri. Núna er alltá einum stað.“ Össur hf. mun að öllum líkindum hætta að selja þá gerviökkla, sem fyrirtækið hefur selt hingað til, enda eru gerviökklar Flex-Foot fullkomn- ari. Flex-Foot hefur unnið að þróun hulsa, en hættir því nú, þar sem Öss- ur hf. hefur sérhæft sig á því sviði. Fyrirtækin munu áfram selja vörur sínar hvort undir sínu nafni, enda hafa þau þegar skapað sér gott orð á stoðtækjamarkaði. Fullkomin rannsóknarstofa I Bandaríkjunum fer því fjarri að fyrirtæki leggi áherslu á að eiga hús- næðið þar sem starfsemin er rekin. Öllu algengara er að sérstök fyrir- tæki eigi og reki húsnæði, en leigi það síðan út. Flex-Foot hefur ekki farið þessa leið og í kaupum Össurar á fyrirtækinu fylgdi því glæsilegt húsnæði Flex-Foot. Þegar gengið er þar um sali vekur athygli hve mikla áherslu fyrirtækið leggur á rann- sóknir, þróun og gæðaeftirlit. For- svarsmenn fyrirtækisins segja að þeir hafi ávallt miðað við að fyrirtæk- ið uppfylli ítrustu kröfur sem hægt er að gera til starfsemi af þessu tagi, jafnvel þótt viðskiptavinir og opin- berir eftmlitsaðilar hafi ekki sett jafn ströng skilyrði. „Með því að gera strangari kröfur til okkar sjálfra en aðrir gera náum við að vera alltaf feti framar", segir Richard N. Myers, varaforstjóri. „Við ráðum yfir einni fullkomnustu rannsóknarstofu í heimi á þessu sviði.“ Um 130 starfsmenn vinna hjá Flex-Foot, sem er svipaður fjöldi og hjá Össuri hf., og ætlunin er að ráða 20-30 til viðbótar á þessu ári. Fimm- tán verkfræðingar, sem ýmist eru með meistaranám eða doktorsgráðu að baki, vinna á rannsóknar- og þró- unardeild fyrirtækisins. Meðal verk- færa þeirra er tölvuforrit, sem notað er við hönnun gerviökkla. Forritið reiknar nákvæmlega út álagið á fót- inn, hvar hætta er á brestum og hvernig þarf að bregðast við. Að þeim útreikningum loknum er frum- gerð gerviökklans gerð úr koltrefj- um og er efnið mótað í miklum hita og þrýstingi. Lítið má út af bregða í þeirri framleiðslu og því er varan þrautreynd í vélum, sem líkja eftir notkun í daglegu lífi, til dæmis á langri göngu. Loks þegar menn eru sannfærðir um að varan sé eins og best verður á kosið eru allar upp- lýsingar um hönnunina sendar í tölvu framleiðandans, sem matar vélar sínar á upplýsingunum og þær búa til nákvæmlega eins ökkla, svo engu skeikar. Fyrirtæki munu sameinast Að sögn Jóns Sigurðssonar, for- stjóra Össurar hf. og stjómarfor- manns dótturfyrirtækisins Flex- Foot, eru fyrirtækin að keppa við mörg önnur smærri fyrirtæki. Stærst á þessu sviði er þýska fyrir- tækið Otto Bock, en áætluð árleg velta þess er um 200 milljónir Bandaríkjadala, eða um 14,6 millj- arðar króna. Samanlögð velta Össur- ar hf. og Flex-Foot nemur rúmum 50 milljónum dala á þessu ári, eða rúm- lega 3,6 milljörðum. Um níu önnur fyrirtæki eni með veltu upp á nokkr- ar milljónir dala og upp í nokkra tugi milljóna, en að auki eru um 90 smærri fyrirtæki á þessum markaði. Af þessum fyrirtækjum er Össur hf. það eina sem er skráð á almennum hlutabréfamarkaði. „Á næstu árum munu smærri fyrirtæki í þessum geira án efa sameinast," sagði Jón Sigurðsson. „Ég er sannfærður um að eftir nokkur ár verða 3-4 fyrirtæki langstærst og í fararbroddi í þessum iðnaði. Össur og Flex-Foot verða þar á meðal. í fyrirtækjunum tveimur fást um 30 verkfræðingar við rann- sóknar- og þróunarvinnu, eða fleiri en heildarstarfsmannafjöldi margra smáfyrirtækjanna. Sú staðreynd á eftir að tryggja okkur forystuna.“ Jón sagði að eftir að fréttist af kaupum Össurar á Flex-Foot hefðu forsvarsmenn tveggja minni fyrir- tækja haft samband við Össur hf. og lýst því yfir að þeir væru reiðubúnir að selja. Hins vegar hefðu menn haft í nógu að snúast við að ganga frá kaupsamningnum í Bandaríkjunum þannig að nokkur tími myndi eflaust líða þar til þeir færu að huga að frek- ari kaupum. „Við erum búnir að senda þessum iðnaði skýr skilaboð um hvemig megi ná aukinni hagræð- ingu og markaðshlutdeild og ég er viss um að fleiri fyrirtæki feta í fót- spor okkar.“ Maynard C. Carkhuff, forstjóri Höfuðstöðvar Flex-Foot í Orange County. Gerviökkli frá Flex-Foot, svonefnd- ur Vari-FIex ökkli. Fjöðrun í hæln- um tryggir eðlilegt göngulag, þar sem hún ýtir fætinum frá jörðu á göngu, svo ekki þarf að þvinga hann fram frá mjöðm. Flex-Foot, sagði að þrátt fyrir að fyrirtækin í stoðtækjaiðnaðinum væru mörg smá, ættu þau það sam- eiginlegt að standa vel fjárhagslega, svo þetta væri sterkur markaður að sækja á. Hann benti á, að Flex-Foot ætti 29 skráð einkaleyfi. „Einkaleyf- in vernda markaðinn og tryggja okk- ur fé til frekara þróunarstarfs. Vandaðri vara, sem eykur endur- hæfingarmöguleika sjúklinga, hefur einnig leitt til þess að heilbrigðis- kerfið tekur aukinn þátt í kostnaði sjúklinga við kaupin.Við höfum líka fært út kvíarnar í gegnum árin, til dæmis með kaupum á fyrirtækinu Mauch í Ohio, sem sérhæfir sig í gerð hnjáliða og pinna til að spengja hryggjarliði. Eitt merkasta þróunar- verkefni okkar núna, í samvinnu við MIT-háskólann, er gerð gervihnjá- liðar, sem við nefnum Rio Electronic Knee. Hnjáliðurinn verður tölvu- stýrður og lagar sig algjörlega að notandanum, með því að skynja hraða og göngulag. Hann er hins vegar einfaldur í notkun, enda get- um við ekki ætlast til að notandinn hafi tölvu- eða forritunarkunnáttu. Þennan hnjálið ætlum við að setja á markað í byrjun næsta árs. Þar með mun enginn vafi leika á því hvaða fyrirtæki stendur fremst í heimin- um. Við erum þegar með bestu ökkl- ana, hulsurnar frá Össuri eru yfir- burðavara og svo getum við boðið upp á tæknilega fullkomna hnjáliði. Sóknarfærin á þessum markaði eru mikil. Við ætlum að nýta þau og er- um þegar farin að styrkja sölukerfi okkar mikið.“ Greiða hátt verð fyrir göða vöru Jón Sigurðsson lagði einnig áherslu á nauðsyn þess að fyrirtækið framleiddi fullkominn hnjálið. Þrátt fyrir að Flex-Foot byði upp á slíka vöru undir merki Mauch, þyrfti að auka fjölbreytni í þeirri vöru og tryggja að fyrirtækið stæði fremst í þeirri tækni. Eftir því sem stoðtækin verða full- komnari, þeim mun dýrari verða Morgunblaöiö/Ragnhildur Sverrisdótlir Maynard C. Carkhuff, forstjóri Flex-Foot, Jón Sigurðsson, forsljóri Öss- urar hf., og Van L. Phillips, stoðtækjafræðingur og aðstoðarforstjóri, sem stofnaði Flex-Foot fyrir 16 árum. þau. Jón Sigurðsson benti á, að fyrir nokkrum árum hefði fólk ekki þurft að greiða nema 20-30 dollara fyrir gervifót, en sá fótur hefði verið stífur og þungur tréfótur og erfiður í notk- un. „Fólk er tilbúið að greiða hátt verð fyrir góða vöru og við erum sí- fellt að bæta vöruna. Össur hf. á enn mikinn markað óunninn í sölu á sili- konhulsum og vöxturinn í sölu á stoðtækjum er áætlaður 6-8% á ári. Fólk lifir lengur en áður og gerir auknar kröfur um lífsgæði.“ Til marks um hraðan vöxt fyrir- tækjanna má geta þess, að saman- lögð sala Össurar hf. og Flex-Foot nam rúmlega 3,3 milljörðum króna á síðasta ári, árið 1998 nam hún tæp- lega 2,4 milljörðum, árið 1997 tæp- lega 2 milljörðum og árið 1996 nam hún tæplega 1,7 milljörðum. Frá 1996 til 1999 tvöfaldaðist því saman- lögð sala fyrirtækjanna. „Við erum sífellt að koma fram með nýjungar, sem sést á því, að á þessu ári munu rúmlega 60% af sölu fyrirtækjanna liggja í sölu á vörum, sem eru 2 ára eða yngri,“ sagði Jón. „Árið 1996 voru aðeins um 5% vörunnar yngri en eins árs, allt hitt var tveggja ára eða eldra. Þetta sýnir hve ör þróunin hefur verið á síðustu árum, við erum búnir að leggja gömlu hönnunina til hliðar. Innan nokkurra ára verður Össur/Flex-Foot það fyrirtæki í stoðtækjaiðnaðinum sem skilar mestum arði, við munum selja og dreifa vöru okkar um allan heim, við munum ráða yfir öflugustu rann- sóknar- og þróunardeild í þessum iðnaði og getum boðið upp á heild- stæðar lausnir." Þrátt fyrir að forsvarsmenn fyrir- tækjanna tali um markaðssókn í heiminum öllum viðurkenna þeir að markaðssvæði þeirra sé fyrst og fremst iðnríki heimsins, enda sé var- an dýr og þeir hljóti að horfa á þann markað sem hafi efni á að nýta sér framleiðsluna. Að vísu hafa fyrirtæk- in einnig framleitt vöru á milliverði, til að sinna eftirspurn í fátækari ríkj- um. Flex-Foot hefur selt um 45% framleiðslu sinnai' í Bandaríkjunum, um 40% í Evrópu og 15% til annarra svæða. „Árangurinn er ótrúlegur, því það eru aðeins 16 ár frá stofnun fyrirtækisins,“ sagði Maynard C. Carkhuff. „Ég veit ekki um nokkurt annað fyrirtæki sem hefur verið jafn ákveðið í að ná árangri og samein- ingin við Össur hf. ýtir þar enn undir. Fyrir kaupin var Flex-Foot annað stærsta fyrirtæki heims á sínu sviði og nú erum við tvöfalt stærri. Þrátt fyrir það eigum við enn mikla mark- aðssókn fyrir höndum.“ Ætla að vera i f ararbroddi Jón Sigurðsson sagði að Össur hf. væri alþjóðlegt fyrirtæki, enda væri aðeins lítill hluti markaðar þess í heimalandinu. „Við höfum allt aðra og meiri möguleika til stækkunar en þau fyrirtæki sem bundin eru við ís- lenskan markað. Markaður okkar er heimurinn allur og möguleikamir eru gríðarlegir. Þrátt fyrir að þýska fyrirtækið Ot- to Bock sé stærra á pappímum, þá segir það ekkert um tæknilega getu þess, enda hefur það mjög dreifðar áherslur og framleiðir meðal annars mjög einfalda og ódýra gerð gervi- fóta í miklu magni, til sölu í fátækari ríkjum. Okkar markaður er annar- .Við ætlum að verða leiðandi á öllum sviðum stoðtækjaframleiðslu og verðum án nokkurs vafa í farar- broddi í þessum iðnaði.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.