Morgunblaðið - 11.04.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 29
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason
Það er mikið um að vera hjá slippdeild Skipavíkur í Stykkishólmi. í slipp er Grettir SH 104
sem er eitt stærsta skip sem tekið hefur verið upp í dráttarbrautinni. Skipið fór í slipp vegna
skemmda á skrúfublöðum.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason
Á sama tíma eru tveir stórir bátar í breytingum inni í húsi Skipavíkur. Særúnu er verið að
útbúa til skemmtisiglinga og verið að setja nýtt perustefni á Kristin Friðriksson SH 3.
Þrír bátar í slippnum
'Stykkishólmi - Hjá Skipavík hf. í
Stykkishólmi starfa um 50 manns
og er fyrirtækið með stærri at-
vinnurekendum í bænum. Það er
með fölbreytta starfsemi, dráttar-
braut og skipaviðgerðir og svo
byggingastarfsemi. Að sögn Sævars
Harðarsonar framkvæmdasljóra er
mikið að gera hjá Skipavík um þess-
ar mundir og verkefnastaða góð
fyrir næstu mánuði. „Fyrirtækið er
að byggja íþróttahús í Olafsvík og
er með bryggjuframkvæmdir í
Stykkishólmi. Þá hefur Skipavík
tekið að sér að gera við Veitinga-
húsið Knudsen eftir bruna og
byggja viðbyggingu við kavíar-
verksmiðjuna Noru í Stykkishólmi.
Hjá slippdeildinni er unnið að end-
urbótum á Kristni Friðrikssyni SH
og skemmtiferðaskipinu Særúnu.
Það er bjart framundan," segir
Sævar, „og okkur vantar fagmenn
varðandi skipaviðgerðir og smíðar."
NetHnöttur Tæknivals kominn í sölu
Bylting í sam-
skiptum
NETHNÖTTUR Tæknivals að
undanförnu verið í prófunum um
borð í Mánafossi, skipi Eimskipafé-
lags íslands, en um er að ræða
búnað, sem sítengir íslenska sjó-
farendur við Netið um gervihnött.
„NetHnöttur Tæknivals felur í sér
samskiptabyltingu fyrir alla þá,
sem starfa á hafi úti og rýfur á
margan hátt þá einangrun sem sjó-
menn þekkja ofurvel,“ segir Berg-
steinn Hjörleifsson ráðgjafí hjá
Tæknivali, en hann ásamt Ara Jó-
hannessyni sérfræðingi Tæknivals
í gervihnattamálum hefur haft yfir-
umsjón með prófunum um borð í
Mánafossi.
Bergsteinn bendir á að sjófar-
endur hafi að mestu leyti orðið út-
undan í þeirri upplýsingabyltingu,
sem orðið hefur á síðustu árum „á
fasta landinu", en með NetHnetti
Tæknivals nái upplýsingatæknin
loksins út á haf til sjófarenda.
Margir kostir -
sumir óvæntir
Bergsteinn segir að þessar til-
raunir hafi gengið eins og best
verði á kosið, tækjabúnaðurinn hafi
reynst vel við verstu aðstæður,
mikla ölduhæð og mikinn velting,
Netið sem upplýsingaveita hafi
nýst skipstjórnarmönnum mjög vel
og einkanlega veðurspákerfið Halo
sem hafi meðal annars leitt til þess
að Mánafoss leitaði vars í tæka tíð
áður en norðanbálið skall á fyrir
norðaustan land á dögunum. „Við
vissum af augljósum kostum fyrir
útgerðir að hafa NetHnött Tækni-
vals um borð en svo hafa nýir kost-
ir komið fram sem við þekktum
ekki. Til dæmis má leiða sterkar
líkur að því, að Mánafoss hafi
sloppið við tjón í ofsaveðrinu vegna
NetHnattarins," segir Bergsteinn.
Sparar fé og tíma
„NetHnöttur Tæknivals var
fyrst kynntur á sjávarútvegssýn-
ingunni í Kópavogi síðastliðið
haust og vakti mikla athygli, enda
er þessi tæknilausn ekki þekkt í
heiminum. I raun má segja að Net-
Hnöttur Tæknivals opni sjófarend-
um heim nútímasamskipta sem áð-
ur var óþekktur til sjós. Skipin eru
sítengd Netinu með hraðvirkari
tengingu en þekkist hjá flestum
fyrirtækjum í landi. Utgerð og
áhöfn nýta sér Netið sem upplýs-
ingaveitu og samskiptatæki, fá
ódýrt símasamband um Netið, nýta
sér tölvupóst og alla fjarskipta-
tækni um Netið til öryggis, afþrey-
ingar og sparnaðar. Þá er unnt að
greina bilanir og þjónusta skipin
um Netið, sem getur sparað út-
gerðinni stórfé og tíma, auk þess
sem búnaður um borð getur verið
sítengdur útgerðinni og skipin
tengd upplýsingakerfi útgerðar."
Prófanir við erfiðar
aðstæður
Tilgangurinn með uppsetningu
NetHnattar Tæknivals um borð í
Mánafossi er að sögn Bergsteins
Hjörleifssonar ráðgjafa hjá Tækni-
vali að sýna að það sé raunhæfur
möguleiki að útvega sjófarendum
þá miklu bandbreidd við Netið sem
gervihnattatenging felur í sér. Óm-
ar Örn Ólafsson, tæknilegur ráð-
gjafi Tæknivals, tekur í sama
streng og segir:
„Markmiðið er að fá reynslu við
erfiðar aðstæður. Mánafoss er
strandferðaskip og hentar vel
vegna þess hve oft er komið að
landi og skipið er í stærðarflokki
sem við stflum á. Ekki spillir að
þetta er skip með mjög háa brú
sem þýðir að það reynir mikið á
stöðugleika sendis vegna hreyfinga
skipsins á siglingu." - Hvað gerist
næst? „Núna þegar prófunum er
að ljúka munum við snúa okkur að
markaðssetningu og sölu, við mun-
um einbeita okkur að togaraflotan-
um og millilandaskipum, erlendir
markaðir eru svo í skoðun,“ segir
Ómar Örn.
Útlendir sórfræðingar
í þróunarvinnunní
Tveir sérfræðingar hafa komið
hingað til lands vegna tilraunanna
um borð í Mánafossi, Bretinn
Steve Allan frá framleiðanda gervi-
hnattadisksins, Orbit og Norðmað-
urinn Ole Robertsen frá Norse El-
ektronic, en Tæknival er í
samstarfi við norska fyrirtækið um
þróun búnaðarins. Tilraunum með
NetHnött Tæknivals er lokið og
sala á honum hafin.
1
MORGUNVERÐARFUNDUR
á Hótel Loftleiðum.Víkingasal
Miðvikudaginn 12. apríl.
kl. 8:15 - 9:30.
KAU PRÉTTARSAM NINGAR
MEÐ HLUTABRÉF
Samtök atvinnulífsins,
Samtök iðnaðarins og
Samtök íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja
standa fyrir morgunverðarfundi
um skattlagningu hlutabréfakaupa
sem byggja á kauprétti starfsmanna.
I. Mikilvægi kaupréttarsamninga.
Tillögur SA, Sl og SÍH um skattalega meðferð kaupréttarsamninga
með hlutabréf.
Ingvar Kristinsson, formaður SÍH.
2. Efnisreglur nýs frumvarps um skattlagningu
kaupréttarsamninga.
Baldur Guðlaugsson hrl., formaður nefndar fjármálaráðherra
um endurskoðun skattalaga.
3. Kostir og gallar núverandi ástands.
Fullnægir nýtt lagafrumvarp þörfum atvinnulífsins ?
Frosti Bergsson stjórnarformaður Opinna Kerfa.
Fundarstjóri er Ari Edwald framkvæmdastjóri SA.
Salurinn opnar kl. 8:00. Fundargjald er kr 1.000 (morgunverður innifalinn).
Fundurinn er öllum opinn.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrirfram í sima:
511 5000,með símbréfi:5l I 50 50
eða með tölvupósti: sa@sa.is
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
SAMTOK ATVINNULIFSINS
Samtök íslenskra
hugbúnaðarfyrirtækja