Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Leikgerð saga Guðríð-
ar Þorbjarnardóttur
á kristnihátíðarári
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Bjöm Bjöms
Hallfríður Bára Jónsdóttir í hlutverki Guðríðar og fylgdarkonuna leik-
ur Vilborg Halldórsdóttir.
Ein af skissum Sigríðar Gísladóttur leikmyndahönnuðar.
I FELAGSHEIMILINU Bifröst á
Sauðárkróki standa nú sem hæst æf-
ingar á nýju leikverki Jóns Ormars
Ormssonar, sem fjallar um lífssögu
hinnar þekktu og víðförlu konu Guð-
ríðar Þorbjarnardóttur. Leikverkið
verður frumsýnt í Bifröst á morgun,
en í beinu framhaldi sýningarinnar
verður síðan samkoma í Glaumbæj-
arkirkju þann 30. apríl, þar sem séra
Ragnheiður Jónsdóttir prestur á
Hofsósi og séra Gísli Gunnarsson
prestur í Glaumbæ fjalla meðal ann-
arra um konur og kristni á Islandi.
Þá er einnig áformað að verkið
verði sýnt þann 25. júní í sumar þeg-
ar afhjúpaður verður minnisvarði um
Guðríði Þorbjarnardóttur á æsku-
stöðvum hennar á Snæfellsnesi.
Verkið er samið í tilefni kristnihá-
tíðarárs, og tengt athöfn í kanadísku
borginni Ottawa, en þar mun verða
afhjúpuð afsteypa af styttu Asmund-
ar Sveinssonar, af landnámskonunni
Guðríði með barn sitt Snorra Þor-
fmnsson. Er um að ræða samskonar
styttu og reist var við byggðasafnið í
Glaumbæ fyrir nokkrum árum.
Var í upphafi gert ráð fyrir að leik-
verk Jóns yrði frumsýnt hér heima,
en á Netinu gætu gestir í Ottawa
fylgst með sýningunni, en vegna
mikils kostnaðar var ekki unnt að
koma slíku við.
í verki Jóns er rakin saga Guðríð-
ar, og hefst hún þar sem Guðríði, þá
gamalli heima í Glaumbæ, birtist
verndarandi eða fylgja hennar og
saman feta þær gengna leið aftur til
fortíðar. Liggur leið Guðríðar fyrst
sem ungrar stúlku úr Breiðafirði
vestur til Grænlands en síðar með
eiginmanni sínum Þorfinni karlsefni
vestur til Vínlands hins góða, en þar
höfðu þau vetursetu og þar fæddist
fyrsta hvíta barnið í Vesturheimi,
Snorri Þorfinnsson, en síðan er sag-
an rakin allt til göngu Guðríðar suð-
ur til Rómar.
Verkinu lýkur síðan á sama stað
og það hófst, við bænahald í
kirkjunni í Glaumbæ, en þar skiljast
leiðir söguhetjunnar og fylgdarkonu
hennar að sinni.
í sögu Guðríðar eru aðeins tvö
hlutverk, það er Guðríður sjálf sem
Hallfríður Bára Jónsdóttir leikur en
síðan er fylgdarkonan, þytmál sálar-
innar, hinn innsti kjami og ytri
vernd eins og Vilborg Halldórsdóttir
leikkona sem fer með þetta hlutverk
kallar það.
Höfundurinn, Jón Ormar, sagði að
þegar komið hefði til tals, að hann
skrifaði leikverk í tilefni fundar Vest-
urheims og þúsund ára kristni á Isl-
andi hefði sér þótt við hæfi að fjalla
um þátt einnar víðförlustu íslensku
konu í landafundunum vestan hafs.
Við lestur Grænlendinga sögu hafi
hann fundið umgjörð verksins, þegar
Guðríði, einni heima í búðum með
soninn Snorra nýfæddan birtist kona
sem einnig segist heita Guðríður, en
sú fer með varnaðarorð sem ef til vill
bjarga lífi landnemanna. Sagði Jón,
að sér hefði fundist við hæfi, að hafa
bæði hina ytri og hina innri Guðríði í
verkinu, og byggja söguna í kringum
það.
Þær Vilborg og Bára sem fara með
hlutverkin tvö voru sammála um að
mjög væri gaman að fást við hinn fal-
lega texta verksins, Vilborg benti á
að þær tvær væru á sviðinu allan tí-
mann, umgjörð verksins væri eins
einföld og nokkur kostur væri, þær
hefðu ekkert nema röddina og líka-
mann til þess að gefa sögunni líf.
Þá sagði hún textann svo mjúkan
og þjálan að hann kallaði á ótal tján-
ingarform, hvort sem væri að segja
sögu, dansa, flytja ljóð eða syngja
enda væri auðvelt að beita þessu öllu
í sýningunni.
Sem áður segir er Jón Ormar
Ormsson höfundur verksins og leik-
stýrir hann því einnig, en gerð leik-
myndar og hönnun búninga er í
höndum Sigríðar Gísladóttur.
Kammerkór Vesturlands
Kaflar úr Elíasi
í Borgarneskirkju
Fallegur barnasöng-ur
KAMMERKÓR Vesturlands, í sam-
starfí við Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar, stendur fyrir tónleikum í
Borgarneskirkju annað kvöld, mið-
vikudagskvöld, kl. 20.30. Fluttir
verða kaflar úr óratoríunni Elías
eftir Felix Mendelsohn. Fluttir
verða kórþættir, tvísöngsþættir,
tríó og kvartettar úr verkinu auk
einsöngsaría.
Til að flytja einsöngsatriði hefur
kórinn fengið til liðs við sig starf-
andi tónlistarmenn úr Borgarfjarð-
arhéraði. Þau eru Jacek Tosik
Warszawiak píanóleikari, Theó-
dóra Þorsteinsdóttir sópran, Birna
Þorsteinsdóttir sópran, Unnur Am-
ardóttir mezzosópran og Hörn
Hrafnsdóttir mczzósópran.
Kammerkór Vesturlands var
stofnaður á síðasta ári og var
tilgangurinn með stofnun hans að
skapa vestlendingum, sem aflað
hafa sór tónlistarmenntunar, tæki-
færi til að starfa saman að tónlistar-
flutningi. í kórnum eru nú 12-14 fé-
lagar og eru þeir flestir fyrrverandi
og núverandi nemendur við Tónlist-
arskóla Borgarfjarðar. Stjórnandi
er Dagrún Hjartardóttir.
TOJVHST
íi ra(I iia I« kór Lang-
hollskirkju í Salnum
KÓRTÓNLEIKAR
Gradualekór Langholf skirkju
söng íslensk og erlend lög; undir-
leikari á píanó var Lára Bryndís
Eggertsdóttir og stjórnandi Jón
Stefánsson. Laugardagur 8. apríl
kl. 16.00.
GRADUALEKÓR Langholts-
kirkju er ekki gamall barnakór, að-
eins tæpra tíu ára, en hefur á þeim
tíma skipað sér í röð fremstu barna-
kóra landsins. Gífurlegt starf liggur
að baki árangri eins og þeim sem
kórinn hefur náð. Söngurinn er
undantekningarlaust tær og klingj-
andi hreinn, og umfram allt örugg-
ur, - með þeirri einu undantekn-
ingu, að tvö lög á efnisskrá
tónleikanna á laugardag virtust
ekki nógu vel æfð, - eða kannski
orðin aðeins ryðguð eftir of langa
hvíld. Smá rugling í innkomu er
ekki hægt að telja þessum fína kór
til lasts. Efnisskrá tónleikanna var
tvískipt, - annars vegar mjög hefð-
bundin barnakóralög, - þau vinsæl-
ustu og mest sungnu, eins og Maí-
stjarnan, Óskasteinar, Senn kemur
vor, Go Down Moses og Dagur er
risinn; - en eftir hlé voru sungin
minna þekkt lög, engilsaxnesk og af
kanadískum uppruna, þar á meðal
nokkur lög eftir eitt merkasta kór-
tónskáld Kanadamanna og frægan
konsertpíanista, Ruth Watson
Henderson. Það er erfitt að tína til
eitt öðru betra á þessum tónleikum;
kórinn söng hvert lagið af öðru óað-
finnanlega og ákaflega músíkalskt.
Augljóst er að kórinn er mjög agað-
ur og ef eitthvað er hægt að finna
að, - þá vantaði kannski aðeins
meira líf í krakkana og meira bros.
Tvær stúlkur úr kórnum sungu ein-
söng; Dóra Steinunn Armannsdótt-
ir söng einsöng í Go Down Moses,
og Regína Unnur Ólafsdóttir í We
Rise Again eftir Leon Dubinsky.
Þær sungu saman með kórnum
Cantate Domino eftir Rupert Lang
og Pie Jesu úr Sálumessu eftir And-
rew Lloyd Webber. Söngur þessara
frábæru stelpna með kórnum var
sannarlega hápunktur tónleikanna.
Báðar hafa þær ótrúlega miklar
raddir og eru með afbrigðum mús-
íkalskar. Þær geisluðu líka báðar af
sönggleði og gerðu þessa stund eft-
irminnilega. Pie Jesu var frábær-
lega sungið og mjög áhrifaríkt.
Fyrsta lag eftir hlé var Indíána-
söngur frá Kanada eftir eða útsett-
ur af Lydiu Adams. Þetta er snjallt
og skemmtilegt verk. Kórnum var
skipt í þrjá hluta: - þriðjungur
hópsins stóð á sviðinu og söng sjálft
lagið, en hinir tveir röðuðu sér upp
hvor sínum megin í salnum og
sungu „umhverfishljóð“ lagsins, -
vind, fugla, skordýr, skrjáf í laufi og
annað það sem maður heyrir á indí-
ánaslóðum. Það besta var hvað
krökkunum sjálfum þótti þetta
skemmtilegt, og hvað þau lögðu
mikið í flutninginn. Lögin á seinni
hluta tónleikanna voru jafn fallega
sungin og fyrri hlutinn. Flest voru
þau mjög erfið og enginn leikur að
syngja. Lára Bryndís Eggertsdóttir
lék skínandi vel á píanóið með kórn-
um og hafði góða tilfinningu fyrir
styrkleikabreytingum og öðrum
blæbrigðum í söng kórsins, og
fylgdi honum vel. Jón Stefánsson
kórstjóri á þó mestan heiður af því
hve þessi kór hefur náð langt á
skömmum tíma. Jón er frábær kór-
stjóri og hefur augljóslega ekki síð-
ur gott lag á krökkum en eldra kór-
fólki. Nokkur aukalög voru sungin
eftir mikið og innilegt klapp. Þar á
meðal voru Býflugan eftir Rimskíj-
Korsakov, - sem verður að teljast
afrek að geta sungið, og negrasálm-
urinn This Little Light of Mine, þar
sem Dóra Steinunn og Regína Unn-
ur sungu einsöng með kórnum og
fóru á kostum. Síðasta lagið á efnis-
skránni var vel þeginn og vel sung-
inn fagnaðaróður um komu lóunnar.
Bergþóra Jónsdóttir