Morgunblaðið - 11.04.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 43
-------------------------if
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Um 1.250 nemendur stunda nú nám við Kcnnaraháskóla Islands.
meira að segja einn af þessum góðu
kennurum. Eg fékk þessa medalíu
að gjöf frá nemendum mínum sem
útskiifuðust fyrir nokkrum árum
og er að hugsa um að bera hana hér
í kvöld, Á henni stendur: „Heims-
ins besti kennari."
Finnbogi sagði að nóg væri af
velmenntuðum kennurum í land-
inu, þeir væra bara í einhverjum
öðram störfum. Því ætti spurningin
að vera: Hvernig er hægt að ná
góðum kennurum aftur inn í skól-
ana til þess að menntun þeirra og
fæmi njóti sín. Finnbogi kvaðst
hafa heimsótt marga skóla í borg-
inni að undanförnu og það sem
hæst bæri í umræðu kennara í
þessum skólum, fyrir utan starfs-
umhverfið, væri samsetning nem-
endahópanna og viðhorf í þjóðfé-
laginu gagnvart skólastarfi
almennt. Finnbogi lýsti þeirri skoð-
un sinni að í skólum borgarinnar
væru fjölmargir nemendur, sem
væru betur komnir annars staðar.
„Það þarf ekki marga slíka til að
gera starf kennara gjörsamlega
vonlaust. Við erum að tala um nem-
endur sem væra kannski betur
setth’ einhvers staðar í heilbrigðis-
kerfinu. Við eram að tala um fólk
sem er með greiningu um „ofvirkni
með athyglisbresti“, við eram að
tala um alls konar hegðunarvanda-
mál. Við erum að tala um alls konar
fötlun, hvort heldur er geðfötlun
eða líkamleg fötlun," sagði Finn-
bogi og bætti við að slíkir nemend-
ur tækju mikinn tíma af kennuram
þannig að þeir gætu ekki sinnt hin-
um nemendunum, þessum venju-
legu, sem skyldi. „Sennilega er það
þetta sem gerir það að verkum að
kennarar flosna upp úr störfum
sínum og leita út á hinn almenna
vinnumarkað," sagði formaður
Kennarafélags Reykjavíkur og
varpaði fram þeirri spurningu
hvernig hægt væri að snúa þessari
þróun við.
Að þróa mælikvarða
Helgi Hjörvar forseti borgar-
stjórnar sagði í upphafi framsögu-
erindis síns að það væri vissulega
viðurkenning á starfsemi Kennara-
háskóla íslands hversu mikil eftir-
spum væri eftir kennaramenntuðu
fólki á hinum almenna vinnumark-
aði, en vandi skólayfirvalda væri
hins vegar sá hvernig bregðast
skuli við þeirri samkeppni. Frá
sjónarhóli borgaryfirvalda skipti
það miklu máli að halda góðu
starfsfólki í öllum störfum á vegum
borgarinnar og ekki síst í skóla-
starfi. Hann sagði að vilji væri fyrir
því að grípa til aðgerða í því skyni
að laða menntaða kennara, sem
væra í öðrum störfum, til skólanna.
Helgi sagði að mikilvægt væri að
þróa mælikvarða í skólastarfinu og
ekki síst að eiga um það pólitíska
umræðu, hverjir þeir mælikvarðar
skuli vera. „Pólitísk umræða hefur
of mikla tilhneigingu til að snúast
um það hvernig rekstrarformið er,
hvenig tilteknir samningar era, um
einstakar framkvæmdir, en ég held
að við höfum ekki í nægilegum
mæli gefið gaum hverjir mæli-
kvarðarnir eru. Hvað það er sem
við viljum fá út úr skólastarfinu og
með hvaða hætti hægt er að mæla
það,“ sagði Helgi. Hann sagði enn-
fremur að á næstu árum þyrfti að
stíga fleiri skref í átt til valddreif-
ingar og í ríkari mæli að færa vald-
ið í skólakerfinu út til skólanna
sjálfra, auka sjálfstæði þeirra og
hugsanlega einnig að flytja áhrif og
ábyrgð til foreldra. Helgi sagði að
samfara þessu þyrfti að þróa
frammistöðumat, eða starfsmat, en
þetta yrði auðvitað ekki gert á einni
nóttu.
„Mesta hættan er þó fólgin í því,“
sagði Helgi Hjörvar, „ef okkur, for-
eldrum, kennurum og sveitar-
stjórnum, tekst ekki nægilega
hratt að aðlaga skólann þeim miklu
breytingum sem eru að verða á
samfélagsþáttum okkar og þeim
stórauknu kröfum sem gerðar era
til skólanna. Ef okkur hins vegar
tekst að láta skólana mæta þessum
ki’öfum munum við uppskera þá
virðingu og viðurkenningu sem
stefnt er að.“
Auk framangreindra framsögu-
manna flutti Bergþór Þormóðsson
fulltrúi foreldra erindi á fundinum
og er framsöguerindi hans birt í
heild hér á síðunni. Að loknum
framsöguerindum svöraðu ræðu-
menn fyrirspurnum frá fundar-
gestum.
f hvetjandi umhverfí mun
ekki skorta hæfa kennara
HÉR FER framsöguerindi Berg-
þórs Þormóðssonar, fulltrúa for-
eldra á fundi Samfoks:
Ágætu tilheyrendur!
Hvemig tryggjum við börnum
okkar bestu kennara sem völ er á?
Ég stend hér - því ég hef verið
beðinn að svara þessari spurningu
sem foreldri af fulltrúum Samfoks
sem standa að þessum fundi.
Ég myndi vilja spyrja hvemig
sköpum við þannig umhverfi að
vinna kennara verði árangursrík.
Og um það vil ég fjalla í stuttu máli.
Því hvað er „bestur“ kennari? -
Hvaða kennarar era bestir?
Það er margsannað að árangur
einstaklinga í stai’fi fer ekki ein-
göngu eftir menntun hans og starfs-
reynslu. Heldur hefur umhverfið og
aðbúnaðurinn veruleg áhrif á þann
árangur sem einstaklingurinn nær í
starfi. Því væri nær að spyrja hvaða
þættir í starfsumhverfi og aðbúnaði
kennara myndu hvetja til hámarks
árangurs í starfi.
Aðbúnaður hefui’ veruleg hvetj-
andi áhrif á starfsárangur starfs-
fólks. í athugunum hefur komið
fram að þegar laun era ásættanleg
þá er aðbúnaður mjög framarlega á
áherslulista starfsmanna. Það tel ég
að eigi líka við um kennara. Hvaða
starfsmenn annarra fyrirtækja
myndu una því að hluti af vinnuað-
stöðunni er stofan heima? Að nánast
er ætlast til þess að kennarar tald
verkefni með sér heim vegna þess
að aðbúnaðurinn og aðstaðan til
verkefnavinnu er ekki til staðar í
skólunum.
Ég tel að hver skóli verði að
marka sér sína stefnu. Stefnu sem
yrði að sjálfsögðu innan skólastefnu
borgarinnar. Stefnu sem yrði kynnt
fyrir foreldrum nemendanna. Um
leið myndu skólastjómendur skýra
fyrir foreldram og forráðamönnum
bamanna hvert væri hlutverk skól-
ans, hvert væri hlutverk foreldr-
anna og hvert væri hlutverk nem-
endanna. Hverju hlutverki fylgja
ábyrgðir og skyldur. Þetta er jú
Fræðsla og
fyrirlestrar
• DÓRA S. Bjarnason, dósent við
Kennaraháskóla íslands, heldur
opinberan fyrirlestur á vegum
Rannsóknarstofnunar kennarahá-
skólans miðvikudaginn 12. apríl
næstkomandi kl. 16.15. Fyrirlest-
urinn ber yfirskriftina: Sýn fatl-
aðra ungmenna á líf sitt og nám í
íslensku samfélagi. I fyrirlestrin-
um verður kynnt eiginleg rann-
sókn á upplifun, menntun og að-
stæðum 35 íslendinga á aldrinum
16-25 ára.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu M-201,í aðalbyggingu Kenn-
araháskóla íslands við Stakkahlíð
og er öllum opinn.
Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál
Evrópskt fyrirtækjastefnumót
Gert er ráð fyrir að allt að 2.500
fyrirtæki frá 60 löndum eigi full-
trúa á næsta Europartenariat, fyr-
irtækjastefnumóti sem haldið verð-
ur í Álaborg í
Danmörku
8.-9. júní
næstkom-
andi. Fyrir-
tækjastefnu-
mótið í Danmörku er ætlað flestum
greinum iðnaðar. íslenskum fyrir-
tækjum stendur til boða að taka
þátt í mótinu án endurgjalds.
Nánari upplýsingar: http://
www.europartenariat.dk
Netdagar 2000
Netdagar 2000 (Netdays 2000)
verður haldið 20.-27. nóvember í
Frakklandi. Netdays er alþjóðleg
uppákoma sem hvetur til samstarfs
um þróun náms og fræðsluefnis
með notkun nýrrar upplýsinga-
tækni.
Nánari upplýsingar: katei@hi.is.
Umsóknarfrestur til 3. maí 2000.
Evrópska merkið
Evrópska merkið(European lab-
el) - viðurkenning fyrir nýbreytni-
verkefni í tungumálanámi og
-kennslu.
Markmiðið er að vekja athygli á
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Bergþdr Þormdðsson: „Hvern-
ig sköpum við þannig umhverfi
að vinna kennara verði árang-
ursrík?“
vinnustaðm-, ekki bara vinnustaður
kennara og skólastjómenda, heldur
líka vinnustaður bamanna.
Og þá vaknar spumingin: Eram
við tilbúin til að líta á skólann sem
vinnustað bamanna okkar? Vinnu-
stað þar sem skilgreind er stefna
skólans, sett era markmið, raddar
brautir og teknar ákvarðanir um
áherslur. Hvað viljum við að börnin
okkar verði þegar þau verða stór?
Hvaða tækifæri vfijum við bjóða
bömum okkar og hvað viljum við -
foreldrar og skólastjómendur -
leggja á okkur til að þau öðlist þessi
tækifæri.
Hver er metnaður skólastjóm-
enda - vilja þeir ekki skara framúr,
vera fremstir meðal jafningja?
Hvað með metnað kennara? Ég
stakk upp á því á foreldrafundi að
foreldrar barnanna í bekk dóttur
minnar myndu bjóða kennaranum
kaupauka. Kaupaukann myndum
við foreldramir greiða. Við mynd-
um í sameiningu - kennarinn og for-
eldramir - setja okkur mælanleg
markmið. Við myndum fara reglu-
lega yfir árangurinn og athuga
hvort við væram að nálgast loka-
takmai’kið. Ef þeim árangri yrði náð
sem við settum okkur í upphafi
skólaársins, þá ætluðum við að
greiða kennaranum kaupaukann.
Þetta mæltist ekki vel fyrir hjá
skólastjómendum. Þeii- töldu að við
- foreldramir - gætum ekki með
þessum hætti mismunað kennuram
skólans.
, Hvað með metnað foreldranna? -
Ég er hræddur um að nokkurs mis-
skilnings gæti meðal foreldra hvað
skólastarf varðar. Allt of margir for-
eldrar era með ranghugmyndir um
hlutverk skólans. Þeir telja - finnst
mér - að skólinn sé uppeldisstofnun
þar sem kennslan sé hliðargrein.
Hvers vegna hafa foreldrar ekki
kvartað undan því aðstöðuleysi sem
böm þeirra búa við á þeim vinnu-
stað sem þau eiga að starfa á 6 tíma
á dag að jafnaði? Ekki era nein
mötuneyti á þeirra vinnustað. Ekki
einu sinni kæliskápur til að geyma
nestið í fram að matmálstíma.
Hvemig geta foreldrar búist við
námsárangri þegar umhverfið er
ekki meira hvetjandi?
Hvemig myndu kennarar taka í
þá hugmynd að tekið yrði upp
launatengt frammistöðumat í skól-
unum? I upphafi hvers skólaárs
myndu skólastjómendur, kennarár
og foreldrar nemendanna setja
kennslustarfinu í skólanum mark-
mið. Markmið sem era tímasett,
mælanleg og raunhæf. Foreldrar
myndu fá upplýsingar um til hvers
væri ætlast af þeim og þeima bami.
Gerður yrði mælikvarði þannig að
hægt yrði að fylgjast með framvind-
unni á hverjum tíma. Skólastarfið
myndi fyrst og fremst snúast um
kennslu og fræðslu. Uppeldis- og
agavandamál væru verkefni sem
foreldrar yrðu að takast á við hwr
fyrir sig. Kennarar og nemendur
hefðu aðstöðu til að sinna störfum
sínum á vinnustað. Kennsluskylda
kennara væri ekki aðalatriði. Hann
hefði 40 stunda vinnuviku til að ná
sínum markmiðum.
í hvetjandi umhverfi þar sem
áherslur era á það sem skiptir máh í
skólastarfinu, mun ekki skorta hæfa
kennara.
skólar/námskeið
nudd
• Fræðslukvöld í boði Félags
aðstandenda barna með sérþarfir
og Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar
verður haldið í Engidalsskóla mið-
vikudaginn 12. apríl klukkan 20:00.
Þetta er annað fræðslukvöldið um
málefni barna með sérþarfir og
verður hér fjallað um áhrif fötlun-
ar barns á heilsu foreldra og fjöl-
skyldu. Valgerður Baldursdóttir
geðlæknir og Andrés Ragnarsson
sálfræðingur flytja erindi. Að lokn-
um erindunum verða umræður og
fyrirspurnir. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir, og þá sérstak-
lega foreldrar barna með sérþarfir
svo og aðrir sem að þeim standa.
■ Nám í svæðameðferð
byrjar 13. apríl nk.
Sambærilegt námseftii/námskröfur frá við-
urkenndum svæðameðferðarskóla í Dan-
möiku og Svæðameðfenðarfélagi íslands.
Yfir 700 kennsluU'mar með bóklegum fög-
um.
• Persónulegur og notalegur skóli/aðeins
6—8 nemendur í hóp.
• Fjölbreytilegt og vandað námsefni, m.a.
kennsla í svæðameðferð fóta og handa,
orkurásum hlcamans og mikilvægum
punktum á þeim (akupiessure). Fyrirles-
arar sbr. fótaaðgerðarfræðingur, nála-
stungulæknir o.fl.
• Kennsla 1 kvöld í viku ffá kl. 17—21.
Frt' sumarmánuði.
• Faglærður kennari með nám frá viður-
kenndum svæðameðferðarskóla í Dan-
mörku.
Upplýsingar og innritun í símum 896
9653, 562 4745 og 552 1850.
Svæðameðferðarskóli
Þórgunnu, Skipholti 50c.
www.nudd.is
ýmislegt
■ FULLORÐINSFRÆÐSLAIM
SCHOOL OF ICELANDIC,
GERÐUBERGI 1, 3. hæð, R.
f-f@islandia.is-www.peace.is/f-f
Námskeið og námsaðstoð fyrir:
1) SAMRÆMDU PRÓFIN: Páskanám-
skeið og námsaðstoð: STÆ, ÍSL, DAN,
ENS. 2) FRAMHALDSSKÓLAR: STÆ,
EÐL, ÞÝS, ENS, FRA o.fl.
3) FRUMGREINA- og HÁSKÓLA-
STIG: Námsaðstoð: TÍ/HÍ: STÆ, EÐL.
4) ÍSLENSKA F. ÚTLENDINGA/
ICELANDIC: Morgunn: 4 vikna nám-
skeið: 9—11:45; 25. apríl, 22. maí,
19. júm' og 17. ágúst. Kvöld: 5 vikur x þri/
fim/fös: 18:30—19:50; 25. apríl. ' :
5) TÖLVUGRUNNUR: Námskeið: 25.
apríl, 30. maí: 5 vikur x þri/fim:
20—21:50. Kr. 21.800,-
Skráning í síma 557 1155.
mikilvægi tungu-
málakunnáttu og
stuðla að aukinni
fæmi í eriendum
tungumálum.
Nýbreytni á þessu
sviði og aðferðir sem þar er beitt
hafi yfirfærslugildi.
Þátttakendur: grann- og fram-
haldsskólar, skólar á háskólastigi,
tungumálaskólar og aðrir þeir sem
sinna tungumálakennslu. Kynning-
arbæklingur verður sendur ofan-
töldum aðilum á næstunni. Nánari
upplýsingar: rz@hi.is
Umsóknarfrestur rennur út 31.
maí.
£★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★*
★
★
*
-k
★
★
★
*
★
★
ti
*
★
★
★
★
-k
Sunddalvej 1 - Ginnerup - 8500 Grená - Danmörku -jt
Slml: 0045 8633 9188. Fax: 0045 8633 9167. ★
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★•4^*
Fáðu tækin til að breyta lífi þínu
á lýðháskóla þar sem þú lærir aðferðir til að takast á við lífið og
finna gleði, ást og sjálfsvirðingu!
Skólinn er fyrir alla sem vilja þroska sjálfa sig!
16 og 20 vikna námskeift, auk 2 vikna námskeiða, sem þú getur raðað saman eins og best
hentar þlnum tlma. Kennslan fer tram á léttri dönsku. ★
★ Nemendur eru á öllum aldri, 18-80 ára, en meðalaldur er 42 ár.
★ ★ Verð (lengri námskeið): 650,- dkr. á viku. *
★ Verð (styttri námskeið): 760,- dkr. á viku. ★
Innifalið i verði er kennsla, fæði, húsnæöi og kennsluefni.
Hægt er að sækja um styrk hjá Norðurlandafélaginu (Foreningen Norden).
Þú getur lesið meira um skólann á www.vhd.dk!
Kærar kveðjur frá
VÆKSTH0JSKOLEN DJURSLAND
$