Morgunblaðið - 11.04.2000, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 11.04.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ UMR/EÐAN Til verndar laxinum FYRIR liggur hjá yfirvöldum beiðni um heimild til laxeldis í sjó með innfluttum erlend- um stofni. Varast ber að samþykkja slíka um- sókn því til þess eru vít- in að varast þau. Villti laxinn á hvarvetna í vök að verjast og þá ekki síst í þeim löndum þar sem stórfellt og um- fangsmikið laxeldi fer fram í sjókvíum í ná- grenni laxveiðiáa. Hættan á erfðamengun er alltof mikil til að taka slíka áhættu, auk þess sem sjúkdómar og lús sem fylgir sjóeldi geta haft afdrifaríkar afleiðingar á stofn villta laxins. Um slíkt eru mörg dæmi. í Skotlandi og írlandi fordæma talsmenn laxveiðiáa það umfangs- mikla kvíalaxeldi í sjó sem þar er nú og kenna því m.a. um ófarir villts lax og silungs. I þeim löndum hefur laxgengd í ár snarminnkað á undan- gengnum árum. í Noregi má segja að bestu laxveiðiár hafi verið rústað- ar með aðflutningi lax frá öðrum svæðum, sem hafa sýkt villta stofn- inn í viðkomandi ám. í um þriðjungi af áður gjöfulum laxveiðiám í Noregi er nú engan villtan lax að finna. Laxveiðar hér á landi skapa gífur- legar tekjur til landeigenda, sem að mestu eru bændur. Almennur bú- skapur á í vök að verjast hér á landi sem kunnugt er, og þær áætluðu 600 milljónir króna sem til landeigenda renna af þessum sökum, skipta sköp- um um afkomu þeirra. Hér er að ræða um hvorki meira né minna en 1.400 jarðir um land allt sem aðild eiga að veiðifélögum um laxveiði. Umfang rekstrar tengdum veiðiskap hér á landi er talið vera um kr. 2 milljarðar. Þessi starfsemi er því veigamikill þáttur í at- hafnalífi landsins, sem á engan hátt má tefla í tvísýnu. I þessu máli eru svo mörg vafaatriði að ekki má undir neinum kringumstæðum tefla framtíð villta laxins í hættu. ísland er eina landsvæðið þar sem villti laxinn hefur hald- ið nokkurnveginn velli. Sama má segja um Kolaskagann, en það er eingöngu vegna ein- angrunar hans. I öllum öðrum lönd- um fer gengi villta laxins hnignandi - það sama má ekki eiga sér stað hér. Óll vafamál verður að líta á villta lax- inum í hag. Minni hagsmunir verða að víkja fyrir meiri hagsmunum. Það verður að treysta því að stjómvöld hafni þessum áformum. Laxveiðar Færeyinga Nú hafa Færeyingar illu heilli haf- ið á ný laxveiðar í sjó. Slík iðja er forkastanleg- við íslendingar höfum skapað eftirtektarvert fordæmi um að banna allar laxveiðar í sjó. Laxinn þarf að geta snúið aftur til heim- kynna sinna til viðhalds stofninum. Líklegt er að á þeim svæðum sem Færeyingar stunda þessar veiðar gangi lax frá laxveiðiám okkar á Austur- og Norðausturlandi. Vitað er um merkta laxa frá þessum svæð- um, sem á sínum tíma fundust við veiðar Færeyinga. Þessa veiði verð- ur að stöðva með öllum tiltækum ráðum. Islendingar eru aðilar að NASCO- samtökunum, sem úthluta leyfum á Lax í þessu máli eru svo mörg vafaatriði, segir Sigurður Helgason, að ekki má undir neinum kringumstæðum tefla framtíð villta laxins í hættu. laxveiðum í sjó til aðildarríkja. Væri ekki eðlilegt að fulltrúar okkar beittu sér fyrir algjörri stöðvun á slíkri út- hlutun? Ef við teljum að lax eigi ekki að veiða í sjó í kringum Island, hvernig getum við þá staðið að því að úthluta slíkum leyfum til annarra landa? Rétt er að hafa í huga að lax- inn fer víða og með slíkum ráðstöfun- um erum við að gefa leyfi til veiða á laxi sem heima á í íslenskum veiðiám. Hvernig getur þetta farið saman við yfirlýsta stefnu okkar um bann við laxveiðum í sjó? Eftir fengnum upp- lýsingum sátu íslenskir fulltrúar hjá við atkvæðagreiðslu um veiðiúthlut- un til Færeyinga á síðasta fundi hjá NASCO. Hvernig getur það staðist, sbr. það sem að framan er sagt? Færeyingar njóta sérstakra fríð- inda um veiðar innan íslenskrar lög- sögu. Stjórnvöld eiga og verða að gera það að stefnu sinni að Færey- ingar hætti laxveiðum í sjó. Skorað er á stjórnvöld að beita sér í þessu mikilvæga máli - allar laxveiðar í sjó verður að stöðva. Höfundur er fyrrv. stjórnarformað- ur Flugleiða og áhugamaður um líf- ríki laxins. Sigurður Helgason ÞRIÐJUDAGUR 11. APRIL 2000 i feDgnm m HMEuja r<h þér auövAÍt að eignast draumahúsiö Aðalfundur Verðbréfastofunnar hf. Aðalfundur Verðbréfastofunnar hf. fyrir árið 1999 verður haldinn fimmtudaginn 13. apríl kl. 17.30 að Hótel Loftleiöum, Víkingasal. Dagskrá samkvæmt samþykktum. Tillaga um heimild til stjórnar til að auka hlutafé félagsins, breytingar á samþykktum vegna þessa og tillaga um kauþ á eigin bréfum. Stjórn Verðbréfastofunnar. VERÐBREFASTOFAN Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 570-1200 A* Aisturbakki hf. O) (O .c *o nð/tc/ £D Við fluttum um helgina: Köllunarklettsvegur 2 (K2) 104 Reylqavík Cskáhallt á móti ixýja Olís-húsinu) Sama símanúmer: 563 4000 Fax: 563 4090 Netfang: austurbakki@ipa. austurbakki. is !«nw«MBnii WW i «9» • ' . <M>1ni. uS J ■■ %
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.