Morgunblaðið - 11.04.2000, Qupperneq 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
Stend ekki
keppni við
í krafta-
hestana
Annelie Olsson frá Svíþjdð kom í
þriggja vikna verknám í
járningum til íslands
ÞAÐ hljómar hálfundarlega að nemi í
jámingum í Svíþjóð skuli koma til ís-
. lands í verknám í járningum en slíkt
átti sér stað fyrir skemmstu er sænsk
stúlka, Annelie Olsson, kom til
þriggja vikna dvalar hér á landi til að
fá starfsþjálfun í jámingum. Hún
nemur jámingar við Nordvikskolan í
Noraström sem er annar tveggja
skóla í Svíþjóð þar sem kenndar em
jámingar.
Annelie segir námið hafa byrjað
síðastliðinn september og því ljúki í
júní á þessu ári. „Það vora margir
undrandi þegar ég ákvað að byrja að
læra jámingar. Ég er ekki há í loftinu
aðeins 1,66 og þótti ég ekki beint týp-
an til að verða jámingamaður en ég
hef fulla trú á að ég geti lært þetta.
Hæfileikarnir í þessu starfi snúast
meira um andlegan styrk en líkam-
degan að mínu mati þótt styrk hönd
geti oft komið sér vel, maðurinn
stendur hestinum framar að greind
en þeir hafa hins vegar mikla yfir-
burði hvað viðkemur líkamlegum
kröftum. Málið snýst því um að fást
við hestinn á því sviði þar sem maður-
inn hefur yfirburðina, jámingar era
ekki kraftakeppni við hestinn og ég
hyggst ekki standa i slíkri keppni.
Sálfræði- og samskiptaþáttur járn-
inganna snýst um að skapa sér viðun-
andi vinnufrið og næði til að fram-
-Jtvæma verkið. Handverksþáttur
jáminganna er ekki síður mikilvægur
en ef sálfræðiþátturinn er ekki í lagi á
jáminganeminn afar erfitt uppdrátt-
ar með að ná fæmi og kunnáttu í
handverkinu og þetta er það sem ég
glími við þessa dagana,“ segir Annel-
ie í upphafi viðtalsins.
í Svíþjóð er starfrækt félag jám-
ingamanna og segir Annelie að það
gerist algengara að hesteigendur vilji
skipta við járningamenn innan fé-
lagsins. Hún segir að nýútskrifaðir
járningmenn þmfi að taka sérstakt
próf til að komast inn í þennan félags-
skap. Prófið fá þeir að taka ári eftir að
þeir útskrifast úr skólanum og ekki
mega líða meira en tvö ár frá því þeir
ljúka námi og þar til þeir þreyta próf-
ið. Verkefni prófsins er nokkuð erfitt,
það felst í því að smíða fjórar skeifur
undir hest sem síðan sé járnaður á
skeifurnar. Þetta verður próftakinn
að gera á tveimur og hálfum tíma og
að sjálfsögðu þarf að ná ákveðinni
lágmarkseinkunn til að fá inngöngu.
Annelie kvaðst hafa heyrt að hátt í
hemingur þeiiTa sem þreyttu prófið
næði því ekki. Hægt væri að starfa
við jámingar án þess að ganga í þenn-
an félagsskap en það væri vissulega
betra að vera inna vébanda hans.
En hvað varð til þess að Annelie
ákvað að fara tímbundið frá manni og
bami til Islands í verknám í járning-
um í stað þess að fara til jáminga-
manns í nágrenni við heimili hennar?
Jafnvægisjárningar í
fyrirheitna landinu
„Það hafa margir Islendingar sem
ég hef hitt hér verið undrandi á því að
ég skuli koma hingað í verknám þar
sem hér sé enginn jámingaskóli eða
rótgróin fagmennskuhefð í járning-
um. Þetta kann að hljóma eins og
upprennandi kaffibóndi í Brasilíu
komi hingað til að kynna sér kaffi-
rækt en það er nú ekki þannig. Það er
ýmislegt sem varð til þess að ég kaus
að fara til íslands. í fyrsta lagi hef ég
af einhverjum óútskýranlegum
ástæðum haft frá æsku mikinn áhuga
á Islandi án þess að hafa umgengist.
íslendinga mikið eða haft samband
við ísland. Annað sem ekki varð síður
þess valdandi að ég tók stefnuna
hingað er að ég hef haft tækifæri til
að kynnast íslenskum hestum og sitja
þá reglulega. í þeim kynnum hefur
Það hentar vel að vera ekki mjög hár í loftinu þegar unnið er
við járningar. Hér járnar Annelie kunnan gæðing frá fyrri
tíð, Glanna Ómar frá Keldudal, sem verður 25 vetra í vor.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Það voru íslensku hestamir sem lokkuðu
Annelie til íslands f verknámið en auk
þess að járna fór hún í nokkra reiðtúra.
mér orðið ljóst að við jámingu þeirra
þarf að taka tillit til ganglagsins og
mikið er undan því kvartað i Svíþjóð
að margir, kannski flestir lærðir járn-
ingamenn þar, hafi ekkert lært um
þetta. Erfiðlega hefur gengið fyrir
eigendur íslenskra hesta að fá þá til
að taka tillit til þessa. Þeir tálga fram-
hófana alveg upp undir hófbotna eins
og þeir gera með afturhófana og
þannig á að gera það að þeirra mati
og þarna hefur skapast vandamál í
samskiptum sænskra jámingamanna
og eigenda íslenskra hesta. Eg ákvað
því að kynna mér þetta og það lá því
beint við að fara til fyrirheitna lands-
ins,“ segir Annelie og ekM er laust við
að örli á brosi og hún heldur áfram.
„Ég kynntist íslenskum hesta-
manni, Guðmundi Grétarssyni, sem
er með íslenska hesta í nágrenni við
mig og hann kom mér í samband við
járningamann í íslandi og þar með
rættist minn gamli draumur, ég var
allt í einu komin til íslands
til dvalar í þrjár vikur. Ég
hef fengið mikið út úr heim-
sókn minni hingað. A það við
um jámingarnar og smá-
vegis lærði ég í reið-
mennsku, fékk tækifæri til
að ríða út og sjá svolítið af
landinu. Ég skoðaði Gullfoss
og Geysi og fór í Bláa lónið
og Perluna. Þá vöktu hest-
húsahverfin sérstaka at-
hygli mína. Svo miMð af
hestum, hesthúsum og
hestamönnum á einum stað
hef ég aldrei séð áður. Þetta
er mjög heillandi fyrirkomu-
lag sem býður upp á fjöl-
skrúðugt mannlíf í kringum hesta-
mennskuna og ekM er tiltökumál þótt
nýr hestur komi í annað hesthús. Hjá
okkur í Svíþjóð er það stórmál og
þarf að passa að ekkert komi upp á af
þeim sökum. Þá fór ég á Istöltið í
skautahöllinni en það var stórkostleg
upplifun að sjá alla þessa frábæra
hesta og víst er að ég hef aldrei séð
jafnmarga góða hesta samankomna.
Sérstaklega heillaðist ég af stóðhest-
unum Markúsi frá Langholtsparti og
Væng frá Auðsholtshjáleigu sem báð-
ir era með sérstakar hreyfingar. Síð-
ar fékk ég tækifæri til að heilsa upp á
Væng í hesthúsinu þar sem hann er.
Ég var mjög heilluð af þessum hesti.
Þá fór ég á mót framhaldsskólanna í
Reiðhöllinni í Víðidal en þar vora
einnig mjög góðir hestar.
Hágengari hestar á fslandi
Það vekur athygli m£na hvað hest-
ar lyfta fótum hæira hér en í Svíþjóð
og er ég þá ekM að tala um þessa
flottu keppnishesta sem ég sá heldur
þau hross sem ég hef augum litið hjá
almenningi. Skýringin á þessu sýnist
mér vera tví- eða þríþætt, hér eru lík-
lega yfir höfuð betri hestar, reið-
mennskan hér almennt betri eða í það
minnsta öðravísi, hrossunum þá
hleypt af meiri krafti og svo getur
verið að svokallaðar jafnvægisjám-
ingai’ hafi þai’na eitthvað að segja.
Hvað reiðmennskunni viðkemur hef
ég lært hér að ég þarf að vera miMu
virkari í hnakknum en ég hef verið til
að fá til að einbeita mér betur og verð
þar með kraftmeiri.
Hvað viðkemur járningum sýnist
mér að almenn þekMng meðal hest-
eigandanna á járningum sé meiii hér
á íslandi en í Svíþjóð. Hér járna
margir hestamenn hesta sína sjálfir
sem er nánast óþekkt heima. Heima
virðist mér hugsað meira um þarfir
og velferð hófsins og hestsins við
járninguna," segir Annelie og áhugi
hennar á jái’ningum leynir sér ekM.
„Þessi skamma dvöl hér á landi
hefur staðið fyllilega undir þeim
væntingum sem ég hafði gert mér um
draumalandið. Næsta mál á dagskrá
hjá mér er að undirbúa heimsókn að
sumarlagi og skoða meira af landinu,
ég hef svona rétt fengið nasasjón. Þá
hefur áhugi minn á að læra íslensku
enn aukist, undanfarin ár hef ég leit-
að að möguleikum á íslenskunámi í
grennd við heimili mitt í Svíþjóð en
ekM orðið ágengt en ég mun kanna
það áfram hvemig ég get lært málið,“
segir Islandsvinurinn Annelie Olsson
stuttu fyrir brottför sína í faðm fjöl-
skyldunnar í Bergefossen.
Hestaval í Rangárþingi
- kvennaval í Kópavogi
Siguroddur Pétursson mætti með Hyllingu sína frá Hjarðarholti í Glað-
heima og gerði góða ferð þótt ekki hampaði hann gulli í þetta skiptið.
GEYSISMENN luku þriggja móta
stigakeppni á Gaddstaðaflötum á
laugardag þar sem ísleifur Jónasson
sigraði samanlagt í opnum flokki á
Kóral frá Kálfholti. Berta Kvaran
sigraði í áhugamannaflokki á Viktor-
íu frá Þingnesi og Helga B. Helga;
dóttir sigraði í unglingaflokM. í
barnaflokki var keppnin spennandi
þar sem urðu jafnar Laufey Krist-
insdóttir á Gyrði frá Skarði og Inga
B. Gísladóttir á Úlfi frá Hjaltastöð-
um. Á Geysismönnum var að heyra
& að þeir litu björtum augum til sum-
arsins og landsmótsins hvað hesta-
kostinn varðaði eftir þessi þrjú mót,
menn almennt vel ríðandi í Rangár-
þingi.
Hjá Gusti var opin töltkeppni í
Glaðheimum í Kópavogi á laugardag
með útsláttarfyrirkomulagi þar sem
þátttakendur vora flestir heima-
menn eins og oft vill vera á slíkum
mótum.
Ekki var það þó einsleitur hópur
sem til verðlauna vann því þátttak-
endur úr nágrannafélögum sóttu
eitthvað af góðmálmum í Kópavog-
inn.
Athygli vakti góð þátttaka í
kvennaflokM og hestar þar góðir.
Telja kunnugir að ástæðu þess megi
rekja til líflegra útreiða kvenna hjá
Gusti í vetur, en auk þess var mjög
góð þátttaka í sérstökum reiðnám-
skeiðum fyrir konur. Farið var i
sameiginlega útreiðartúra undir
heitinu „hefðarkonur" og þykjast
menn nú sjá árangur af þessu góða
starfi í vetur.
En úrslit mótanna urðu annars
sem hér segir:
Geysismót á Gaddstaðaflötum
Opinn flokkur
1. Kristjón Kristjánss. á Penna frá Kirkjubæ
2. Þórarinn Eymundss. á Dreyru frá Saurbæ
3. Ólafur Þórisson á Stjömufáki
4. Kristín Þórðardóttir á Glanna frá Vindási
5. Isleifur Jónasson á Kóral frá Kálfhoiti
6. Jóhann Þ. Jóhannesson á Skugga frá
Dalsgarði
7. Jón Þ. Ólafsson á Dröfn frá Þingnesi
8. Ólafur Þórisson á Orku frá Miðkoti
9. Magnús Benediktss. á Grímu frá Árbakka
10. Guðmundur Guðmundsson á Hraundísi
ff á Lækjarbotnum
Áhugamenn
1. Hjördis Ágústsdóttir á Mirru frá Gunnar-
sholti
2. Þórdís Þórisdóttir á Emil frá Miðkoti
3. Sigurður B. Guðmundsson á Fönix frá
Tjarnarlandi
4. Andri L. Egilsson. á Léttingi frá Beru-
stöðum
5. Svanhildur Guðjónsdóttir á Kórínu frá
Grímsstöðum
6. Berta Kvaran á Viktoríu frá Þingnesi
7. Róbert Einars. á Gormi frá Grímsstöðum
8. Gestur Ágústsson á Blakki frá Suður-
Nýjabæ
9. Guðjón Bjömss. á Blæ frá Syðri-Hömrum
10. Haukur Kristjánsson á Dagsbrún frá
Hólmum
Unglingar
1. Helga B. Helgadóttir á Spönn
2. Eydís H. Tómasdóttir á Vá frá Lýtings-
stöðum
3. Katla Gísladóttir á Kæti frá Keldudal
4. Heiðar Þormarsson á Skugga frá Búlandi
5. Þórir M. Pálss. á Eldingu frá Móeiðarhvoli
6. Saga á Fönn
Börn
1. Hekla K. Kristinsdóttir á Stíganda frá
Kirkjulæk
2. Láms J. Guðmunds. á Straumi frá Árbæ
3. Laufey G. Kristinsd. á Gyrði frá Skarði
4. Inga B. Gíslad. á Úlfi frá Hjaltastöðum
5. Elín H. Sigurðardóttir á Kópi frá Hala
6. Unnur L. Hermannsd. á Dul frá Njarðvík
7. Rakel N. Kristinsd. á Kosti frá Tókastöð-
um
8. Jóhanna Þ. Magnúsdóttir á Sprautu frá
Neðri-Ási
9. Lóa D. Smárad. á Gyllingu frá Kirkjubæ
10. Ama Albertsdóttir á Brá frá Skógum
Opið mót hjá Gusti
í Glaðheimum
Pollar
1. Sigrún Sigurðardóttir, Gusti, á Degi frá
Búðarhóli
2. Guðný B. Guðmundsdóttir, Gusti, á Litla-
Rauði frá Svignaskarði
3. Matthías Kjartansson, Gusti, á Sóma frá
Krossanesi
4. Guðlaug R. Þórsdóttir, Gusti, á Spumingu
frá Múlakoti
5. Sandra Valsdóttir, Gusti, á Glóblesa frá
Kópavogi
Börn
1. Bjamieifur S. Bjamleifsson, Gusti, á
Tinna frá Tungu
2. Halldóra S. Guðlaugsdóttir, Herði, á Gló-
björtu frá Kópavogi
3. Jóhanna Jónsdóttir, Herði, á Grand frá
Kópavogi
4. Hreiðar Hauksson, Herði, á Perlu frá Eyj-
ólfsstöðum
5. Hrafn Norðdal, Gusti, á Strák frá Kópa-
vogi
Unglingar
1. Berglind R. Guðmundsdóttir, Gusti, á
Sjöstjörnu frá Svignaskarði
2. Elka Halldórsdóttir, Gusti, á Ábóta frá
Bólstað
3. Sigvaldi Lárusson, Gusti, á Brynju frá
Skógskoti
4. Olafur A Lámsson, Gusti, á Óðni frá
Skógskoti
5. Tryggvi Þ. Tryggvason, Gusti, á Kjarna
fráÁsi
Ungmenni
1. Sigurður Halldórsson, Gusti, á Krapa frá
Kirkjuskógi
flSTuno
Fermmgargjafir
Fermingartilboð
Hnakkar, beisli, skóreiðbuxur
með GSM-vösum
Munið uinsælu gjafakortin
Póstsendum
Sími 568 4240
FREMSTIR FYRIR GÆÐI