Morgunblaðið - 15.04.2000, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
.uuu -
500-
0-
1995 1996 1997 1998 1999 2000
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Dvergmáfur á ferðinni
Á DÖGUNUM sást til dvergmáfs, sem er flækingsfugl, arhlutföllunum á myndinni sem Sigurgeir Jónas-
þar sem hann dólaði sér inni í Friðarhöfnum. Dverg- son í Vestmanaeyjum tók af ritu og dvergmáfin-
máfurinn er minnstur allra máfa eins og sést á stærð- um.
Krefst þess að fá
257 þús. hluta
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Skúla
Bjarnasyni, lögmanni Ernis
Snorrasonar:
„Undirritaður Skúli Bjarnason,
hæstaréttarlögmaður, f.h. umbjóð-
anda míns, Ernis Snorrasonar,
eins af stofnendum Decode ehf.,
síðar Islenskrar erfðagreiningar
ehf. og de CODE Genetics inc. í
Bandaríkjunum, óskar eftir að
taka eftirfarandi fram, vegna
málssóknar á hendur deCODE
Genetics inc. í Bandaríkjunum.
Fréttaflutningur af málsókninni
er ekki kominn frá umbjóðanda
mínum enda telur hann að hags-
munum félagsins og hans sjálfs sé
best borgið, að svo stöddu, með
því að hvorki málsókn þessi né að-
dragandi hennar sé höfð í hámæl-
um.
Þar sem opinber málaferli eru
nú hafin í Bandaríkjunum er hins
vegar unnt að staðfesta að um er
að ræða kröfu umbjóðanda míns til
útgáfu og afhendingar þeirra
256.637 hlutabréfa í fyrirtækinu
sem hann keypti með sérstökum
kjörum sem einn af stofnendum
félagsins þann 21. ágúst 1996. Alls
á umbjóðandi minn rétt á 481.200
hlutum í félaginu samkvæmt til-
vitnuðum samningi. Hefur hann á
þessari stundu einungis fengið
hluta þeirra afhenta þ.e. 224.563
hluti. Allar tilraunir til þess að fá
fyrirtækið til að standa við gerða
samninga hafa hins vegar reynst
árangurslausar til þessa og er um-
bjóðanda mínum því nauðugur sá
kostur að sækja rétt sinn að lög-
um.
Með vísan til ofangreint óskar
umbjóðandi minn ekki eftir að tjá
sig frekar um málið að sinni,
hvorki málið sjálft né aðdraganda
þess, en vísar að öðru leyti til
stefnu og annarra opinberra gagna
málsins, en afrit af stefnunni fylgir
fréttatilkynningu þessari.
Þá skal sérstaklega tekið fram
að umbjóðandi minn samþykkti
ekki viðtal við DV um málið og er
því frétt þess þann 12. þ.m. á
ábyrgð blaðsins."
Aðalfundur Félags hrossabænda
Skjöldur
felldur í
stjórnarkjöri
EFTIR málefnalegan og rólegan að-
alfund Félags hrossabænda dró til
tíðinda þegar kom að stjórnarkjöri í
lok fundarins. Ut áttu að ganga Ólaf-
ur Einarsson frá Torfastöðum og
Skjöldur Stefánsson frá Búðardal en
báðir lýstu því yfir að þeir gæfu kost
á sér til endurkjörs. Jón Vilmundar-
son, formaður Hrossaræktarsam-
taka Suðurlands, lagði til að Helga
Thoroddsen frá Þingeyrum yrði
kjörin í stjórn, sagði tímabært að fá
konu inn í stjórn FH. Úrslitin m-ðu
þau að Ólafur hlaut 40 atkvæði en
Helga 24 atkvæði og Skjöldur 23 at-
kvæði og náði þar með ekki endur-
kjöri.
Astæður þessa útspils Sunnlend-
inga eru raktar til ágreinings sem
upp kom innan stjórnar í vetur þeg-
ar tilnefndur var fulltrúi félagsins í
nefnd á vegum landbúnaðarráðu-
neytisins um átaksverkefni í hross-
arækt og hestamennsku. Formaður
félagsins, Kristinn Guðnason, hafði
hug á að taka sæti í nefndinni en
Skjöldur ásamt Ármanni Ólafssyni
frá Litla Garði og Ingimar Ingimars-
syni Ytra-Skörðugili vildu að Ár-
mann tæki sæti í nefndinni og varð
það niðurstaðan eftir að til atkvæða-
greiðslu kom innan stjórnarinnar.
I varastjórn voru kjörnir Sigbjörn
Björnsson frá Lundum, Elvar Ein-
arsson frá Syðra-Skörðugili og
Knútur Armann frá Friðheimum.
Fulltrúi félagsins á Búnaðarþing var
kjörinn Baldvin K. Baldvinsson.
í ræðu sem Skjöldur Stefánsson
flutti að loknu stjórnarkjöri þakkaði
hann fyrir sig en sagðist jafnframt
hafa unnið samkvæmt sinni bestu
samvisku og sannfæringu þau þrjú
ár sem hann hafi setið í stjórn félags-
ins. Hann taldi sig vera að gera
hreyfingunni gott með því létta á
formanninum sem hafi haft ærin
starfa fyrir og hann því talið gott að
dreifa verkunum. Að endingu setti
hann fram þá ósk að menn létu „aflíf-
un sína“ ekki hafa áhrif á störf sam-
takanna. Persónan Skjöldur Stef-
ánsson skipti ekki máli heldur væru
það samtökin og málefnin sem hefðu
forgang. Guðmundur Birkir Þor-
kelsson frá Húsavík sagði eftir að
Sunnlendingar komu með uppá-
stungu um Helgu að nú ætluðu
Sunnlendingar að hefna sín og koma
Skildi út úr stjórninni af því hann
studdi Armann í nefndina.
Af þeim tillögum sem hlutu braut-
argengi má nefna að samþykkt var
að ganga til samninga við aðra hags-
munaaðila í hestamennskunni um
sameiginlegt skrifstofuhald og ráðn-
ingu markaðsfulltrúa. Einnig var
samþykkt að stjórn félagsins beitti
sér fyrir setningu hertra laga og
markvissari um búfjárhald. Þá
hvatti fundurinn til markvissra að-
gerða í gæðastýringu í hrossarækt
með skipulegri hársýnatöku til
DNA-greiningar við einstaklings-
merkingu folalda og sýningu kyn-
bótahrossa. Er talið að með þessu
megi einfalda mjög allt skýrsluhald
við hrossarækt.
Forseti í afmælisfagn-
aði Margrétar Dana-
drottningar
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, fer í dag, laugardaginn
15. apríl, til Kaupmannahafnar til
að taka þátt í hátíðarhöldum í til-
efni af 60 ára afmæli hennar há-
tignar Margrétar Danadrottning-
ar.
Laugardagskvöldið verður há-
tíðarsýning í Konunglega leik-
húsinu i Kaupmannahöfn en á
sunnudagsmorgun guðþjónusta í
Hallarkirkjunni. Að loknum há-
degisverði í höll Kristjáns VII
verður móttaka í ráðhúsi Kaup-
mannahafnar. Á sunnudags-
kvöldið verður hátíðarkvöld-
verður og dansleikur í Krist-
jánsborgarhöll.
Landbúnaðarráðherra svarar til um útflutning á kindakjöti
Mest flutt út árið 1996
í SVARI landbúnaðarráðherra við fyrirspurn á Alþingi um árlegan útflutn-
ing á lambakjöti á tímabilinu 1995-2000 kemur fram að mest var flutt út árið
1996, samtals 3.000 tonn. En síðan hefur verulega dregið úr útflutningi.
Fram kom að mest hefur verið flutt út til Færeyja og nokkuð til Danmerk-
ur og Svíþjóðar. Eins og sjá má á yfirliti yfir Fob-verð og verð sláturleyfis-
hafa til bænda á tímabilinu fór útflutningsverð lækkandi á síðasta ári.
200
Útflutningur kindakjöts
1995 - 2000 (tonn)
3.000
2.500
2.000
1.500
Fob-verð og verð sláturleyfis-
hafa til bænda 1995 - 2000
1995 1996 1997 1998 19992000
Fob-verð útflutts
kjöts
Sturla Böðvarsson
samgönguráð-
herra
Ekki
áhyggjur
af fjölg-
un GSM-
kerfa
STURLA Böðvarsson sam-
gönguráðherra gerir aðspurð-
ur ekki neinar athugasemdir
við áætlanir fyrirtækja um
fjölgun GSM-kerfa hér á landi
en tilefni spurningarinnar til
ráðherra eru yfirlýsingar ís-
landsssíma hf. um að hefja
rekstur GSM-kerfis á þessu
ári. „Ég tel að það sé algjör-
lega á valdi fyrirtækjanna og
fjárfestanna sjálfra að meta
hvort skynsamlegt sé að fjölga
GSM-kerfunum,“ segir ráð-
herra en minnir þó á að sam-
kvæmt nýjum fjarskiptalögum
sé hægt að semja við önnur
fyrirtæki um aðgang að sendi-
búnaði þeirra. „I mínum huga
er fjöldi GSM-kerfanna því
ekki áhyggjuefni á þessari
stundu, svo framarlega sem
menn gæta sín í fjárfesting-
unni og sjá til þess að hún
standi undir sér.“
Sauðfjár-
samningur
samþykktur
SAMNINGUR Bændasamtaka
íslands og ríkisvaldsins um
framleiðslu sauðfjárafurða var
samþykktur í póstkosningu
meðal sauðfjárbænda. Alls
greiddu 1.932 atkvæði af 2.916
sem voru á kjörskrá eða 66,3%.
Já sögðu 1.234 eða 63,9% en nei
654 eða 33,9%. Auðir og ógildir
seðlar voru 44.
Atkvæðisréttur í kosning-
unni var bundinn félagsaðild að
Bændasamtökum íslands og að
viðkomandi væri aðili að bú-
rekstri með a.m.k. 50 kindur.
Útflutningur kindakjöts 1995 - jan. 2000 (tonn)
1995 1996 1997 1998 1999 jan.00
Samtals 1.140,3 3.023,5 1.047,3 793,9 833,8 199,3
Danmörk 62,1 451,1 103,1 188,0 148,8 13,4
Færeyjar 346,9 340,3 447,7 388,0 414,3 39,3
Noregur 0,0 80,0 0,0 0,0 132,4 106,0
Svíþjóö 449,0 503,2 62,2 25,7 20,3 0,0
Bandaríkin 95,1 117,6 14,0 26,8 11,4 0,0
Japan 0,0 143,8 89,7 88,1 98,0 21,3
Rússland 0,0 327,4 15,7 14,9 0,0 0,0
Bretland 0,0 317,8 133,6 0,0 0,0 0,0
Bosnía-Herzeg. 0,0 166,7 76,0 0,0 0,0 0,0
Tékkland 0,0 279,8 56,9 0,0 0,0 0,0
Önnur lönd 187,2 295,8 48,4 62,4 8,6 19,3