Morgunblaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Fara meðlög ekki í fram- færslu barna? ÉG SKRIFA þessar línur til að lýsa yfir óánægju minni með skattaskýrsl- una. í leiðbeiningabæk- ling sem gefinn er út í sambandi við skattskýrsl- una kemur fram að ein- staklingur sjái ekki um framfærslu á bami nema að það eigi lögheimili hjá viðkomandi. Það þykir sjálfsagt að öll réttindi falli til þess foreldris sem barnið hefur lögheimili hjá, þó svo að um sameig- inlegt forræði sé að ræða og auðvitað skal meðlag vera borgað. Þetta er allt gott og blessað og lítið um það að segja, en hinsvegar er það forkastan- Skattaskýrsla Eru barnalögin beinlínis röng og fer meðlagið sem ég borga í eitthvað allt annað en fram- færslu á barninu mínu, spyr Baldvin Zarioh, eða vitnar ríkisskatt- stjóri rangt í lögin? Baldvin Zarioh legt að ríkisskatt- stjóri skuli ekki við- urkenna að við sem borgum meðlag, séum að uppfylla framfærsluskyldu okkar. Ablaðsíðu sex í bæklingi þeim sem ríkisskattstjóri gefur út vegna skatta- skýrslunnar kemur fram að einstætt for- eldri sé sá sem einn sér um framfærslu bams. Með því er ríkisskattstjóri að halda því fram að ég sé ekki að borga með framfærslu barns míns í gegnum meðlagið, þó að það standi í tíundu grein bamalaga frá 1992 að ég sé ein- mitt að uppfylla framfærsluskyldu mína með því að borga meðlag. Þá er einungis um tvennt að ræða: að bamalögin séu beinlínis röng og meðlagið sem ég borga fer í eitthvað allt annað en framfærslu á barninu mínu eða þá að ríkisskattstjóri vitnar rangt í lögin. Ef barnalögin em röng þá vil ég fá að vita í hvað meðlagið mitt fer, en ef ríkisskattstjóri fer með rangt mál, þá óska ég þess að viðkomandi málsgrein í leiðbeining- arbæklingnum verði breytt fyrir næstu skattaskýrslu. Höfundur er ritari Félags ábyrgra feðra. Hverju skiptir viðskiptahallinn? auglýsir eftir tilboðum í gerð sjónvarpsauglýsinga fyrir Ferðamiðstöð Skaga- fjarðar og aðila tengda henni. Rammatilboð sendist til stjómar Ferða- miðstöðvar Skagafjarðar, stjórnsýsluhúsinu, Sauðárkróki, fyrir 19. apríl 2000 Nánari upplýsingar gefur Pétur Einarsson í síma 899 8631. SAMKVÆMT spá Þjóðhagsstofn- unar mun viðskiptahallinn verða rúmlega 50 milljarðar króna á þessu ári eða 7,2% af landsframleiðslu. Þetta er þriðja árið í röð með slíkum halla og svo langdreginn ójöfnuður er einsdæmi í sögu þjóðarinnar. En Þjóðhagsstofnun bætir um betur og spáir samfelldum viðskiptahalla sem nemur 8% af landsframleiðslu allt fram til ársins 2004. Viðbrögð við þessum tíðindum hafa verið heldur lágróma. Svo virðist sem landsmenn hafi sammælst um að viðskiptahall- inn sé aðeins skýhnoðri á himni sem er annars heiðríkur og bjartur. Lík- ing við þrumuský er þó betur við hæfi. Núverandi góðæri er hið fyrsta héríendis sem byggist ekki á aukningu útflutningstekna heldur bjartsýni og erlendum lánum. ísl- and hefur veikan gjaldmiðill en háa erlenda skuldastöðu og þess vegna setur fjármögnun viðskiptahallans þrýsting á fjármagnskerfi landsins og veldur óvissu um hagþróun næstu misseri. Hvers vegna viðskiptahalli? Jöfnuður á utanríkisviðskiptum er ekkert lögmál. Fjárfestingar sem eru fjármagnaðar með erlendum lánum leiða af sér aukin efnahags- umsvif og innflutning fjárfestingar- vara sem skapa viðskiptahalla. Til að mynda, eftir sigur í þorskastríð- inu voru botnfiskveiðar byggðar upp með undraskömmum hætti og árin 1974-75 var fjárfesting um 34% af landsframleiðslu en viðskiptahalli rúmlega 10%. Aðstæður nú eru að nokkru breyttar. Þó fjárfesting sé nú um 20% af landsframleiðslu er ekki útlit fyrir að útflutningur auk- ist verulega. Viðskiptahallinn stafar helst af neyslu og fjárfestingu ís- lenskra heimila og af þeim sökum hefur innflutningur auldst um 85% frá árinu 1994. Islendingar virðast vonglaðir um auknar framtíðartekj- RAFIÐNAÐAR : - ' MENN TAKIÐ ÞATT í ATKVÆÐAGREIÐSLU UM NÝJAN KJARASAMNING Nýr kjarasamningur Rafiðnaðarsambands íslands, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði hefiir verið sendur félagsmönnum, sem starfa samkvæmt samningi, ásamt skýringum og atkvæðaseðli. Atkvæðaseðlar þurfa að berast skrifstofu RSÍ fyrir kl. 16.00 á mánudag 17. apríl. Samninganefnd RSÍ hvetur rafiðnaðarmenn til þess að greiða atkvæði og setja þau í póst fyrir helgi, hvort sem þeir ætla að samþykkja samninginn eða hafna honum. Ath. Félagsmenn sem ehhl hafa fenglð send hjðrgðgn eru beðnlr um að hafa samband sem fyrst vlð shrlfstofu RSÍI síma: 5681433. RAFIÐNAÐARSAMBAND >NA IS SLANDS ur og taka óhikað lán. Þjóðin telur einnig margt ungt fólk sem þarf að koma sér fyrir í lífinu, kaupa bíl, íbúð og svo framvegis. Ef ísland væri hluti af stærra myntsvæði og landsmenn notuðu dollar eða evru myndu erlendir fjármagns- flutningar til þessa unga fólks vera án vandræða. Viðskipta- halli skipti þá álíka litlu máli fyrir ísland Ásgeir Jónsson og viðskiptajöfnuður á milli fylkja í Bandaríkjunum. Hins vegar er ísland með sinn eigin gjaldmiðil og landið verður að afla erlends gjaldeyris til þess að standa skil á vörukaupum. Erlend ríki taka ekki krónur upp í greiðslu. Þess vegna þarf að fjármagna viðskipta- hallann með erlendum lánum, en sagan er ekki öll. Að leggja saman tvo og tvo ísland er skuldugt. Erlendar skuldir eru nú um 65% af lands- framleiðslu og vaxtagjöld af þeim voru rúmlega 20 milljarðar á síðasta ári sem verður að greiða í útlendri mynt. Á móti koma tekjur og arður íslendinga erlendis, en hrein þörf á erlendu fjármagni vegna vaxta- greiðslna var um 14 milljarðar árið 1999. Þessi gjaldeyrisþörf mun auk- ast upp í 17 milljarða á þessu ári vegna aukinna erlendra skulda og leggst til viðbótar því erlenda fé sem þarf til að mæta viðskiptahall- anum. Þess vegna ef spá Þjóðhagsstofn- unar gengur eftir um 8% viðskipta- halla næstu 4 ár þurfa erlendar skuldir að aukast um rúmlega 70 milljarða á ári til þess að standa straum af viðskiptahalla og vöxtum. Fari svo mun hlutfall erlendra lána af landsframleiðslu nálgast 100% ár- ið 2004 og ísland komið í hóp skuld- ugri ríkja í heiminum m.v. erlenda stöðu. Hins vegar er ólíklegt að þessi áætlun Þjóðhagsstofnunar geti ræst, því hún jafngildir áfram- haldandi þenslu og verðbólgu sem mun hækka raungengi og setja óbærilegan þiýsting á fjármagns- kerfið. Afleiðingin verður gengisfell- ing sem mun gera erlendar vörur hlutfallslega dýrari og leiða til sam- dráttar í innflutningi og bata á við- skiptajöfnuði. Að hægja á hagkerfínu Sá kostur er auðvitað mun æski- legri að vaxtahækkanir og aðhald í ríkisfjármálum verði til þess að hægja á hagkerfinu. Ef slíkt heppn- aðist mundi gengi krónunar samt vera í hættu því nokkum tíma tekur fyrir svo mikinn viðskiptahalla að hverfa auk þess sem erlendar vaxta- greiðslur verða enn til staðar. Erlent fjármagn kemur inn í landið vegna arðbærra fjárfestinga eða hárra vaxta sem verðlauna þá er hafa fé sitt í krónum og taka þar með áhættu á gengis- fellingu. Vextir hér innanlands hafa hækk- að um tæp 3% undan- farið og skammtíma- vextir eru nú 6-7% hærri hér en erlendis. Það hefur orðið til þess að stýra peningum inn í landið, en mjög arð- bært er fyrir fjármál- astofnanir að taka er- lend lán og endurlána innanlands. En um leið og efnahagsástand versnar mun vilji til fjárfestinga minnka hjá bæði heimilum og fyrirtækjum og lánaeftirspurn drag- ast saman. Þá er líklega þörf á frek- ari vaxtahækkunum sem jafnframt koma illa við hagkerfið, en trúverð- ugleiki gengisstefnunnar mun þó Efnahagur Viðskiptahallinn, segir Asgeir Jónsson, stafar helst af neyslu og fjárfestingu íslenskra heimila. ráða miklu um hversu mikinn vaxta- mun þarf til þess að lokka fjármagn inn í landið. Undir þessum kring- umstæðum verður mikill þrýstingur á opinbera aðila að hlaupa undir bagga með því að ráðast í stórfram- kvæmdir, taka erlend lán og þannig tryggja fjármagnsjöfnuð. Annað úr- ræði er að útlendingar fjárfesti með beinum hætti hérlendis. En hvernig sem málin þróast mun jafnvægi í gjaldeyrismálum verða viðkvæmt næstu misseri og íslensk stjómvöld verða að stíga nokkurn línudans. Einsleitar skoðanir Það fylgir búsetu í einsleitu hag- kerfi að skoðanir fólks verða keim- líkar. Svo virðist sem drjúgur hluti landsmanna hafi sannfært hverjir aðra í tölvu- og símbréfum um það að langtímahorfur séu svo góðar að ekkert geti raskað núverandi hag- sæld. Framtíðin lítur óneitanlega vel út fyrir Islendinga. En hið sama mátti segja um Asíulöndin sem lentu í kollsteypu fyrir nokkrum misserum. Þar fór saman eins og hér, fastgengisstefna, ört inn- streymi á fjármagni, skuldasöfnun og bjartsýni. Efnahagsvandræðin þar eystra voru stutt en sársauka- full og ollu stjórnmálauppnámi þrátt fyrir að langtímaútlit hafi ávallt ver- ið gott. Sama hætta blasir við ís- lendingum sem hafa bæði veikan gjaldmiðill og miklar erlendar skuldir. Þeir sitja því uppi með fjár- magnskerfi sem er háð innstreymi á erlendu fjármagni og veikt íyrir breytingum á eftirspurn. Það eru þessir kerfisgallar sem geta leitt efnahagslífið afvega um stundarsak- ir og brugðið fæti fyrir áætlanir þjóðarinnar. Höfundur er hagfræðingur. Á fermingarborðið Borðdúkaúrvalið u er hjó s?kkur IfAíV, Uppsetningabúðin Hverfisgötu 74, sími 552 5270.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.