Morgunblaðið - 15.04.2000, Page 22
22 LAUGAKDAGUR 15. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Frá umferðarátakinu fyrir utan Sólvelli á Seyðisfirði.
Seyðisfirði - Starfsfók í heilsu-
gæslu, lögreglan, grunnskólinn
og leikskólinn á Seyðisfirði stilltu
saman strengi sína vikuna 6.-12.
apríl og voru með aðgerðir til
þess að auka öryggi vegfarenda.
Á fimmtudaginn var lögðu
menn áherslu á öryggi barna í
bílum og skoðuðu öryggisbúnað
allra sem komu að leikskólanum
Sólvöllum þá um morguninn. Þeir
sem ekki voru með öryggisbelti
Atak í um-
ferðaröryggi
barna á Seyð-
isfirði
né tilætlaðan búnað fyrir börn sín
fengu vinsamlegar ábendingar
um það sem betur mátti fara. Að
sjálfsögðu fengu hinir tilhlýðilegt
hól.
Umferðarkönnun sem fram-
kvæmd var sl. vetur leiddi í ljós
að Seyðfirðingar voru þeir fjórðu
slökustu á landinu öllu með tilliti
til öryggis barna þeirra í bif-
reiðum. Átakið nú er liður í því
að vekja bæjarbúa til umhugsun-
ar og fá þá til þess að huga betur
að öryggi barna sinna í umferð-
inni.
Samningur undirritaður um sorpförgun í Skaftárhreppi
Áætlun öðrum til fyrir-
myndar að mati ráðherra
Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir
Siv Friðleifsdóttir ráðherra og Ólafía Jakobsdóttir, sveitarstjóri Skaft-
árhrepps.
Kirkjubæjarklaustri - Siv Frið-
leifsdóttir umhverfisráðherra sam-
þykkti 11. apríl sl. áætlun um
sorpförgun í Skaftárhreppi í V-
Skaftafellssýslu. Að öðru jöfnu
hefði kannski ekki þótt ástæða til
þess að ráðherra undirriti slíka
samþykkt á viðkomandi svæði en
eins og kom fram í ávarpi ráð-
herra þá þykir henni samþykktin
vera öðrum til fyrirmyndar og má
segja einsdæmi hjá sveitarfélagi á
íslandi.
í þessari samþykkt er tekið á
öllum þáttum sorpförgunar,
„heildstæð lausn“, eins og ráð-
herra komst að orði, og gert ráð
fyrir að í öllu sveitarfélaginu fari
fram flokkun á sorpi í þrjá flokka:
brennanleg efni og óbrennanleg og
loks lífrænn úrgangur. Síðan er líf-
rænn úrgangur unninn þannig að
hann nýtist til áburðar og brenn-
anleg efni eru notuð til orkufram-
leiðslu í sorporkustöð.
Áður hafa nokkur sveitarfélög
tekið upp flokkun úrgangs, þá
hluti byggða og fyrst og fremst til
reynslu en að taka yfir heilt sveit-
arfélag, sem að mati Sivjar telst
meðalstórt, er nýlunda.
Að loknum ávörpum og undir-
skrift var farið í vettvangsferð og
skoðuð sorporkustöðin og tromla
sem jarðgerir lífrænan úrgang en
ferðinni lauk á Kirkjubæjarstofu
þar sem stjórn hennar tók á móti
ráðherra og gestum.
Leikskólanum
Kríubóli gefin mynd-
bandstökuvél
Hellissandi - Ánægjan og afrakstur-
inn af hátíðarhöldum jólanna endist
oft langt fram eftir vetri. Um síð-
ustu jól, nánar tiltekið á Þorláks-
messu, stóð Lionsklúbbur Nesþinga
á Hellissandi fyrir skemmtun í félgs-
heimililinu Röst með mjög veglegu
leikfangahappdrætti. Slík skemmt-
un fyrir bömin er reyndar árvisst
atriði í starfsemi klúbbsins. Þegar
þessar skemmtanir hafa skilað ág-
óða hefur sá ágóði jafnan verið lát-
inn renna til leikskólans Kríubóls til
leikfangakaupa.
Ágóðinn af happdrættinu á síð-
ustu Þorláksmessu var nokkuð gild-
ari en oftast áður. Því ákváðu Lions-
menn að nú skyldu þeir færa
leikskólanum góða gjöf. Fyrir valinu
varð myndbandstökuvél sem myndi
verða bæði starfsfólki og bömunum
til gagns og ánægju. Smári Lúðvíks-
son, formaður fjáröflunarnefndar
Lions-klúbbsins, heimsótti Kríuból
10. apríl sl. og afhenti Sigríði H. Sig-
urðardóttur, leikstjórastjóra,
myndbandstökuvélina.
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Smári Lúðvíksson afhenti Sig-
ríði H. Sigurðardóttur vélina.
Starfsfólk og böm í leikskólanum
hafa trúlega flest verið á skemmtun-
inni hjá Lionsmönnum um síðustu
jól og öll skemmt sér þar vel og jafh-
vel fengið góða vinninga í happ-
drættinu. Að afraksturinn og ánægj-
an af skemmtuninni myndi skila sér
sem myndabandstökuvél í leikskól-
ann þeirra á útliðnum vetri, hefur
varla komið þeim til hugar þá.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Signrður Hafberg, eigandi Grænhöfða ehf., sem á og rekur orlofs-
íbúðina.
Aukið gistirými
á Flateyri
Flateyri-Innan skamms mun bætist
við nýr valkostur í gistirými á Flat-
eyri, þegar fullbúin orlofsíbúð verður
tekin í notkun. Á Flateyri eru fyrir 3
gistiheimili og að sögn Sigurðar Haf-
berg, eiganda Grænhöfða ehf sem á
og rekur orlofsíbúðina, fannst honum
sem farið væri að rýmkast á leigu-
markaðnum og þörf væri fyrir aukn-
ingu á þeim markaði. Gott samstarf
væri milli aðila á þessum heima-
markaði og með tilkomu orlofsíbúð-
arinnar minnkaði álagið hvað varðaði
skort á gistirými á háannatímum.
Töluverð aukning ferðamanna síð-
astliðin ár hefur fært mönnum heim
sannindin um þörf á aukinni upp-
byggingu í kringum meiri viðveru
ferðamanna á Flateyri. Samhliða or-
lofsíbúðinni verður einnig rekin ný-
stofnuð sjókajakaleiga, einnig undir
merkjum Grænhöfða ehf. í boði
verða 7 bátar og verður aðalbækistöð
leigunnnar við smábátahöfnina á
Flateyri. Hægt verður að leigja kaj-
akana bæði með og án leiðsagnar, en
umsjónarmenn eru allir þaulvanir
kajakræðarar. Boðið verður upp
lengri og styttri ferðir og fer þetta
allt eftir óskum og getu viðkomandi.
Með tilkomu orlofsíbúðarinnar
skapast sá möguleiki að bjóða upp á
pakkagistingu, þ.e. í tengslum við
kajakaleiguna. Állt að 6 manns geta
gist í íbúðinni og er hún fullbúin með
húsgögnum. Sigurður segist horfa til
framtaks Súðvíkinga sem hafa
hrundið af stað sumarhúsabyggð í
gömlu byggðinni með 10 íbúðum og
gangi mjög vel að leigja það út. Slíkt
mundi Sigurður vilja sjá gerast einn-
ig á Flateyri, þar sem gisting og af-
þreying af einhverju tagi væri í boði
fyrir ferðamenn.
Vega-
samband
komið í
Arnes-
hrepp
Ströndum - Vegurinn norður í
Árneshrepp var opnaður 13.
apríl eftir óvenju stuttan
mokstur, eða 4 daga, byrjað
var að moka sunnan frá, það
er frá Bjarnarfirði og norður
úr.
Þetta er um þremur vikum
fyrr en í fyrra en þá var gíf-
urlegur mokstur. Vegurinn er
aðeins jeppafær þar til þorn-
ar um.
Tívolíhúsið
í Hveragerði
rifíð
Hveragerði - Framkvæmd-
ir eru nú í fullum gangi við
niðurrif tívolíhússins í
Hveragerði og ef allt geng-
ur samkvæmt áætlun verð-
ur húsið horfið innan fárra
daga. Það er Djúpárhrepp-
ur sem er kaupandi hússins.
Að sögn Heimis Hafsteins-
sonar, oddvita Djúpár-
hrepps, er ætlunin að nýta
gríðarstóra límtrésbitana
annars vegar í fjölnota hús
með íþróttagólfi i Þykkva-
bænum og hins vegar til
byggingar reiðhallar á
Gaddstaðaflötum við Hellu.
Húsið sem upphaflega
var 6.000 m2 var á sínum
tíma byggt yfir tívolíið sem
rekið var í Hveragerði. Þeg-
ar sú starfsemi lagðist af
var húsið tímabundið nýtt
sem markaðstorg en síðasta
starfsemi sem var í húsinu
var rekstur Jólalandsins.
Síðastliðin ár hefur húsið
staðið autt og ónotað. Helm-
ingur hússins var rifinn og
seldur fyrir allnokkrum ár-
um en sá hluti sem nú hverf-
ur er um 3.000 m2 að flatar-
máli og er það ein stærsta
bygging Hveragerðisbæjar.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
Framkvæmdir við niðurrif Tívolíhússins ganga vel.
MB1