Morgunblaðið - 15.04.2000, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ahern leitar skýringa
á afskiptum BNFL
London. Morgunblaðið.
BERTIE Ahern, forsætisráðherra
írlands, mun leita eftir skýringum
brezku ríkisstjórnarinnar á því, að
British Nuclear Fuels Ltd., sem
m.a. rekur endurvinnslustöðina í
Sellafield, hafði hönd í bagga við
samningu svars ríkisstjórnarinnar
við bréfi írsks þingmanns um
Sellafield. Upplýsingadeild BNFL
á að hafa reynt að afvegaleiða
írska ráðherra og þingmenn, sem
eru rekstri stöðvarinnar andvígir,
og sömuleiðis brezka þingmenn.
Þá á BNFL að hafa leynt, með
samþykki viðskipta- og iðnaðar-
ráðuneytisins, þýðingarmiklum
upplýsingum um öryggismál varð-
andi lestarflutninga á kjarnorku-
úrgangi.
Það er brezka blaðið The
Guardian, sem hefur skýrt frá því,
að blaðinu hafi borizt gögn, sem
sýndu að BNFL hefði reynt að
leiða þingmenn og ráðherra út af
því sporinu að gagnrýna stöðina í
Sellafield. Fyrirtækið náði í gegn-
um viðskipta- og iðnaðarráðuneyt-
ið að ráða innihaldi svarbréfs til
írsks þingmanns, Mildred Fox,
sem hafði sent brezka forsætis-
ráðherranum ósk um að hann
íhugaði að láta loka Sellafield.
Forsætisráðneytið fól iðnaðarráðu-
neytinu að gera drög að svari, en
að ráði BNFL var Fox ekki þess
virði að fá svar frá forsætisráð-
herranum, heldur svaraði iðnaðar-
ráðuneytið henni samkvæmt for-
skrift BNFL. Mildred Fox hefur
rætt málið við Bertie Ahern, sem
sagðist mundu taka málið upp við
Tony Blair næst þegar þeir hitt-
ust, en hann hefur í lyrsta um-
gangi falið iðnaðarráðherra sínum,
Joe Jacobs, að taka málið upp við
brezka orkumálaráðherrann Helen
Liddell.
írska ríkisstjórnin hefur tekið
höndum saman við Norðurlöndin
um að skapa þrýsting á brezku
ríkisstjórnina um að loka Sella-
field.
Beitti sér gegn umhverfis-
ráðherranum
The Guardian segir einnig, að
BNFL hafi beitt sér án árangurs
fyrir andróðri gegn tillögu Michael
Meacher umhverfismálaráðherra
um að láta kanna afrennsli kjarn-
orkuúrgangs í sjóinn milli Bret-
lands og Irlands. Sömuleiðis hafði
BNFL ekki erindi sem erfiði gegn
Rudi Vis þingmanni, sem fékk því
komið til leiðar að lestir með
kjarnorkuúrgang fengu ekki að
standa yfir nótt á brautarstöð við
íbúðahverfið Cricklewood í Norð-
ur-London.
Þá segist The Guardian einnig
hafa fengið gögn sem sýni fram á
samsæri BNFL og viðskipta- og
iðnaðarráðuneytisins um að leyna
upplýsingum um hættu af áætlun
um að auka um þriðjung hámarks-
hraða lestanna, sem flytja kjam-
orkuúrgang. BNFL vildi auka
hraðann úr 45 í 60 mílur á klukku-
stund en af þvi hefur ekki orðið.
www.simmn.is
Fáðu nánari upplýsingar um NMT i
gjaldfrjálsu númeri [ 800 7000] eða á netinu
5 í MI N N
Ef kvefast,
hvað þá?
NMT - langdræga farsímakerfið
Maxon MX-2450
HMlifA'Jii 7.980 kr.út
og 1.000 kr. á mán. í ár
Heildarverð: 19.980,-
Stgr. verð: 18.981,-
Útbreiðsla
NMTfarsímakerfisins
Atlantshafsbandalagið
Svíar aðilar inn-
an fímm ára?
Brussel. Morgunblaðið.
INNAN fimm ára verða Svíar
gengnir í Atlantshafsbandalagið
(NATO) að sögn Björns von
Sydow, vamarmálaráðherra Sví-
þjóðar. Lét hann þessa skoðun sína
í ljós í samtali við breskan vamar-
málasérfræðing í fyrra.
Alexandra Ashboume, sem starf-
ar hjá Evrópsku umbótamiðstöð-
inni í London, hafði ummælin eftir
von Sydow á blaðamannaráðstefnu
sem haldin var á vegum Evrópsku
fréttamannastöðvarinnar í Bmssel
á fimmtudag og föstudag. Þar var
fjallað um varnir Evrópu í framtíð-
inni.
Ráðherra úr flokki sænskra jafn-
aðarmanna mun ekki hafa tjáð sig
fyrr á þennan hátt um aðild Sví-
þjóðar að NATO. Ashboume hefur
unnið við að kanna afstöðu ráða-
manna og almennings í aðildarríkj-
um Evrópusambandsins (ESB) til
Atlantshafsbandalagsins og áætl-
ana um svonefnda Evrópustoð NA-
TO.
Athygli vakti á ráðstefnunni að
Philippe Guelluy, sem er sendi-
herra Frakklands hjá NATO, sagð-
ist álíta að Evrópustoðin myndi
ekki geta orðið sannfærandi til
langframa nema Evrópusambandið
hefði langdræg kjarnorkuvopn í
vopnabúri sínu. Belginn Marc Otte,
sem er einn nánasti aðstoðarmaður
Javier Solana, er fer með utanrík-
is- og varnarmál ESB, sagði það
vera útbreidda skoðun að komi á
ný til alvarlegra átaka milli Ind-
lands og Pakistans, yrði beitt
kjarnorkuvopnum. Otte er yfirmað-
ur sérskipaðs vinnuhóps ráðherra-
ráðs ESB, sem ætlað er að móta
stefnuna varðandi Evrópustoðina.
Fylgi Ken
Livingstone
fer undir 50 %
London. Morgiinblaðið.
FYLGI Ken Livingstone til borg-
arstjóraembættisins í London hef-
ur fallið í 49% samkvæmt nýrri
skoðanakönnun, sem Evening
Standard skýrði frá í gær. Þegar
mest var naut hann 68% fylgis. Þá
hefur frambjóðandi íhaldsflokks-
ins, Steve Norris, skotist upp fyrir
Frank Dobson, frambjóðanda
Verkamannaflokksins, og er nú
næstur Livingstone með 16%, en
Dobson er með 15. Frambjóðandi
frjálslyndra, Susan Kramer, er
með 12% atkvæða.
Ken Livingstone byrjaði árið
með 51%, en stökk upp í 68%, þeg-
ar hann tilkynnti um sjálfstætt
framboð sitt 6. marz sl. Hálfum
mánuði seinna var fylgið komið nið-
ur í 61% og hefur nú minnkað um
önnur 12%. Kjósendur merkja við
tvo frambjóðendur á kjörseðlinum;
fyrsta val og annað, og nái fram-
bjóðandi ekki helmingi atkvæða
þarf að flytja annars vals atkvæði á
hann og þann frambjóðanda, sem
næstur honum er.
Um fylgi Livingstone er tvennt
að segja. Annaðhvort hefur það
leitað aftur til þess jafnvægis sem
það var í áður en hann fór í sjálf-
stætt framboð eða það heldur
áfram að minnka. Eru þá áreiðan-
lega að koma honum í koll fréttir af
fjármálum hans og ekki síður ýmis
ummæli hans, sem hafa þótt orka
tvímælis. Á dög-
unum ollu t.d.
ummæli hans um
að fjármálaveldið
í heiminum hefði
fleiri mannslíf á
samvizkunni en
Hitler miklum
viðbrögðum.
I stöðunni
horfir Dobson fram á fjórða sætið.
Kjósendur Verkamannaflokksins
eru taldir verða latir að fara á
kjörstað og það mun bitna svo á
honum, að Susan Kramer komi
sterkari út úr kosningunum en
hann. Dobson hefur lagt áherzlu á
að skilja milli sín og flokksforyst-
unnar í kosningabaráttunni, en sá
nú engin ráð önnur en leita liðsinn-
is forsætisráðherrans, sem kom
honum til hjálpar í fyrradag.
Varðandi kosningar til borgar-
stjórnarinnar mun Verkamanna-
flokkurinn samkvæmt skoðana-
könnuninni fá 12 sæti, íhaldsmenn
7, frjálslyndir 4 og grænir 2. Þá
var einnig spurt um alþingiskosn-
ingar og hefur Verkamannaflokk-
urinn þar 48% fylgi, íhaldsflokkur-
inn 31% og frjálslyndir 15. Þetta
eru sömu tölur hjá íhaldsmönnum
og frjálslyndum og fylgi þeirra í
síðustu kosningum 1997, en þá fékk
Verkamannaflokkurinn 49% at-
kvæða.