Morgunblaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 37
M-2000
Laugardagur 15. apríl.
Háskólabíó. Kl. 16.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Requiem eftir Verdi.
Síðari flutningur Sinfón-
íuhljómsveitar Islands á Requ-
iem Verdis. Með
hljómsveitinni
koma fram ein-
söngvaram-
ir Georgina
Lukáes, Ildiko Komlosi,
anni Mongiardino,
Edward Crafts og kór Islensku
óperunnar. Stjórnandi er Rico
Saccani. www.sinfonia.is.
Kringlan. Kl. 14.
Kvennakór Reykjavíkur
stendur fyrir fyrsta norræna
kvennakóramótinu í Reykjavík
sem er haldið dagana 27. apríl
til 1. maí. Þekktir leiðbeinendur
halda námskeið, virtur gesta-
kór syngur á tónleikum og flutt
verður frumsamið mótslag eftir
íslenskt tónskáld. Á lokatón-
leikum mótsins er ráðgert að
1.500 konur syngi einum rómi
lög frá öllum Norðurlöndunum.
Gallerí Sævars Karls. Kl. 14.
Ljósmyndasýning Báru
Kristinsdóttur.
Á þessari sýningu mun Bára
sýna portretmyndir af þekktum
íslendingum. www.reykja-
vik2000.is.
Miðasala Menningarborgar
er í Upplýsingamiðstöð ferða-
mála. Bankastræti 2.
Málþing um
glæpasögur
BÓKASAMBAND íslands efn-
ir til umræðufundar um afþrey-
ingarbókmenntir í Kornhlöð-
unni við Bankastræti í dag kl.
14.00. Framsögumenn verða
Kristinn Kristjánsson, bók-
menntafræðingur og formaður
Hins íslenska glæpafélags, og
Úlfhildur Dagsdóttir bókmenn-
tafræðingur. Kristinn fjallar
um íslenskar spennusögur á
fyrri hluta aldarinnar en Úlf-
hildur tekur fyrir íslenskar
spennusögur síðustu ára.
Einnig verður lesið upp úr
nýjustu glæpasögunni, Leynd-
ardómum Reykjavíkur 2000,
sem átta höfundar hafa skrifað.
Umræður verða að framsögu
lokinni sem höfundar Leyndar-
dóma Reykjavíkur 2000 taka
þátt í. Þeir munu og árita bók-
ina fyrir lesendur.
Myndlistarvor Islandsbanka í Eyjum 2000
Vignir Jóhannsson
sýnir nýjar myndir
VIGNIR Jóhannsson sýnir vatns-
litamyndir, olíumálverk og skúlp-
túr á Myndlistarvori íslandsbanka
í Eyjum 2000. Sýningin verður
opnuð í dag kl.17 í Gallerí áhalda-
húsinu, á horni Græðisbrautar og
Vesturvegar.
Vignir Jóhannsson hefur unnið
jöfnum höndum grafík, málverk,
skúlptúr, auk leikmyndahönnunar.
Þetta er fyrsta einkasýning hans í
Vestmannaeyjum en hann hefur
haldið fjölda sýninga, jafnt einka-
sem og samsýninga bæði heima og
erlendis frá árinu 1980.
Á sýninguVignis verða málverk
á striga, vatnslitamyndir og þrí-
víddargólfverk. Þetta eru allt nýjar
mjmdir sem ekki hafa verið sýndar
áður. Hann hefur verið að vinna
með myndir sem tengjast tíman-
um, vatninu og landinu og hvernig
tíminn líður og fer um manninn.
Vignir segir að stefna hans und-
anfarin ár hafí verið að einfalda
hina sjónrænu upplifun, þannig að
allir fletir verði einfaldari. „Það má
kannski segja að ég sé að losa
Morgunblaðið/Sigurgeir
Vignir Jóhannsson hefur verið að vinna með myndir sem tengjast tím-
anum, vatninu og landinu og sýnir ný verk á Myndlistarvori í Eyjum.
sjónræna þáttinn við skrautið. Ég
stilli ekki saman miklu af andstæð-
um litum, heldur finn samhljóm í
litasamsetningum á einfaldan hátt.
Einfaldleikinn er þvi það sem ég
hef verið að fást við. Samt sem áð-
ur eru kannski að mörgu leyti
flóknar aðferðir við að ná þessu
marki, en það er tilgangurinn og
ætlunin."
Sýningin verður opin frá kl. 14-
18 sunnudaginn 16. apríl og á sama
tíma á skírdag, föstudaginn langa,
laugardaginn 22. apríl, páskadag
og annan í páskum, sem jafnframt
er síðasti sýningardagur.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Kammerkór Seltjarnarneskirkju ásamt Sigrúnu Steingrímsdóttur.
Lokatónleikar
kirkj ulistahátí ð ar
KAMMERKÓR Seltjamar-
neskirlqu, undir stjóm Sigrúnar
Steingrímsdóttur, og Selkórinn,
undir stjóm Jóns Karls Einars-
sonar, koma fram á lokatónleikum
kirkjulistarviku í Seltjamar-
neskirkju í dag, laugardag, kl. 17.
Guðrún Helga Stefánsdóttir, Álf-
heiður Hanna Friðriksdóttir, Ste-
fán Stefánsson og Sigrún Jónsdótt-
ir syngja einsöng og tvísöng, m.a.
úr kantötum eftir J.S. Bach. Flutt
verða verk eftir Bach, Brackner,
Franck, Jón Ásgeirsson, Þorkel
Sigurbjömsson, Leif Þórarinsson,
Egil Gunnarsson o.fl.
Sönghópurinn Sólarmegin fagnar 10 ára afmæli sínu um þessar mundir.
Sönghópurinn
Sólarmegin 10 ára
SÖNGHÓPURINN Sólarmegin
heldur tónleika í Bíóhöllinni á Akra-
nesi í dag, laugardag, kl. 17. Tón-
leikamir er í tilefni af því að tíu ár
em liðin frá stofnun sönghópsins.
Nokkrir fyrrverandi söngfélagar
koma fram með hópnum og rifja
upp lög af fyrri efnisskrám. Fyrir
tónleika og í hléi leika þeir Andrés
Þór Gunnlaugsson, gítarleikari, og
Ólafur Stolzenwald, bassaleikari,
fyrir gesti í anddyri Bíóhallarinnar.
Sönghópurinn var stofnaður í jan-
úarmánuði 1990 af nokkrum söng-
áhugamönnum og -konum á Akra-
nesi og hefur hann starfað samfleytt
síðan. Hópurinn er tvöfaldur kvar-
tett, þ.e. íjórar konur og fjórir karl-
Viður og gler í
Listasetrinu
TRAUSTI Bergmann og Ólöf Sæ-
mundsdóttir opna sýningu á verkum
sínum í Listasetrinu, Skólavörðustíg
17, í dag, laugardag, kl. 11.
I verkum sínum blanda þau saman
viði og gleri á nýstárlegan hátt, segir
í fréttatilkynningu.
Sýningin stendur fram að páskum.
--------------------
Vorsöngur
SÖNGDAGSKRÁ verður í Hall-
grímskirkju í dag, laugardag, kl. 15,
á vegum Bama- og unglingakórs
kirkjunnar. Fram koma Graduale-
kór Langholtskirkju, Unglingakór
Selfosskirkju, Kór Snælandsskóla
ásamt Bama- og unglingakór Hall-
grímskirkju.
ar sem öll hafa reynslu af kórsöng.
Hópurinn hefur komið víða fram,
m.a. í útvarpi og sjónvarpi. Frá 1993
hefur Guðmundur Jóhannsson
stjómað hópnum en fyrstu árin
sljómaði Ragnheiður Ólafsdóttir.
Nýlega festi hópurinn kaup á
söngkerfi og má segja að þar hafi
haldist í hendur örlitið breyttar
áherslur í lagavali og áhugi manna
á að reyna eitthvað nýtt, segir í
fréttatilkynningu.
Hremlætis
Stuitusett
frákr. 2.990,-
Sturtutæki
frá kr. 8.990.
HIISASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
OROBUI skrefi
oroblu@sokkar.is www.sokkor.is
Fermingartilboð
20% afsláttur
af öllum OROBLU sokkabuxum.
Kynning í Apólekinu, Smáratorgi, í dag kl. 13-17
Tilboð gilda einnig í Apótekinu Skeifunni, Apótekinu í Nýkaup
Kringlunni, Apótekinu Suðurströnd, Apótekinu Spönginni,
Apótekinu Mosfellsbæ, Hafnarfjarðar Apóteki,
Apótekinu Iðufelli og Apótekinu Smiðjuvegi.
Apwtekið
Smáratorgi 1, sími 564 5600