Morgunblaðið - 15.04.2000, Side 50
50 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Stj örnu-
bj armi í
fj ölmiðlum
Kvikmyndastjarnan ogyndi allra ung-
lingsstúlkna, Leonardo DiCaprio, brá
undirsig betri fætinum fyrirskömmu og
skrapp í heimsókn í Hvíta húsid til
Clinton Bandaríkjaforseta.
Þar settust þeir félag-
amir niður og spjöll-
uðu saman í tuttugu
mínútur um umhverf-
ismál. Það hefði vart
verið í frásögur fært nema vegna
þess að í föruneyti Leo kvik-
myndastjömu vora kvikmynda-
tökumenn ABC-sjónvarpsstöðvar-
innar, sem tóku spjallið upp á
band, til sýningar í fréttaþætti
stöðvarinnar. Fréttamenn ABC,
sérstaklega þeir sem starfa í Was-
hington og hafa meðal annars við-
töl við Bandaríkjaforseta á sinni
könnu, brugðust ókvæða við þegar
þeir fréttu að kvikmyndastjaman
unga hefði
VIÐHORF fengið þetta
------ virðulega
Eftlr Eftlr verkefni hjá
Hönnu Katrinu sjónvarpsstöð-
Friðriksen inni. Þeim
þótti enda sem öðrum að með
þessu væri sjónvarpsstöðin að
gera lítið úr starfi og reynslu
fréttamanna sinna og gengislækka
sjónvarpsfréttaviðtöl. Forráða-
menn sjónvarpsstöðvarinnar áttu
greinilega ekki von á þessum við-
brögðum og ruku í kjölfarið upp til
handa og fóta með afsakanir og
skýringar. Meðal annars gáfu þeir
út yfirlýsingu þess efnis að alls
ekki mætti líta svo á að ætlunin
hefði verið að sjónvarpa samtalinu
sem alvöra fréttaviðtali, þetta
hefði meira verið til gamans gert,
enda enginn svo vitlaus að senda
kvikmyndaleikara að taka viðtal í
stað fréttamanns. Sjónvarpsstöðin
hefði bara ætlað að íylgjast með
rölti Leos og Bills um ganga Hvíta
hússins, þar sem umhverfisvemd-
arsinninn DiCaprio fengi að skoða
hvemig Hvíta húsið stendur sig í
stykkinu við endurvinnslu og
orkuspamað. Það hefði síðan verið
Hvíta húsið sem skyndilega hefði
ákveðið að valdamesti maður
heims skyldi veita kvikmynda-
stjömunni vinsælu viðtal.
I Hvíta húsinu var hlegið að yf-
irklóri ABC. Þar á bæ bentu menn
á að viðtöl við forsetann væra
skipulögð með góðum fyrirvara og
svo hefði einnig verið í þetta sinn.
ABC hefði óskað eftir viðtali og
það hefði verið veitt. Eftir það var
það sjónvarpsstöðinni í sjálfsvald
sett hvaða blaðamaður fengi heið-
urinn. Umboðsmaður DiCaprio
kom líka af fjöllum og sagði dreng-
inn hafa undirbúið sig vel og vand-
lega fyrir atburðinn. Forsetinn
gerði að gamni sínu og benti ABC
á að það væra ekki mistökin sem
gerðu út um menn, heldur yfir-
hylmingin. Og ef það er eitthvað
ráð sem Clinton getur veitt úr eig-
in reynslubanka, þá er það einmitt
þetta.
Eftirleikurinn hefur allur verið
heldur hlægilegur. Til að friða
fréttamenn sína sagði ABC það ól-
íklegt að viðtalið „óvænta" yrði
nokkum tímann birt, en Hvíta
húsið svaraði kuldalega að það
yrði þá í fyrsta skipti sem forseti
Bandaríkjanna veitti viðtal, sem
þætti ekki tUefni tál að birta. Eftir
nokkra hringi í skelftngaræði varð
niðurstaða ABC sú, að birta hluta
viðtalsins á næstunni. Þannig telja
þeir sig lfldega ná að gera öUum tíl
hæfis. Það er ekki að furða að mál
skoUst tU í fjölmiðlaheiminum í
Vesturheimi. Vinsældir era kjör-
orð dagsins og í kapphlaupinu um
þær gleyma fjölmiðlar stundum
hlutverki sínu. ABC virðist reynd-
ar Ula haldið af slíkri gleymsku
þessa dagana, því stutt er síðan
sjónvarpsstöðm sendi helstu
fréttakonu sína að taka viðtal við
EUan nokkum Gonzalez. Sá er
frægur vegna forræðisslagsmála í
fjölskyldunni og þess vegna æski-
legur viðmælandi. Sú staðreynd að
hann er aðeins sex ára gamaU þarf
ekkert að þvælast fyrir. En þegar
saumað var að ABC vegna þessa
máls kom £ Ijós að þama var
reyndar alls ekki um viðtal að
ræða, heldur hafði fréttakonan
fengið að fara í „heimsókn undir
eftirUti". Sjónvarpsáhorfandinn
heima í stofu sá hins vegar engan
mun þar á.
í kjölfar hinnar hlægUegu upp-
ákomu ABC, DiCaprio og CUntons
í Hvíta húsinu, þar sem kvik-
myndastjaman sá sér lfldega hag í
að mæta á sjónvarpsskjáinn sem
talsmaður umhveifismála eftir að
hafa sætt mikilU gagnrýni umhverf-
isvemdarsinna fyrir atgang töku-
Uðs kvikmyndar sem hann lék í á
Taflandi, og þar sem Clinton sá sér
hag í að ná augum og eyrum unga
fólksins, þá var áhugavert að lesa
um ræðu Bandaríkjaforseta á þingi
ritstjóra bandarískra dagblaða.
Forsetinn lýsti því yfir, að hann
teldi Utlar Ukur á að Netið myndi
ógna dagblöðum. Dagblöðin myndu
halda velU af þeirri ástæðu að þau
gætu veitt ítarlegar upplýsingar
um mál, sem hvorki netmiðlar né
sjónvarpsstöðvar gætu gert.
Fréttastofan Associated Press
hafði eftir forsetanum við sama
tækifæri, að hann hefði mestar
áhyggjur af því, að fólk gæti nálg-
ast upplýsingar um allt miUi him-
ins og jarðar, en gæti engan veg-
inn gengið úr skugga um að þær
upplýsingar væra réttar. Og jafn-
vel þótt upplýsingamar væra rétt-
ar, þá ætti fólk erfitt með að setja
þær í rétt samhengi. Þar kæmu
dagblöðin til skjalanna og mildl-
vægi þess hlutverks þeirra að
koma hlutunum tíl skfla á vandað-
an og skýran hátt yrði seint ofinet-
ið. MeðaJ annars væri hlutverk
þeirra þýðingarmikið við að skýra
fyrir lesendum sínum hvemig
rannsóknir á sviði erfðafræðirann-
sókna færu fram og hveijar væra
pólitískar og félagslegar afleiðing-
ar þeirra. Þessar upplýsingar
kæmu ekki fram ef stytta þyrfti
fréttir og klippa niður í hæfilega
lengd í netmiðlum og sjónvarps-
stöðvum.
Það er vel viðurkennt að jafnt
sem fjölmiðlar skapa frægðina er
frægðin aðgöngumiði að fjölmiðl-
um. Þessi jafna hefur hins vegar
oft á tíðum gert fréttafjölmiðlun
hinn mesta óleik. Það er því gott tU
þess að vita að þrátt fyrir stundar-
glýju vegna stjömubjarma sé fólk
enn sér meðvitandi um mikUvægi
vandaðs fréttaflutnings fagfólks
eins og orð forseta Bandaríkjanna
bera með sér.
Fitu- og orkuinnihald í skyri og sýrðum mjólkurvörum
Mjólkurvörur gfita/100g
Skyr, hreint
Skyr með ávöxtum
Bíómjólk með appelsínum
Léttjógúrt með korni
Létt súrmjólk
Létt ab mjólk
Keila
Jógúrt með ávöxtum
Skólajógúrt með lakkrís
ab mjólk
Súrmjólk
Rjómaskyr með ávöxtum
Skólaskyr með jarðarb.
Þykkmjólk með korni
abt mjólk með múslí
Þykkjógúrt með korni
Pascual jógúrt
Engjaþykkni með múslí
B 0,2
E 0,4
■ 1,3
m 1,3
■ 1,5
H 1,5
1 1,8
m 3,3
kkal/100g
3 65
98
I i 68
l-; ^ ■' • I 83
I I 42
I I 44
I I 75
I I 95
I. I ........1 92
!,,,!> . I 71
M '-I 65
g.a;.aa..æ, 127
3 115
3120
99
] 110
3] 128
33 134
Nýjar mjólkurvörur
létta okkur lífið
Nýjar hollustuvörur eru smám saman að
birtast í mjólkurkælum matvöruverslana.
Laufey Steingrímsdóttir segir að lífíð geti
því væntanlega orðið svolítið auðveldara
fyrir þá sem vilja koma línunum í lag og
huga að heilsunni.
MÖRGUM fannst sjálfsagt tími til
kominn að fjölbreytnin væri aukin á
þessu sviði því hingað til hafa feitar
og sætar mjólkurvörur verið í mikl-
um meirihluta í framleiðslunni. Við-
tökur KEA skyrsins, sem heldur
betur slær í gegn um þessar mundir,
sýna líka að neytendur kunna vel að
meta nýjungar í hollustuátt - svo
framarlega sem varan er góð. Nú er
komin önnur hollustuvara, létt ab
mjólk, sem vonandi á eftir að fá svip-
aðar móttökur. Þessi fitulitla vara
ætti að minnsta kosti að koma sér vel
fyrir aðdáendur ab mjólkur, því
bragð og áferð léttu vörannar er
áþekkt þeirri feitu, það eina sem
virðist ólíkt er fitumagn og hitaein-
ingar. Áður hafði létt súrmjólk bæst
við úrvalið svo nú fer að verða lítil
ástæða til að bæta á sig fitu og auka-
kílóum vegna mjólkurneyslu, hvorki
fyrir böm né fullorðna.
Spánska jógúrtið í ætt
við búðing
En það era ekki allar nýjungar í
hoUustuátt. T.d. verður það varla
sagt um innflutta jógúrtið frá Spáni,
Pascual, sem eins og meðfylgjandi
töflur sýna, slær flest met á íslensk-
um markaði hvað varðar fitumagn og
kaloríur, og var þó úrvalið ærið fyrir
af slíkum vöram. Raunar er spænska
jógúrtið meira í ætt við búðing en
jógúrt, það inniheldur t.d. matarlím
og er ekki með lifandi jógúrtgerlum.
Það er athyghsvert að á heimasíðu
Pascual kemur fram að fyrirtækið
framleiðir líka fitusnautt jógúrt í
töluverðu úrvali. Innflytjendur hafa
þó ekki talið ástæðu til að bjóða okk-
ur þá vöra þótt þar hafi frekar verið
vöntun á markaðnum.
Skyrið er
fítuminnst
í töflunum sem hér fylgja er gefið
upp fitumagn og hitaeiningar í ólík-
um tegundum af sýrðum vöram og
skyri. Þar kemur í Ijós að skyrið er
fituminnsta varan, enda unnin úr
undanrennu, en engjaþykknið sú
feitasta. Hins vegar er skyrið ekki
með fæstar hitaeiningar, jafnvel ekki
sykurlaust skyr. Það kemur til af því
að skyrið er matarmeira, þéttara og
mun próteinríkara en sýrðu vöram-
ar. Skyr er af þessum sökum mjög
saðsöm og heppileg vara fyrir þá
sem vilja grennast eða koma í veg
fyrir að þyngjast - og það á jafnvel
líka við um skyr með ávöxtum. Ef
bæði er blandað rjóma og sykri í
skyrið verður niðurstaðan þó önnur.
Þannig er t.d. svokallað skólaskyr
með feitari og orkuríkari vöram á
markaðnum.
Vörur án viðbætts
sykurs
Fæstu hitaeiningarnar eru hins
vegar í léttu súrmjólkinni og léttu ab
mjólkinni sem era nánast einu sýrðu
vörurnar án viðbætts sykurs - fyrir
utan fullfeitu afbrigðin af sömu vör-
um. Sykurinn hleypir auðvitað ork-
unni upp og því verða fituskertar
sýrðar vörar t.d. bíómjólk, létt jóg-
úrt og keila svipaðar venjulegri súr-
mjólk að orkugildi þegar uþp er stað-
ið. Flestir virðast þó kjósa að hafa
einhvern sykur, t.d. ávexti, til mót-
vægis við súra bragðið. Til að koma í
veg fyrir að úr slíku verði ein alls-
herjar kaloríubomba er ráð að velja
fituminni afbrigðin. Best er auðvitað
að velja þau sykurlausu og fitu-
skertu. Þá getum við alla vega
stjómað sjálf sykurmagninu sem fer
út á diskinn.
Höfundurer forstöðumaður Mann-
eldisráðs íslands.
V erkefnisstj óri Samstarfsverkefnis NS og ASI
Erfítt að fá upplýsingar
um bílverð án gjalda
SAMSTARFSVERKEFNI NS og
ASÍ-félaga á höfuðborgarsvæðinu
barst fyrir nokkra skýrsla frá
Evrópusambandinu þar sem borið er
saman bflverð í öUum Evrópusam-
bandslöndunum og í henni er birt
verð í hverju landi fyrir sig án allra
gjalda.
Að sögn Ágústu Ýrar Þorbergs-
dóttur, verkefnisstjóra Samstarfs-
verkefnisins, hefur hún nú um nokk-
urra vikna skeið reynt að nálgast
upplýsingar hjá bílaumboðunum um
verð á bílum án gjalda eins og vöru-
gjalds og virðisaukaskatts en án ár-
angurs.
„Þegar við fengum skýrsluna frá
Evrópusambandinu í hendur fannst
okkur spennandi að fá þessar upp-
lýsingar um verð án gjalda frá bfla-
umboðum á íslandi og bera saman
við evrópsku könnunina.
Við leituðum til tíu bflaumboða hér
á landi, ístraktors, Heklu, Bifreiða
og landbúnaðarvéla, Brimborgar,
Honda á íslandi, Ræsis, bílaumboðs
Ingvars Helgasonar, Bflheima,
Suzuki bfla og P. Samúlessonar. Af
þessum tíu umboðum svöruðu ís-
traktor, Brimborg og bflaumboð
Ingvars Helgasonar.
Honda á íslandi, Bifreiðar og
landbúnaðarvélar, Bflheimar og
Suzuki-bflar svo og P. Samúelsson
neituðu að gefa okkur þessar upp-
lýsingar og frá hinum umboðum hef-
ur ekki tekist að fá svör.
Forsvarsmaður eins bflaumboðs-
ins svaraði mér því til að hvorki Sam-
starfsverkefninu né neytendum
kæmi við hver álagning á bflum væri.
Markmiðið er ekki að gefa upp
álagninguna heldur að bera okkur
saman við hin löndin. Það er greini-
legt að umboðin era hrædd við að
gefa upp þessar upplýsingar og
spumingin er hvað þau séu að fela?
Ágústa segir að eini aðilinn fyrir
utan bflaumboðin sem getur veitt
þessar upplýsingar sé tollayfirvöld
og hún segir að Samstarfsverkefnið
muni reyna að nálgast þessar upp-
lýsingar þar.
Hægt að fara aðrar leiðir
Bogi Pálsson formaður Bflgreina-
sambandsins, segir að tilgangurinn
með verkefnum Samstarfsverkefnis
Neytendasamtakanna og ASÍ-félaga
á höfuðborgarsvæðinu hljóti að vera
að halda uppi virku eftirliti með því
að verð á markaðnum sé samkeppn-
ishæft. „Við sjáum ekki að það sé
þörf á að fara þessa leið til að skoða
hvort íslensk bflaumboð séu með
samkeppnishæft verð og teljum að
það megi skoða út frá söluverði sem
er á bflum í samanburði við þróun
verðbólgu og kaupmáttar. Þjóðhags-
stofnun hefur sundurUðað uppbygg-
ingu verðs á bflum hér á landi og
gögnin Uggja þar fyrir.“
Bogi segir að ekki komi til greina
að bflaumboðin fari að gefa upp
álagningu sína og bendir á að hún sé